Þjóðviljinn - 05.06.1987, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 05.06.1987, Qupperneq 19
ÍÞRÓTTIR Körfubolti Sovétmenn byrja vel Þrátt fyrir það að Kareem Abdul-Jabbar sé kominn á efri ár, þá er hann enn einn af betri leikmönnum Lakersliðsins. Hann lék vel gegn Boston. Körfubolti Lakers sigraði Hafði algera yfirburði gegn vængbrotnu liði Boston íþróttir í kvöld eru þrír leikir í 2.deild karla og einn í l.deild kvenna. Á Siglufirði leika KS og Vík- ingur, á Laugardalsvelli, IR og ÍBV og á Kópavogsvelli Breiða- blik og Selfoss. í l.deild kvenna leika ÍA og Breiðablik á Akranesi. Allir leikirnir hefjast kl. 20. -lbe Sviss Xamax meistarar Neuchatel Xamax tryggði sér í fyrrakvöld sigur í l.deildinni í Sviss með því að gera jafntefli gegn Lausanne, 1-1. Petta er í fyrsta sinn sem Xam- ax sigrar í l.deildinni, en liðið hefur haft forystu lengst af á þessu keppnistímabili. Xamax hefur 46 stig og á einn leik eftir, en Grasshoppers sem er í 2.sæti er með 41 stig og á tvo leiki eftir. -lbe Og þetta líka... Everton er nú á keppnisferðalagi og nú fyrir skömmu léku þeir gegn landsliði Ast- ralíu. Leikurinn var æsispennandi og eftir venjulegan leiktíma var staðan 1-1. Adrian Heath skoraði mark Everton. Ástralíumenn tryggðu sér svo sigur í vítaspyrnukeppni, 4-1. Tveir leikir voru í undankeppni Olympíuleikanna í fyrrakvöld. Ungverjaland sigraði Svíþjóð, 2-1. Plotar skoraði þæði mörk Ungverja eftir að Johansson hafði náð forystunni fyrir Svía. Þá sig- raði Júgóslavía, Austurríki, 1-0. Það var Tuce sem skoraðí sigurmarkið. Guðlaugur Kristjánsson sigraði í golfmóti Kiwan- ismanna sem haldið var nú fyrir skömmu. það er svosem ekki ný til- finning fyrir Guðlaug því hann hefur sigrað undanfarin þrjú ár. Reynir Guðmundsson sigraði í keppni með forgjöf. Það var Setberg sem fékk mætingarbikarinn, en þeir voru fjöl- mennastir Kiwanismanna á þessu móti. Englendingar munu ekki fá neina miða til að selja á leik þeirra gegn Vestur-Þjóðverjum í Dusseldorf í september. Þetta gera Englendingar að sjálfsögðu til að halda ólátabelgjum sínum frá leiknum, en þeir hafa á sér mjög slæmt orð. Þó munu breskir hermenn í V-þýskalandi fá nokkur þúsund miða. Sovétmenn byrjuðu mjög vel á Evrópumeistaramótinu í körfu- knattleik sem fram fer á Grikk- landi um þessar mundir. Þeir sigruðu í gær aðalkeppninauta sína Júgóslavíu, 100-93. Sovétmenn leika í A-riðlinum og var fyrirfram búist við því að Júgóslavar myndu veita þeim harða keppni. en Sovétmenn réðu lögum og lofum og sigruðu af öryggi. Þeir sigruðu þegar keppnin var haldin fyrir tveimur Real Madrid sigraði Atletico Madrid í gær í fyrri leik liðanna í undanúrslitum spænsku bikar- keppninnar, 3-2. Hugo Sanchez var sem fyrr að- alstjarna Real og skoraði tvö mörk. Real náði reyndar þriggja marka forskoti, en í lokinn sótti Atletico stíft og hafði tvö mörk uppúr krafsinu. Það voru þeir Napoli, með Diego Maradona í fararbroddi, átti ekki í miklum erfiðleikum með að koma sér í úrslit í ítölsku bikarkeppninni. Þeir sigruðu Gagliari 4-0. Napoli vinnur því samanlagt 5- 1, en fyrri leiknum lauk með j afn- tefli. Botnliðið Atalanta, sem nú er reyndar fallið í 2. deild tekur þátt í Evrópukeppni bikarhafa næsta Það gekk ekki vel hjá Norður- landaþjóðunum í Evrópukeppn- inni. Island, Svíþjóð, Noregur og Danmörk léku á heimavelli, en aðeins Svíum tókst að sigra. Svíar unnu góðan sigur gegn Ítalíu á Stokkhólmi, 1-0 og kom- ust þarmeð í efsta sæti í 2. riðli. Það var Peter Larsson sem skoraði mark Svíþjóðar á 25.mínútu. Tíu mínútum áður höfðu ítalir fengið vítaspyrnu, Jan Mölby skoraði mark Dana gegn Tékkum árum í Stuttgart. Spánverjar unnu stærsta sigur dagsins, gegn Frökkum. Munur- inn 41 stig, 111-70. Grikkir unnu einnig stóran sigur gegn Rúmeníu, 109-77. Þessar þjóðir leika í A-riðlinum. í