Þjóðviljinn - 25.07.1987, Side 11
ÖRFRÉTTIR
Líbanski
flugræninginn
sem rændi DC-10 þotu Afríska
flugfélagsins snemma í gær-
morgun og neyddi hana til að
lenda í Genf var yfirbugaður
seinna um daginn af áhöfn vélar-
innar. Þá hafði hann skotið einn
farþeganna, Frakka, með köldu
blóði og varpað líkinu úr vélinni.
Þegar hann hafði framið ódæðið
fylltust farþegarnir skelfingu,
brutu upp öryggisdyr bakatil í vél-
inni og flykktust út. Þetta dró at-
hygli flugræningjans að sér og þá
sættu nokkrir úr áhöfninni færis,
réðust á hann og yfirbuguðu.
Samtímis ruddust svissneskir ör-
yggislögreglumenn inní vélina.
Olíuskipin
tvö sem nutu bandarískrar her-
skipaverndar á siglingu sinni um
Persaflóa eru nú komin í heima-
höfn í Kuwait nánast alheil. Svo
óheppilega vildi til að annað
þeirra sigldi á tundurdufl skammt
undan heimaströndum en
Bandaríkjamenn hyggjast ekki
refsa írönum fyrir því þeir geta
með engu móti komist að því
hvort duflið var persneskt eður ei.
Norbert Bluem
atvinnumálaráðherra Vestur-
Þýskalands var í heimsókn [
Chile fyrir skemmstu. Hann var
þar á vegum sambandsstjórnar-
innar í Bonn og átti að kanna
líkamlegt ástand 14 chileanskra
skæruliða sem dæmdir hafa ver-
ið til dauða en hafa samkvæmt
þarlendum lögum heimild til að
sækja um hæli í erlendu ríki. Þeir
sóttu um vist í heimalandi
Bluems en stjórnin er klofin um
það hvort veita eigi þeim viðtöku
og hafa hægrihaukar borið því
við að mennirnir hafi játað á sig
morð. Bluem kvað ótvírætt að
fjórtánmenningarnir hefðu verið
pyntaðir og því ekkert að marka
játningar þeirra. Endanlegrar á-
kvörðunar stjórnarinnar í málinu
er að vænta á næstunni.
Yfir 100
manns hafa látið lífið af völdum
gífurlegrar hitabylgju í Grikklandi
undanfarna fimm daga. Hitinn
hefur mælst yfir 42 gráður á celsí-
us og kveða veðurfræðingar ekki
verða lát á ósköpunum fyrr en í
fyrsta lagi á sunnudag. Bændur
hafa orðið fyrir verulegu tjóni,
vatn hefur gengið til þurrðar (
hinni fornfrægu Aþenu og járn-
brautalestir hafa ekki geta
gengið þar eð teinarnir hafa tekið
á sig hina furðulegustu lögun.
Leiðtogi
samtakanna „Heilagt stríð" lýsti
því yfir á fundi í Vestur-Beirút í
gær að liðsmenn sínir væru
reiðubúnir til að gera sjálfs-
morðsárásir á hvaðeina franskt
og bandarískt á Persaflóasvæð-
inu. Nokkrar þúsundir manna
hlýddu á foringjann láta þessi
boð út ganga að viðstöddum sít-
aklerkum og undirmönnum sem
börðu sér á brjóst og hrópuðu fúl-
yrði um stjórnirnar í Washington
og París.
Gyðingar
í Vín, höfuðborg Austurríkis,
fengu óvæntan glaðning þegar
þeir streymdu út úr aðalsam-
kunduhúsi sínu í gær. Þar var
samankominn fjöldi Austurríkis-
manna sem afhenti þeim blóm til
marks um samstöðu á erfiðum
tímum. Það er kunnara en frá
þurfi að segja að gyðingar hafa
sætt aðkasti í Austurríki að und-
anförnu í kjölfar ásakana í garð
Kurts Waldheims forseta um
stríðsglæpi í síðari heimsstyrjöld.
_________________ERLENDAR FRÉTTIR_______________
Bandaríkin/Nicaragua
Aðstoðgegn aðstoð
Frjálslyndir og kaþólskir Bandaríkjamenn œtla að safna 100 miljón um dalafyrir árslok til
kaupa á hjálpargögnum handa almenningi í Nicaragua
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að Ronaid Reagan
Bandaríkjaforseti hefur einsett
sér að kollvarpa stjórn Sandinista
í Nicaragua og vHar fátt fyrir sér
til að ná því markmiði. Hann og
kunningjar hans á borð við Oli-
ver North ofursta ieggja nótt við
dag við að verða svonefndum
Kontraliðum úti um fé og má þá
einu gilda hvort það er fengið úr
ríkiskassa Bandaríkjanna með
samþykki þingsins, framlög
vellríkra einstaklinga ellegar
blóðpeningar ættaðir frá íran. í
fyrra fékk hann 100 miljónir af
bandarísku almannafé til að fjár-
magna hryðjuverk Kontralið-
anna og í ár hyggst hann kreista
svipaða upphæð úr sama sjóði.
