Þjóðviljinn - 22.05.1987, Side 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómnuiNN
Föstudaour 22. mal 1987 114. tölublað 52. ðrganour
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
Góðæri hjá vmnslunni
ÚtflutningurtilJapans jókst um 96%, Bretlands um 40% og Frakklands um 24%. Samdráttur íútflutningi til Bandaríkjanna
nam 9% og til Sovétríkjanna um 24%. Miðað við magn jókst útflutningur SH um 8% en í krónum talið um 30%
Um verulega aukningu var að
ræða til allra helstu markaðs-
landa Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna í fyrra, annarra en
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
Hlutfallslega var aukningin mest
til Japans eða um 96%, Bretlands
um 40% og Frakklands um 24%.
Útflutningurinn til Bandaríkj-
anna dróst saman um 9% og um
24% til Sovétríkjanna, sagði Jón
Ingvarsson, stjórnarformaður
SH, á aðalfundi hennar sem hófst
í Reykjavík í gær.
Pað kom fram í máli Jóns að
heildarframleiðsla frystihúsa
innan SH í fyrra var 82.121 tonn
eða 9,8% meiri en 1985.
Þorskframleiðslan jókst um
22% eða um tæp 6 þúsund tonn.
Enn fremur var aukning í fram-
leiðslu loðnu- og loðnuhrogna,
ufsa, rækju og hörpudisks. Fram-
leiðsla á karfa, ýsu og grálúðu
dróst hins vegar saman.
Af einstökum frystihúsum
innan SH var framleitt mest hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa hf.,
eða 6.400 tonn að verðmæti 650
milljónir króna miðað við út-
borgunarverð.
Heildarútflutningur frystra
sjávarafurða frá íslandi í fyrra var
166 þúsund tonn. Þar af var út-
flutningur SH 92.433 tonn að
verðmæti 9.848 milljónir króna.
Miðað við magn jókst útflutn-
ingur SH um 8% en í krónum
talið um 30%.
grh
Hvalarannsóknir
Veiðar
hefjast
Fyrsta umferMn á Islandsmótinu í knattspymu var leikin í gær. Þórsarar Arnþórsson marki Framn. I öðrum leikjum sigrnðu Keflvíkingar Völsung, 2-4, (A
lögðu Framara á Valbjarnarvelli, 1-3, en á myndinni fagnar Framarinn Pétur vann FH, 0-1, KR sigraði KA 0-1 og Víðir og Valur gerðu jafntefli 1-1.
Sjá nánar bls. 15
Víðtœkar rannsóknir á
N-Atlantshafinu ísumar.
Jóhann Sigurjónsson
Hafrannsóknastofnun:
Vísindaveiðarnar hefjast
í byrjun júní
,Jlvalastofnarnir á N-Atlants-
hafinu verða rannsakaðir í sumar
og er hér um samvinnuverkefni
Norðmanna, Dana, Færeyinga,
Grænlendinga, Islendinga og
hugsanlega Spánverja að ræða,“
sagði Jóhann Sigurjónsson sér-
fræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnun í gær.
Jóhann sagði að við
rannsóknirnar yrði notaður fjöldi
skipa og flugvéla og tengdust
rannsóknirnar rannsóknum Kan-
adamanna að nokkru og að auki
tækju þátt í rannsóknunum vís-
indamenn frá Bandaríkjunum,
Bretlandi og Japan.
Hvalveiðar sumarsins, sem eru
auk þess þáttur í þessu
rannsóknaverkefni, hefjast nú í
byrjun júní og er fyrirhugað að
veiða 80 Iangreyðar og 40 sand-
reyðar. -sá.
Rafiðnaðarmenn
Verkffall skollið á
Slitnaði upp úr viðrœðumfjármálaráðuneytis og Rafiðnaðarsambandsins síðdegis ígær.
