Þjóðviljinn - 05.06.1987, Blaðsíða 13
ERLENDAR FRETTIR
Lykilmenn í spænskri pólitfk um þessar mundir. Felipe Gonzalez forsætisráð-
herra og formaður Sósíalistaflokksins og Adolfo Suarez fyrrum forsætisráð-
herra og formaður Lýðræðislega miðflokksins.
Verkamenn slást við ofbeldislögreglu við skipasmíðastöð I borginni Sevilla.
ði'
Óvíst er hvort ólgan á spænskum vinnumarkai
unum til vegsauka.
i verður stjórnarandstöðuflokk-
Spánn
Þríkjör á óvissutímum
ínœstu viku ganga spœnskir kjósendur að kjörborðinu og velja sér
fulltrúa á Evrópuþingið, í borgarstjórnir og áhéraðsþing. Reiknað með
að Sósíalistaflokkurinn tapi einhverju fylgiyfir til vinstri en á hœgri
arminum er hver höndin uppi á móti annarri
Það er kunnara en frá þurfl að
segja að mikil ólga hefur verið
á spænskum vinnumarkaði á um-
liðnum mánuðum og allt logað í
verkföllum. Verkafólk hefur
krafist þess að ríkisstjórn Sósíal-
istaflokksins snúi baki við þeirri
ætlan sinni að vinna bug á efna-
hagsvanda Spánverja með því að
banna launahækkanir umfram
ákveðið lágmark og leggja niður
óarðbær stáliðjuver og skipa-
smíðastöðvar, þótt við það fjölgi
enn í stórum hópi atvinnulausra
manna. DeUurnar hafa þegar
kostað einn verkamann lífíð og
margir hafa slasast í átökum við
slagsmálalögreglu.
Undir þessum kringumstæðum
ganga landsmenn að kjörborðinu
í næstu viku og kjósa þrefalt,
stjórnir bæja og borga, fulltrúa á
héraðsþing og sextíu einstaklinga
til setu á Evrópuþinginu.
Stj ómarandstöðuflokkar,
jafnt hægra megin sem til vinstri
við Sósíalistaflokkinn, hafa gert
sitt ítrasta til að færa sér ófremd-
arástandið í nyt í kosningabarátt-
unni og saka Gonzalez óspart um
að láta sem ekkert sé að í
spænsku þjóðlífi. Þeir eru mjög
áfram um að þríkjörið snúist fyrst
og fremst um frammistöðu
stjórnarinnar á því eina ári sem
liðið er frá þingkosningum.
Sósíalistaflokkurinn hefur
hreinan meirihluta á spænska
þinginu og þarf vitaskuld ekki að
óttast neinar breytingar í þeim
efnum, hver sem úrslit þríkjörs-
ins verða. Hinsvegar verður
stjórninni vart stætt á því að
halda óbreyttri stefnu í efnahags-
og launamálum gjaldi flokkurinn
afhroð þann 10. júní.
Þegar kosið var síðast um full-
trúa til setu í borgarstjórnum og á
héraðsþingum fyrir fjórum árum
vann Sósíalistaflokkurinn glæst-
an sigur. Þá vann flokkurinn
hreinan meirihluta í stjórnum sex
stærstu borga á Spáni, í 38 af 48
borgum með 100 000 íbúa eða
fleiri og á 11 af 13 héraðsþingum.
Enginn á von á því að þeir mali
andstæðinga sína með slíkum
yfirburðum á miðvikudag. Ýmsir
af forkólfum flokksins hafa látið í
ljósi ugg um að samsteypa vinstri
flokka undir forystu kommún-
ista, sem verið hafa mjög virkir í
stéttaátökunum að undanförnu,
muni höggva skörð í raðir fylgis-
manna Sósíalistaflokksins. Einn-
ig óttast þeir að kötturinn með
lífin níu, Adolfo Suarez fyrrum
forsætisráðherra, geti dregið frá
þeim fylgi.
Sósíalistar hafa nú umráð yfir
36 af 60 sætum Spánverja á Evr-
ópuþinginu og þeir gera sér vonir
um að halda að minnsta kosti 30.
