Þjóðviljinn - 22.05.1987, Page 15
ÍÞRÓTHR
l.deild
Jafnt í Garðinum
Samkvæmt spádómum hefðu
Valsmenn átt að fá þrjú stig,
auðveldlega í Garðinum í gær. En
það er ekki alltaf að marka spá-
dóma og Valsmenn náðu aðeins
jafntefli 1-1 og jöfnuðu reyndar
ekki fyrr en undir lok leiksins.
Valsmen voru þó sterkari og
sóttu mun meira. Strax á 7. mín-
útu átti Jón Grétar Jónsson skalla
í stöng.
En gegn gangi leiksins náðu
Víðismenn forystu. Grétar Ein
arsson gaf góða sendingu á Guð-
jón Guðmundsson sem var við
vítateig og hann skoraði með
föstu skoti.
Það sem eftir var af fyrri hálf-
Víöir-Valur 1-1 (1-0) * *
Garðsvöllur 22 maí
Dómari: Kjartan Ólafsson **
Áhorfendur 700
1-0 Guðjón Guðmundsson
(17. mín), 1-1
Magni Pétursson (78. mín)
Stjörnur Víðis:
Gfsll Helðarsson * *
Danfel Einarsson *
Guðjón Guðmundsson *
Stjörnur Vals:
Slguyrjón Kristjánsson *
Magnl Pótursson *
Jón Grétar Jónsson *
leik sóttu Valsmenn stíft en Víð-
isvörnin var sterk.
Valsmenm héldu uppteknum
hætti í síðari hálfleik og sóttu
stíft. Það kom því í hlut Víðis-
manna að verjast og gekk það
vel. Þó skall hurð nærri hælum er
Sævar Leifsson bjargaði á línu og
aftur stuttu síðar er Sigurjón
Kristjánsson átti skot í stöng.
Ingvar Guðmundsson átti svo
hörkuskot sem Gísli Heiðarsson
varði vel.
Það var loks á 78. mínútu að
Valsmenn jöfnuðu. Magni Pét-
ursson skoraði með þrumuskoti
af 35 metra færi, glæsilegt mark.
Gísli átti ekki möguleika á að
verja.
Valsmenn sóttu svo stíft það
sem eftir var en uppskáru ekki
fleiri mörk.
Gísli Heiðarsson átti mjög
góðan leik í marki Víðismanna og
á miðjunni voru þeir sterkir
Guðjón Guðmundsson og Daníel
Einarsson.
Hjá Valsmönnum voru það
Sigurjón og Jón Grétar sem voru
sprækastir í sókninni og Magni
sterkur á miðjunni.
-Sóm/Suðurnesj um
l.deild
Heppnir Skagamenn
Það má með sanni segja að
Skagamenn hafi haft heppnina
með sér í Firðinum, þegar þeir
unnu FH 1-0.
FH-ingar byrjuðu leikinn af
miklum krafti og munaði oft litlu
við mark Skagamann.
Hættulegasta færi FH kom á
17. mínútu þá fengu þeir horn og
boltinn barst fyrir markið og
Guðjón Guðmundsson átti skalla
rétt yfir ÍA markið.
Mark Skagamanna kom á 25.
mínútu. Þar var að verki varnar-
maðurinn snjalli Heimir Guð-
mundsson. Hann var einn og
FH-ÍA 0-1 (0-1) * *
Kaplakriki 21. maí.
Dómari: Eysteinn Guðmundsson * *
Áhorfendur 450
0-1 Heimir Guðmundsson( 24. mín.)
Stjörnur FH:
Guðjón Guðmundsson *
Kristján Hilmarsson *
Olafur Kristjánsson *
Stjörnur ÍA:
Birkir Kristlnsson * *
Heimir Guðmundsson *
Guðbjörn Tryggvason *
óvaldaður inni í vítateig þegar há
sending kom fyrir markið. Tveir
varnarmenn FH-inga misstu af
boltanum og Heimir lagði bolt-
ann fyrir sig og skoraði örugg-
lega.