Rafiðnaðarmenn hjáþremur ríkisstofnunum í verkfall á miðnœtti. Fundur á mánudaginn
Verkfall rafiðnaðarmanna hjá
þremur ríkisstofnunum skall á á
miðnætti í gær eftir að slitnað
hafði upp úr viðræðum fulltrúa
fjármálaráðuneytisins og Rafiðn-
aðarsambands íslands síðdegis í
gær.
Verkfallsmenn eru á bilinu 70-
Kjarnavopnalaust svœði
Helgi fulltrúi Matthíasar
Fyrsti fundur embœttismannanefndarinnar á þriðjudaginn
Matthías Á. Mathiesen utan-
ríkisráðherra hefur nú skipað
Helga Ágústsson fulltrúa sinn í
embættismannanefndina sem síð-
asti fundur norrænna utanríkis-
ráðherra ákvað að fjallaði um
hugsanlegt kjarnavopnalaust
svæði á Norðurlöndum eða
norðurslóðum, - eftir því hvernig
ráðherrarnir kusu að líta á málið.
Helgi Ágústsson er skrifstofu-
stjóri utanríkisráðuneytisins,
vann áður í sendiráðinu í Was-
hington og var þaráður yfirmaður
svokallaðrar varnarmáladeildar
ráðuneytisins, sem sér um öll
samskipti við bandaríska herinn.
Fyrsti fundur embættismanna-
nefndarinnar var haldinn á
þriðjudag í Helsinki og segir í
frétt frá utanríkisráðuneytinu að
þar hafi verið lagðar fram skýrsl-
ur og gögn um öryggis- og varn-
armál landanna. Af Islands hálfu
var þar um að ræða þingsályktun-
ina um kjarnavopnalaust svæði
frá maí 1985 og síðustu skýrslu
utanríkisráðherra í enskri þýð-
ingu.
Næsti fundur nefndarinnar
verður í Helsinki í ágúst, en hún á
að skila fyrstu framgangsskýrslu
á ráðherrafund í september^/
byrjun. f
-m
80 talsins og vinna hjá Póst- og
símamálastofnun, Vita- og hafn-
armálastofnun og Flugmála-
stjórn. Gera má ráð fyrir að verk-
fallið muni mjög fljótlega koma
niður á starfsemi þessara stofn-
ana, þar sem ekki verður gert við
bilanir sem koma upp í rafbún-
aði.
Magnús Geirsson, formaður
Rafiðnaðarsambands íslands,
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gærkvöldi að þau tilboð sem full-
trúar ríkisvaldsins hefðu lagt
fram í samningaviðræðum gerðu
ráð fyrir mjög litlum breytingum
á launum félagsmanna, sumir
myndu hækka í launum, en aðrir
lækka. Ekki hefði því verið hægt
að ganga að þeim og hefði mikið
borið í milli.
„Það sem við förum fram á er
að laun þessara manna verði
sambærileg við laun félaga þeirra
hjá öðrum ríkisfyrirtækjum, t.d.
Landsvirkjun, Rarik og ríkis-
verksmiðjunum, en þar er tals-
verður munur á. Meginkröfur
okkar lúta að starfsaldurshækk-
unum og hækkunum vegna
stjórnunarstarfa. Sem stendur er
fjöldi félagsmanna okkar á lág-
markslaunum,“ sagði Magnús.
Þegar slitnaði upp úr viðræð-
unum í gær var gert ráð fyrir að
aðilar kæmu ekki saman til fund-
ar á ný fyrr en á mánu-
dagsmorguninn.
Hafi enn ekki samist 29. maí
n.k. fjölgarverkfallsmönnum. Þá
bætast í þeirra hóp rafiðnaðar-
menn hjá Ríkisspítölunum og
Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi og
sjónvarpi. Fyrirsjáanlegt er að
verkfall rafiðnaðarmanna á þess-
um stofnunum muni hafa alvar-
legar afleiðingar fyrir starfsemi
þeirra.
//