Þjóðviljinn - 13.09.1987, Síða 11
Erwin Strittmatter
Hér veröa kynntir sex af þeim
erlendu höfundum sem koma
fram á bókmenntahátíðinni í
Norræna húsinu, en í laugar-
dagsblaði er dagskrá, þess-
ara daga, birt í heild
Alain Robbe-Grillet, flytur
fyrirlestur um „nýju skáldsöguna
og ævisöguna", á mánudag kl. 14
og mun síðar lesa upp úr verkum
sínum. Hann er franskur, fæddur
1922 og hóf skáldsagnaritun á
sjötta áratugnum og var í hópi
þeirra franskra höfunda sem
ruddu nýju skáldsögunni braut.
Þessir höfundar voru andsnúnir
hefðbundnu raunsæi og gerðu
djarfar tilraunir með frásagnar-
hátt og sjónarhorn. „Gáfu sögu-
þræðinum á kjaftinn“, einsog
skáldið sagði. Ein þekktasa
skáldsaga Robbe-Grilles, La ja-
lousie, kom út 1957, en meðal
annarra þekktra verka hans má
nefna Dans le labyrinthe (59) og
La Maison de rendevouz (65).
Robbe-Grillet hefur einnig skrif-
að bækur um bókmenntafræði,
svo sem Pour un nouveau roman
(63) og kvikmyndahandrit, m.a.
að myndinni L’Anneé derniére á
Marienbad (61). Mynd hans, La
belle captive, verður sýnd á kvik-
myndahátíð Listahátíðar hér
innan skamms. Robbe-Grilles er
Paul Borum
talinn einhver þekktasti
brautryðjandi nýstefnunnar í evr-
ópskri skáldsagnagerð.
Fay Weldon
er fædd á Englandi árið 1933 en
ólst upp á Nýja-Sjálandi. Fram-
haldsmenntun sótti hún til St.
Andrews háskólans í Skotlandi.
Hún vann við auglýsingagerð um
skeið áður en hún sneri sér að
ritstörfum um miðjan sjöunda
áratuginn. Hún er í hópi þek-
ktustu rithöfunda breta. í verk-
um sínum vekur Weldon hressi-
lega máls á hlutskipti og stöðu
kvenna og lýsir vandamálum
þeirra á grátbroslegan og hnytt-
inn hátt. Fyrsta bók, var smá-
sagnasafnið, The Fa t Womans’s
Joke(67) en í kjölfar þess, fylgdi
skáldsagan, Down Amongst the
Women, sem vakti mikla athygli
á sínum tíma. Hér á landi er
Weldon líklega þekktastur fyrir
skáldsögurnar Praxis, og Ævi og
ástir kvendjöfuls (The life and
love of she-devil) sem báðar hafa
komið út í íálenskri þýðingu. ís-
lensk þýðing hinnar síðarnefndu
verður endurútgefin í tilefni af
komu Weldon á bók-
menntahátíðina. Jafnhliða skáld-
sagnagerðinni hefur Weldon fjal-
lað um bókmenntir og skrifað
Kaari Utrio
tvær bækur, tileinkaðar skáld-
konunum Rebekku West og Jane
Austen. Hún hefur einnig unnið
handrit fyrir sjónvarp, þ.ám. eitt
upp úr skáldsögu Jane Austen,
Ast og hleypidómar og hlaut fyrir
það mikið lof gagnrýnanda.
Poul Borum
er Dani, fæddur 1934. Fyrsta
ljóðabók hans, Livslinier, kom út
1962. Síðan hefur hann sent frá
sér eina Ijóðabók á ári en alls um
fjörutíu bækur af ýmsu tagi.
Hann skrifar um bókmenntir og
rokktónlist í Ekstrabladet í
Kaupmannahöfn og hefur um
margra ára skeið verið ritstjóri
tímaritsins Hvedekorn. Borum
hefur allatíð verið fulltrúi nýrra
strauma í dönskum bókmenntum
og með verkum sínum og
gagnrýni haft milil áhrif á ljóðlist
í Danmörku á síðustu tveimur ár-
tugum.
Johan Bargum
er Finni, fæddur 1943. Fyrsta bók
hans var smásagnasafnið Svart-
John Bargum
vitt (65), en meðal skáldagna
hans eru, Femte Avent (67), Tre
tva ett (68), Finsk rulett (71),
Mörkrum (77), Pappas Flicka
(82), og Sommarpojken (84). í
verkum sínum fæst Bargum við
vandamál samtíðarinnar og nálg-
ast þau frá ólíkum hliðum. Þemu
einsog einmanaleiki, firring og
vandamál ýmissa minnihluta-
hópa eru honum sérstaklega hug-
leikin.
