Þjóðviljinn - 13.09.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 13.09.1987, Blaðsíða 5
Járnsmiðurirw í Kassel. Sunnudagur 13. september 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 5 Magdalena Jetelova: Stóll. féllu sumhver svo gjörsamlega að húsum, götum og torgum að nær ómögulegt var að koma auga á þau. Þetta gilti náttúrlega ekki um brúna sem járnsmiðurinn smíðaði fyrir George Trakas án þess að skilja almennilega til hvers. Og heldur ekki um af- bragð annarra verka af þessu tagi, nefnilega hrófatildur japan- ans Tadashi Kawamata. Kawa- mata sankaði að sér afgangs- timbri úr borginni og hróflaði því upp á rústum gamallar kirkju sem var bombaderuð í stríðinu. Hann ýmist boltaði eða negldi spýturn- ar saman og lét mynda eða öllu heldur gefa í skyn hringlaga kirkjuskip. Það var mikill létt- leiki en um leið spenna í þessu japanska tréverki sem virkaði skemmtilega í dauðu steinsteypu- umhverhnu. Vídeó í turni Enn á ég eftir að geta áhrifa- mesta verks þessarar Dokument- asýningar í Kassel. Það hét „Co- ventry“ gert af þjóðverjanum Klaus vom Bruch. í turni sem stendur bak Fridricianum eru nokkur herbergi sem listafólkið fékk til umráða. Það kom í hlut vom Bruch að innrétta hið efsta þeirra. Strax á neðstu hæð tumsins heyrði maður leggja þaðan óm af kynngimagnaðri tónlist. Þegar upp kom var gengið inn í herbergi þar sem var hátt til lofts og hrámúraðir veggir afar þykkir. Einn þröngur bog- gluggi. Neðan úr loftinu héngu tvær gljáandi stálsúlur og námu oddhvassar við gólf. Uppi á hvorri þeirra var komið fyrir ví- deóskjá. Á öðrum gamall maður, á hinum ungur og horfa þeir rannsakandi og ásakandi hvor á annan, en vilja um leið forðast augnaráð hins. Einhvers staðar eru svo faldir öflugir hátalarar og War-Reqiem Benjamins Brittens hljómandi frá þeim af miklum krafti. Þessi galdur vom Bruchs myndar furðulegan blending af hátækni og miðaldastemmningu. Minning um hinar grimmilegu loftárásir þjóðverja á Coventry 1940. Póstmódemisminn og lisftískan í veglegum katalóg sýningar- innar, já og í öllum þeim greinum hinna alþjóðlegu listtímarita sem fjalla um samtímalist, kemur fýrir eitt orð trekk í trekk. Þó virðist enginn geta skýrt þetta orð „póstmódemismi“ til fullnustu. Það merkir bókstaflega „eftir módemismann“ og var í fyrstu notað um bandarískan arkitektúr sem um 1960 reis upp gegn hinum púritanska funktionalisma. Á einum stað í Nafni rósarinn- ar segir söguhetjan Vilhjálmur við lærisvein sinn Adso að djöf- ullinn sé ekki fursti yfir efninu heldur sannleikurinn sem aldrei efast. Þessi fullyrðing Vilhjálms segir margt um hinn póstmódern- íska tíðaranda. Bók Ecos enda gagngert samin sem póstmódernískt skáldverk. Öfugt við módernistann þá viðurkennir póstmódernistinn engan Stóra- sannleik. Expressíónismi, fútúr- ismi, kúbismi, súrrealismi eru að- eins möguleikar meðal mögu- leika sem listamaðurinn getur notað að vild rétt einsog hann getur nýtt sér myndhefð miðalda eða stílbrögð endurreisnar til að auðga iist sína. Það er óþarfi að gefa frat í menningararfinn og leggja lista- söfnin í rúst. Tálsýn að hægt sé að byrja uppá nýtt í eitt skipti fyrir Kawamata: Kirkjuhróf og önnur bombarderuð. Blending af hátækni og miðaldastemmningu. öll. Tálsýn sem getur leitt til þröngsýni og ofstækis. Hefðin er ekki sligandi steinn á herðum póstmódernistans. Hún er leir í höndum hans sem hann togar og teygir. Boðorð dagsins er fjöl- breytileiki. Til eru þeir sem halda að listin sé nú að ganga í endurnýjun líf- daga sinna. Að póstmódernism- inn sé millistig þess sem var, og er nú farið að endurtaka sjálft sig, og þess sem koma skal. Og vilja kenna þennan umskiptatíma við „pre-“ fremur en „póst-“. Þeir sem svartsýnni eru þykjast aftur á móti sjá teikn um upplausn listar- innar. Þeir telja að listin sé að leysast upp í hönnun, handverk og tæknileg afrek. í Kasel var ým- islegt sem studdi undir þetta böl- sýna viðhorf. Splunkunýr dimm- blár Mercedes Benz snerist þar á palli og lampar og stólar ítalskra hönnuða fylltu marga sali. En er það ekki líka allt í lagi? Er ekki kominn tími til að kippa listinni ofan af þeim dýrðarpalli sem endurreisnarmennirnir og róm- antíkerarnir hófu hana uppá, sannfærðir um guðlegan sköpunarmátt sinn og fullkom- leika mannsandans? Og meta góða handverkskunnáttu að verðleikum. í það minnsta mætti járnsmiðurinn í Kassel fagna þeirri lyktan mála. Það sem er ískyggilegt í listinni í dag er af öðrum toga. Nefnilega hinn áður óþekkti hraði á öllum hlutum. Það tók endurreisnar- málverkið 150 ár að verða gamalt og lúið og búið að vera. Nýja mál- verkið ekki fimm. Markaðurinn og fjölmiðlamanían leggjast á eitt að slá einni liststefnunni upp þetta árið til að segja hana svo kolómögulega árið eftir, því þá er eitthvað annað orðið smart, fínt og flott. Við þetta fer allt að hringsnúast í hænuhaus lista- mannsins. Listin verður að vorsumar- haustogvetrartísku. Þegar grasið grænkar á vorin er komið haust á síðum tískublaðanna. Náttúran er alltaf á eftir í tískunni. Sama ólukkan bíður listgyðjunnar. Hún rétt farin að átta sig á hvaða stefnu hún eigi að skarta til að tolla í tískunni þegar ný stefna er boðuð á síðum listtískublaðanna. Hjálmar Sveinsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.