Þjóðviljinn - 13.09.1987, Blaðsíða 10
Dagheimili í Vogahverfi
Sunnuborg, Sólheimum 19, óskar eftir uppeld-
ismenntuöu fólki og/eða aöstoöarfólki í eftirtaldar
stöður:
100% starf á 3-6 ára deild
100% starf á 1-3 ára deild
50% starf á 1-3 ára deild
100% starf í eldhúsi.
Upplýsingar hjá forstööumanni í síma 36385.
% P.f ,
Sendill óskast
Utanríkisráðuneytiö óskar aö ráöa röskan og
áreiðanlegan ungling til sendiferöa, hálfan eöa
allan daginn.
Nánari upplýsingar eru veittar í afgreiöslu ráöu-
neytisins eftir hádegi alla virka daga.
Utanríkisráðuneytið
Tilkynning til
söluskatts-
greiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir ágústmánuö er 15.
september. Ber þá aö skila skattinum til inn-
heimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu
í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Tilkynning til
launaskatts-
greiðenda
Athygli launaskattsgreiöenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuöina júlí og ágúst
er 15. september n.k.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiöa til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Sjúkrahúsið
í Húsavík sf.
Skuröhjúkrunarfræöingar óskast frá 1. des. eða
næstu áramótum.
Umsóknarfrestur er til 10. október.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
96-41333.
Dagheimilið Laufás-
borg
Okkur vantar hresst fólk.
1. Fóstru á 3ja mánaða - 3ja ára deild.
2. Starfsmenn í: 100% starf á 3ja mán. - 3ja ára
deild.50% starff.h. á3ja-6áradeild. 50% starf í
afleysingu og 50% starf f.h. í eldhúsi.
Upplýsingar veitir Sigrún forstöðumaöur í síma
17219.
Uppreisn œru
Þeir voru brosmildir íslensku
landsliösmennirnir í knatt-
spyrnu þegar þeir gengu af
leikvelli eftir2-1 sigurinná
Norðmönnum á miðviku-
dagskvöldið. Þeir höfðu ærna
ástæðu til - og margir meiri en
sumir! Þar er átt við þá sem
skipuðu liðið í martraðar-
leiknum við Austur-Þjóðverja í
byrjun júní - þeir fengu upp-
reisn æru á besta hugsan-
legan hátt.
Þær fréttir bárust síðan frá
Noregi að úrslitin væru hræðilegt
áfall fyrir þarlenda knattspyrnu.
Þvflíkur hroki í „frændþjóðinni“!
Vissu þeir ekki að ekki lakari
þjóðir en Frakkland og Sovétrík-
in höfðu þurft að láta sér nægja
eitt stig hvor á Laugardalsvellin-
um í þessari sömu Evrópu-
keppni? Voru þeir gersamlega
blindaðir eftir sigurinn á
Frökkum í júní - sem vannst við
aðstæður Iíkari kartöflugarði en
knattspyrnuvelli? Jafnvel Laug-
ardalsvöilurinn hefur oftast verið
skömminni skárri en Ullevaal var
í þeim leik! Já, sigurvissa þeirra
norsku var mikil fyrir íslandsför-
ina, hingað ætluðu þeir að sækja
tvö stig án mikillar fyrirhafnar.
En satt best að segja voru
Norðmenn hálfgerðir klaufar að
ná ekki góðri forystu í fyrri hálf-
leiknum. Þeir fengu úrvals
marktækifæri gegn ósamstilltri
vörn íslands og framanaf leik
voru íslensku leikmennirnir vart
með sjálfum sér, margir hverjir.
En það var gaman að fylgjast
með hvernig margir okkar manna
unnu sig smám saman inní leikinn
eftir erfiða byrjun. Skagamaður-
inn Ólafur Þórðarson vann hug
og hjörtu áhorfenda með barátt-
ugleði sinni og eldmóði sem smit-
aði útfrá sér til félaga hans. Þar er
á ferð piltur sem veit ekki hvað er
að bera virðingu fyrir mótherjun-
um og slíkir leikmenn eru
ómetanlegir. Pétur Ormslev líkt-
ist meir og meir sjálfum sér eftir
því sem leið á leikinn og sama er
hægt að segja um flesta í íslenska
liðinu.
Það má síðan lengi deila um
hvemig Iiðið lék og þá varfærnis
knattspymu sem það sýndi lengst
af og gerði leikinn sem slíkan
slakan frá sjónarhóli áhorfenda.
Sigurinn er hinsvegar staðreynd
og það er það eina sem skiptir
máli þegar frá líður, annað
gleymist innan skamms. Þetta er
þriðji sigurleikur íslands á
jafnmörgum vikum, 21-árs lands-
liðið nýbúið að sigra í Danmörku
og ólympíuliðið að leggja
Austur-Þjóðverja. Haustið hefur
svo sannarlega verið íslenskri
knattspyrnu hagstætt og verður
það vonandi áfram.