Erwin Strittmater
er frá Austur-Þýskalandi, fæddur
1912 og einn fremsti fulltrúi sósí-
alískrar raunsæisstefnu í austur-
þýskum bókmenntum. Faðir
hans var smábóndi og bakari og
framan af ævi fetaði sonurinn í
fótspor hans sem bakari. Stritt-
master starfaði lfka sem þjónn,
bflstjóri, ritstjóri dagblaðs, var í
forsvari fyrir bæjarfélag sitt o.fl.
Eftir heimsstyrjöldina sneri hann
sér loks alveg að skáldskap.
Fyrsta skáldsaga hans, Ochens-
enkutscher kom út 1951. Tinko,
vakti verulega athygli þremur
árum síðar, sagan Ole Bienkop
(63), naut mikilla vinsælda og
líka Die Blaue Nachtigall oder
Der Anfang von Etwas (72) og
Selbstermunterungen (81). I
tveim síðasttöldu byggir hann að
nokkru á atburðum úr eigin ævi,
fellir í búning skáldsögu og smíð-
ar sterk myndræn skáldverk.
Strittmatter sækir efnivið til
austurþýsks sveitalífs og fæst við
vandamál samyrkjubúskapar þar
í landi. Er líka þekktur fyrir leik-
húsverk sín en hann hefur verið
heiðraður með „Nationalpreis
fur Kunst und Literatur" fjórum
sinnum. Nýjasta bók hans, Der
Laden, sem kom út tveimur bind-
um fyrr á þessu ári, er af mörgum
talin hans besta bók.
Kaari Utrio
er Finni, fædd 1942 og hefur
meistarapróf í sagnfræði. Hefur
skrifað fjölda sögulegra skáld-
sagna sem flestar gerast í Finn-
landi, á miðöldum þegar landið
var talið hluti af Svíþjóð. Auk
þess hefur hún skrifað sagnfræði-
rit. Utrio fjallar sérstaklega um
stöðu kvenna fyrr og nú, ekki síst
í skáidsögunni Pirita, dóttir Kar-
elíu, (72), en fyrir hana fékk Ut-
rio bókmenntaverðlaun sænska
ríkisins. Á árunum 1976-1981
sendi hún frá sér sögu í fjórum
hlutum um Finnland á miðöldum
en þetta verk er á vissan hátt
kvennasaga í skáldsöguformi.
Árið 1984 sendi hún frá sér stórt
sagnfræðirit, Evudætur. Þar rek-
ur hún sögu kvenna, fjölskyld-
unnar og barna á forsögulegum
tíma fram á daga iðnvæðingar-
innar. Og hlaut bókmenntaverð-
laun finnska alþýðusambandsins.
Tveim árum síðar skrifaði hún
annað verk í svipuðum dúr, Dæt-
ur Kalevala, en þar er í brenni-
depli saga finnskra kvenna frá
forsögulegum tíma, þar til þær
fengu kosningarétt. Kaari Utrio
er í forsvari fyrir úthlutunamefnd
bókmenntaverðlaun finnska
ríkisins, skrifar fasta dálka í dag-
blöð, rekur virkan þátt í þjóðfé-
lagsumræðu í Finnlandi fyrir fyrir
utan að vera mikilvirkur rithöf-
undur.
Bókmenntahátíðin
Höfundatal
- sex afþeim höfundum sem koma fram
nœstu tvo daga kynntir
Keppni í landsliðsflokki haldin á Akureyri
Fiórir lililhafdr meðal þótttakenda
Keppni í landsliðsflokki á
Skákþingi íslands hefst á Ak-
ureyri þann 17. september
næstkomandi með þátttöku
margra sterkustu skákmanna
þjóðarinnar. Þettaerannað
árið í röð en í fyrra var Grund-
arfjörður vettvangur mótsins
og þótti takast vel. Akur-
eyringar fagna 125 ára af-
mæli þessa dagana og halda
skákþingið m.a. í tilefni þess.
Mótið nú er ekki alveg eins
sterkt og skákþingið í fyrra eða
árið 1984 en þó verða tveir stór-
meistarar og tveir alþjóðlegir
meistarar með. Keppendur eru
þessir: Helgi Ólafsson, Margeir
Pétursson, Karl Þorsteins,
Þröstur Þórhallsson, Dan Hans-
son, Sævar Bjarnason, Davlð Ól-
afsson, Hannes Hlífar Stefánsson,
Þröstur Árnason, Áskell Örn
Kárason, Ólafur Kristjánsson,
Gylfi Þórhallsson, Jón Garðar
Viðarsson, Gunnar Freyr Rún-
arsson og Arnar Þorsteinsson.
