Þjóðviljinn - 05.06.1987, Page 14

Þjóðviljinn - 05.06.1987, Page 14
MINNING Gísli Sighvatsson kennari Fœddur 21. október 1950 - Dáinn 27. maí 1987 Okkur langar með þessum fá- tæklegu orðum að minnast vinar okkar Gísla Sighvatssonar. Það var engin tilviljun hversu vinmargur maður Gísli var. Það vakti aðdáun allra sem til þekktu hversu mikinn tíma hann hafði alla tíð til að rækta vináttu sína við alla hina fjölmörgu sem hann hafði kynnst á lífsleiðinni. Allir sem kynntust honum sóttust eftir vináttu hans, hvort sem þeir voru eldri eða yngri. Það var svo margt í fari hans sem laðaði fólk að, hann var óvenju lundgóður, hjartahlýr og auk þess gæddur þeim sjaldgæfa eiginleika að geta alltaf skemmt fólki án þess að særa nokkurn mann. Við sem þessar línur skrifum þekktum Gísla sameiginlega meðan hann var við kennslu úti í Eyjum um fimm ára skeið, sum lengur, önnur skemur. Þegar Gísli fór til Reykjavíkur til að ljúka kennaranámi var okk- ur að sönnu eftirsjá að honum en við glöddumst einnig innilega er hann kynnti okkur fyrir Ólöfu Helgu Þór og syni hennar Gunn- ari Sveini. Ólöfu var strax tekið í okkar hópi sem einni af okkur enda öllum ljóst að ekki hallaðist á um mannkosti með þeim, henni og Gísla. í samskiptum sínum við Gunn- ar Svein nutu mannkostir Gísla sín hvað best. Á stuttum tíma vann hann hug og hjarta unga drengsins og skapaðist með þeim svo náið samband og innilegt að ekki gerist betur með föður og syni. Vinátta Gísla og Ólafar Helgu varð að innilegri ást sem þau innsigluðu hinn 23. maí s.l. með brúðkaupi sínu. Brúðkaupsveislan var haldin á heimili þeirra að Birkihvammi 13 í Kópavogi, húsi sem þau höfðu keypt og voru nýflutt inn í. Lífið brosti og framtíðin blasti við. Rúmum þremur sólarhringum síðar var skyndilega ekkert líf, engin framtíð. Hann Gísli var dáinn. Við vor- um orðlaus en hugsuðum þeim mun meira. Hvers vegna? Slíkri spurningu er auðvitað aldrei hægt að svara, en það er jafnerfitt að verjast því að hún leiti á hugann. En við eigum eftir minninguna um góðan dreng sem á lífsleið sinni veitti okkur óteljandi ánægjustundir. Von okkar er að björt minn- ingin verði dökkri sorginni yfir- sterkari. Við vottum Ólöfu Helgu, Gunnari Sveini, foreldrum Gísla og tengdaforeldrum svo og öðr- um aðstandendum innilega sam- úð. Halia, Baldvin, Katrín, Einar, Gerður, Björn, Guðmunda, Guðmundur og Ólöf Magrét Á stilltum og björtum haustdegi fyrir rúmlega tuttugu árum, mættust glaðværir hópar ungmenna í Menntaskólanum á Laugavatni til að hefja þar nám. Stærstu hóparnir komu úr Árnes- og Rangárvallasýslum, af Suður- nesjum og utan úr Vestmanna- eyjum. f hópi Eyjamanna var glaðlegur piltur ljós yfirlitum með bros í augum. Gísli Sighvats- son hét hann og varð fljótlega mikill vinur okkar allra. Nú á fögrum vordegi í blóma lífsins er þessi ljúfi vinur okkar skyndilega horfinn á braut, svo snögglega og óvænt. Það er til einskis að spyrja sjálfan sig hvers vegna, við slíkri spurningu fæst aldrei svar. Ef ég lít hinsvegar til baka yfir þessi tuttugu ár, sem liðin eru frá því að ég kynntist Gísla er ég