Þjóðviljinn - 25.07.1987, Page 7
Umsjón
Ingunn Ásdísardóttir
1
Kjarvalsstaðir
40 norrænir
hönnuðir
Yfirlitssýning norrænnar hönnunar
opnar á Kjarvalsstöðum í dag. Lunning
verðlaunahafar sýna um 300 hluti,
borðbúnað, kirkjuklæði, húsgögn og
fleira
Á Kjarvalsstööum opnar í dag
norræn hönnunarsýning og er
þaðyfirlitssýning norrænnar
hönnunaráárunum 1951 til
1970.40 hönnuðir eiga verk á
sýningunni og eru þeir allir úr
hópi norrænna hönnuða sem
hafa fengið hin eftirsóttu verð-
laun sem kennd voru við Fre-
derik Lunning, eiganda um-
boðsverslunar Georg Jensen
íNew York.
Lunning verðlaunin hafa
stundum verið kölluð Nóbels-
verðlaunin í hönnum og á þessum
tuttugu árum sem þau voru veitt
fengu þau tveir hönnuðir ár
hvert, og það er á þessum tíma
sem hugtakið Scandinavian De-'
sign verður til sem eins konar
vörumerki eða gæðastimpill.
Álitið er að verðlaunin hafi haft
mikla þýðingu á þessu þróunar-
og blómaskeiði norrænnar hönn-
unar.
Lunning verðlaununum út-
hlutaði sérstök úthlutunamefnd
en í henni áttu sæti menn á borð
við Alvar Aalto, Ake H. Huldt,
Viggo Sten Möller, Torolf Pryts
og fleiri. Dómnefndarmenn áttu
það sameiginlegt að vera í farar-
broddi í norrænni hönnun, ýmist
sem starfandi hönnuðir eða
skólamenn, hvort sem var af fé-
lagslegum eða viðskiptalegum
toga.
Að sýningunni á Kjarvalsstöð-
um standa sex listiðnaðarsöfn á
Norðurlöndum: Hið Danska
Listiðnaðarsafn í Kaupmanna-
höfn, Listiðnaðarsöfnin í Hels-
inki, Oslo og Bergen, Ríkislista-
safnið í Stokkhólmi og Röhsska
listíðasafnið í Gautaborg.
Jarno Peltonen forstjóri List-
iðnaðarsafnsins í Helsinki hefur
Myndlist
Þrjár
myndlistar-
konur
Þrír nýútskrifaðir myndlistar-
menn úr Mynd- og handíðaskóla
íslands opna sýningu í Hafnar-
galleríi við Hafnarstræti í dag og
stendur sýningin til 7. ágúst.
Ólöf Ingólfsdóttir sýnir eitt
stórt olíumálverk og Margrét
Magnúsdóttir og Sonja Hkonson
sýna skúlptúra úr járni, gleri og
tré, unnið af blandaðri tækni og
er einn þeirra svo stór að taka
þurfti hurðir af hjömm til að
koma honum inn í galleríið.
í Hafnargalleríi hafa í sumar
verið sýningar nýútskrifaðra
myndlistarmanna og tilheyrir
þessi sýning þeirri röð. Sýningin
er opin á verslunartíma virka
daga og fyrir hádegi á laugar-
dögum. —Ing
yfimmsjón með samsetningu
sýningarinnar og gekk hann með
blaðamanni Pjóðviljans um sal-
inn á meðan á uppsetningu henn-
ar stóð. Hann sagði það hafa ver-
ið ótvíræðan vilja forstöðumanna
allra safnanna sex að setja sýn-
inguna upp á íslandi vegna þess
að ísland hefði ekki verið með í
myndinni á þeim tíma þegar
Lunning verðlaunin vom veitt,
en væri nú á síðustu ámm að
koma með sem hönnunarland í
síauknum mæli.