FH-ingar lögðu nú allt kapp á
sóknina og á 38. mínútu átti
Leifur Garðarson hjólhestasp-
yrnu að marki í A en Birkir Krist-
insson varði vel.
Síðar hálfleikurinn hófst eins
og sá fyrri endaði. FH-ingar alveg
í bullandi sókn og hreinlega óðu í
færum. Ekki tókst þeim samt að
nýta sér þau. Á 83. mínútu mun-
aði þó litlu. Ólafur Kristjánsson
tók þá aukaspyrnu rétt fyrir utan
vítateig og gaf góða sendingu inn
í teiginn. Þar var mikil þvaga en
Pálma Jónssyni tókst að skalla að
marki ÍA en Birkir Kristinsson
varð mjög vel.
Síðustu mínúturnar lágu FH-
ingar í sókn og áttu oft góð skot
að marki Skagamanna. Birkir
Kristinsson varði oft meistara-
lega og geta Skagamenn þakkað
honum fyrir stigin þrjú. Ó.St.
l.deild
Naumt hjá KR-ingum
KR-ingar sigruðu KA, 1-0 í leik
þarsem baráttan var í fyrirrúmi.
Leikur liðanna var ekki mikið
fyrir augað en þó komu ágætir
kaflar inná milli.
KR-ingar voru öllu sókndjarf-
ari og strax á 4. mínútu komst
Björn Rafnsson einn í gegn en
Haukur Bragason varði mjög vel.
Haukur varði svo aftur vel auka-
spyrnu frá Pétri Péturssyni.
En KA-menn áttu einnig sín
færi og Tryggvi Gunnarsson fékk
góða sendingu frá Þorvaldi Ör-
KA-KR 0-1 (0-1) ★ ★
KA-völlur 21. maí
Dómari:Óli Olsen ★★
Áhorfendur 1085
0-1 Gunnar Skúlason (42. mín)
Stjörnur KR:
Águst Már Jónsson *
Andri Marteinsson *
Þorsteinn Halldórsson *
lygssyni, en var of seinn að átta
sig.
Friðleifur Hermannsson átti
svo þrumuskot sem Páll Ólafsson
varði mjög vel.
KR-ingar náðu svo forystunni
rétt fyrir lékhlé. Gunnar Skúla-
son skoraði þá af öryggi eftir að
hafa fengið boltann úr þvögu eftir
horn.
Síðari hálelikurinn var svo tíð-
indalítill og eina færið kom á 80.
mínútu. Pétur Pétursson lék þá í
gegnum vörn KA en skot hans fór
í varnarmann.
Þorvaldur Örlygsson var best-
ur í liði KA og Erlingur Kristjáns-
son átti góða spretti á miðjunni.
Hjá KR stjórnaði Ágúst Már
Jónsson vörninni og Þorsteinn
Halldórsson var sterkur á miðj-
unni. Andri Marteinsson átti
einnig góðan leik, en hann var
borinn af leikvelli í síðari hálfleik
eftir að hafa fengið krampa.
-HK/Akureyri
Jónas Róbertsson kemur Þórsurum yfir úr vítaspyrnu, Friðrik ekki langt frá boltanum. Á innfelldu myndinnni skorar
Hlynur Birgisson fyrsta mark Þórsara. Jón Sveinsson gerir örvæntingarfulla tilraun til að stöðva hann. Mynd:E. Ól.
l.deild
Baráttuglaðir Þórsarar
Hirtu öll stigin gegn Fram í baráttuleik
Baráttuglaðir Þórsarar voru held-
ur betur á skotskónum er þeir sigruðu
meistara Fram í fyrsta leik liðanna í
íslandsmótinu.
Þórsarar léku af fullum krafti allan
leikinn og þrátt fyrir að eiga ekki
mörg færi, skoruðu þeir þrjú mörk.
Framarar voru hinsvegar iðnir við að
koma sér inní vítateig Þórsara, en
þegar þangað var komið gekk illa að
koma boltanum síðasta spölinn, yfir
línuna.