forsjóninni þakklátur fyrir að hafa verið svo lánsamur að leiðir okkar lágu oft og mikið saman. Ég ætla ekki að rekja það í einstökum atriðum, en minning- arnar um vin minn Gísla eru ein- göngu góðar. Gísli var eins og segulstál á fólk, hann hafði sérs- takt lag á því að laða að sér vini hvar sem hann var. Hann hélt þessari vináttu líka við á sinn lát- lausa og þægilega hátt. Ég minn- ist þess ekki að hafa nokkurn tíma heyrt Gísla hallmæla öðru fólki, en þau voru mörg síðkvöld- in er við sátum og hlustuðum á Gísla segja okkur frá vinum sín- um í Þýskalandi, Finnlandi og síðar í Kanada, þar sem hann stundaði nám fyrir stuttu síðan. Á samstarfsárum okkar Gísla, þegar hann kenndi við Gagnf- ræðaskólann í Vestmannaeyjum, fékk ég enn frekari staðfestingu á því hversu auðvelt hann átti með að umgangast annað fólk, hann var auðvelt að skilja án þess að margt væri sagt. Unga fólkið lað- aðist að honum eins og aðrir, það sáum við best þegar hann kynntist sinni yndislegu konu Ólöfu Helgu Þór og syni hennar Gunnari Sveini fyrir fáum árum, reyndar alltof fáum. Gunnar Sveinn og Gísli urðu fljótt miklir vinir og félagar þannig að missir drengsins er mikill, ef til vill meiri en nokkurs annars. Ólöf og Gísli kynntust í Kennaraháskólanum þar sem þau voru við nám og ég held að Ólöfu hafi brugðið dálítið þegar hún áttaði sig á hversu stór og samheldinn vinahópur stóð að baki Gísla. Hún fann þó fljótt að í þann hóp var hún meira en vel- komin og ég vona að okkur takist að viðhalda þeirri vináttu jafn á- reynslulaust og Gísla tókst. En orð eru bara orð og við skulum láta verkin tala, því læt ég hér staðar numið. Sighvati og Ellý, Ólöfu Helgu- og Gunnari Sveini sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur, svo og kveðjur frá vinum hans úr menntasicóla og utan úr Vestmannaeyjum. Ólafur Hreinn Sigurjónsson Menn segjast oft muna löngu liðna atburði eins og hefðu þeir gerst í gær. Oftast nær eru slíkir atburir - líkt og minningar berns- kuáranna - tengdir fögru veðri og skemmtilegheitum. Einhverra hluta vegna virðist mannskepnan þeim eiginleikum gædd að þurrka fremur út úr minni sínu leiðinlega atburði. Ef til vill er það vegna þess að magn þeirra minninga, sem við getum varðveitt, er tak- markað. Það er því með ólíkindum, hvað einn áratugur getur virst langt tímabil, ef horft er til baka, - hvað þá ef þeir eru tveir. Þetta verður okkur ljóst nú, er við göngum í sjóð minninganna, og rifjum upp kynnin af vini okkar Gísla Sighvatssyni, sem við kveðjum nú í dag. Flestar minn- ingar okkar frá síðasta einum til tveim áratugum eru tengdar Gísla á einhvern hátt. Og þegar gluggað er í myndasöfnin og skoðaðar augnabliksmyndir af Gísla, þá leynir sér aldrei kímnin og glettnin í svip þessa góða vin- ar. Þótt við þykjumst hafa mikils misst, þá metum við það meira að hafa fengið að njóta svo ríkulega kynna af Gísla á stuttum æviferli hans, sem kransæðastífla batt endi á, án þess að hafa nokkru sinni gert boð á undan sér. Þegar við kvöddumst fyrir tæp- um hálfum mánuði í brúð- kaupsveislu þeirra Ólafar Helgu og Gísla, sem