Þjóðviljinn - 05.06.1987, Síða 8
HEIMURINN
Grœningjar í Vestur-Þýskalandi
Tréhausar deila
við Trójuhesta
Grœningjar hafa verið ígóðri sókn enframtíð hreyfingar
þeirra er ógnað afdjúpstœðum ágreiningi og valdabaráttu
milli hreintrúarmanna og raunsœismanna
Forystuþríeykið róttæka sem kosið var á landsfundi Græningja í Duisburg . Jutta Ditfurth, Christian Schmidt og Regina
Michalik.
Eftir að hreinlífismenn þeir sem
hafna pólitískum máiamiðl-
unum náðu undirtökunum á
þingi Græningja í Duisburg hafa
mjög harðnað átök milli þeirra og
þeirra „raunsæismanna“ sem eru
reiðubúnir tii að víkja frá hinum
ítrustu kröfum. Um leið er að
myndast einskonar miðja í
flokknum sem reynir að sætta
andstæðurnar.
Tilvistarkreppa
Græningjar í Vestur-
Pýskalandi eiga nú í tilvistar-
kreppu af því tagi, sem oft áður
hefur sótt heim flokka og hreyf-
ingar, sem risið hafa í nafni rót-
tækrar kröfugerðar um öðruvísi
samfélag, öðruvísi pólitík, öðru-
vísi samtök en þau sem fyrir eru.
Hægt og bítandi hafa myndast í
flokknum (sem þó ekki vill vera
flokkur í venjulegri merkingu)
tveir armar. Annarsvegar fara
„fundamentalistar“ sem hér hafa
verið kallaðir hreinlífismenn,
hinsvegar „realos“ eða raunsæis-
menn. Hinir fyrrnefndu óttast
ekkert meir en að ánetjast kerf-
inu eins og það heitir, ef að
Græningjar gangi til samstarfs
við t.a.m. bersynduga sósíaldem-
ókrata. Raunsæismenn vilja svo
nokkuð til þess vinna að Græn-
ingjar geti fengið fram eitthvað af
sínum stefnumálum. Baráttan
milli þessara arma um stefnu-
mótun og svo það vald, þau þing-
sæti og nefndaskipan, sem Græn-
ingjar vildu gjarna telja sig hafna
yfir að deila um, verður svo -
einkum þegar illa gengur - svo
hörð, að menn fara að lemja sína
menn af meiri hörku en andstæð-
inga í öðrum flokkum.
Stór orð
Jutta Ditfurth, sem kosin var
talsmaður eða formaður Græn-
ingja á þinginu í Duisburg, segir
að raunsæismenn beiti andstæð-
inga sína í hreyfingunni haturs-
áróðri og stefni að því að kljúfa
flokkinn. Skoðanabróðir hennar,
Thomas Ebermann, segir að
raunsæismenn gangi erinda krata
í baráttunni gegn Græningjum,
þeir séu þar einskonar Trójuhest-
ar.
Raunsæismenn kalla svo hina
hreinlífu „tréhausa" sem vilji,
eins og Joschka Fischer, um tíma
ráðherra í samsteypustjórn með
krötum í Hessen, breyta
hreyfingunni í „róttækan sér-
trúarsöfnuð".
Ekki nema von að mörgum
stuðningsmönnum og tals-
mönnum hreyfingarinnar finnist
meira en nóg sagt. Antje
Vollmer, sem á sæti á sambands-
þinginu í Bonn, segir sem svo, að
fengi hún stundarkorn umboð frá
almættinu, þá mundi hún skipa
öllum að segja af sér.
Ágreiningsmalin
Eftir þingið í Duisburg hafa
Græningjar deilt hart um framtíð
og starfshætti hreyfingar sinnar á
sjö fylkisþingum og raunsæis-
menn hafa haldið sérstakan fund
í Frankfurt til að ræða leiðir til að
styrkja sinn arm í flokknum.
Það sem helst skilur armana að
er þetta hér:
Hreinlífismenn vilja leggja
kjarnorkuver í landinu niður þeg-
ar í stað. Raunsæismenn eru til-
búnir til að semja um að Vestur-
Þýskaland verði óháð þeim ork-
ugjafa í áföngum.