B-riðlinum sigraði ísrael Tékkóslóvakíu, 99-83 og kom það mjög á óvart. Pólverjar sigr- uðu Hollendinga, 91-84 og ítalir unnu Vestur-Þýskaland 84-78. -Ibe Ramos og Marina sem skoruðu mörk Atletico. Þetta var aðeins fyrri leikurinn og róðurinn verður því þungur hjá Real í síðari leiknum. Þeir fengu á sig tvö mörk sem án efa eiga eftir að vega þungt. í hinum undanúrslitaleiknum gerðu Real Socidead og Athletic Bilbao markalaust jafntefli. -Ibe keppnistímabil. Þeir tryggðu sér sæti í úrslitaleik bikarkeppninnar með því að gera markalaust jafn- tefli gegn Cremonese. Atalanta sigraði í fyrri leiknum 2-0. Þar sem Napoli hefur sigrað í deildinni fer það lið sem leikur gegn þeim í bikarkeppnini í Evr- ópukeppni bikarhafa og það kom í hlut Atalanta sem hefur þó gengið mjög illa í vetur. -Ibe eftir að Thomas Ravelli, mark- vörður Svía, hafði brugðið Ro- berto Tricella. En Ravelli varði vítaspyrnuna í stöng og Svíar sluppu með skrekkinn. Skömmu síðar áttu ít- alir skot í þverslá sænska marks- ins, en ekki tókst þeim að skora. Svíar eru því efstir í riðlinum með 9 stig og ítalir í 2. sæti með 8 stig. Þessi lið eru þau einu sem geta gert sér vonir um sigur í riðl- inum. Danir gerðu jafntelfi gegn Tékkum, 1-1 í Kaupmannahöfn. Það var Jan Mölby sem skoraði mark Dana á lö.mínútu. Þeir fengu fjölda dauðafæra, en tókst ekki að nýta þau. Preben Elkjær átti m.a. skot í þverslá fyrir opnu marki. Það var svo á 48.mínútu að Tékkar jöfnuðu með marki frá Ivan Hasek. Danir eru efstir í riðlinum með 6 stig eftir fjóra leiki, Tékkar í 2.sæti með 5 stig eftir 4 leiki og Wales í 3,sæti með 4 stig eftir 3 leiki. Þá léku Norðmenn gegn Sovét- mönnum í Oslo og töpuðu 0-1. Það var Alexander Zavarov sem skoraði sigurmark Sovét- manna á ló.mínútu, en þeir voru samt langt frá því að vera sannfærandi. Líkt og í leikjum Dana og Svía áttu heimamenn skot í þverslá, það var Jörn Andersen sem átti það á síðustu mínútu leiksins. -Ibe Það fór eins og flestir spáðu, Lakers sigruðu Boston Celtics í fyrsta úrslitaleik liðanna í NBA- Deildinni í körfubolta, 126-113. Lakers hafði algera yfirburði í leiknum. Þeir náðu strax góðu forskoti og héldu því allan tím- ann. Boston-liðið sem stefnir að því að vinna annað árið í röð átti aldrei möguleika. Mestur varð munurinn 23 stig og vængbrotið Boston liðið náði þó aðeins að klóra í bakkann undir lokin. James Worthy var í miklu stuði og skoraði 33 stig, en Larry Bird skoraði mest fyrir Boston, 32 stig. Það munar að sjálfsögðu miklu að leikmenn Boston eru þreyttir. Þeir þurftu að leika 7 erfiða leiki gegn Detroit á meðan Lakers sigraði Seattle örugglega í fjórum leikjum. Þá bætir ekki úr skák að Kevin McHale og Robert Parish hafa ekki náð sér af meiðslum sínum, en þeir eru tveir af sterk- ustu leikmönnum Boston. Næsti leikur liðanna verður einnig í Los Angeles, en síðan verða leiknir tveir leikir í Boston. Það lið sigrar sem fyrr vinnur fjóra leiki. Það gæti því svo farið að Lakers þyrfti ekki að sigra Boston á útivelli, heldur látið sér nægja fjóra heimasigra og því spá margir. -Ibe/Reuter Föstudagur 5. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 AlþÍngi ISLENDINGA SKRIFSTOFA ALÞINGIS óskar aö ráða starfsmann í fullt starf til að vinna við efnisgreiningu Alþingistíðinda. Umsækjendur skulu hafa lokið (eða vera að Ijúka) háskólanámi. Æskilegt er að umsækj- endur hafi menntun í bókasafns- og upplýs- ingafræði og hafi (Dekkingu á lyklunaraðferð- um. Kunnátta í tölvuvinnslu eða áhugi á henni er nauðsynlegur. - Framtíðarstarf. Umsóknarfrestur er til 20. júní. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Alþingis. Skrifstofustjóri Spánn Sigur hjá Real Ítalía Auðvelt hjá Napoli Evrópukeppni Slæmt hjá Norðuiiöndunum Aðeins Svíar sigruðu í sínum leik

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.