En Framarar voru sterkari í upp-
hafi. Pétur Arnþórsson komst í gott
færi strax á 1. mínútu, en Baldvin
Guðmundsson markvörður Þórs sá
við honum.
Nafanarnir Pétur Arnþórsson og
Pétur Ormslev voru mest áberandi í
sóknarleik Framara og á 22. mínutu
fengu þeir gott færi. Viðar Þorkelsson
lék upp kantinn og gaf fyrir á Pétur
Ormslev, hann reyndi hjólhestasp-
yrnu sem fór í varnarmann og þaðan
til Péturs Arnþórssonar, en hann náði
ekki til boltans í góðu færi.
Þórsarar komu smátt og smátt
meira inn í leikinn og á 26. mínútu
náði Hlynur Birgisson boltanum eftir
varnarmistök. Hann lagði boltann
fyrir Guðmund Val Sigurðsson sem
skaut þrumuskoti frá vítateig, en yfir.
Framarar áttu heldur meira í spi-
linu og á 37. mínútu bar það loks ár-
angur. Pétur Ormslev lék þá upp
hægri kantinn og gaf fyrir á Pétur
Arnþórsson sem var á markteig.
Hann „fleytti“ boltanum fram hjá
Baldvin í markinu, í stöngina og inn.
Laglegt mark og vel að því staðið.
Þremur mínútumsíðarátti Kristján
Kristjánsson skot frá vítateig sem
Friðrik Friðriksson varði vel.
Á lokamínútu fyrri hálfleiks jöfnu-
ðu Þórsarar. Hlynur Birgisson stal
boltanum af sofandi varnarmönnum
Framara, lyfti boltanum yfir Friðrik
og hljóp með boltann yfir línuna.
Þórsarar mættu til leiks í síðari hálf-
leik staðráðnir í að gefa ekkert eftir.
Barátta þeirra var einstök og vörnin
mjög sterk.
Á 57. mínútu náðu gestirnir foryst-
unni. Kristján Kristjánsson átti send-
ingu á Halldór Áskelsson. Viðar
Þorkelsson renndi sér í boltann en
náði ekki til hans og felldi Halldór.
Ólafur Lárusson dómari dæmdi vít-
aspyrnu og úr henni skoraði Jónas
Róbertsson.
Framarar gáfust ekki upp og stuttu
síðar átti Viðar Þorkelsson skalla rétt
framhjá marki Þórs af markteig eftir
aukaspyrnu frá Pétri Ormslev. Þór-
svörnin var þar sofandi og Viðar einn
og vfirgefinn.
A 74. mínútu stal Hlynur boltanum
af Jóni Sveinssyni og komst einn
innfyrir vörnina. Friðrik kom útúr
markinu og varði skot Hlyns mjög
vel.
Þórsarar gerðu svo endanlega
útum leikinn á 82. mínútu með glæsi-
marki. Halldór Áskelsson átti þá skot
l.deild
í varnarmann, fékk boltann aftur og
þrumaði boltanum frá vítateig, undir
slána. Glæsilegt mark og óverjandi
fyrir Friðrik.
Það var fyrst og fremst mikil bar-
átta Þórsaranna sem skilaði þeim
þessum sigri. Þeir gáfust aldrei upp.
Framarar léku vel sín á milli en þegar
nálgaðist vítateiginn fór allt í handa-
skolum hjá þeim.
Halldór Áskelsson og Hlynur Birg-
isson voru sprækastir í sóknarleik
Norðanmanna. Og þeir Jónas Ró-
bertsson og Kristján Kristjánsson
voru báðir mjög sterkir.