Hinir róttæku eru reiðbúnir til
að beita ofbeldi gegn ríkinu og
táknum þess, raunsæismenn vilja
heldur fara leið „þegnlegrar
óhlýðni".
Hreinlífismenn heimta að
Vestur-Þýskaland segi sig úr
Nató umsvifalaust. Raunsæis-
menn mundu í fyrstu lotu láta sér
nægja umtalsverðan áfanga í af-
vopnunarmálum.
Hinir róttæku hafna stjórnars-
amstarfi við sósíaldemókrata,
sem fýrr segir, en raunsæismenn
stefna beinlínis að slíku sam-
starfi, bæði í borgarstjórnum,
stjórnum einstakra „landa" og
ríkisstjórn ef svo bæri undir.
Þar til upp úr sauð
Þrír atburðir hafa orðið til þess
að upp úr sauð. Fyrst slitnaði upp
úr stjórnarsamstarfi við krata í
Hessen (en þar var Joschka Fisc-
her umhverfismálaráðherra).
Þessu næst kaus sá meirihluti
Ert það þú Otto (Schily), segir Joschka Fischer á þessari skopmynd, sem hefur
æst hana Juttu Ditfurth svona upp?
hreintrúarmanna sem til staðar
var í Duisburg eingöngu þá menn
til forystu sem setja sér fyrst og
fremst það markmið „að eyði-
leggja krataflokkinn" eins og
einn af foringjum hinna raun-
sæju, Otto Schily, segir. Raun-
sæismenn töldu svo að stund
hefndarinnar væri upp runnin
þegar listi Græningja í Hamborg
beið verulegan ósigur í nýaf-
stöðnum kosningum. Þar höfðu
Græningjar fyrir nokrum mánuð-
um fengið um tíu prósent at-
kvæða en misstu nú meira en þrjú
aftur, ekki síst vegna þeirrar
kröfuhörku hreinlífismanna sem
þar ráða ferðinni, sem gerði sam-
stjórn með krötum ómöguiega.
Ekki bætti það úr skák hvemig
Græningjar í Hamborg tóku ó-
sigrinum: þeim datt ekki í hug að
taka eigin framgöngu til
gagnrýninnar endurskoðunar
heldur hreyttu ónotum út úr sér
um heimskuna í háttvirtum kjós-
endum.
Hver erum við?
Sem fyrr segir hafa þeir sem
óttast að deilur þessar tvístri
hreyfingu Græningja byrjað að
þreifa fyrir sér um „þriðju
leiðina" sem gæti sameinað ýmis-
legt úr kröfuhröku hinna skírlífu
og svo viðurkenningu á því, að
það verði að starfa með krötum
til að koma í veg fyrir hægri-
meirihluta þegar það er hægt.
Slíkt tækifæri gæti til dæmis boð-
ist í Bremen en þar verður kosið í
september - þar gæti samstarf við
krata komið í veg fyrir meirhluta
kristilegra og frjálslyndra.
En leiðin til málamiðlunar er
löng og ströng. Meðal annars
vegna þess, að sundrungin í
flokknum minnir á þá staðreynd
að hreyfing Græningja er til orðin
úr margskonar efni - þar fara
náttúruvinir, friðarsinnar og svo
fyrrverandi liðsmenn ýmiskonar
smáflokka og sveita sem á tímum
vinstrisveiflu í Evrópu bjuggu sig
af kappi undir Byltinguna Sjálfa.
Andóf gegn mengun, kjarnorku,
vígbúnaðarkapphlaupi og for-
ræðishyggju hefur sameinað
þetta lið, en um leið og Græning-
jar hafa fengið það fylgi sem dug-
ir til áhrifa kemur í ljós að ekki er
samstaða um það hvernig nýta
megi möguleikana. Við trúum
því ekki lengur, segir umhverf-
isverndarmaðurinn Thomas
Schmidt, að við séum öðruvísi en
allir hinir. Kannski erum við bar-
asta ögn leiðinlegri í umgengni
hver við annan en þeir...
-áb bygggði á Spiegel
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. júnl 1987