Scandinavlan
Design
Um Lunning verðlaunin sagði
hann að því miður hefðu þau
lagst af eftir dauða sonar Freder-
iks Lunning, en þessi verðlauna-
veiting hefði aila tíð verið á
ábyrgð einkafyrirtækis og opin-
berir aðilar á Norðurlöndunum
hefðu ekki séð ástæðu til að taka
upp þráðinn þegar aðstæður
fyrirtækisins leyfðu verðlauna-
veitinguna ekki lengur. Peltonen
lagði áherslu á gildi þessara verð-
launa fyrir norræna hönnun og
sagði að án þeirra hefði vöm-
merkið Scandinavian Design
aldrei orðið jafn þekkt og virt og
það er nú.
Verðlaunin vom eins konar
starfslaun að sögn Peltonen og
var meiningin að verðlaunahafar
notuðu þau meðal annars til að
ferðast og kynnast hönnun og
hugmyndum annarra þjóða, í
stað þess að einangrast heima hjá
sér. „Pað er ákaflega mikilvægt,"
sagði Peltonen „fyrir hönnuði að
hafa yfirsýn og útsýn til annarra
þjóða og menningarheima, ekki
síst vegna þess að þeir em að
hanna hluti sem fólk notar í hinu
daglega lífi.“
Jamo Pettonen forstjóri Listiðnaðarsafnsins f Helsinki ásamt syni sfnum sem aðstoðar við uppsetningu sýningarinnar.
Þeir standa hér við sýningarbás þar sem tveir hinna norrænu hönnuða sýna verk sfn. (Mynd Ari)
Borðbúnaður
og skart
Á sýningunni eru húsgögn,
borðbúnaður, skart, textflverk,
listmunir og fleira. „Allir þessir
gripir hér,“ sagði Peltonen „eiga
það sameiginlegt að vera fallegar
hversdagsvömr og hafa listrænt
gildi, hvort sem er í iðnhönnun
eða útliti.
Sýningunni er einnig ætlað að
gefa yfirlit yfir þróun hönnunar á
þessum ámm og sýna bæði hvem-
ig hlutir hafa breyst í útliti í gegn-
um árin og eins meðferð efna.
Mörg ný efni hafa verið tekin í
notkun og önnur fallið úr gildi.“
Hann tekur upp bollapar úr
plasti, og útskýrir hvemig plast-
inu, þessu efni sem var ofnotað í
svo mörg ár og er enn, er hægt að
gefa fallegt form þar sem það
i sjálft sem efni fær að njóta sín án
þess að verið sé að fela að það sé
plast.
Mikið af fallegum borðbúnaði
er á sýningunni, m.a. eftir hönn-
uðina Timo Sarpaneva, sem
hannað hefur mikið fyrir Rosent-
hal, og Kaj Franck en hann vann
sérstaklega að því að hanna hluti
sem sameinuðu að vera fallegir
og taka ekki mikið pláss. Parna
em símar sem Antti Nurmesni-
emi hefur hannað fyrir Japani,
kirkjuklæði eftir Hans Krondahl,
húsgögn eftir Yrjö Kukkapuro.
Skartgripir þeirra Björns
Weckströrh og Börje Rajalin
vekja athygli, stór hálskeðja úr
gulli frá Lapplandi og hálsmen
þar sem blandað er saman silfri
og acryl eftir Weckström. Arm-
band úr finnsku gulli með um tíu
dýrmætum steinum sem allir
finnast í Finnlandi eftir Rajalin.
Ótrú á
íslenskri hönnun
Yfir þrjú hundmð hlutir em á
sýningunni á Kjarvalsstöðum,
hver öðmm glæsilegri. Er dapur-
legt að hugsa til þess að fslend-
ingar eiga engan grip á sýningu
sem þessari en hafa að því er virð-
ist slíka ótrú á íslenskri hönnun,
að vömr sem hér em hannaðar og
Iframleiddar em oft seldar undir
erlendum nöfnum.
Einar Hákonarson listráðu-
nautur Kjarvalsstaða tjáði blaða-
manni að lögð hefði verið fram
ósk um samnorræn hönnunar-
verðlaun hjá Norðurlandaráði,
og myndu íslendingar þá vera
með í því samstarfi, en hægt gengi
hjá ráðinu að íhuga ósk þessa.
-ing
, ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7