Þjóðviljinn - 18.09.1987, Síða 7
Washington
Samningar
tékust!
Maraþonfundi Shultz og
Shevardnadzes lauk ígœrkveldi
með þvíað þeirgerðu
bráðabirgðasamkomulag um
eyðingu meðaldrœgra kjarnflauga
Loksins tókust samningar með þessum herramönnum, Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkianna oq Georae
Shultz, bandariskum kollega hans. ’ M M
Loksins kom að því að afvopn-'
unarviðræður fulltrúa Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna
skiluðu árangri. Eftir þriggja
daga viðræður í höfuðborg
Bandaríkjanna og framlcngdan
lokafund tókust bráðabirgðas-
amningar með Eduard Shevar-
dnadze og George Shultz, utan-
ríkisráðherrum risaveldanna,
um eyðingu allra meðaldrægra
kjarnflauga úr heiminum.
Að sögn háttsettra aðstoðar-
manna beggja á aðeins eftir að
ganga frá ýmsum tæknilegum
smáatriðum en þeir gerðu ráð
fyrir að samkomulagið yrði stað-
fest í dag áður en Shevardnadze
heldur til síns heima.
Talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, Charles Re-
dman, sagði yfirlýsingar að vænta
í dag og að Shultz myndi að því
loknu svara fyrirspurnum frétta-
manna. „Pað verða ekki fleiri
fundir með ráðherrunum. Þeir
hafa lokið sínu verki.“
Reiknað hafði verið með því
að Shultz og Shevardnadze lykju
viðræðum sínum í eftirmiðdaginn
í gær en þeir framlengdu þær um
sjö klukkustundir. Þeir gerðu hlé
á fundinum til að skjótast í heim-
sókn til Ronalds Reagans í Hvíta
húsið og ræddu við hann í rúman
hálftíma. Ekki var greint frá því í
gærkveldi hvað þar bar á góma.
Þegar Shevardnadze yfirgaf
utanríkisráðuneytið í gærkveldi
var hann venju fremur fáskiptinn
við blaðamenn og neitaði að
svara spurningum þeirra. „Við
hittumst á morgurí1 var hið eina
sem þeim tókst að draga uppúr
honum.
Fyrr hafði Gennady Gera-
simof, blaðafulltrúi sovéska
utanríkisráðuneytisins, látið að
því liggja að til stórtíðinda myndi
draga. „Við stöndum nú á sögu-
legum tímamótum."
Redman tók þá í sama streng
og sagði ráðherrana hafa leyst
hvert ágreiningsefnið á fætur
öðru. Síðar efndu Redman og
Gerasimof á ný til sameiginlegs
blaðamannafundar og tjáðu
mönnum að fulltrúar stórveld-
anna myndu innan skamms hefja
viðræður á ný um bann við kjarn-
sprengingum í tilraunaskyni._
Filippseyjar
Vinir látnir fokka
Aquino forseti víkur tveim nánum ráðgjöfum og vinum úr ríkisstjórn
sinni
Corazon Aquino forseti Filipps-
eyja á í mestu brösum með að
klastra saman nýrri ríkisstjórn
sem taka á við af þeirri sem sagði
af sér nýverið. í gær greindi hún
frá því að hún hygðist ekki hafa
tvo nána vini sína í nýju ráðuneyti
og er almennt talið að hún láti þá
róa vegna þrýstings frá hernum.
Mennirnir eru ritari hennar og
talsmaður, Joker Arroyo, og hel-
sti ráðgjafi um lögfræðileg mál-
efni, Teodoro Locsin. Aquino
greindi frá ákvörðun sinni í sjón-
varpsræðu. Hún kvað hafa lagt
mikla áherslu á að virðast ákveð-
in og röggsöm og sagðist hafa
fulla stjórn á gangi mála. Hún
vék að áróðri andstæðinga og
hvatti fólk til að skella skolla-
eyrum við honum.
Aquino hefur ekki í hyggju að
víkja yfirmanni hersins, Fidel
Ramos, frá störfum en það var
ein meginkrafna uppreisnar-
manna að honum yrði sagt upp.
Öllum að óvörum ávarpaði hann
landslýð í sjónvarpi í gær.
