Þjóðviljinn - 05.06.1987, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 05.06.1987, Qupperneq 12
2 K91 [«**?£**' 1 , ieg9'0 „ n gi''"°V I «**?£& VrrÆgsr#- mo,e>1^ aoöV l^oT^ %. % Vorúö' .vsioiVf'Y irsiSÆ ■ nelio upp,,n rwi'°9 1 ■ nnno9u'p 0t rT"fc®l 1 °9 ve,'v^"a' ' 9° 1 «5» e'vood>ö P'1 " uoV , Cl '3""^o^'öS'^ö \5\0p' i^o^ó'o- eöo W VGnU \n/öM Sk ^or0' ie\öSa Fljótvírk - góð- íslensk! Garðgrill Varanlegt múrsteinsgrill Má nota allt árið. Allra harðasta grillfólk getur auðveldlega komið sér upp grilli og auðvitað er best að drífa það af, ef fólk er hvort eð er að byggja eða breyta. Það er ekkert endi- lega bundið við sumarið að grilla úti. Ef veður er sæmilega kyrrt og úrkomulaust breytir það hins vegar litlu hvort er 20 gráða frost eða 20 gráðu hiti. Þegar múra skal upp grill verð- ur að gæta þess að undirlagið sé traust svo ekki sé hætta á missigi eða vandræðum af völdum frosta eða vatnagangs eða annarra nátt- úruhamfara. Hægt er að steypa grillið upp og fóðra að innan með eldföstum múrsteini eða hlaða allt grillið upp af múrsteini sem auðvitað er fínast og auðveldast. Hafi fólk einu sinni bragðað lambalæri sem reyksteikt hefur verið með einiberjalyngi, og er haldið góðri grill- og matreiðslu- dellu, þá er ekki vitlaust að hinir sömu hugleiði að koma sér upp föstu grilli, að múra þá upp sam- byggt grill og reykofn Við látum fylgja hér til gamans lauslega teikningu af slíku mannvirki. Fiskur Grillaður fiskur er frábær Fisk má grilla bæði með því að setja hann beint á ristina á grill- inu eða pakka honum í álpappír. Látið gljáhúð álpappírsins snúa að fiskinum. Kryddið fiskinn eftir smekk og opnið álþynnuna nokkrum mín- útum áður en fiskurinn er Silungur í álpappír Silungurinn er slægður og hreinsaður og smurður með smjöri eða olíu, sítróna er kreist yfir og síðan stráð yfir salti og pipar og öðru kryddi, t.d. timian, fennikel eða estragon, helst fersku, og þvi næst pakkað inn a álpappír og sett yfir glóðina og látið vera í svona 15 mínútur. Að þeim tíma liðnum skal opna ál- þynnuna svo silungurinn nái að fá keim af glóðunum. Laxasneiðar Búið til kryddlög með því að blanda í 1 dl matarolíu safa úr einni sítrónu, einni teskeið rós- marín, slatta af salti og grófum pipar. Hristið þetta vel saman og látið standa í a.m.k. 2 tíma. Sneiðið laxinn niður og komið sneiðunum fyrir í samlokurist, smyrjið þær með kryddblönd- unni og glóðið í 5-6 mínútur. Á sama hátt má auðvitað með- höndla allan fisk, en lúða og grál- úða eru einstaklega ljúffengar, matreiddar á þennan hátt. Teinamatur Allur teinamatur er einstak- lega góður og íslenska fjalla- veg- alambið er sérlega gott til slíks. Það espar líka bragðlaukana fal- lega samansettur grillaður teina- matur. Það má líka nota kjöt af læri eða framparti, en úrbeinið lærið eða frampartinn áður og takið allar sinar og kirtla úr. Skerið síðan kjötið í teninga sem eru svona 2-3 sm á kant og leggið þá í kryddlög. Þegar þeir hafa legið þar hæfilegan tíma, allt upp í nokkra daga, þá þræðið þá upp á teinana og á milli þeirra má setja papriku í öllum fáanlegum litum, tómata, lauk, sítrónusneiðar, appelsínusneiðar, sveskjur eða hvað það sem ykkur dettur í hug. Kryddlögur Kryddlög má búa til úr matar- olíu