Þjóðviljinn - 05.06.1987, Blaðsíða 7
San Salvador
Herinn
hótar
hörðu
Miklar mótmœlaaðgerðir námsmanna og
verkamanna og hert barátta skœruliða FMLN í
höfuðborg El Salvador valda taugaveiklun
herforingja
Að undanförnu hefur verið
róstusamt í San Salvador,
höfuðborg Miðameríkuríkisins
El Saivador. Víða hefur vinna
legið niðri, verkamenn og náms-
menn gengið fylktu liði um götur
og efnt til mótmæla við banda-
ríska sendiráðið.
Á sunnudag slasaðist leiðtogi
stéttarfélags kennara alvarlega
þegar hermenn hófu skothríð á
Sri Lanka!lndland
Sá hlær
best...
Gleði ríkisstjórnar Sri
Lanka yfir flotasigrinum
ífyrradagfékk skjótan
endiígœrþegar
ráðamenn í Nýju-Delhi
sendu matbjargir og lyf
flugleiðis tilJaffna
Taugastríð ríkisstjórna Ind-
lands og Sri Lanka tók nýja
stefnu í gær. Einsog menn rekur
minni til vann floti hinna síðar-
nefndu glæstan sigur í fyrradag
yfir indverskri smábátalest sem
sigidi inn i lögsögu landsins undir
fánum Rauða krossins með vistir
ætlaðar óbreyttum borgurum á
Jaffnaskaga.
Einsog gefur að skilja gat hinn
risavaxni nágranni ekki sætt sig
við slíkar smánarlyktir og lét
krók koma á móti bragði. I gær
sendi stjórnin í Nýju-Delhi fimm
stórar flutningaflugvélar hlaðnar
matvælum, lyfjum og fleiri hjálp-
argögnum til eyjarinnar í suðri
þar sem farminum var varpað út í
fallhlífum yfir Jaffnaskaga.
Flutningavélunum til trausts og
halds voru fjórar franskar orr-
ustuþotur af gerðinni Mirage-
2000.
Áður en þær hófu sig til flugs
sendu indverskir ráðamenn koll-
egum sínum í Kólombó skilaboð
á þá lund að ef þeir voguðu sér að
hefja skothríð úr loftvarnarbyss-
um myndu þoturnar svara í sömu
mynt. Ennfremur hvöttu þeir
indverska borgara í höfuðborg
Sri Lanka til að láta fara lítið fyrir
sér og leita hælis í tveim gistihús-
um í indverskri eigu.
Að vonum voru valdsmenn á
eyjunni grútspældir vegna yfir-
gangs Indverja. Stór orð voru
sögð og því hótað að málið yrði
tekið upp á „til þess bærum vett-
vangi.“ Þeir halda fast við þær
fullyrðingar sínar að allt sé í lukk-
unnar velstandi hjá Tamílum á
Jaffna en formælendur aðskiln-
aðarsinna úr þeirra röðum segja
það haugalygi og saka stjórnar-
herinn um fjöldamorð. -ks.
mótmælagöngu. Síðan hefur hver
kröfugangan rekið aðra og hafa
verkalýðsfélög á borð við Þjóðar-
einingu verkamanna verið í
broddi fylkingar andófsafla.
Einnig hafa námsmenn haft sig
mikið í frammi og í vikunni komu
um 2000 þeirra saman fyrir utan
bandaríska sendiráðið sem er svo
vel varið að gárungarnir nefna
það „Apache-virkið“.
Helstu kröfur mótmælenda eru
þær að Jose Napoleon Duarte
forseti láti þegar í stað af emb-
ætti, Bandaríkjamenn hætti strax
íhlutun í málefni landsins, samið
verði um að binda enda á borg-
arastríðið sem staðið hefur lát-
Hermenn handtaka námsmenn við háskólann
einum árum. Margir voru myrtir.
San Salvador fyrir fá-
laust í átta ár og að mynduð verði
samsteypustjórn með þáttöku
allra lýðræðisafla.
Vinstri sinnaðir skæruliðar
frelsisfylkingarinnar FMLN láta
nú æ meira til sín taka í San Salva-
dor. Vinna þeir spjöll á ýmsum
opinberum eigum svo sem flutn-
ingatækjum og rafstöðvum og
gera yfirvöldum ákaflega gramt í
geði.
Yfirmenn í hernum eru alls
ósáttir við gang mála og hafa að
undanförnu hvað eftir annað haft
í hótunum um að beita andófs-
menn fullri hörku.
