Þjóðviljinn - 05.06.1987, Blaðsíða 1
Föstudagur 5. júní 1987 119. tölublað 52. örgangur
Aronskan
Ljósrit fyrir milljónir króna
Ingimundur Sveinsson, arkitekt, tilbúinn með teikningar að hermannaíbúðum á Keflavíkurflugvelli. Kostnaður vegna
íbúðanna 2 milljarðar. Þar afœtti Ingimundur aðfá 60 milljónir. Þrjár tegundir af stöðluðum íbúðum. Ingimundur
skólabróðir Garðars Halldórssonar, húsameistara ríkisins, H. Jónssonar, stjórnarformanns Islenskra aðalverktaka
Teikningar af íbúðum her-
manna á Keflavíkurflugvelli
hafa verið tilbúnar á teikniborði
Ingimundar Sveinssonar arkitekts
í eitt og hálft ár. Samkvæmt heim-
ildum Þjóðviljans er talið öruggt
að Ingimundur fái hönnunarþátt
bygginganna og er það í fyrsta
skipti sem íslenskur arkitekt
hannar fyrir herinn í Kcflavík.
Hér er um að ræða 250 íbúðir í
fjölbýlishúsum. íbúðirnar eru
staðlaðar tveggja-, þriggja- og
fjögurra herbergja íbúðir. Einsog
fram kom í Alþýðublaðinu í gær
er kostnaður vegna þessara bygg-
inga áætlaður um tveir milljarðar
króna, eða um átta milljónir á
íbúð. Byggingakostnaður fyrir
svipaða íbúð í Reykjavík er hins-
vegar um þrjár og hálf milljón
króna.
Hönnunarkostnaður íslenskra
arkitekta er yfirleitt um 3% af
byggingarkostnaði og samkvæmt
því myndi Ingimundur fá um 60
milljónir króna fyrir þessar þrjár
tegundir af íbúðum. Eitthvað
mun kosta að ljósrita teikning-
arnar en augljóst er að hér er um
vel launað verk að ræða.
Ingimundur Sveinsson, arki-
tekt, er skólabróðir Garðars
Halldórssonar húsameistara
nkisins úr Menntaskólanum f
Reykjavík og þeir fylgdust að í
gegnum arkitektaskólann í Ac-
hen. Þeir félagar hafa unnið náið
saman að ýmsum verkum og er
Ingimundur t.d. með verkefni
Sjálfstceðisflokkurínn
Uþpgjörið
hafið
Harðorð gagnrýni á
forystuna í
flokksmálgagninu í
Kópavogi. Þingmenn
vilja samvinnu við Albert
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki
lengur kjölfestan í íslenskum
stjórnmálum og flokksmenn vita
ekki lengur hvernig hann er i
raun. Helstu ástæðurnar fyrir
fylgistapi og klofningi er
skammsýni, klaufaskapur, sam-
bandsleysi forystunnar við al-
menna flokksmenn, og úrelt þing-
lið.
Þetta eru nokkrar af helstu
ástæðum sem ýmsir framámenn
flokksins týna til í „Vogum“,
blaði Sjálfstæðismanna í Kópa-
vogi.
Meðal þeirra sem harðast
gagnrýna forystuna eru bæjar-
fulltrúar flokksins í Kópavogi,
þeir Richard Björgvinsson og
Bragi Michaelson, Halldór Jóns-
son formaður fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi og
Jón Magnússon lögfræðingur og
fyrrum varaþingmaður flokksins
í Reykjavík. -Ig.
Sjá bls. 2
sem tengist fjölskyldu Garðars,
húsið á horni Vonarstrætis og
Suðurgötu, Suðurgötu 9.
Ef við skoðum ættartré herm-
angsins aðeins nánar þá er Garð-
ar húsameistari sonur Halldórs
H. Jónssonar stjórnarformanns
íslenskra aðalverktaka. Sérfræð-
ingur Varnamálaskrifstofu utan-
rikisráðuneytisins um byggingar
og skipulagsmál á umráðasvæði
hersins, er Hörður Bjarnason
fyrrverandi húsameistari rikisins.
Hörður er mágur Thors Ó. Thors
forstjóra íslenskra aðalverktaka.
-Sáf
Japanskir glímukappar að hneigja sig? Nei, þríhjólið að rúlla af stað; Þorsteinn Pálsson, Jón Baldvin Hannibalssonog SteingrímurHermannsson setjastniður
á fyrsta stjórnarmyndunarfundi sínum í gærmorgun.