Nú er í fyrsta skipti kosið beint
um Evrópusætin en síðast var
þeim skipt á milli flokka í hlutfalli
við fylgi í þinkosningunum árið
1982.
Það gefur auga leið að mikið
sundurlyndi hægrimanna er vatn
á myllu sósíalista. Enda hafa
skoðanakannanir leitt í ljós að
fylgistap stjórnarflokksins er
sáraiítið sé haft í huga hve innan-
landsástandið er alvarlegt. í þeim
hefur komið í ljós að þeir geta átt
von á fulltingi 42 af hundraði
kjósenda sem er aðeins fáeinum
prósentum minna en þeir
hrepptu í þingkjörinu í fyrra. í
öðru sæti var hið hægri sinnaða
Alþýðubandalag með 26 prósent.
Þeim flokki hefur ekki tekist að
rétta úr kútnum þrátt fyrir and-
litsiyftingu sem fólst í formanns-
skiptum. Flokkur Suarezar,
Lýðræðislegi miðflokkurinn,
lenti í þriðja sæti með 10 hundr-
aðshiuta sem er tvö prósent
aukning frá síðasta ári. -ks.
Lœknavísindi:
Ágræddur fótur
lengdur
Andrei Lysennko og prófessor Oganesjan.
ÖRFRÉTTIR «■
Loksins, loksins
fóru heimboðin að streyma til
Kurts Waldheims, forseta
Austurríkis. Þann fyrsta júlí mun
hann fara til Amman, höfuðborg-
ar Jórdaníu, og dvelja þar I þrjá
daga. Ungverjar hafa boðið hon-
um heim og nú hefurenginn ann-
ar en Gaddafy sóst eftir félags-
skap hans. Óvíst er þó hvort for-
setinn fer til Lýbíu.
Alþjóða
gjaldeyrissjóðurinn
er gagnrýndur harkalega I
skýrslu sem sérfræðingar á veg-
um ríkisstjórna 24 þróunarríkja
hafa sett saman. Honum er gefið
að sök að notfæra sér slæma
skuldastöðu ríkja til að skipta sér
um skör fram af innanríkismálum
þeirra, krefjast mikils samdráttar í
ríkisútgjöldum sem iðulega
kæmu harðast niður á alþýðu
manna.
Grafró
karls nokkurs á Sikiley var rofin á
dögunum að kröfu eiginkonu
hins látna. Antonio Macaluso
beið bana í umferðarslysi í
marsmánuði síðastliðnum og var
grafinn skömmu síðar. Með ein-
hverjum hætti komst frúin á
snoðir um að hann hefði ekki ver-
iðjafnblankurog hann hafði alltaf
viljað vera láta og hafði lúmskan
grun um að hann hefði tekið féð
með sér í gröfina. Og viti menn!
Það stóð heima. í leynivasa í
sparijakkanum sem Antonio var
grafinn í reyndust vera sex milj-
ónir líra í reiðufé eða um 180 000
íslenskar krónur.
Stjörnustríðsfræðingur
sem lengi vel lagði hönd á
plóginn við hönnun drauma-
vopns Reagans Bandaríkjafor-
seta hefur snúið baki við fyrra lífi
og segir nú að geimvopnaáætl-
unin sé út í hött og muni aldrei
verða að veruleika. Eðlisfræð-
ingurinn Richard Ruquist hefur
einkum horn í síðu varnarskjald-
arins fræga sem hann segir að
verði lítilvirkur, hættulegur og
alltof dýr. „Hann myndi gera okk-
ur gjaldþrota en samt ekki vernda
okkur fyrir kjarnaflaugum óvinar-
ins“, sagði sá mæti mann í gær.
Átök
verða nú sí algengari á milli
Contrahryðjuverkamannanna
sem herja á Nicaragua og stjórn-
arhersins í Honduras þar sem
þeir hafa bækistöðvar sínar. Á
dögunum bárust fréttir af því að
heimamenn hefðu gengið milli
bols og höfuðs á sjö Contraliðum
og í gær sagði Hondurasstjórn aö
sínir menn hefðu tekið tíu hryðju-
verkamenn höndum.
