Þjóðviljinn - 22.05.1987, Qupperneq 14
______ALÞÝÐUBANDALAGIÐ------------------
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Kosningahappdrætti ABR
Drætti í kosningahappdrættinu hefur veriö frestað til 1. júní. Þeir sem enn
eiqa eftir að gera skil eru beðnir að gera það hið fyrsta.
Frá Skrifstofu Alþýðubandalagsins
Sumartími
(sumar er skrifstofa AB opin frá kl. 9-16 alla virka daga. Síminn er 17500.
Alþýðubandalagið í Reykjavík er með opna skrifstofu á Hverfisgötu 105
frá kl. 10-12 alla virka daga.
Tímaritstölurnar
Vinningstölur í happdrætti tímaritsins G-87 á Reykjanesi eru þessar: 12488
- 15901 - 5454 - 16548 - 11459.
Nánari upplýsingar í síma 41746.
Alþýftubandalagið Reykjanesi
Alþýðubandalagið Akureyri
Aðalfundur
verður haldinn í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18, fimmtudaginn 4. júní kl.
20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Allir félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin
G-listinn Reykjanesi
Listaverkahappdrættið
Vinningstölur í Listaverkahappdrætti G-listans á Reykjanesi. Upp komu
eftirtaldar töiur í þessari röð: 1) 6074 2) 5134 3) 11849 4) 7215 5) 4804 6)
3452 7)4425 8)10745 9)3051 10)5111 11)1138612)1061 13)507614)
11360 15) 10011 16) 7169 17) 9021 18) 11575 19) 7727 20) 4691.
Vinningshafar hafi samband við skrifstofu Alþýðubandalagsins í Kópa-
vogi, sími 41746 sem fyrst.
Alþýðubandalagið Reykjanesi
Ráðstefna um málefni Nicaragua
Alþýðubandalagsfélagar ru hvattir til að mæta á ráðstefnu til stuðnings við
málefni Nicaragua sem haldin verður laugardaginn 22. maí í nýja Sóknar-
salnum við Skipholt, kl. 10 árdegis.
D'agskrá: Guðríður Elíasdóttir varaformaður ASÍ flytur ávarp. Samfelld
dagskrá. Ýmsir málaflokkar ræddir.
Björn Lind, félagi í sænsku Nicaraguahreyfingunni, sýnir litskyggnur frá
Nicaragua og kvikmyndina Ógnunin. Þá gerir hann grein fyrir stuðningi
Svía við Nicaragua.
Almennar umræður og fyrirspurnir.
Pallborðsumræður, þar sem fulltrúar ýmissa félagssamtaka sitja fyrir
svörum.
Utanríkismálahópur Alþýðubandalagsins.
ÆSKULÝÐSFYLKlNGIN
ÆFR - stjórnarfundur
Opinn stjórnarfundur ÆFR verður haldinn sunnudaginn 24. maí kl. 14.00.
Fundarefni: 1) Starfið framundan. 2) Keflavíkurganga. 3) Fjármálin.
Stjórnin
Útboð
Stjórn verkamannabústaða í Kópavogi óskar eftir tilboðum í 2.
áfanga í byggingu 25 íbúða í fjölbýlishúsi við Hlíðarhjalla 51 -55 í
Kópavogi.
Boðnir verða út eftirfarandi verkhlutar:
A. Uppsteypt hús, tilbúið undir tréverk og málningu, ásamt frá-
gangi utanhúss.
B. Hita- og hreinlætislagnir.
C. Raflagnir.
Heimilt er að gera tilboð í alla verkhlutana, eða hvern fyrir sig
sérstaklega.
Útboðsgögn eru afhent gegn skilatryggingu frá föstudeginum 22.
maí kl. 2 e.h. á skrifstofu VBK, Hamraborg 12, 3. hæð, Kópavogi,
sími 45140.
Tilboð verða opnuð miðvikudaginn 10. júní 1987 kl. 14.00 í Fé-
lagsheimili Kópavogs, Fannborg 2, 2. hæð.
Stjórn VBK.
Laus staða
Staða safnvarðar í Þjóðminjasafni íslands, þjóðháttadeild, er laus til
umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa
borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir
15. júní næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið 20. maí 1987
___MINNING
Þóroimur
Júlíusson
fœddur 26. 12. 1947
í dag verður ástkær bróðir okk-
ar, Þórormur, borinn til hinstu
hvfldar. Hann var sonur hjón-
anna Þóru Karólínu Þórorms-
dóttur og Júlíusar S. Júlíussonar,
fæddur í Reykjavík þann 26. des-
ember árið 1947. Þriggja ára
gamall fluttist hann ásamt fjöl-
skyldu sinni í Kópavog og bjó þar
alla tíð síðan. Systkinin urðu alls
átta þannig að Þórormur óist upp
í stórum systkinahópi. Hann var
alla tíð mjög tengdur bernsku-
heimili sínu og hafði náið sam-
band við foreldra sína og systkini.
Bernskuárin voru skemmtilegt
tímabil í ævi Þórorms. Hann átti
marga vini og dagarnir liðu við
leik í hópi félaganna. Fótbolta-
völlur bæjarins var hinum megin
götunnar, þar undi Þórormur sér
vel enda eftirsóttur í knatt-
spyrnuleiki strákanna í hverfinu.
Því hann var snjall leikmaður.
Á þessum árum dvaldist hann
tvö sumur í sveit hjá systkinum
móðurömmu sinnar, á Eyri við
Fáskrúðsfjörð. Þau voru hrifin af
hinum unga heimilismanni og
hann undi vel hag sínum í
sveitinni.