En ekki eru allir landa hans á
eitt sáttir um stefnu stjórnarinnar
í málefnum Mið-Ameríkuríkisins
og sýna það í verki. í Bandaríkj-
unum eru starfandi samtök sem
nefnast „Leiðin til friðar“. í þeim
starfa hlið við hlið áhrifamenn úr
kaþólsku kirkjunni, þekkt fólk úr
bandarísku menningarlífi og al-
þýða manna sem viðbjóð hefur á
framferði stjórnar sinnar. Mark-
mið samtakanna er að safna fjár-
munum til kaupa á margvíslegum
hjálpargögnum til handa almenn-
Bandarískir sjálfboðaliðar við störf á baðmullarekru í Nicaragua.
ingi í Nicaragua og fá sjálfboða-
liða til starfa í landinu.
Félagar samtakanna eru á-
kveðnir í að fá landa sína til að
láta fé af hendi rakna og safna
Ítalía
Sósíalistar
dræmir
Reiknað varmeðþvíað Giovanni Goria
myndi Ijúka stjórnarmyndun ígœr en þá kom
babb í bátinn
upphæð fyrir árslok sem sé nák-
væmlega jafn há og framlag þings
og stjórnar til Kontraliðanna eða
100 miljónir dala. Þeir fullyrða að
á síðustu tólf mánuðum hafi þeir
safnað 50 miljónum og kveðast
fullvissir um að ná settu marki.
Árið þar á undan söfnuðu þeir
um 27 miljónum.
En þeir safna fleiru en
beinhörðum peningum. Brýn
þörf er fyrir allt mögulegt í Nicar-
agua og þar koma barnaföt,
leikföng og vítamíntöflur að góð-
um notum svo eitthvað sé nefnt.
Ekki má láta þess ógetið að uppá
síðkastið hafa um 6,000 banda-
rískir sjálfboðaliðar unnið hin
margvíslegustu störf í Nicaragua.
Byggt á Newsweek -ks.
Pað ætlar ekki að ganga
þrautalaust fyrir kristilega
dcmókratann Giovanni Goria að
klastra saman 47. ríkisstjórn ítal-
íu frá stríðslokum. Búist hafði
verið við því að hann myndi
ganga frá stjórnarmyndun í gær
og halda þvínæst á fund Cossigas
forseta og tjá honum að stjórnar-
kreppunni væri lokið.
En öðru nær. Hann varð að
fresta lokafundi leiðtoga flokk-
anna fimm sem mynduðu stjórn-
ina er hrökklaðist frá völdum
þann þriðja mars og mál manna
er að myndi nýja. Sósíalistar
Bettinos Craxis eru honum óþæg-
ur ljár í þúfu.
Tvennt bögglast fyrir brjóstum
sósíalista. Þeir eru óánægðir með
afstöðu Gorias og flokksfélaga
hans í kjarnorkumálum og vilja
ekki að fimm flokka stjórnin
verði endurvakin óbreytt.
Kristilegir demókratar eru
áfram um að ágreiningur um
kjarnorkumálin verði leystur í
stjórnarmyndunarviðræðum en
Craxi og félagar vilja að lands-
menn sjálfir móti stefnuna í því
máli í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Sósíalistar vilja ennfremur
ekki að fimmflokkastjórnin sál-
uga verði endurvakin heldur
verði sjötta flokknum boðið með
í dansinn, Róttæka flokknum
sem einkum er frægur fyrir einn
þingfulltrúa sinn, þokkagyðjuna
djörfu Ilonu Staller. En ekki líst
kristilegum demókrötum par vel
á þá hugmynd né frjálslyndum.
Giovanni Goria. Ekki örgrannt um
að sósíalistar geri honum gramt f
geði.
repúblikönum eða jafnaðar-
mönnum.
Þetta eru semsé megin ásteyt-
ingarsteinarnir en sósíalistar eru
óánægðir með fleira. Einn framá-
manna þeirra, Claudio nokkur
Signorile, segir um drög Gorias
að málefnasamningi:
„Plaggið er gott en það vantar
sálina í það. Svona málefnasamn-
ingur verður vitaskuld að hafa ör-
h'tið „sex appeal“. Stjórnarsátt-
máli verður að vera girnilegur."
En þrátt fyrir allt og allt eru
menn enn vongóðir um að Goria
ljúki ætlunarverki sínu í næstu
viku og gangi á fund Cossigas
forseta á miðvikudag eða
fimmtudag.
-ks.
Utboð
Reykjanesbraut,
Reykjavík - Hafnarfjörður
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í of-
angreint verk. Helstu magntölur: Malbikun
47.400 m2, malaraxlir 34.900 m2, klæðing á
axlir 7.200 m2 og veglýsing 7.300 m.
Verki skal lokið 15. október 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð
ríkisins í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 28. þm.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl.
14.00 þann 10. ágúst 1987.
Vegamálastjóri
DJÓÐVIUINN Tiiniiui
68 13 33
68 63 00
Bladburdur er &&
BESTA TRIMMIÐ '•?*'
LAUS HVERFI NÚ ÞEGAR
Bakkagerðl
Steinager&i
Skálagerðl
Stekklr
Esklhlíð
Mjóahlið
Hvassaleltl
Háaleltlsbraut 68
Akurgerðl
Grundargerði
Búðargerði
Sogavegur 2-70
Sogavegur 101-212
Borgargerðl
Rauðagerði
Austurgerðl
Hafðu samband við okkur
Síðumúla 6
0 68 13 33
Bræðratunga
Hrauntunga 2-48
Vogatunga
Háteigsvegur
Langahlfð
Flókagata
Viðjugerði
Seljugerði
Hlyngerðl
1 Furugerði
Esplgerðl
Helðargerðl
Hvammsgerðl e
Brekkugerði “wf
Stóragerðl
Laugardagur 25. júlf 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11