Þjóðviljinn - 25.07.1987, Page 1
Landsvirkjun
Rafmagnið rýkur upp
Raforkuverð hækkar 9.5% um mánaðamót. Frekari hœkkanir óhjákvœmilegar vegna skattlagningar ríkissjóðs á
erlend lán. Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar: Óskað viðrœðna við stjórnvöld vegna
lántökugjalda á erlend lán
Raforkuverð þarf að hækka um
2.4%, til viðbótar við þá
9.5% hækkun sem stjórn Lands-
virkjunnar boðar frá og með 1.
ágúst, leggist skattur ríkisstjérn-
arinnar á erlend lán fyrirtækis-
ins. Stjórn Landsvirkjunar hefur
óskað eftir viðræðum við fjár-
málaráðherra og iðnaðarráð-
herra vegna þessa máls og bendir
stjórnin á það að aukin skatt-
byrði fyritækisins vegna erlendra
skulda kalli óhjákvæmilega á
auknar raforkuverðshækkanir.
-Stjórn Landsvirkjunar afréð á
fundi í fyrradag að hækka rafork-
uverðið um 9.5% vegna breyttra
verðlags- gengisforsendna á ár-
inu. Þetta var gert með hliðsjón
af mati Þjóðhagsstofnunar, þessa
gjaldskrárhækkun þurfi til svo að
þeirri greiðsluafkomu verði náð,
sem stefnt hefur verið að á árinu,
sagði Halldór Jónatansson, for-
stjóri Landsvirkjunar.
-Verði Landsvirkjun gert að
greiða svokallað ábyrgðargjald af
erlendum skuldum fyrirtækisins
þýðir það að Landsvirkjun verð-
ur að greiða um 55 milljónir á
ársgrundvelli aukalega, sem kall-
aði á2.4% raforkuverðshækkun,
sagði Halldór Jónatansson.
Ljóst er að Landsvirkjun á eftir
að fara út í stórfelldar lántökur
vegna framkvæmda við Blöndu-
virkjun, eða fjármögnun uppá
4000 milljónir króna. Leggist 3%
skattur ríkistjómarinnar ofan á
þær lántökur sem með þarf, lætur
nærri að Landsvirkjun þurfi að
leggja á borð með sér 120
milljónir aukalega vegna skatt-
heimtu ríkissjóðs.
-Landsvirkjun hefur farið
fram á viðræður við fjármálaráð-
herra og iðnaðarráðherra fyrir
hönd ríkisstjómarinnar, vegna
þessa máls. Stjórn fyrirtækisins
áh'tur að verði Landsvirkjun ekki
undanþegin þessum gjöldum
muni það ekki hafa áhrif á lán-
tökuáform fyrirtækisins, en hins
vegar myndu þau leiða til frekari
hækkunar á raforkuverði í
landinu, sagði Halldór Jónatans-
son.
-RK
Umferðin
Löggublað
og bitafiskur
Lögreglumenn ætla að standa
við Þingvallafleggjarann af Vest-
urlandsvegi í dag og dreifa þar til
ökumanna nýútkomnum bæk-
lingi, „Ferðafélaganum“.
Að auki verður ferðafólkinu
færður bitafiskur frá Fiskverkun
Bóasar Emilssonar með kveðju
frá Tannverndarráði, sem segir
harðfisk hollan tönnum, og ekki
sætindin.
Þau böm sem sitja spennt í bíl-
unum fá hmmiða sem viðurkenn-
ingu, og er hann um leið miði í
happdrætti sem dregið verður í í
haust.
„Ferðafélaginn" er gefinn út af
íþróttasambandi lögreglumanna
í samvinnu við Umferðarráð. Þar
eru þarflegar umferðarapplýs-
ingar og ýmislegt efni annað, og
áhersla lögð á bamaefnið. Útgáfa
hans er orðin árleg og verður
bæklingnum dreift af lögreglu um
allt land frammyfir ferðahelgina
miklu eftir viku.