Hjá Fram var það Pétur Arnþórs-
son sem dreif sókarleikinn áfram og
nafni hans Ormslev átti einnig góðan
leik. -Ibe
Fram-Þór 1-3 (1-1) ★ ★ ★
Valbjarnarvöllur 21. maí
Dómari:Ólafur Lárusson * *
Áhortendur 1152
1-0 Pétur Arnþórsson (37.mín), 1-1
Hlynur Birgisson (45.mín), 1-2 Jónas
Róbertsson (67.mín), 1-3 Halldór
Áskelsson (82.mín)
Stjörnur Fram:
Pétur Arnþórson *
Pótur Ormslev *
Kristinn Jónsson *
Stjörnur Þórs
Halldór Áskelsson *
Hlynur Birgisson *
Jónas Róbertsson *
Kristján Kristjánsson *
Lánlausir Völsungar
Það var hátíðarstemmning á Húsa-
vík í gær, þegar heimamenn léku
fyrsta leik sinn í 1. deild. Halldór
Freyr Bjarnason, formaður knatt-
spyrnudeildar Völsungs hóf daginn á
því að fara í togarann Kolbeinsey og
draga fána að húni. Víðar í bænum
var flaggað. En heimamenn sem flyk-
ktust á völlinn voru ekki sáttir við
úrslitin. Völsungar töpuðu 2-4 gegn
Keflvíkingum í jöfnum leik.
Fyrstu mínúturnar einkenndust af
taugaspennu, en Völsungar áttu
fyrstu marktækifærin. Jónas Hall-
grímsson átti gott skot sem Þorsteinn
varði og hann varði einnig frá Krist-
jáni Olgeirssyni í dauðafæri stuttu
síðar.
En á 12. mínútu kom fyrsta mark-
ið. Helgi Helgason braut þá á Gunn-
ari Oddssyni í vítateig og Óli Þór
Magnússon skoraði úr vítaspyrnunni.
Fimm mínútum síðar bættu þeir
svo öðru marki við. Peter Farrel ýtti
þá boltanum yfir línuna eftir að hafa
fengið sendingu frá Óla Þór.
Peter Farrel var ekki langt frá því
að skora rétt fyrir leikhlé. Hann
fleygði sér á mölina og skallaði að
marki, en Þorfinnur Hjaltason varði
vel.
Strax í upphafi síðari hálfleiks átti
Kristján Olgeirsson þrumuskot að
marki Keflvíkinga sem Þorsteinn
Bjarnason varði.
Á 56. mínútu kom svo þriðja mark
Keflvíkinga. Óli Þór átti þá skot sem
Þorfinnur varði og Gunnar Oddsson
fylgdi vel á eftir og skoraði.
En heimamenn voru ekki á því að
gefast upp. Hörður Benónýson fékk
góða sendingu innfyrir vörn Keflavík-
ur og lyfti boltanum yfir Þorstein, 1-3.
En Keflvíkingar juku forskotið að
nýju sjö mínútum fyrir leikslok.
Gunnar Oddsson náði þá boltanum
eftir varnarmistök og skoraði sitt ann-
að mark.
Rétt fyrir leikslok náðu Völsungar
að laga stöðuna. Þá var brotið á Krist-
jáni Ölgeirssyni fyrir innan vítateig og
Jónas Hallgrímsson skoraði af öryggi
úr vítaspyrnunni.
Leikurinn var jafn og markamun-
urinn fullmikill miðað við gang
leiksins.
Kristján Olgeirsson og Hörður
Benónýsson voru bestu menn í liði
Völsungs, sýndu mikla baráttu.
Hjá Keflvaík var Gunnar Oddsson
í sérflokki, en Þorsteinn Bjarnason
átti góðan leik í markinu.
-AB/Húsavík
Völsungur-ÍBK 2-4 (0-2) ★ ★
Húsavíkurvöllur 21. maí
Dómari: Guðmundur Haraldsson ★ ★
★
Áhorfendur 950
0-1 Óli Þór Magnússon (12. mín), 0-2
Peter Farrel (17. mín), 0-3 Gunnar
Oddsson (56. mín), 1-3 Hörður Ben-
ónýsson (73. mín), 1-4 Gunnar Odds-
son (83.mín), 2-4 Kristján Olgeirsson
(88.mín)
Stjörnur Völsungs:
Krlstján Olgeirsson * *
Hörður Benónýsson *
Stjörnur ÍBK:
Gunnar Oddsson * *
Hörður Benónýsson *
Föstudagur 22. maí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15