Þjóðviljinn - 05.06.1987, Side 11
attins náð“. Á myndinni sjást frá v.: Una
Sréta Sigurjónsdóttir, Þóra Kristinsdóttir,
ður H. Sigurbjörnsdóttir.
Notið aldrei bensín eða spritt til að
kveikja upp í grillinu. Grillvökvinn er
hæfilega eldfimur svo lítil hætta er á
að grillmeistarinn kveiki í sjálfum sér
um leið og grillinu. Auk þess er í grill-
vökvann notuð vel hreinsuð olía
þannig að lítil hætta er á óbragði af
matnum frá honum. Sprautið grill-
vökvanum á kolin áður en kveikt er
upp- aldrei eftir að búið er að kveikja.
Meðan beðið er eftir að glóð komi í kolin er ágætt að nota tímann til að „mála“
skrokkinn með kryddleginum bæði að utan og innan. Þegar grillskrokkurinn er
valinn veitir ekkert af því að reikna með 600 g á mann. Bæði rýrnar skrokkurinn
við grillunina og svo hitt að fólk borðar mikið, enda er þetta gott. Það er alveg
nóg að hafa grillaðar kartöflur með smjöri og salat með kjötinu. Guðmundur
Stefánsson hemur skrokkinn meðan Stefán smyr á.
Þegar kolin eru orðin heit f gegn og grá að utan er kominn tími til að setja matinn
yfir. Skrokknum verður að snúa stöðugt til að hann steikist jafnt og brenni ekki,
því hver vill snæða brunarústir? Sigurlaug Stefánsdóttir snýr hér af krafti. Grillið
á myndinni var heldur stutt þannig að skrokkurinn steiktist mun seinna til
endanna. Undir þann leka var sett með því að færa kartöflurnar, sem sjást
pakkaðar í álpappír ofan á kolunum, yfir á kolin um miðbikið og bæta á kolin til
endanna.
nota tímann til að búa til krydd-
löginn fyrir kjötið og það fer
auðvitað eftir smekk kokksins
hvað er sett í hann. Kryddlögur
grillmeistara Þjóðviljans er
svona: Hálfur lítri salatolía, um
50 cl kínversk soyasósa, pressað-
ur safi úr heilum hvítlauk a.m.k.
(hvítlaukur og lambakjöt á sam-
an eins og H2 og O), h'tið glas af
sterku grófkornuðu sinnepi, 1-2
matskeiðar þurrkað rósmarín, 1-
2 matskeiðar salt, 2-3 dl rauðvín.
Kryddlögurinn er hrærður saman
með þeytara og síðan borinn á
skrokkinn bæði að utan sem
innan með málningarpensli.
Þegar svo búið er að rjóða
kryddleginum á skrokkinn er rétt
að skella honum yfir glóðirnar og
nú verður að standa og snúa
næstu 2-3 tímana og þá er hægt að
byrja að skera af dýrinu. Verði
yíckur að góðu. -«á.
Reikna má
með 600
grömmum á
mann
NÚ FER AD
HITNA í KOLUNUM
Það er tilhlökkunarefni að byrja
grillveislurnar aftur. Góður matur, fjör
og útivera. Þig vantar kannski hitt og þetta
í grillið: kol, vökva, áhöld, bakka eða jafnvel
sjálft grillið. Leitaðu ekki langt yfir skammt.
Á næstu Essostöð finnur þú allt sem
þarf . . . nema grillmatinn!
Grillkol 2,3 kg
Grillkol 4,5 kg
Grillvökvi 0,51
Grillvökvi 1,01
Grill
225 kr.
434 kr.
75 kr.
120 kr.
frá 2076 kr.
Grilláhöld og gríllbakkar
í úrvali.
Olíufélagið hf
Hveragerði - Ölfus
Staða bókasafnsfræðings við Bókasafniðí Hver-
agerði er laus til umsóknar frá 1. júlí 1987 að telja.
Upplýsingar í símum 99-4513 og 99-4235.
Umsóknarfrestur er til 20. júní n.k.
Bókasafnsnefnd
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Tölvubraut
Tölvubraut er 3ja ára nám. Námið er jöfnum
höndum í hugbúnaði og vélbúnaði. Alm. hluti
námsins jafngildir undirbúningsdeild tækniskóla.
Að loknu 3ja ára námi á tölvubraut geta nemend-
ur lokið tæknistúdentsprófi frá skólanum með því
að bæta við sig einu ári.
Nú stunda 80 nemendur nám á tölvubraut. 17
nemendur stefna að því að Ijúka námi á brautinni
næsta vor.
Enn er hægt að bæta við nokkrum nemendum á
tölvubraut en nemendafjöldi takmarkast af að-
stöðu í skólanum.
Innritun fer fram í skólanum og lýkur kl. 6.00 í dag.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Auglýsing frá
félagsmálaráðuneytinu
Félagsmálaráðherra boðar til ráðstefnu um
hönnun og eftirlit með burðarþoli bygginga. Ráð-
stefnan verður haldin að Borgartúni 6
fimmtudaginn 18. júní n.k. og hefst kl. 10 árdegis.
Þátttaka tilkynnist félagsmálaráðuneytinu fyrir
16. júní.
4. júní 1987
Félagsmálaráðuneytið
Föstudagur S. júní 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11