íslandsmótið er á sínum loka-
spretti nú um helgina og úrslit
ráðast í 1. og 2. deild. Valur
tryggði sér meistaratitilinn með
sannfærandi sigri á KR sl. laugar-
dag og er vel að þeirri vegsemd
kominn. Valsmenn þóttu sigur-
stranglegastir fyrir mótið og náðu
að fylgja því eftir þrátt fyrir tíma-
bundin vandræði af og til. Ian
Ross hefur því krækt í tvenn
gullverðlaun og tvenn silfurverð-
Iaun í 1. deild á þeim fjórum
árum sem hann hefur stýrt Hlíð-
arendaliðinu.
mestir. En það er stór galli að
Þróttur og Leiftur skuli leika á
undan Víkingi og Selfossi.
Spennan væri að sjálfsögðu lang-
mest ef báðir færu fram á sama
tíma. En það verður ekki allt séð
fyrir og of seint í rassinn gripið að
ætla að færa til fyrri leikinn á síð-
ustu stundu.
Mér er illa við að láta saka mig
um hlutdrægni og ég tel að bæði
Víkingur og Þróttur séu alls góðs
makleg. En það er kitlandi til-
hugsun að útkoman verði sú að
Selfoss og Leiftur vinni sér sæti í
1. deild. Það er alltaf gott að fá
nýtt blóð í deildina, nýja staði og
nýja áhorfendur sem fá 1..
ÍÞRÓTTASPEGILL SIGURÐSSON
ÍA og Þór berjast um sæti í
UEFA-bikarnum og töpuðu
bæði dýrmætum stigum um síð-
ustu helgi. Sumir leikmanna ÍA
hafa varla þorað að láta sjá sig
utandyra á Akranesi eftir 3-4 tap-
ið gegn Víðismönnum, og Þórs-
arar létu K A hirða af sér tvö stig á
lokamínútum Akureyrarslagsins.
Ef þau stig kosta þá Evrópusætið
langþráða munu þeir lengi naga
sig í handarbökin yfir þessu jafn-
tefli.
Fallbaráttan er galopin og ekk-
ert lið fallið fyrir síðustu umferð.
Völsungur, Víðir og FH - tvö
þessarra falla og kannski er staða
Völsunganna erfiðust þrátt fyrir
að vera fyrir ofan hin tvö. Þeir
heimsækja nýkrýnda meistara
Vals og tapist sá leikur verða þeir
að vona að hvorki Víðir né FH
nái að knýja fram sigur í sínum
heimaleikjum við KR og Þór.
Víðismenn sýndu aðdáunar-
verða keppnishörku í kjölfar
niðurlægingarinnar í bikarúrslita-
leiknum. Þeir urðu að sigra á
Akranesi til að eiga möguleika á
að forðast fall - og það tókst á
ævintýralegan hátt. Víst er að
margir unna Víði áframhaldandi
setu í 1. deild en ekki veit ég um
afstöðu KR-inga í því máli!
Síðan er 2. deildin hreint ótrú-
leg. Fjögur efstu liðin leika inn-
byrðis í lokaumferðinni og tvö
þeirra fara upp. Verða það Vík-
ingur og Þróttur, Selfoss og
Leiftur, Víkingur og Selfoss eða
Víkingur og Leiftur? Fjórir mis-
munandi möguleikar og á þeim
sést að möguleikar Víkinga eru
deildarknattspyrnu í fyrsta skipti.
Garður og Húsavík hafa rofið
einveldi hinna hefðbundnari 1.
deildarbæja nú síðustu árin og nú
geta Selfoss og Ólafsfjörður fylgt
í kjölfarið. Slíkur árangur ýtir
undir og hraðar uppbyggingu
íþróttamannvirkja - Víðismenn
voru t.d. tilbúnir með grasvöll
þegar með þurfti í 1. deildinni og
á Húsavík virkuðu frammistaða
Völsunga og landsmótshaldið
reglulega hvetjandi.
Á sunnudagskvöldið verður
síðan útnefndur „knattspyrnu-
maður ársins“ á hinu árlega hófi
félags 1. deildarleikmanna.
Margir tilnefndir að vanda en lík-
legast er að sigurvegarinn komi
annaðhvort úr liði íslandsmeist-
aranna eða bikarmeistaranna. Sé
hópurinn þrengdur enn frekar
hljóta nöfn Guðna Bergssonar og
Péturs Ormslevs að vera á flest-
um atkvæðaseðlunum. Hvor um
sig væri vel að útnefningunni
kominn.
Valur, Fram og ÍA verða síðan
í eldlínu Evrópumótanna í næstu
viku. Valsmenn í Austur-
Þýskalandi en Skagamenn og
Framarar á heimavelli. Það er
ástæða til að hvetja knattspyrnu-
áhugamenn til að láta þessa leiki
ekki framhjá sér fara, heima-
leikir íslensku liðanna hafa verið
skammarlega illa sóttir síðustu
árin. Það virðist þurfa Juventus
eða Barcelona til að draga menn
á völlinn - og þá er mætt til að sjá
erlendu gestina, ekki til að styðja
við bakið á íslensku liðunum.
Hér er þörf á hugarfarsbreytingu.
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. séptember 1987