Samkvæmt breytingum sem al-
þjóða skáksambandið gerði á
reglum sínum er nú hægt að ná
titiláföngum á meistaramótum
hvers aðildarfélags FIDE ef skil-
yrðum um þátttakendur og fjölda
titilhafaerfullnægt. íslandsmótiö
nú gefur hugsanlega möguleika á
áföngum á alþjóða meistaratitil
en tveir keppendur, þeir Þröstur
Þórhallsson og Davíð Ólafsson,
hafa báðir náð slíkum áföngum,
Davíð á Reykjavíkurmótinu í
fyrra en Þröstur á alþjóðlega
mótinu í Gausdal og síðar á
Lloyds-bank í Lundúnum fyrir
nokkrum vikum. Það er margt
sem bendir til þess að Þröstur
verði næsti titilhafi okkar. Ár-
angur hans í Gausdal féll nokkuð
í skuggann af frammistöðu Marg-
eirs Péturssonar en hann vann þó
ýmis góð afrek. Þannig vann
hann núverandi Danmerkur-
meistara, Erling Mortensen í að-
eins 19 leikjum í skák sem fylgir
hér:
Gausdal 1987:
Erling Mortensen
Þröstur Þórhallsson
Skandinavískur leikur
1. e4 d5
(Skandinayíski leikurinn er vin-
sæll meðal ungu skákmannanna.
Hannes Hlífar beitir honum iðu-
lega m.a. því afbrigði sem hér
verður uppá teningnum).
2. exd5 Rf6 3. c4
(Eitt vinsælasta afbrigðið. Aðrir
álitlegir möguleikar eru 3. Bb5 +
og 3. d4).
3. ... e6l?
(Þessi peðsfórn er í hreinum og
klárum gambítstfl. Svartur fórnar
peði til að hraða liðsskipan sinni.
Sé hvítur ekki nægilega vel með á
nótunum getur hann lent í hrika-
legustu erfiðleikum).
4. dxe6 Bxe6 5. Rf3 Rc6 6. d4
Bb4+ 7. Rc3 Re4 8. Bd2 Rxd2 9.
Dxd2 De7
(Kjarninn í hugmynd svarts.
Hann hótar 10. ... Bxc4+ og
undirbýr jafnframt langa hrók-
un).
10. De3?
(Hann er dálítið tvístígandi í að-
gerðum sínum. Sterklega til
greina kemur 10. 0-0-0 0-0-0 11.
a3 og hvítur má allvel við una.
Athyglisvert er hinsvegar fram-
haldið 10. ... Bxc3 11. Dxc3 Rb4
12. Db3! og hvítur stendur betur.
Einnig er mögulegt 10. ... 0-0 en
svartur hefur ekki miklar bætur
fyrir peðið eftir t.d. 11. Bd3).
10. ... 0-0-0
(Hann leggur ekki út í flækjurnar
sem koma upp eftir 11. d5. Sá
leikur kom þó til álita).
11. 0-0-0 Hhe8 12. d5
(Það er ljóst að svartur hefur ríf-
legar bætur fyrir peðið og erfitt
að benda á góða leiki úr því sem
komið er. Mistök hvíts í 10. leik
eru dýrkeypt).
12. ... Bxc3 13. Dxc3 Rb4!
14. De5?
(Þessi leikur bætir ekki úr skák.
Skárra var 14. Da3 þó ekki sé
staðan fögur).
14. ... Rxa2+ 15. Kbl Rb4!
(Svartur hefur jafnað liðsmuninn
og stendur til vinnings).
16. Be2 Bxd5!
(Einfaldast).
17. Dxe7 Hxe7 18. Hhel Be4+ 19.
Kcl
(Hvítur hlýtur að hafa verið í
miklu tímahraki. 19. Kal Rc2+
o.s.frv. er einnig vonlaust).
19. ... Ra2 mát!
Um óvepjulegar skákþrautir
Það eru margir sem fást við
skáldskap á skákborði og verk
þeirra frægustu eins og Rússans
Trotzky hrein listaverk. Þessir
menn eru fæstir hverjir þekktir
fyrir afrek sín við skákborðið í
hörðum keppnum enda krefst
skákdæmagerð mikillar yfirlegu
og fágunar. Þó eru undantekn-
ingar á þessu t.d. hefur Banda-
nkjamaðurinn Paul Benkö náð
umtalsverðum árangri á sviði
skákdæmagerðar og einnig á
skákmótum, tefldi t.d. tvívegis í
áskorendakeppni. Mörg þekkt-
ustu verk hans byggja á ákveð-
inni formfestu, bókstöfum eða
myndum og það sækir hann vafa-
laust til annars meistara, Banda-
rikjamannsins Sam Lloyd sem
samdi m.a. þessi tvö dæmi sem
hér fylgja.
Nr. 1
Hvítur leikur og mátar I 4. leik
Nr. 2
Hvítur leikur og mátar í 4. leik
Þetta virðist vera sama dæmið.
Menn standa allir eins að öðru
leyti en því að í dæmi tvö hefur
öllum liðsaflanum verið þokað
eitt skref til vinstri. Lausnirnar
eru fyrir vikið gerólíkar. Þær birt-
ast í næsta þætti.
Sunnudagur 13. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11