þann hinn sama dag höfðu gengið í hjónaband, var okkur efst í huga tilhlökkun til sameiginlegrar Eyjaferðar, sem farin skyldi nú um hvítasunn- una. Gísli er nú farinn í miklu lengri ferð og að því kemur að við fylgj- um honum eftir. Sé það rétt, að menn hafi með breytni sinni í jarðnesku lífi áhrif á tilveru sína í öðrum heimi, erum við þess fullviss, að Gísli byrjar þar ekki með tvær hendur tómar. Svo oft og svo mikið hefur hann lagt inn á reikning þar. Vinum okkar, þeim Ólöfu Helgu og Gunnari Sveini, svo og foreldrum Gísla, systkinum og öðrum ástvinum vottum við inni- legustu samúð okkar og vonum að þakklætið fyrir að hafa fengið að njóta samvista við Gfsla verði treganum yfirsterkari. Ingis og Kata, Sólveig og Yngvi Það er erfitt að skilja að hann Gíslivinur okkar er látinn. Hann, sem fyrir fáum dögum stóð alheill á meðal okkar með hamingju í augum við hlið eiginkonu sinnar og sonar. Kynni okkar af Gísla hófust fyrir tæpum þremur árum, er hann og Ólöf komu til náms að Manitoba-háskóla í Winnipeg, en með í för var að sjálfsögðu sonurinn Gunnar Sveinn, sem Gísli hafði gengið í föðurstað. í Winnipeg var fyrir fámennur hópur íslenskra námsmanna og fjölskyldur þeirra, sem ásamt síðari tíma vesturförum myndaði ágætan kjarna íslendinga. Þrátt fyrir mannmergð og litadýrð stór- borgarinnar, þá stóð fólk þetta þétt saman og veitti hvað öðru í leik og starfi. Það vottaði jafnan fyrir nokkrum trega í hópnum þegar einstaka menn tóku upp á því á vorin að ljúka prófum og hverfa aftur til íslands. Við viss- um að hópurinn yrði aldrei sam- ur. Það var hins vegar nokkur sárabót ef spurðist að von væri á nýju fólki af íslandi undir haust- ið. Við það voru bundnar miklar vonir. Þau Gísli, Ólöf og Gunnar Sveinn brugðust svo sannarlega ekki vonum manna. Fyrstu vikurnar var nokkur frumbýlingsbragur á heimili Gísla og Ólafar í Winnipeg, endá fátt þar um húsmuni og búsáhöld sem nauðsynleg þykja hverju heimili. En ekki kom að að sök því þau höfðu haft með sér ómælda gestrisni og hiýtt viðmót, sem laðaði okkur hin að þeim. Brátt fékk unga heimilið á sig þekkan svip með blóm í horni, bækur í hillu, mynd á vegg og mat í búri. Inn um dyr Gísia og Ólafar, sem öllum stóðu opnar átti margur eftir að ganga um og 14 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Föstudagur 5. júní 1987 dvelja hjá þeim í góðu yfirlæti. Þar þraut sjaldnast umræðuefnin og tæmdist seint kaffikannan. Gísla kynntumst við ekki á ein- um degi. Hann var ekki maður hávaðans og hreykti sér aldrei hátt. Allt hans fas einkenndist af hæversku og kurteisi. Kynnin af Gísla leiddu skjótt í ljós að hann var búinn mannkostum og gædd- ur góðum gáfum. Hann var ein- stakur heimilisfaðir, sem lagði sig allan fram og bar stöðugt um- hyggju fyrir konu sinni og syni. Fóstursonurinn Gunnar Sveinn átti mikinn föður og félaga þar sem Gísli var. í Winnipeg eignuð- ust annarra börn líka hlutdeild í Gísla, en þau kunnu vel að meta natni hans og sannan áhuga, sem hann sýndi þeirra sýsli. Við sem slitið höfðum barnsskónum fund- um í Gísla sérlega hjálpsaman og góðan