Þjóðviljinn - 13.09.1987, Side 22

Þjóðviljinn - 13.09.1987, Side 22
. KROSSGÁTA Nr. 584 BRIDGE T~~ 7 íT (o 7 0? eó ‘°K // E 12 u 13 7 o? IV- )sr )& i> 18 92 19 9 2D 7 18 zo 7- /7 2! V 8 7 18 02 22 23 V 92 * 27 5 2S )9 v- 2S 13 2é> 15 0? 8 3 7 7 2/ sp 7 lé> 17 18 T T 19 7 13 13 s 27 3 13 7 Vi 2T 13 13 /4 18 8 7 02 29 3 1/ /3 T 8 7 0? )£ V~ 5‘ 2S 3 7 2 /5 V d 2? 7 02 15 17- .f 20 3 * 7$ /7 02 7 sr 9 7 T 19 2/ 5 7 02 & 7 5 26 29 V 30 13 )0 11 18 7 S’ 02 10 26 JS 1? 02 31 9 19 V- 18 7 ? 3 3o )6 f V) 15 27 5 19 /3 Ý 'Y' V IO 3 8 22 15 7 b~ 02 4 d 18 /9 2S s V 02 /o )/ ÍÉ ? 02 30 3 21 Setjið stafina í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á þekktu leikritaskáldi. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj- ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta númer 584“. Skila- frestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lárétt eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og qaldurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á qða öfugt. AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ 27 // 3 29 /9 J5 25 Guðrún Helga Jónsdóttir, Hrísateig 7, 105 Reykjavík, hlaut verðlaun fyrir krossgátu númer 582. Lausnarorðið var Eymundur. Hún fær sent ritsafn Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin fyrir krossgátuna að þessu sinni er ritsafn Steins Steinarr, mikil bókog vegleg með Ijóðum hans, blaðagreinum og viðtölum. Vaka- Helgafell gaf bókina út. Úrslitíbikamum Undanúrslit og úrslit í Bikar- keppni Bridgesambands (slands, fara fram í Sigtúni um þessa helgi. í dag spila sveitir Ásgríms Sigurbjörnssonar gegn Sigurði B. Þorsteinssyni og Flugleiða gegn Erni Arnþórssyni. Á morg- un spila síðar sigurvegararnir úr þessum tveimur leikjum til úrslita. Undankeppnin hefst kl. 13, en úr- slitin kl. 10 árdegis á morgun. Skráning í Opna Hótel Arkar- mótið, sem spilað verður eystra helgina 3.^1. október n.k., hefur farið mjög vel af stað. Milli 30-40 pör eru þegar skráð, en búast má við að sú tala hækki verulega, er líður á mánuðinn. Skráð er á skrifstofu BSÍ í s. 68 93 60 (Ólafur). Afar glæsileg verðlaun eru í boði, m.a. ferðir til Zurich, Am- sterdam og Kaupmannahafnar, auk peningaverðlauna. Vetrarstarfsemin hjá Bridgefé- lagi Akureyrar hefst næsta þriðjudag, með Start-mótinu (tvímenningur). Verðlaun í það mót gefur Skipaafgreiðsla KEA. Að því loknu hefst svo Bauta- mótið, sem er fjögurra kvölda tvímenningskeppni. Spilað er í Félagsborg. Formaður B.A. er Tryggvi Gunnarsson. Vetrarstarfið hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar hefst næsta mánu- dag með eins kvölds tvímenn- ingskeppni. Spilað er í íþrótta- húsinu v/Strandgötu. Formaður B.H. er Einar Sigurðsson, en keppnisstjóri verður sem fyrr, Ragnar Magnússon. Skráning í íslandsmót kvenna og yngri spilara í tvímenning, er haldið verður helgina 10.—11. október, er hafin hjá BSÍ. Henni lýkur mánudaginn 5. október. Spilaður verður barometer í báð- um flokkum. Vestfjarðamótið í tvímenning verður spilað um þessa helgi á Patreksfirði. Búist var við að um 24-26 pör tækju þátt í mótinu, sem er svipuð þátttaka og síðustu ár. Keppnisstjóri vestra er Jakob Kristinsson, en formaður Bridge- félags Patreksfjarðar er Sigurður Skagfjörð. Enn á ný er vakin athygli á því, að þau félög sem enn hafa ekki greitt árgjöld til bridgesambands- ins (gjalddagi 15. júlí) geta átt það yfir höfði sér að viðkomandi svæði sem félagið tilheyrir, missi „kvóta“ til íslandsmóts, með þeim afleiðingum að félagar á því svæði „sitja eftir“ er sætum til ís- landsmóts verður úthlutað. Er hérmeð skorað á viðkomandi fé- lög að jafna reikninga við BSÍ. Næsta meistarastigaskrá kem- ur út í janúar 1988. Oll félög sem vilja fá skráð ný stig í þá skrá, verða engin ný stig skráð fyrr en vorið 1988. Sumarbridge 1987 lauk sl. fimmtudag. Metþátttaka var í sumar. Að meðaltali spiluðu 110 pör vikulega, sem mikil aukning frá