Þjóðviljinn - 23.09.1987, Page 15
ÍÞRÓTTIR
England
Everton slapp
með skrekkinn
Umdeild vítaspyrna þremur
mínútum fyrir leikslok færði
Everton nauman heimasigur á
Rotherham, 3-2, í 2. umferð
deildabikarsins í knattspyrnu í
gærkvöldi. Úr henni skoraði Wa-
yne Clarke en áður höfðu Ian
Snodin og Ian Wilson tvisvar
komið Everton yfir í leiknum.
Liðin eiga eftir seinni leikinn í
Rotherham og meistararnir mega
halda vel á spöðunum þar.
f gærkvöldi var leikinn helm-
ingur fyrri leikja 2. umferðar og
úrslit urðu þessi:
Barnsley-WestHam.................0-0
Bournemouth-Southampton..........1-0
Burnley-Norwich..................1-1
Bury-Sheffield United............2-1
Cambridge-Coventry...............0-1
Carlisle-Oldham..................4-3
Crystal Palace-Newport...........4-0
Darlington-Watford...............0-3
Everton-Rotherham................3-2
Fulham-Bradford City.............1-5
Ipswich-Northampton..............1-1
Manch.City-Wolves................1-2
Rochdale-Wimbledon...............1-1
Shrewsbury-Sheff.Wed.............1-1
Southend-DerbyCounty.............1-0
Stoke-Gillingham.................2-0
Swindon-Portsmouth...............3-1
Wlgan-Luton......................0-1
Derby tapaði fyrir 3. deildar-
liði Southend og 2. deildarlið Bo-
urnemouth og Swindon unnu
góða sigra á 1. deildarliðum Sout-
hampton og Portsmouth. Sigurð-
ur Jónsson og félagar í Sheff.
Wed. héldu jöfnu gegn Shrews-
bury á útivelíi.
-VS/Reuter
Noregur-ísland
Baráttan um
„tréskeiðina“!
Tveir sterkir í norska hópinn
Unglingaleikur
Jafnt í
Noregur-ísland
Slæmar horfur
með Pétur
Hitað upp með Beverley Hill Cops!
Varsjá
Pólland og Island skildu
jöfn, 0-0, í Varsjá í gær.
Leikurinn var liður í Evrópu-
keppni unglingalandsliða,
undir 18 ára, í knattspyrnu.
íslenska liðið var sterkari að-
ilinn í leiknum og var nær
sigri, átti m.a. stangarskot.
ísland hefur fengið 2 stig úr 5
leikjum í keppninni, bæði í úti-
leikjum. Lokaleikur liðsins er
gegn Belgum í Brússel á föstudag-
inn en liðið fer þangað frá Varsjá í
dag.
-VS
Valsmenn ætla að gera tilraun í
vetur með breyttan leiktíma á
heimalcikjum sínum í 1. deildinni
í handknattleik sem fram fara í
miðri viku. Þeir munu hefjast kl.
18 í stað hins hefðbundna
leiktíma kl. 20 eða 21.15.
Þeir segjast ekki hafa miklu að
tapa miðað við aðsókn á leiki síð-
„Ég tel frekar litlar líkur á að
Pétur Ormslev geti leikið með
gegn Noregi,“ sagði Sigurjón Sig-
urðsson, læknir íslenska lands-
liðsins í knattspyrnu, í samtali við
Þjóðviljann í gærkvöldi.
Sigurjón hefur haft Pétur til
meðferðar síðan landsliðið kom
til Osló á sunnudaginn en Pétur á
ustu ár og reikna með að geta á
þennan hátt komið til móts við þá
sem eru á leið úr vinnu og eiga allt
kvöldið eftir þó þeir fari á leik.
Einnig hangir á spýtu Valsara að
Stöð 2 verður jafnvel með beinar
sendingar frá 1. deildarkeppninni
eftir áramót og þá hentar þessi
leiktími mjög vel.
-VS
erfitt með að stíga í annan fótinn
vegna bólgu við hælbeinið.
„Það rigndi talsvert í dag og
Norðmenn eru ánægðir með það.
Völlurinn verður þá líklega fljót-
lega að drullusvaði og það er víst
talinn kostur fyrir norska liðið,"
sagði Sigurjón.
Allir í hópnum nema Pétur eru
alheilir og tilbúnir í leikinn sem
hefst kl. 17 í dag og verður sýndur
beint í íslenska ríkissjónvarpinu.
Eins og áður fór Sigfried Held
með landsliðsmennina í bíó í gær-
kvöldi, kvöldið fyrir leik, og þeir
horfðu þar á Beverley Hill Cops.
Verið að kynda upp í þeim hasar-
inn, eða hvað?!