dreng, sem ætíð var gott að veranærri. Hannhafði víða farið, margt lesið og kunni frá mörgu skemmtilegu að segja. Hann átti gott með að sjá broslegu hliðarn- ar á tilverunni og draga þær fram. Tveggja ára samvera með Gísla í Winnipeg skilur eftir sig ljúfar minningar, sem með okkur munu lifa. Elsku Ólöf og Gunnar Sveinn, megi sólin verma og lýsa leið ykk- ar. Blessuð sé minning Gísla Sig- hvatssonar Vinir frá Winnipeg Síðsumars árið 1973 komum við, óvenju fjölmennur hópur íslenskra námsmanna, til Freiburgar í Vestur-Þýskalandi. Menn veltu því þá fyrir sér hvers vegna einmitt þessi staður hefði orðið fyrir val- inu. Kannski var það hagstæð lega hans á Iandakortinu sem réði úrslit- um. Við vissum að þar mætti vænta þeirrar veðurblíðu og náttúrufeg- urðar sem létti yfirbragð mannlífsins. Langflest höfðu í far- teskinu óljósar hugmyndir um nýj- an hfsstíl á næsta leiti. Og Freiburg sveik engan. Við komum frá ýmsum stöðum á landinu, að sunnan, vestan og norðan, bjartsýn og forvitin. Einn okkar var Gísli Sighvatsson sem orðið hafði stúdent frá Laugar- vatni. Eins og oft verður um þá sem útlegðina velja urðu samskiptin mikil og því nánari sem lengra leið. Nánust urðu þó tengsl okkar í fjöl- skyldusambýhnu í Adierstrasse 13. Þar kynntumst við Gísla best. Það er langt um liðið og hópurinn dreifður í ýmsar áttir. Og nú þegar vinur okkar Gísli er horfinn svo skyndilega gerum við okkur smám saman grein fyrir því sem við höf- um misst. Við munum aldrei fram- ar hittast öll og söknuður okkar er sár. Gísh var óaðskiljanlegur hluti þesa mikilvæga kafla í lífí okkar allra. Þessi hægláti og hugijúfi vin- ur okkar lifir í minningunni eins lengi og við lifum sjálf. Allt það góða sem í honum bjó og okkur þótti vænst um er á vissan hátt orð- ið arfleifð okkar. Við metum mikils það sem okkur var gefið. Þegar við bárum saman bækur okkar í sumarhitanum 1973 hafði Gísli með sér litla ljóðabók eftir vin sinn frá Laugarvatni, Rúnar Hafdal Halldórsson. Það er okkur minnis- stætt hversu fólgin honum var minning þessa skálds sem dó í blóma lífsins og hann kenndi okkur að meta þessi æskuljóð sem enn í dag bera einhverja þá töfra sem ganga hjarta nær. Okkur finnst við hæfi að enda þessi minningarorð um vin okkar með því ljóði sem hann hafði miklar mætur á og á sér- stakan hátt túlkar þennan tíma sem núna virðist endanlega liðinn. Mín harpan er brotin og brostnir strengir þeir er áður hljómum fyllti fósturlandsins þeyr. Mín Ijóðin eru þrotin og þöglir hljómar þeir sem ófust mínu hjarta en hrynja aldrei meir. Mín harpa er brotin og brostnir strengir þeir. Um rústir laufið fýkur og felur allt er deyr. Við sendum ástvinum Gísla okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Vlnlr frá Frelburgarárunum Ungur ætíð meir Hníga tár í óminnissœ. Heimtar hvað sitt: Gleði, sorg, vonarþrá. Hver skilur lífsins dom? Ungur lifir og deyr, ungur ætíð meir. Prumgnýr! Glampi! Tóm. Eittlíf? . Hismi? Örlagahjóm? Hníga tár í óminnissæ. Heimtar hvað sitt. í kuli höfði drúpa döggvot blóm. r.a.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.