Stjórnarmyndun
Hagur Strýmpu vænni
Fyrstiviðrœðudagur ABD-stjórnar ígær. Aukintrú á slíkristjórn. Ráðherraólga hjá krötum
Almennt álit er að hagur
Strympu hafl vænkast eftir
fyrsta viðræðudag Alþýðu-
flokks-, Framsóknar- og Sjálfs-
tæðismanna í Dagsbrúnarhúsinu
í gær. Skipuð var undirnefnd til
að athuga fyrstu aðgerðir í efna-
hagsmálum og skattamálum, en
aðalmenn í viðræðunum hittast
aftur í dag. Um helgina ætti að
ráðast hvort stjórn næst saman
eða ekki.
„Alvöru-stjórnarmyndunar-
viðræður" sagði Jón Baldvin
Hannibalsson eftir fundina í gær,
og taldi að vel hefði miðað, og
betri gangur væri á viðræðunum
en í tilraun þeirra Þorsteins og
Kvennalista. I dag á að ræða sam-
starfsgrundvöll í sjávarútvegs- og
landbúnaðarmálum.
Flokksformennirnir þrír hitt-
ust um tíuleytið í gær og funduðu
fram undir hádegi, og viðræðun-
efndirnar funduðu síðan frá hálf
þrjú til sex, eftir þingflokksfund
hjá Alþýðuflokki.
Síðdegis í fyrradag, á sama
tíma og ýmsir Framsóknarmenn
sendu krötum snarpar munnlegar
hryðjur, funduðu krata-Jónarnir
með Guðmundi Bjarnasyni og
Halldóri Ásgrímssyni til undir-
búnings formlegum fundum og
mun hafa farið allvel á með þeim.
Meðan í ljós kemur hvort krat-
aandstæðingar innan Framsókn-
ar ná að koma í veg fyrir stjórnar;
Hafskipsmál
myndun skemmta stjórnmála-
menn og athugendur sér við
hugsanlega ráðherralista. Fram-
sóknarmenn eru ekki taldir eiga í
miklum vanda, en hjá Sjálfstæð-
ismönnum er þyngra fyrir fæti, og
talið víst að núverandi ráðherrar
víki ekki glaðir, hvorki Matthías
Bjarnason, Sverrir Hermannsson
né Matthías Mathiesen, sem
verður allra tregastur, en sú ál-
yktun er dregin af sífelldri við-
veru Ólafs G. Einarssonar við
hlið Þorsteins að þar fari ráðherr-
acfni, auk Friðriks varafor-
manns.
Meðal krata er litið svo á að
viðræðunefndin sé jafnframt ráð-
herralisti Jóns Baldvins. Yrðu þá
Hallvarður vanhæfur
Hcestiréttur vísarfrá ákceru á hendur bankastjórum Útvegsbankans vegna
vanhcefi Hallvarðs. Setusaksóknari og bankaráðið á ákcerubekk?
Hæstiréttur vísaði í gær frá
ákæru saksóknara ríkisins á
hendur bankastjórum Útvegs-
bankans fyrir ýmisskonar meint
mistök í starfl, og mun ástæðan
vera vanhæfl Hallvarðs Ein-
varðssonar ríkissaksóknara,
einkum vegna þess að bróðir hans
Jóhann, sem nú er Framsóknar-
þingmaður á Reykjanesi, sat í
bankaráði frá ársbyrjun ‘85 og
þangað til Hafskip sökk.
Þar með er málið niður fallið
nema dómsmálaráðherra skipi
nýjan setusaksóknara sem þá
þarf að rannsaka frá grunni, og
kynni þá bankaráð Útvegsbank-
ans að blandast frekar inn en í
fyrri rannsókn og kæru. Tveir
bankaráðsmanna eru nú þing-
menn, þeir Jóhann og Albert
Guðmundsson.
Nánari rök réttarins, sem
skiptist í meiri- og minnihluta í
málinu, eru enn óljós, þarsem
dómurinn verður ekki birtur
fyrren í dag. -n»
allir krataráðherrarnir úr
Reykjavík, og munu landsbyggð-
armenn lítt sáttir við þá ráðstöf-
un, allra síst þeir Kjartan Jóhann-
esson og Eiður Guðnason, sem
báðir telja sig sjálfkjörna
Laugardagur
Sólgler-
augna-
göngu-
veður
Veðrið á Keflavíkurgöngulaug-
ardaginn? Skínandi, segja
þeir á Veðurstofunni og leggja
höfuðið undir að þremur fjórðu
hlutum.
Það eru 75% líkur á að kring-
um Keflavíkurveginn verði á
laugardaginn hægviðri, tiltölu-
lega bjart, úrkomulaust, hiti 10-
14 stig. Þeim göngumönnum sem
eiga í pússi sínu sólgleraugu er
ráðlegt að taka þau með. Gengið
verður gegnt morgunsól, síðan er
sólin höfð á hlið og að lokum
gengið undan kvöldsól.
-m