-m
Ást
Kínverskt-íslenskt brúokaup
íslendingur kvœnist kínverskri stúlku. Hjónin vœntanleg upp úr miðjum ágúst
að er ekki á hverjum degi sem
íslenskir karlmcnn ná sér í
kínverskar konur, en á miðviku-
daginn var kvæntist Emil Bóas-
son landfræðingur á Byggða-
stofnun kínverskri konu, Wang
Chao að nafni. Þau giftust borg-
aralegri giftingu eins og venja er í
Kína en þangað fór Emil um mán-
aðamótin og eru ungu hjónin
væntanieg hingað til Iands þann
26. ágúst.
Að sögn Guðrúnar Bóasdótt-
ur, systur Emils, kynntust þau
fyrst árið 1983 er Chao kom hing-
að til lands sem túlkur með kín-
verskum fimleikaflokki, en síðan
1984 hefur Emil farið árlega til
Kína, en hann hefur ásamt Arn-
þóri Helgasyni unnið fyrir
Kínversk-íslenska menningarfé-
lagið að undirbúningi ferða milli
landanna.
Guðrún sagði alla í fjölskyld-
unni hafa farið ákaflega leynt
með þetta vegna þess hve erfitt er
fyrir Kínverja að giftast út úr
landinu og þau hrædd um að það
gæti haft slæmar afleiðingar ef
fréttist að þetta stæði til. „Það er
óskaplegt pappírsfargan í kring
um þetta, Kfnverjarnir þurfa
hvers konar vottorð og öll í þrí-
riti, m.a að Emil hafi ekki verið
kvæntur áður og sé íslenskur
ríkisborgari og fleira. En það
hafa allir verið hjálplegir og vilj-
að allt fyrir þau gera, þetta tekur
bara langan tíma. Nú erum við að
vona að ekki taki svo iangan tíma
fyrir Chao að fá vegabréfsáritun
út úr Kína, hún er þegar búin að
fá áritun hjá Útlendingaeftirlit-
inu um að hún megi koma og
dvelja hér. Eins er hún búin að fá
uppáskrift hjá foreldram sínum
um að þau séu samþykk því að
hún giftist útlendingi og flytji
burt.
Svo vonum við að það gangi
snurðulaust fyrir hana að fá vinnu
hér, en hún er menntuð til að
starfa í utanríkisþjónustu og hef-
ur verið í þjálfun til þeirra starfa
síðasta árið,“ sagði Guðrún og
bætti því við að öll fjölskyldan
hlakkaði mikið til þegar ungu
hjónin kæmu hingað heim. _jng
Hœstiréttur
Hallvarður vanhæfur
Hæstiréttur staðfesti í gær van-
hæfni Hallvarðs Einvarðs-
sonar, saksóknara, í Hafskips-
málinu.
Úrskurður Hæstaréttar er
staðfesting á niðurstöðu Saka-
dóms Reykjavíkur, sem felldi
þann úrskurð fyrir nokkra að
Hallvarður Einvarðsson væri
vanhæfur til að leiða margþvælt
Hafskipsmál, sökum bræðra-
banda við Jóhann Einvarðsson,
fyrram varaformann bankaráðs
Útvegsbankans.
Óvíst er um framhald Haf-
skipsmálsins eftir þennan úr-
skurð Hæstaréttar.
-rk
Samnorræn símaskrá
Eitt dagblað
á íslandi
Fyrirsjáanlegt er að Alþýðu-
blaðið verði áður en langt um líð-
ur það íslenska blað sem frændur
okkar á Noðurlöndunum eiga
eftir að telja til helsta ritaða fjöl-
miðils á ísiandi og jafnvel vitna í
þegar mikið liggur við.
Þannig er, að nýlega kom út
samnorræn símaskrá það sem
skráð eru öll helstu útflutnings-
fyrirtæki og önnur fyrirtæki sem
skipta máli í samskiptum Norður-
landaþjóðanna. Skráin verður
hins vegar að teljast nokkuð
gloppótt því undir liðnum útgáf-
ufyrirtæki er einungis skráð eitt
íslenskt dagblað og það er mál-
gagn kratanna.
-K.Ól.
I