Þjóðviljinn - 18.09.1987, Síða 3
■hhORFRETTIRi
Haukur Torfason
forstöðumaður Vinnumiðlunar-
skrifstofu Akureyrar hefur verið
skipaður í stöðu útsölustjóra
ÁTVR á Akureyri. Fjármálaráð-
herra skipaði í stöðuna, en alls
sóttu 21 um embættið.
Sjávarútvegsráðherra
Danmerkur, Lars P. Gammel-
gaard, kemur í opinbera heim-
sókn til íslands í boði Halldórs
Ásgrímssonar sjávarútvegsráð-
herra. Gammelgaard er ráðherra
íhaldsflokksins og sat lengi í bæj-
arstjórn í Árósum. Hann verður
viðstaddur opnun sjávarútvegs-
sýningarinnar á morgun og
skoðar einnig frystihús og fisk-
vinnslu á Höfn í Hornafirði og í
Vestmannaeyjum.
Jean-Claude Paye
framkvæmdastjóri Efnahags- og
framfarstofunarinnar OECD í
París kemur til landsins á þriðju-
dag í boði ríkisstjórnarinnar.
Hann mun eiga viðræður við við-
skiptaráðherra Jón Sigurðsson.
Námsstefna
um sálmafræði
verður haldin á vegum endur-
menntunardeildar Háskólans um
þarnæstu helgi. Þar verða kynntir
straumar og stefnur í sálmakveð-
skap og sálmasöng á Norður-
löndum með fyrirlestrum norskra
og íslenskra fræðimanna. Skrán-
ing fer fram á aðalskrifstofu Há-
skólans.
Fiskiðn
fagfélag fiskiðnaðarins heldur
fræðslufund í tengslum við Sjáv-
arútvegssýninguna, á sunnudag
í Holiday Inn hótelinu kl. 13. A
fundinum verður fjallað um tölvu-
tækni og flakavinnslu í frystihús-
um.
FRETTIR
Dagvistun
Horfur á verra ástandi
Foreldrasamtökin: Skora á aðila vinnumarkaðarins að semja um bœtt kjör starfs-
fólks á dagvistunarheimilum og átaki í uppbyggingu nýrra heimila. Anna K. Jóns-
dóttir, formaður stjórnar dagvistunar: Vandamálið eru lág laun. Matthías
Guðmundsson hjá sambandinu: Ihugar stofnun eigin dagvistunar
„Fundurinn samþykkti tillögu
til ályktunar þar sem skoraS er á
aðila vinnumarkaðarins í kom-
andi samningaviðræðum um
kaup og kjör, að beita sér fyrir
bættum launum starfsfólks á dag-
vistunarheimilum og einnig að
þeir hinir sömu beiti sér fyrir því
og semji um það sín í milli að átak
verði gert í uppbyggingu nýrra
dagvistunarheimila", segir
Hrönn Þormóðsdóttir, í stjórn
Foreldrasamtakanna í Reykja-
vík.
Ályktunin hefur þegar verið
send til Alþýðusambands ís-
lands, Vinnuveitendasambands
íslands, Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar og til borgar-
stjórnar Reykjavíkur.
Á þessum fundi Foreldrasam-
takanna sem haldinn var í fyrra-
kvöld um erfiðleika foreldra sem
skapast hafa vegna þess vand-
ræðaástands sem ríkir í dagvist-
unarmálum í Reykjavík, en nú
þegar hefur orðið að loka 10
deildum á dagvistunarheimilum
vegna skorts á starfsfólki.
Meðal frummælenda á fundin-
um var Matthías Guðmundsson,
hjá Starfsmannahaldi Sambands
íslenskra Samvinnufélaga. Hann
sagði að Sambandið væri að
íhuga það alvarlega í dag að
koma á fót eigin dagvistun fyrir
börn starfsmanna sinna. Og
heyrst hefur um fleiri fyrirtæki
sem íhuga þennan möguleika.