á svipaðan hátt og lýst er þar sem sagt er frá heilgrilluninni, en auk olíu má nota jógúrt eða súr- mjólk og blanda hana olíu og alls kyns kryddi, rauð- eða hvítvíni, tómat-, soya- eða Worchester- sósu eða öllu þessu og fleiru sam- an, allt eftir því hve hugarflug viðkomandi hefur. Góða skemmtun og verði ykkur að goöu. sá VIÐ GRILLUM 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. júní 1987 Smágrillin Kveikið rétt upp Ágætis aðferð við að koma glóð í grillkolin í smágrillinu er að búa til nokkurs konar skorstein úr niðursuðudós. Há dós er heppilegust til þessara nota og hún er opnuð í báða enda og nokkur göt sett á hana nálægt öðrum endanum og þau látin snúa niður. Þá er dósin sett í grill- botninn og ofan í hana troðið dá- litlu af pappír og sprekum og þar ofan á kolunum. Síðan er kveikt í pappírnum og sprekunum undir kolunum gegn um götin sem gerð voru á dósina. Þegar eldur er kominn í kolin eftir svona 20 mín- útur þá er dósin fjarlægð og glóandi kolunum dreift um kol- apönnuna. En varið ykkur, dósin er brennandi heit. Útigrill Opin og lokuð grill Helstu tegundir venjulegra úti- grilla eru annars vegar opin og hins vegar lokuð grill. Opnu grillin eru lang algengust og fást í mjög fjölbreyttu úrvali, bæði af mörgum stærðum og varanleika. Algengust eru grill úr þunnu mót- uðu stáli, sem eiginlega er ekki annað en skál fyrir glóðarkolin og ofan á henni er síðan rist sem stundum er hægt að koma fyrir í mismunandi hæð frá kolunum og stilla þannig hitann. Hálfa leiðina kringum jaðar kolaskálarinnar er síðan stálplata sem veitir skjól og á enda plötunnar eru grópir þar sem grillteininum er komið fyrir sé hann notaður. Opin glóðar- tæki henta best þegar grillaður er matur sem ekki þarf langan tíma, t.d. fiskur, kjúklingabitar, kótil- ettur eða bara pylsur. Lokuðu grillin hafa flest ein- hvers konar lok sem byrgir inni hitann og endurkastar honum þannig að kjötið brúnast nokkuð jafnt að ofan sem neðan. Það er nokkur hætta á að maturinn brenni í þessum grillum, en á vandaðri gerðum þeirra eru trekkspjöld sem hægt er að stjórna loftstraumi undir kolin og þar með hversu hratt þau brenna og hitinn er mikill. í lokuðu grill- unum er auðvitað hægt að reyksteikja matinn og það er hægt að fá mjög sérkennilegt og gott bragð af honum t.d. með því að setja lyng, laufblöð eða krydd- jurtir ofan á kolin áður en steikin er sett inn. Mörgum finnst leiðinlegt, þeg- ar steikt er á teini, þegar fitan úr kjötinu lekur niður á glóðina og kviknar í henni. Sum grill, eink- um dýrari pottgrill, eru þannig gerð að hægt er að koma kolun- um fyrir lóðrétt bak við rist þann- ig að engin glóð er undir steikar- teininum og fitan lekur bara ofan í bakka, en í stærri grillum er auðvitað hægt að hafa kolin út til hliðanna í kolapönnunni og koma fyrir mjóum álbakka undir teininum sem tekur við feitinni frá steikinni. steiktur svo hann nái að taka í sig glóðarkeiminn. Þar sem fiskur er yfirleitt laus í sér er gott að koma honum fyrir í samlokurist. Þann- ig er minni hætta á að missa hann sundur og niður í glóðina þaðan sem hann ætti vart afturkvæmt. Nokkrar grill- fiskuppskriftir Fást í matvöruverslunum og hjá Essó.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.