Þórormur var vel gefinn til
bóknáms. Ungur hafði hann hug
á að læra arkitektúr. Af því gat þó
ekki orðið því strax á unglingsár-
unum gerðu þau veikindi vart við
sig er síðar drógu hann til dauða.
Áhuginn á húsagerðarlist var þó
alltaf samur, hann teiknaði og
skipulagði hús í frístundum sín-
um og hafði gaman af því að
skoða ný hús og bæjarhverfi.
Þórormur hafði mikinn áhuga
á ferðalögum og ferðaðist mikið
hér innanlands. Haustið 1969
ferðaðist hann í nokkrar vikur
um Bandaríkin og Kanada með
ættingjum sínum. Þeim okkar
sem í hópnum voru er sérstaklega
minnisstætt hve góður ferðafélagi
hann var.
Þórormur var sérstaklega list-
fengur. Hann fékkst bæði við
leirmunagerð og ýmiss konar
listasaum, sjálfum sér og öðrum
til mikillar ánægju, því listmunir
hans prýða heimili foreldra hans,
systkina og annarra.
í leirmunagerð þótti hann sér-
- dáinn 12. 05. 1987
staklega efnilegur, en veikindin
komu í veg fyrir að hann nyti sín
sem skyldi á því sviði.
Meðan heilsan leyfði vann Þór-
ormur ýms störf. Hann var ein-
staklega góður verkmaður, bæði
laginn og afkastamikill, og hann
vann öll störf sín af alúð og
áhuga.
Þótt árin sem starfsorka hans
entist væru ekki mörg tókst hon-
um að eignast eigin íbúð með
mikilli vinnu og ráðdeildarsemi. í
þeirri íbúð bjó hann sfðustu ævi-
árin.
Þegar heilsunni hrakaði varð
Þórormur oft að dveljast á
sjúkrahúsum vegna veikinda
sinna. Þá vann hann eftir því sem
hann gat á vernduðum vinnu-
stöðum og stundaði jafnframt
áhugamál sín af kappi.
Þórormur hafði til að bera
göfugt lundarfar, hann var bæði
trygglyndur og heiðarlegur í alla
staði.
Elsku bróðir það er sárt að sjá á
bak þér. Við þökkum þér ailar
góðu og skemmtilegu stundirnar,
þú varst góður félagi og vinur.
Systkinin
DJÚÐVIIJINN
45 68 13 33
Tíminn
0 68 63 00
Blaðburður er
BESTA TRIMMIÐ
og borgar sig
Blaðbera
vantar
víðsvegar
um borgina
DJOÐVILJINN
Síðumúla 6
0 68 13 33 N—^
ÍÞBÓTTIR
0g
þette
Uka...
Spánverjar
hafa ákveðið að hætta við úrslita-
keppnina í deildinni. Þeir reyndu það
þetta tímabil, en hvorki leikmenn né
áhorfendur voru ánægðir með það.
Flestir leikir úrslitakepninnar skipta
engu máli og segjast liðin tapa pen-
ingum á leikjunum. Það var því sam-
þykkt í gær að fella niður úrslita-
keppnina, en þess í stað að fjölga
liðum í 1. og 2. deild úr 18 í 20.
Chelsea
hefur keypt Tony Dorigo frá Aston
Villa. Kaupverðið var tæp hálf miljón
sterlingspund. Þráttfyrirað Dorigosé
fæddur á Ástralíu hefur hann leikið
með enska U-21 árs landsliðinu.
Nokkrir landsleikir
hafa farið fram að undanförnu. Danir
sigruðu Grikki, 5-0 í undankeppni ol-
ympíuleikanna og Rúmenía og Pól-
land gerðu markalaust jafntefli. Þá
sigraði Sviss Israel í vináttulandsleik,
1-0. Christophe Donvin skoraði
sigurmarkið, en þetta var hans fyrsti
landsleikur.
Beerschot
keypti nú fyrir skömmu hollenska
landsliðsmenninn Simon Tahamata
frá Feyenoord. Kaupverðið var ekki
gefið upp. Tahamata, sem er 31 árs,
lék áður með Ajax og Standard
Liege.
Klaus Allofs
fyrirliði þýska landsliðsins í knatt-
spyrnu mun halda þeirri tign þó hann
fari til Marseille í Frakklandi. Her-
mann Neuberger, formaður þýska
knattspyrnusambandsins, hafði lýst
því yfir að honum fyndist það ekki rétt
að leikmaður utan Þýskalands væri
fyrirliði. Franz Beckenbauer, þjálfari
Þjóðverja, er á öðru máli og segir Al-
lofs hafa unnið fyrir stöðunni.
Uwe Rahn
leikmaður með Gladbach má gjöra
svo vel að taka uppúr töskunum sín-
um að nýju. Han var á leið til PSV
Eindhofen og samningar á lokastigi.
Forráðamenn Gladbach, hafa nú
hætt við söluna. Þeir sögðust ekki
vilja valda áhorfendum vonbrigðum,
auk þess sem tilboð PSV væri ekki
nógu hátt.
Þá hefur Köln fengið til liðs við sig
Jurgen Kohler frá Mannheim.
Spánn
Victor
slapp
Victor Munoz, fyrirliði Barce-
lona, var dæmdur í bann fyrir
stuttu eftir brottvísun um síðustu
helgi. En banninu hefur nú verið
aflétt.
Þegar aganefndin leit á atvikið
á myndbandi kom í ljós og Victor
var saklaus. Hann var sendur útaf
fyrir brot, en á myndbandinu
kom í ljós að annar leikmaður
Barcelona er hinn seki.
Victor leikur því með Barce-
loona gegn Real Madrid um
næstu helgi. Real hefur þriggja
stiga forskot, en nú eru aðeins
fjórar umferðir eftir. Úrslitin
ráðast því líklega í þessum leik.
-ibe/Reuter