fyrri sumarkeppnum. Sigur- vegari 1987 í Sumarbridge varð Jacqui McGreal frá Bridgefélagi Reykjavíkur. Hún hlaut 387 bronsstig, á undan þeim hjónum úr Hafnarfirði, Huldu Hjálmars- dóttur og Þórarni Andrewssyni, sem hlutu 370 stig. Þau Hulda og Þórarinn hófu keppni í Sumar- bridge afar seint, sem gerir frammistöðu þeirra enn betri. í framhaldi af Sumarbridge hefur verið ákveðið að spila á þriðjudögum í haust og í vetur með sama fyrirkomulagi. Eins kvölds keppnir, og húsið opnað kl. 17.30. Umsjónarmaður verð- ur Ólafur Lárusson. f sambandi við 10 ára afmæli bridgeþáttar Þjóðviljans, má geta að umsjónarmaður og séra Baldur (fyrrum umsjónarmaður) munu taka á móti árnaðaróskum á Örkinni, fyrstu helgi í október. Sérstakir heiðursgestir með okk- ur verða fulltrúar Akureyrarbæj- ar og Reykjavíkurborgar, auk allra hinna staðanna sem áttu af- mæli um árið. Rjómatertur af- þakkaðar. Og einn góður, sem má ekki sleppa. Framlag þáttarins til smokkaherferðar landlæknis: „Hvað gerirðu við 365 notaða smokka?“ Nú, býrð til hjólbarða og kallar hann „Goodyear". SKYRT OG SKORINORT Paradísarheimt á dúk og disk I. Það kvað vera mannlegt að gera mistök. Þessvegnaerflestum fyrirgefið þó þeir hagi sér illa, Ijúgi, steli, drepi og fari með sví- virðingará hendur heiðvirðu fólki. Mannlegtjá. Undirritaður Snati biðstforláts og höfðartil kærleikskenndarinnar sem býr í hverju brjósti. Snata skjátlaðist. Og auðvitað er hægt að fyrir- gefaflest. Jafnvel litlum snötum með slæmt uppeldi og grugguga fortíð að baki. En þegar Snati fer með lygar í nafni trúarbragða hlýtur það að vera mikið efamál hvort honum verðurfyrirgefið af guðiog mönnum. Fyrir skemmstu var undirritað- ur Snati með hótfyndni og fullyrð- ingar um að himnaríki væri í verslunarmiðstöðinni Kringlunni. Honum skjátlaðist. Himnaríki er á öskuhaugunum. II. Miðað við öskuhaugana er Kringlan aðeins hjákátlegursér- trúarsöfnuður. Musteriðerað sönnu veglegt: En spakir menn vita að þeim mun meiri íburður sem fylgir trúarbrögðum - þeim mun minna er af hinum andlegu verðmætum sem mölur og ryð fá ekki grandað. Látleysi ermæli- kvarði á áreiðanleika trúar- bragða. í látleysinu felst fullkomnun. III. Á öskuhaugunum er pláss fyrir allar skepnur: Rottur naga þar kjúklingabein á næsta borði við vísitölufjölskyldu með kúfað borð af lambakjöti, agúrkum, kart- öflum, tómötum og öðru því hnossgæti sem erá matseðli dagsins. Yfirsveimastoltarlegir mávar: útbelgdiraf kræsingum og Sólgosi. Þarna sameinast skepnur jarð- arinnar rétt eins og í þeirri paradís sem maðurinn vareitt sinn rekinn út úr fyrir óviðurkvæmilega hegð- un. Guð hefur hleypt okkur aftur inn. Ríki hansájörðinni erþess- vegna þegar f ullkomnað og nú sem endranær fer gamli maður- inn sínareiginleiðir. IV. Og nú þurfum við ekki að hugsa um svöngu börnin í út- löndum sem kannski gætu hugs- að sér lambakjötið, kjúklinga, sólgosið, banananaog Morgun- blöðin sem er hent á haugana. Við þurfum ekki að velta okkur upp úr smáborgaralegum út- reikningum um hvað ösku- haugarnir kosta á núvirði. Umfram allt þurfum við að breiða út fagnaðarerindið: Himnaríki öskuhauganna uppi í Gufunesi er dásamlegasti áning- arstaður sem hugsast getur á vegferð mannsins. Og út á þetta biðst Snati afsök- unar af heilum hug. Hann lét eina stund glepjast af falsspámanni í Kringlunni. Og svöngu börnin í Afríku geta tekið gleði sína: Þau vita þá að íslenska dilkakjötið er hvorki meira né minna en framliðið. Semsagt guðslömb. V. Sannlega segi ég yður: Þegar dagurinn myrkvast, þegaröll sund lokast og þegar það er leiðinlegt að vera einn í vondum heimi; þá opinberast yður Guðs- ríkiájörðu. Þar er alltaf nóg að bíta og brenna. En eins og segir í 52. passíu- sálmi: „Og vænglausar brosandi rott- ur leika á hörpur Ijúfa söngva..." 22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. september 1987 ;

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.