Þjóðviljinn - 13.09.1987, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 13.09.1987, Blaðsíða 21
Norðanvindurinn Tónlistarhátíð ungs fólks Nafn vikunnar er Hróðmar Sigurbjörnsson, tónskáld, einn tónlistarmannanna, sem koma fram á T ónlistarhátíð ungsfólks, undirmerkjum UNM (Ung Nordisk Musik). Hátíðin er í viku, haldin mest í Langholtskirkju og Tónlistar- skólanum og víðar. Dag- skránni verða gerð skil í Þjóð- viljanum jafnóðum. Þess má geta að fyrstu tónleikarnir verða í Langholtskirkju á mánudagskvöld kl. 20.30, en ekki í Norræna húsinu, eins og ranghermt var í blaðinu. - Hvað er svona merkilegt við þessa hátíð Hróðmar? „Tónlistarhátíðin gefur tónlist- arfólki, undir þrítugu, tón- skáldum og hljóðfæraleikurum og stjórnendum, tækifæri til að koma sér og verkum sínum á framfæri. Það er mjög örvandi að kynnast því sem kollegar manns á Norðurlöndunum eru að gera og þetta er eiginlega eina tækifærið til þess. Upp úr því sprettur oft samstarf milli landa. A hátíðinni verða flutt verk eftir 42 norræn tónskáld, þar af ellefu íslensk, ásamt fjölda hljóðfæraleikara sem koma fram.“ - Hvað er að gerast í tónlist? „Það eru engar stefnur nkj- andi, nema að allt er leyfilegt. Það er verið að taka ákveðna hluti til endurskoðunar og gætir sterkrar tilhneigingar til að fara aftur til hefðarinnar, í ljósi þess sem gerðist á uppstokkunartím- unum, á árunum 1945-70, en þá var gerjun í tónlist og mikil til- raunastarfsemi. Nú er ekki hægt lengur að flokka tónlist eftir löndum. Þá hefur vaknað mikill áhugi fyrir austantjaldstónlist, þar hefur þróunin orðið mun hægari, ekki átt sér stað sú upp- röðun, sem gerðist í vestrænum ríkjum, þeir hafa verið að þróa hina hefðbundnu tónlist, sem ég held að við getum lært mikið af.“ - Hvað gerist á hátíðinni? „Aðaláhersla er lögð á blástur, með tilliti til hinna erlendu gesta, og þess vegna er hátíðin kölluð „Norðanvindurinn“. Á hverju ári er reynt að gera ákveðnu hljóð- færi sérstök skil, líka vegna hljóð- færaleikaranna. Svo er margt nýjabrum að hátíðinni, ný hljóð- færi og nýjar hljóðfærasamsetn- ingar, t.d. fluttur klarinettu- kvartett, tríó þriggja gítara, tré- blásarakvintett með hörpu, og el- ektrónísk tónlist skipar sinn sess. En hátíðin er ótrúlega fjöl- breytt." - Og svo koma gestir? „Já, mjög góðir gestir. Lászlo Dubrovay, ungverskt tónskáld, flytur fyrirlestur um tónsmíðar, m.a. analýsur á eigin verkum, sem eru flutt á hátíðinni, og um ungverska tónlist. Þá eru kennslutímar hjá honum fyrir tónskáld. György Geiger, landi hans, trompetleikari, verður með kennslutíma alla vikuna fyrir allt að 30 málmblásara. Geiger verð- ur einnig einleikari í konsert fyrir trompet og strengi fyrir Dubro- vay. Robert Aitken, kanadískur flautuleikari og skáld, flytur fyrirlestur um tónleikagagnrýni og um nútímaflaututækni. Gei- ger og Aitken verða báðir með opna kennslutíma, alla vikuna, sem fólk er eindregið hvatt til að notfæra sér. Osmo Vanska, finnskur hljómsveitarstjóri stjórnar Sinfóníuhljómsveit á flutningi sinfónískra verka, eftir tónskáldin. Atli Heimir Sveins- son, er með fyrirlestur, sem hann kallar „Frá Montewerdi til Sveinssonar“. Það er mikill feng- ur að fá mann sem er að semja óperu, en mörg ung tónskáld eru að fást við óperutónlist." - Hvernig er staða íslenskra tónskálda og tónlistarfólks? „Það er nóg af ungum íslensk- um tónskáldum, en fyrstu árin að loknu námi fara yfirleitt í kennslu, svo tíminn eftir nám, sem er mjög viðkvæmur, nýtist ekki sem skyldi. Við fáum líka mikið af sérpöntunum fyrir leikhús og kvikmyndir, sem er afar gott út af fyrir sig og lofsvert framtak að þessir listmiðlar skuli sækja til ungs fólks, en það losar hins vegar um einbeitinguna að geta ekki alfarið helgað sig tóns- míðum fyrstu árin, og að kynna sér tónlist. Á hinum Norðurlönd- unum fá tónskáldin laun að loknu námi, í 1-5 ár. En þeir fá hins vegar ekki kennslu og hafa ekki eins mikla möguleika að starfa við leikhús eða kvikmyndir. Við eigum mikið af góðum hljóðfær- aleikurum, sem standa erlendum síst á sporði og sífellt fleiri fara utan til náms og það er gott. Svo er von á nokkrum mjög góðum hljómsveitarstjórum, sem eru í námi erlendis." - Hvernig er fyrirtækið fjár- magnað? „Tónlistarhátíðin á sér nokkra hefð, en hún var fyrst haldin eftir