Á Nýja-Sjálandi
samþykkti þingið í gær lög sem
kveða á um að ekki megi undir
nokkrum kringumstæðum
geyma kjarnavopn í landinu.
Þetta hefur verið mikið hitamál
þarlendis um átján mánaða skeið
og hefur stjórn Verkamannaflok-
ksins sætt ámæli af hálfu ráða-
manna í Bandaríkjunum og Ást-
ralíu fyrir tiltækið. En hún hélt
sfnu striki þótt bandamennirnir
væru að þyrla upp moldviðri.
Eðalvín
að andvirði sextíu þúsunda sterl-
ingspunda virðist hafa runnið
niður kverkar fjögurra starfs-
manna lúxusvínbúðar! Lundúna-
borg. Ekki er vitað hve lengi þeir
hafa ástundað vínþjófnaðinn en
svo virðist sem þeir hafi gengið í
kúta og ámurverslunarinnarjafnt
og þétt þegar þorsti sótti á þá,
tæmt af í plastglös og staðið á
þambi.
Umhverfisverndarráð
Sameinuðu þjóðanna hefur séð
ástæðu til að heiðra 90 einstak-
linga og samtök fyrir góða
frammistöðu í umhverfismálum.
Af þeim sem til fyrirmyndar eru
má nefna kvikmyndastjörnuna
Róbert Redford og fátækan kot-
bónda í Sudan, Omda Sabil að
nafni, sem vakið hefur athygli
fyrir vasklega framgöngu fyrir
verndun skóga á heimaslóð.
Sovésk blöð kunnu fyrir
skemmstu frá þeim ánægju-
legu tíðindum að segja, að tekist
hefði að Iengja fót drengs, sem
áður missti fótinn fyrir neðan hné
f bflslysi. Fóturinn var þá
græddur á hann en styttur um
Ieið.
Aðgerð þessi fór fram á
Rannsóknarstofu áverkaaðgerða
í Moskvu undir stjórn próf. Og-
anesjans.En Sovétmenn hafa
lengi staðið framarlega á sviði
ágræðslu lima eftir slys og beina-
lenginga.
Andrei Lysenko heitir piltur sá
sem hér um ræðir. Árið 1985 varð
hann fyrir því óláni í bílslysi að
missa fótinn rétt fyrir neðan hné.
Þetta gerðist lengst austur í Mag-
adanhéraði, og tókst ekki að
koma drengnum og hinum af-
skorna fæti hans til Moskvu, þar
sem sérfræðingar og aðstaða eru
best, fyrr en eftir rúman sólar-
hring. Engu að síður tókst að
Aðalheimild: REUTER
græða fótinn á drenginn - en var
þó sá hængur á að það þurfti að
stytta hann um leið, vegna þess
að vefir höfðu skemmst mjög f
slysinu.
Andrei gekk við hækjur og
þegar fóturinn hafði tekið við sér
gekk hann á sérsmíðuðum skó
með þykkum botni. Og þegar
hálft annað ár var liðið kom And-
rei aftur til Moskvu. Þar lagðist
hann inn á fyrrgreinda stofnun og
á þrem og hálfum mánuði var fót-
ur hans lengdur um sjö senti-
metra. Aðgerðin virðist ætla að
takast vel.
Að mörgu var að huga, segir
prófessor Oganesjan í viðtali við
Izvestía. Við þurftum að teygja
varlega á taugum og æðum og
létum okkur nægja að lengja fót-
inn um millimetra á dag. Ándrei
fær nú hvfld til að jafna sig og
ljúka skólanámi, en síðan verður
fóturinn lengdur um aðra sjö
sentimetra.
Andrei líður bærilega, þótt enn
sé sárt að stíga í fótinn og hann
allur spelkaður. Hann ætlaði sér
einu sinni að verða íþróttaþjálf-
ari, en nú er hann helst að hugsa
um að reyna fyrir sér í lækna-
námi.
áb byggðl á izvestia.
Föstudagur 5. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 13