Unnur Jónsdóttir, í stjórn
■Fóstrufélagsins sagði að fóstrur
treystu sér ekki lengur að vinna á
dagvistunarheimilum og væru
þær að hópa sig saman á heimili
til að geta unnið frekar á fag-
legum grundvelli í sinni vinnu.
Anna K. Jónsdóttir, sem er for-
maður stjórnar dagvistunar í
Reykjavík viðurkenndi á fundin-
um að lág laun væru vandamál
sem stæði í veginum fyrir því að
hægt væri að manna dagvistunar-
heimilin og stöðugt væri verið að
vinna að þessum málum, en kom
ekki fram með neinar hugmyndir
til lausnar.
Að sögn Hrannar er búist við
því að ástandið á dagvistunar-
heimilunum versni enn frekar
þegar líða tekur að næstu mán-
aðamótum. Sagði hún að þetta
væri vandamál sem kæmi öllum
foreldrum við, ekki bara þeim
sem yrðu að þeysast milli borgar-
hverfa í matar- og kaffitímum til
að koma börnum sínum í pössun,
heldur og líka samfélaginu öllu.
- grh
Dagvist
Vinnunefnd
kannar
vandann
Ingibjörg Sólrún: Niður-
staða fáist fyrir áramót
Borgarráð hefur samþykkt til-
lögu Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur, borgarfulltrúa Kvenna-
listans, um nefnd til að skoða
vandann sem við er að etja á dag-
vistarheimilum borgarinnar.
Nefndin á að skila af sér fyrir ára-
mót.
Um er að ræða samstarfsnefnd
borgarráðs og stjórnar Dagvist-
ar, og gert ráð fyrir að hún kanni
sem rækilegast þá erfiðleika sem
ríkja á dagvistarheimilum
Reykjavíkurborgar. Á starfssviði
nefndarinnar er einnig að leita
leiða til að fá fleira fólk til starfa.
Sérstaklega er tekið fram í
samþykkt borgarráðs, að nefndin
hafi fullt samráð við fulltrúa
fóstra og ófaglærðs starfsfólks.
-ÖS
Amnesty
Fleira fólk
til starfa
Tvö námskeið í bígerð hjá Islandsdeildinni. Malcolm
Tigerschiold miðlar afátján ára starfsreynslu innan
samtakanna
Malcolm Tigerschiold heldur þjálfunarnámskeið fyrir Amnesty-félaga um
þessa helgi og þá næstu: Markmiðið að virkja fólk en ekki að segja þvi fyrir
verkum. Mynd: Sig.
Það er ekki í mínum verka-
hring að veita félögum Amn-
esty hér á landi fyrirmæli um
hvernig þeir eigi að starfa, en á
hinn bóginn get ég miðlað þeim af
átján ára starfsreynslu minni
innan samtakanna,“ sagði JWa/c-
olm Tigerschiold, en hann er nú
staddur hér á landi og mun stýra
námskeiðum um þessa helgi og þá
næstu.
Malcolm hefur sérhæft sig í að
búa fólk undir að starfa á vegum
samtakanna, en þjálfunarnám-
skeið hans hér á landi eru bæði
ætluð byrjendum og eins þeim
sem hafa reynslu af starfi að
mannréttindamálum.
Að sögn Malcolms verða
námskeiðin ekki á formi fyrir-
lestra, heldur verða þátttakendur
látnir velta fyrir sér raunveru-
legum dæmum af fangamálum,
og koma með tillögur um hvernig
ráðlegast sé að bregðast við. 1
annan stað verður því velt upp
hvaða sess Amnesty Internation-
al skipar í hugum fólks hérlendis,
og í því sambandi verða þátttak-
endur hvattir til að leita leiða til
að virkja fleiri til þátttöku í starfi
samtakanna.