seinna stríð á hinum Norðurlönd- unum og íslendingar bættust í hópinn 1974. Þetta er í þriðja sinn, sem hún er haldin hér. Við fáum styrk frá NOMUS, nefnd sem gegnir því hlutverki sérstak- lega, að styrkja tónlistarsamband milli Norðurlanda. STEF styrkir okkur einnig og Ríkisútvarpið kaupir allt efni sem flutt er, en útvarpsstöð í hverju landi gerir það alltaf. “ Þetta er fyrirtæki upp á 1,5 milljón. Menntamálaráðuneytið veitir hinsvegar engan styrk, en sér um móttöku fyrir þátttakend- ur. Hróðmar Sigurbjörnsson, tónskáld og Ari sonur hans. Mynd -Sig. LEIÐARI Þreyttur fortíðaiflokkur Sjálfstæöisflokkurinn hefur átt í vaxandi erfiö- leikum með ímynd sína á meöal kjósenda. Hann hefur á síðustu árum glatað aö mestu því jákvæða yfirbragði sem hann sótti áður til at- hafnaskálda og frumkvöðla á mörgum sviðum þjóðlífsins. Án vafa eru slíkir menn enn í röðum flokksins. En þeir eru ekki lengur kallaðir til starfa, og áhrifa þeirra gætir ekki lengur í stefnu og forystu flokksins. í staðinn er kominn hópur mélkisulegra há- skóladrengja sem aldrei hafa dyfið hendi í kalt vatn. Þeir eru svipaðir í útliti, klæða sig líkt, klippa sig eins, nota jafnvel sama takmarkaða orðaforðann. Kanski er það ekkert skrítið. Þegar betur er að gáð eiga þeir nefnilega flestir það sameiginlegt að vera líka með annars flokks viðskipta- eða lögfræðipróf upp á vasann. Þessi nýja kynslóð forystumanna á hægri vængnum er að vísu gljáð og strokin og mynd- ast vel í litprentuðum kosningabæklingum. En það ber ekki mikið á rismikilli hugsun, og stund- um raunar alls engri hugsun. Þannig er sláandi að vitsmunaveranna í hópi hinna yngri manna í Sjálfstæðisflokknum, manna sem þora að setja fram nýjar hugmyndir,- þeirra bíður hlutskipti hornkerlingarinnar þegar kemur til hinna stærri verka. Þannig hefur Sjálfstæðisflokkurinn í rauninni komið sér í svo ankannalega stöðu, að forystu- sveit flokksins endurspeglar á engan hátt þá breiðu fylkingu sem hefur til skamms tíma Ijáð flokknum stuðning. Flokkurinn er kominn í hendur nokkurra valdahópa sem margir byggjast á gömlum ætt- um, sem til áratuga hafa haft geysileg áhrif innan hans. Aðrir valdahóparnir eru lausteng- dari og fámennari, sprottnir upp af fjölskyldut- engslum sem liggja utan við gömlu ættirnar, eða hafa skapast við samvinnu manna sem hafa meir af tilviljun en ásetningi lent hlið við hlið og hafið eins konar pólitískt samlífi þar sem gagnkvæm aðstoð til vegsemda innan flokksins er drifkraftur. í ofanálag er á seinni árum farið að bera á hópum, sem hafa orðið til gegnum tengsl eða kynni í viðskiptalífinu, og vinna saman innan flokksins. Hafskipshópurinn sálugi var gott dæmi, en menn úr honum ófu sig með skipu- legum hætti inn í allar valdastofnanir flokksins. Við þessa þróun hefur í raun orðið eðlis- breyting á Sjálfstæðisflokknum. Forysta hans er ekki lengur spegill hins íslenska mannlífs. Hún er einhæf og þröng. Hún nær engum sam- hljómi við fólkið á götunni. Hún veit ekki hvað íslenska þjóðin er að hugsa, enda er hin nýja foiystukynslóð uppteknari af því að vinna próf- kjör en vinna landsmönnum gagn. Sjálfstæðisflokkurinn var lengi vel ótrúlega víðfeðmur flokkur, og átti sér í rauninni fáar hliðstæður erlendis. Samloðun hans byggðist að verulegu leyti á því, að forystan var gott þversnið af flokknum. í henni voru einstaklingar sem höfðuðu til mismunandi hópa í flokknum og þjóðfélaginu. Nú er þetta skeið úti. Mélkisurnar með lög- fræðiprófin höfða ekki til neinna hópa, eiga sér ekkert „bakland". Þannig er skeið Sjálfstæðis- flokksins sem hins yfirgnæfandi afls í íslenskum stjórnmálum á enda runnið. Hann á ekki lengur það erindi við íslenska kjósendur sem hann áður hafði. Ungir Sjálfstæðismenn segja nú fullum fet- um, að formaðurflokksins sé litlaus. Flokkurinn sjálfur ekkert annað en hagsmunatæki fyrir- tækja en ekki fólksins. Hann sé þunglamalegur fortíðarflokkur með skrifstofumannaforystu. Þetta er harður dómur. En það er auðvelt að taka undir með hinum ungu tyrkjum íhaldsins. Og hin rökrétta niðurstaða af þeim einkunnum sem ungliðarnir velja sínum eigin flokki er ein- föld. Hún er þessi: Sjálfstæðisflokkurinn er að verða erindislaus í íslenskum stjórnmálum í dag. -ÖS Sunnudagur 13. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.