Hann kaus að standa fyrir
framan brunarústir sem fyrir hinn
örlagaríka uppreisnardag hýsti
yfirstjórn hersins. Hann sagði
„herinn kosta kapps um að verja
Iöglega kjörna ríkisstjórn og
standa vörn um lýðveldið.“
Aquino lauk lofsorði á Arroyo
og sagði hann hugrakkann sóma-
svein sem óhræddur hefði boðið
Ferdinand Markosi byrginn þeg-
ar hann hafði bæði tögl og hagldir
á Filippseyjum. „Hann yfirgefur
ríkisstjórnina til þess að lægja óá-
nægjuöldur innan hennar." For-
setinn sagði að Locsin myndi vera
sér innanhandar eftirleiðis sem
hingaðtil þótt hann gengi úr
stjórninni.
-ks.
Styr hefur staðið um Joker Arroyo að
undanförnu og því hefur Aquino
ákveðið að hann taki ekki sæti í nýrri
stjórn.
Mósambík
Suður-Afríkustjóm
hætti stuðningi
við hryðjuverkamenn
Starfsmaður hjálparstofnunarinnar Oxfam lýsir glcepum hœgri
skæruliða í nýútkominni skýrslu
Börn kunna ekki ætíð fótum sínum forráð. Þessum varð það á að stíga á spildu
þar sem MNR skæruliðar höfðu grafið jarðsprengju.
Starfsmenn bresku hjálpar-
stofnunarinnar Oxfam í Mó-
sambík vilja að ráðamenn sam-
veldislanda taki höndum saman
og beiti stjórn Suður-Afríku
þrýstingi svo hún láti af stuðningi
sínum við hægri sinnaða hryðju-
verkasveitir í nágrannaríkinu.
Yfirmaður stofnunarinnar,
Frank Judd, efndi til blaða-
mannafundar í Lundúnum í gær.
Honum fórust svo orð um starf
Oxfam í Mósambík og borgara-
stríðið þarlendis:
„Við eyðum ómældri orku í að
líkna fórnarlömbum stríðsins og
ættum að beita okkur í jafn mikl-
um mæli fyrir lyktum þess. Fyrst
landar okkar eru reiðubúnir að
láta fé af hendi rakna til kaupa á
hjálpargögnum finnst okkur að
stjórnin eigi að leggja sitt lóð á
vogarskálarnar til þess að þau
fjárútlát verði óþörf.“
Blaðamönnum var hóað sam-
an til fundarins vegna nýútkom-
innar skýrslu starfsmanns Oxfam
í Mósambík. í henni er hægri
sinnuðum skæruliðum MNR
fylkingarinnar meðal annars bor-
ið á brýn að svelta íbúa á svæðum
sem þeir ná á sitt vald og fremja
hryðjuverk á óbreyttum borgur-
um.
Judd skoraði á ríkisstjórn Mar-
grétar Thatchers að beita áhrif-
um sínum á fundi aðildarríkja
breska samveldisins sem hefst í
Vancouver í Kanada í næsta mán-
uði og reyna að fá leiðtoga þeirra
til að þrýsta á stjórn Suður-
Afríku svo hún láti af stuðningi
við félaga MNR. Hann fullyrti að
það væri algerlega undir stjórn-
inni í Pretóríu komið hvort og
hvenær bundinn yrði endir á
borgarastríðið handan landa-
mæranna.
Skýrsla Oxfam starfsmannsins
Julians Quans ber heitið „Mó-
sambík, fyrir alla muni frið!“ í
henni kemur fram að ástandið í
landinu er vægast sagt hrikalegt.
Eitt af hverjum þremur bömum í
Mósambík deyr áður en það hef-
ur náð fimm ára aldri. Yfir 500
þúsund manns hafa flúið landið.
Tvær miljónir manna eru á ver-
gangi innanlands og ekki færrí en
fjórar miljónir myndu svelta
heilu hungri ef ekki kæmi til að-
stoð erlendis frá.
Quan greinir frá því að hryðju-
verkum MNRliða gegn alþýðu
manna fjölgi jafnt og þétt og að
þau verði æ viðurstyggilegri.
Menn em negldir fastir við trjá-
boli, fólk er barið og limlest með
maískylfum og það er rist á hol og
innyflin rifin út.
„Þeir víla ekkert fyrir sér. Ung-
ir piltar eru teknir höndum og
neyddir til að kvelja lífið úr kon-
um og bömum í heimaþorpi sínu.
Petta hefur aukist mjög að und-
anfömu og nýskeð frömdu MNR
skæruliðar glæpi sem þessa hand-
an landamæranna að Zimba-
bwe.“ Quan klykkir út með því
að segja að almenningur í Mó-
sambík sé skelfingu lostinn og
eigi þá ósk heitasta að ósköpu-
num linni.
-ks.
Föstudagur 18. september 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍOA 7