Námskeiðin verða haldin í
Hlaðvarpanum helgarnar 19. til
20. og 26. til 27. þessa mánaðar,
og er væntanlegum þátttakend-
um bent á að hafa samband við
skrifstofu Amnesty í Hafnar-
stræti og láta skrá sig.
HS
Barðaströnd
Bændur stofna sláturfélög
Ingvi Haraldsson oddviti: Leigjum sláturhúsið af Stofnlánadeild landbúnaðarins. Sláturhúsið
á Bíldudal er á undanþágu. Nauðsynlegtfyrir okkur að geta haft eigið hús
Við tókum okkur saman bænd-
ur hér á Barðaströnd og í
Rauðasandshreppi og stofnuðum
sláturfélag fyrir skömmu. Til þess
að geta slátrað okkar fé höfum
við tekið á leigu af Stofnlánadeild
landbúnaðarins sláturhús
Kaupfélags Vestur-
Barðstrendinga á Patreksfirði,
sem hét áður Matvælavinnslan,
en það fór á hausinn fyrr á þessu
ári og Stofnlánadeildin keypti það
á nauðungaruppboði, segir Ingvi
Haraldsson, oddviti á Fossá á
Barðaströnd.
Að sögn Ingva er hér um að
ræða löglegt sláturhús og þessa
dagana er verið að undirbúa hús-
ið undir væntanlega slátrun. Ekki
er enn ákveðið hvenær byrjað
verður, en Ingvi bjóst við að það
yrði fljótlega.
Ástæðan fyrir því að bændurn-
ir stofnuðu með sér sláturfélag
var sú að næsta sláturhús sem er á
Bíldudal er á undanþágu og sú
undanþága miðast eingöngu við
slátrun á sauðfé. En bændunum
þar vestra er nauðsyn á því að
geta slátrað einnig nautgripum og
svínum ásamt sauðfé.
Göngur eru ekki enn byrjaðar
á Barðaströnd og bjóst Ingvi
jafnvel við því að formlega yrðu
engar göngur í sveitinni. Bæði er
að erfitt er að manna fjallskil
vegna fámennis í sveitinni og hitt
að margt af fénu er þegar komið
heim í tún og handhægt að ná því
af þeim sökum.
„Það er ómögulegt að segja
hvernig okkur gengur að manna
húsið þegar við byrjum. En ég
býst við því að fólkið hérna í
sveitinni láti hendur standa fram
úr ermum þegar til þarf að taka
og vinni við slátrunina þegar þar
að kemur,“ sagði Ingvi Haralds-
son, oddviti.
-grh
Sjómenn
Ráðstefha
um
öryggismál
Framkvæmdastjóri Far-
manna- ogfiskimanna-
sambandsins: Förum yfir
það sem áunnist hefur og
hvað gera skuli á nœstu
árum
„Aðaltilgangurinn með þcssari
ráðstefnu um öryggismál sjó-
manna sem byrjar í dag klukkan
8.45 í Borgartúni 6, er að fara yfir
það sem áunnist hefur í þessum
málum frá síðustu ráðstefnu, sem
haldin var fyrir þremur árum, og
hvað gera skuli í framhaldi af því
á næstunni,“ segir Haraldur Hol-
svík, framkvæmdastjóri Far-
manna- og fískimannasambands-
ins.
Það er Siglingamálastofnun
ríkisins í samvinnu við 17 aðra
hagsmunaaðila, félög og stofnan-
ir í sjávarútvegi og siglingum sem
boðar til ráðstefnunnar. Hún er
öllum opin á meðan húsrúm
leyfír, en þátttökugjald er 500
krónur.
Meðal þess sem rætt verður um
á ráðstefnunni eru viðhorf full-
trúa sjómanna og útgerðarmanna
til öryggismála og áhrif fisk-
veiðistjórnunar á öryggi og að-
búnað sjómanna, ásamt fleiru.
-grh
Föstudagur 18. september 1987 (pJÓÐVILJINN - SÍÐA 3