Þjóðviljinn - 28.07.1987, Síða 13
FERÐABLAÐ
Sæluhúsiö á Hveravöllum,
... í Þjófadölum
Hveravellir
Meðjöklaá
á báðar hendur
Hægt að fara gönguferðir í allar áttir
„Gekk eg norður kaldan
Kjöl, kosta fárra átti völ,“ lætur
Matthias kempuna Skugga-
Svein kveða. Og víst er stund-
um kaldsamt á Kili. En þar
brýst líka ylur fram úr iðrum
jarðar. Það vissi Fjalla-
Eyvindur þegar hann kaus sér
vist á Hveravöllum.
Kjalvegur hefur frá alda öðli
verið fjölfarin leið milli Suður- og
Norðurlands. Þá var gott að vita
Hveravelli með allar sínar heitu
uppsprettur nokkurnveginn
miðja vegu milli byggða. Þegar
bflaöldin gekk í garð dró mjög úr
ferðum manna á hestum um há-
lendið. Nú hafa þær aftur góðu
heilli verið teknar upp í miklum
mæli, auk þess sem alllangt er síð-
an bflfært varð á Hveravelli. Þeir
eru því aftur komnir í þjóðbraut.
Allmörg undanfarin ár hefur
veðurathugunarfólk haft aðsetur
á Hveravöllum árið um kring.
Þar stunda nú veðurathuganir
þau Sigurður Marísson og Kristín
Auður Jónsdóttir. Þau eru búin
að vera þarna í eitt ár. Sagði Sig-
urður að þau kynnu alveg þokka-
lega við sig og væri í sjálfu sér
ekkert undan vistinni að kvarta.
Tveir landverðir eru á Hvera-
völlum yfir sumarmánuðina og
líta þeir m.a. eftir skálum Ferða-
félagsins. En svo merkilegt, sem
það má heita, hafa þeir engan
síma. Verða því öll símtöl að
„fara í gegn“ hjá veðurathug-
unarfólkinu. Hlýtur það að valda
verulegu ónæði. Hafði Sigurður
heyrt ávæning af því að úr þessu
ætti að bæta nú um næstu helgi en
einhvernveginn heyrðist mér á
honum að hann yrði ekkert undr-
andi þótt það dragist eitthvað
lengur.
Sigurður Marísson sagði um-
ferð hafa verði mikla í sumar, og
allmargt gesta um flestar helgar.
Er þar bæði um að ræða einstak-
linga og hópa, erlent fólk og inn-
lent. Hópar hestamanna, sem
ýmist koma að sunnan eða
norðan, gista gjarnan hér, þetta
er áningarstaður hjá þeim. Að
öðru leyti standa þeir hér yfirleitt
ekki við. Þeir eru ekki komnir
hingað til dvalar.
Aftur á móti koma svo aðrir til
þess að dvelja hér um stund, mis-
munandi lengi, auðvitað. Þeir
gista þá annað hvort í skálum
Ferðafélagsins, sem hér eru tveir,
eða í tjöldum.
- Hvað gera jjeir siér helst til
... og Hvítámesi
„dundurs“, sem dvelja hér t.d.
tvo eða fleiri sólarhringa?
- Hér er ýmislegt hægt að gera
sér til dundurs, eins og þú segir.
Hér er fallegt í björtu og góðu
veðri, með jöklana sitt til hvorrar
handar. Hægt er að fara héðan
gönguferðir í allar áttir: upp á
Jörundarfell, Rjúpnafell, Dúfu-
nesfell, Kjalfell, inn í Þjófadali,
að minnismerkinu um Reynis-
staðabræður og áfram mætti
telja. Svo er hægt að eyða tölu-
verðum tíma í að skoða hvera-
svæðið. Síðan er sundlaugin -
sem réttara er nú kannski að kalla
heitan pott - góð þreyttum
göngumönnum.
- Hvernig sýnist j>ér svo um-
gengni vera?
- Það væri nú kannski réttara
að spyrja landverðina að því en
þá þyrfti ég að sækja annan hvorn
þeirra. Við erum nú ekki búin að
vera hér lengi og höfum því lítinn
samanburð, en ég held að hún
verði að teljast allgóð. Ég held nú
að umgengni ferðafólks fari al-
mennt batnandi þótt alltaf séu til
undantekningar, og skilningur
fari vaxandi á því, að fyrir lítið
kemur fallegt land ef því er spillt
með slæmri umgengni og sóða-
skap.
- Hvernig hefur viðrað hjá
ykkur í sumar?
- Veður var gott framanaf en
að undanförnu hefur verið nokk-
uð vinda- og úrkomusamt.
-mhg
(U)PIOI\IEER‘
BÍLTÆKI
Mörgum
kílómetrum
*
a
undan
Verð frá kr. 11.533.- ísetning santdægurs.
Aukþess höfum við LW/MW/FM stereo-bíltæki með segulbandi frá kr. 4.915.-
HUOMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
RadióþjónustaBjarna
SÍÐUMÚLA 17. SÍMI 83433
Umboðsmenn: Bókaskemman Akranesi, Kaupfélag Borgfirðinga, Hljómtorg ísafirði, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkroki, KEA Akureyri,
Radiover Húsavík, Skógar Egilsstöðum, Kaupfélag Heraðsbua Egilsstöðum, Myndbandaleiga Reyðarf/arðar Reyðarfirði.
Ennco Neskaupsstað, D/úpið Djúpavogi, Homabær Hornafirði, Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli, M.M búðin Selfossi,
Rés Þorlákshöfn, Fataval Keflavik, Rateindaþjónusta Ómars Vestmannaeyium, Radioröst Hafnarfirði, JL Husió Reyk]avik