Aðstoðar varnar- og öryggism-
álaráðherra ríkisstjórnar Duart-
es, Reynaldo nokkur Nuila
ofursti, sagði í fyrrakvöld í sjón-
varpsávarpi að „herinn gæti hvað
úr hverju séð sig knúinn til að
taka aftur upp stjórnunaraðferð-
irnar frá 1979“.
Það ár voru sett herlög í
landinu og upp frá því ríkti varg-
öld í höfuðborginni þegar dauða-
sveitir á vegum hersins léku
lausum hala og myrtu mörg þús-
und meinta vinstrimenn. -ks.
Beirút/London
Vora
skotnir
í bakið
Tveir ungir drengir héldu í gær
frá Líbanon til Lundúna. Bóðir
eru lamaðir fyrir neðan mitti eftir
að hafa orðið fórnarlömb byssu-
varga á meðan átök Amalsíta og
palestínskra skæruliða stóðu sem
hæst.
Samir Madani er átta ára gam-
all síti. Dag nokkurn var hann úti
við að leik þegar skarst í odda
með öndverðum fylkingum.
Hann lenti í eldlínunni milli stríð-
andi herja og var skotinn í bakió.
Bilal er sex ára gamall Palest-
ínumaður. Hann býr í Bourj Al-
Barajneh flóttamannabúðum
landa sinna í Vestur-Beirút sem
Amalliðar sátu um í níu mánuði.
Lengi var þar ekki til matarögn
og hungur svarf að íbúunum.
Einu sinni sem oftar fór Bilal út
til að tína gras sér til matar. Am-
alliði kom auga á snáða og skaut
hann í bakið.
„Þótt ólíklegt megi teljast að
þeir stígi í fæturna framar þá er
hægt að veita þeim ýmsa að-
hlynningu og búa þá undir æfi-
löng örkuml", segir breski lækn-
irinn Swee Ang sem slóst í för
með þeim.
-ks.
Leiðtogar miðjubandalagsins dorga, Davíð og Davíð, Owen og Steel. Enginn bítur á agnið.
Enga samsteypustjom, takk
Skoðanakannanir stangast á umfylgisaukningu Verkamannaflokksins.
Stóruflokkarnir Ijá ekki máls á samvinnu við miðjubandalagið þótt
hvorugur þeirrafái hreinan meirihluta
Nú er aðeins tæp vika þangað til
Bretar kjósa sér nýja þing-
menn. Skoðanakannanir hafa að
undanförnu sýnt, svo ekki verði
um villst, að forskot það sem
íhaldsflokkurinn hafði á Verka-
mannaflokkinn við upphaf kosn-
ingabaráttunnar hefur minnkað
verulega. Að vísu stangast niður-
stöður þeirra nokkuð á en engu
að sfður er Ijóst að sú staða getur
hæglega komið upp að hvorugur
stóru flokkanna fái hreinan
meirihluta í neðri málstofunni.
Kannanirnar hafa leitt í ljós að
Margrét Thatcher verður að brill-
era í Feneyjum í næstu viku eigi
hún að vera örugg um að sigra í
kapphlaupinu við Neil Kinnock.
Fatist henni hinsvegar flugið gæti
voðinn verið vís því breskir kjós-
endur virðast margir hverjir láta
frammistöðu leiðtoga sinna á al-
þjóðavettvangi gera útslagið um
það hvort þeir ljá þeim atkvæði
sitt eða láta þá róa.
Ef hvorugur stóru flokkanna
hreppir hreinan meirihluta í
þingkjörinu þá er komin upp
staða í breskri pólitík sem á sér
ekki hliðstæðu allar götur síðan
1929. Þá hrökk samsteypustjórn
upp af limminu og síðan hafa þær
ekki átt upp á pallborðið ef
undan er skilin þjóðstjóm Win-
stons Churchills á stríðsárunum.
Leiðtogar bæði íhaldsflokksins
og Verkamannaflokksins hafa
þvertekið fyrir að ganga til
stjórnarsamstarfs við miðju-
bandalag jafnaðarmanna og
frjálslyndra ef slík staða kæmi
upp. Thatcher segir samsteypu-
stjórnir veikar og ómarkvissar og
því óalandi og óferjandi.
Kinnock smyr þykkra á
sneiðarnar þegar samstarf við
miðjumenn kemur til tals: „Engir
samningar, engin hrossakaup,
engin samvinna um að þeir fái
nokkra aðild að ríkisstjórn. Við
ætlum ekki að koma þeim til vegs
og virðingar.
Af þessum ummælum má vera
ljóst að ef enginn flokkur fær
hreinan meirihluta þá á hennar
hátign trauðla annars úrkosta en
að efna til þingkjörs á ný.
-ks.
Föstudagur 5. Júnf 1987 | ÞJÖÐVIUINN - SfÐA 7