Þjóðviljinn - 05.06.1987, Blaðsíða 20
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓOVILIINN
Föstudagur 5. júní 1987 119. tölublað 52. örgangur
Kennarasambandið
Svanhildur
formaður
Svanhildur Kaaberfyrsta konan sem gegnir
formannsembœtti sambandsins. Loftur
Magnússon kjörinn varaformaður
Svanhildur Kaaber var kjörin
formaður K.í á þingi kennara
í gær og er það í fyrsta skipti sem
kona er formaður Kennarasam-
bandsins en þar eru konur um
70% félagsmanna. Loftur
Magnússon var kjörinn varafor-
maður.
Tillögur uppstillinganefndar
um þau Svanhildi og Loft og 7
manna stjórn félagsins voru sam-
þykktar án mótframboða. í fyrsta
skipti í sögu sambandsins eru
konur í meirihluta í stjórn, bæði í
röðum aðalmanna og vara-
manna, en á þinginu voru sam-
þykkt lög sem kveða á um að
kynjahlutföll skuli vera sem
jöfnust í nefndum, ráðum og
stjórnum sambandsins.
„Ég horfí björtum augum til
framtíðarinnar," sagði Svanhild-
ur. „Við höfum markað stefnu í
skólamálum og kjaramálum eins vel að þessum málefnum og
kennara og ný stjórn mun vinna henni er unnt“. -K.Ól.
Varnarmálaskrifstofan
Rangfærslur
hjá Sverri
Stjórnstöðin á Keflavíkurflugvelli kostaróóO
milljónir en ekki 330 einsog Sverrir Haukur
Gunnlaugsson, forstöðumaður
Varnarmálaskrifstofunnar sagði í
Þjóðviljanum. Yfirheyrslur af
Bandaríkjaþingi sanna að Sverrirfór með
rangtmál. Stjórnstöðin neðanjarðar. Ætlað
að standast kjarnorkuárás
Kostnaður við nýju stjórnstöð
hersins á Keflavíkurflugvelli
er tvöfaldur sá kostnaður sem
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
forstöðumaður Varnamálaskrif-
stofunnar, gaf upp við Þjóð-
viljann á miðvikudag.
Þjóðviljinn hefur undir hönd-
um yfirheyrslur fjárveitinga-
nefndar fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings, þar sem í ljós kemur
að Sverrir Haukur hefur farið
rangt með þegar hann sagði
kostnaðinn 360 milljónir króna.
Hið rétta er að samkvæmt áætlun
Bandaríkjahers frá 1985 er kostn-
aðurinn 660 milljónir króna og
kemur fram í yfirheyrslunni að
nefndinni blöskrar mjög sá
kostnaður, enda mun hann
fimmfaldur á við það sem kostar
að reisa slíka byggingu í Banda-
ríkiunum.
I samskonar yfirheyrslu fjár-
veitinganefndarinnar yfir aðmír-
'ál Zobel frá 1983, segir Zobel, að
byggingin sé að stórum hiuta neð-
anjarðar. í viðtalinu við Sverri
Hauk kemur fram að byggingin
sé tvflyft og gluggalaus. Ástæðan
fyrir því að byggingin er neðan-
jarðar er einsog segir orðrétt í
yfirheyrslunni: „In order to pro-
tect it from blast.“ Eða til að
verja hana sprengingu.
Það er athyglisvert að aðmíráll
notar hér orðið blast, sem yfir-
leitt er notað um kjarnorku-
sprengju, en ekki venjulegar
sprengjur.
í áðurnefndu viðtali neitaði
Sverrir Haukur því að byggingin
ætti að standast kjarnorkuárás.
Þrátt fyrir það verður hægt að
einangra bygginguna, fyrir
geislun og eiturvopnum, og geta
starfsmenn dvalist í.eina viku í
byggingunni án sambands við
umheim, nema í gegnum fjar-
skipti.
Ekki tókst að ná í Sverri Hauk í
gær til að forvitnast um þetta mis-
ræmi.
-Sáf
Átt þú ósóttar
Lottó-vinning?
Vinningstölurnar á hálfu ári.
29. nóvember 1986 02 07 08 23 29 7. mars 1987 04 09 20 21 30
6. desember 1986 02 03 1013 29 14. mars 1987 04 05101227
13. desember 1986 02 0317 28 32 21. mars 1987 02 0411 15 31
20. desember 1986 02 05 0819 27 28. mars 1987 0912131723
27. desember 1986 0419 23 30 32 4. april 1987 0411 23 2732
3. janúar1987 0511 1621 31 11. april 1987 1822 27 30 32
10.janúar1987 02 07141531 18. april 1987 0414151929
17. janúar 1987 01 091017 23 25. april 1987 0910 2731 32
24. janúar 1987 01 0417 24 32 2. maí 1987 1011 1723 27
31. janúar 1987 01 03 0718 29 9. maí 1987 02 081416 20
7. febrúar 1987 05 091216 29 16. maí 1987 04 22 25 26 29
14. febrúar 1987 01 02 051020 23. maí 1987 05 071214 29
21. febrúar 1987 12 17192231 30. maí 1987 03 05 0810 26
28. febrúar 1987 0417 23 29 31
Tafla sem sýnir hversu oft
hver tala hefur komið upp.
í 1 □
1 1
n 1 1 1
1
M 1 1
11 111 I 1 1 1
11 1 H 1 1 11 1 II 1 1 1
11 11 1 11 1 11111 1 1
1 11 . JLi JL ÍIJI'ÍJ 1
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25. 26 27 28 29 30 31 32
Kynningarþjónustan/SfA