Byrjunarlið {siands verður
væntanlega þannig: Bjarni Sig-
urðsson, Guðni Bergsson, Sævar
Jónsson, Atli Eðvaldsson, Ólafur
Þórðarson, Viðar Þorkelsson,
Gunnar Gíslason, Ragnar Mar-
geirsson, Pétur Arnþórsson,
Guðmundur Torfason og Lárus
Guðmundsson. Líklegast er að
Pétur komi inn fyrir nafna sinn
Ormslev. Þá eru fyrir utan þeir
Friðrik Friðriksson, Ingvar Guð-
mundsson, Halldór Áskelsson og
Guðmundur Steinsson. _VS
Handbolti
Hlíðarendaleikir
hefjast klukkan sex
Handbolti
Frjálsar
Lewis
tapsár
Carl Lewis, bandaríski gull-
drengurinn, mátti þola tap fyrir
landa sínum, Stanley Ford, á al-
þjóðlegu frjálsíþróttamóti í Sao
Paulo í Brasilíu á sunnudaginn.
Ford hljóp 100 metrana á 10,44
sekúndum en Lewis varð annar á
10,47. Lewis sagði að hann væri
ekki vanur að hlaupa í svona
köldu loftslagi og hefði runnið til
á startblokkunum. Hann hefði
heldur ekki hitað nógu vel upp.
Ford blés á þessar afsakanir
landa síns og sagði sama hitastig
hafa verið á sinni braut og á braut
Lewis.
-VS/Reuter
Frá vígslu nýbyggingarinnar á laugardaginn. Mynd: E.ÓI.
Valsmenn á heimavelli
Nýtt og glæsilegt íþrótta- og vallarhús Vals var vígt
að Hlíðarenda á laugardaginn. Handknattleiks- og
körfuknattleiksmenn félagsins munu leika heima-
leiki sína í nýja húsinu í vetur og Jón Hjaltalín
Magnússon formaður HSÍ gaf fyrirheit um að í því
yrðu leiknir landsleikir í framtíðinni. Húsið rúmar um
600 áhorfendur á handboltaleikjum en 900 á körfu-
boltaleikjum. Af sjálfu vallarhúsinu hefur 1. hæð
verið tekin í notkun en á henni eru búningsklefar og
böð fyrir íþróttahúsið og knattspyrnuvellina.
s
Urslitaleikur kvenna í kvöld
| Valur tryggði sér Reykjavík-
urmeistaratitilinn í meistara-
flokki karla í fyrrakvöld með því
að sigra Víkinga 24-20 í
næstsíðasta leik mótsins.
Víkingar leiddu 13-10 í hálfleik
en Valsmenn jöfnuðu, 16-16, og
komust síðan í 22-17. Leikurinn
var líflegur og einkenndist af
mikilli baráttu, og lofar góðu
fyrir veturinn.
Valur er jafn KR að stigum en
með betri markatölu. Fram getur
náð KR og Val að stigum með
sigri á Víkingum í kvöld en það
dugar ekki til að skáka Val.
Staðan í mótinu fyrir þennan
lokaleik sem er leikinn í Selja-
skóla kl. 20.30 í kvöld:
Valur............6 5 0 1 170-119 10
KR...............6 5 0 1 154-117 10
Fram.............5 4 0 1 108-81 8
Víkingur.........5 3 0 2 144-108 6
ÍR...............6 2 0 4 146-166 4
Fylkir...........6 1 0 5 103-196 2
Armann..........6 0 0 6 99-137 0
Ármann mætti ekki til leiks
gegn Fram og því dregst marka-
tala liðsins frá þegar markamis-
munur annarra er reiknaður út.
Þá er Valur með markatöluna
143-95, KR með 120-99 en Fram
með sömu.
Urslitaleikurinn í meistara-
flokki kvenna fer fram í Selja-
skóla kl. 19.15 í kvöld. Þar mæt-
ast Valur og Fram og dugar
Valsstúlkunum jafntefli til að
tryggja sér titilinn. _VS
Tveir atvinnumenn hafa bæst í
hóp Norðmanna fyrir Evrópu-
leikinn gegn íslandi í dag. Það eru
Andreas Giske, sem leikur með
Núrnberg í Vestur-Þýskalandi,
og Tom Sundby frá Herakles í
Grikklandi. Báðir voru Ijarver-
andi vegna meiðsla þegar þjóð-
irnar mættust á Laugardalsvell-
inum fyrir hálfum mánuði.
Hinsvegar er skærasta stjarna
Norðmanna, Halivar Thoresen,
enn fjarri góðu gamni vegna
meiðsla. Það er þó Ijóst að Norð-
menn standa mun betur að vígi en
íslendingar og eru með nokkurn
veginn sitt sterkasta lið. Tíu
atvinnumenn eru í sextán manna
landsliðshópi þeirra.
í umfjöllun Reuters um leikinn
í gær sagði að ísland og Noregur,
sem að vísu hefðu náð góðum ár-
angri undanfarið, ættu í harðri
baráttu um að forðast neðsta sæt-
ið í riðlinum, fá „tréskeið
Evrópuknattspyrnunnar" svo
notuð sé bein þýðing á orðaleik
fréttastofunnar. Nefnd var sér-
staklega fjarvera Péturs Péturs-
sonar úr íslenska liðinu og sagt að
hann hefði tekið ástina framyfir
knattspyrnuna og brugðið sér í
brúðkaupsferð - sem er satt og
rétt. -VS/Reuter
Körfubolti
Njarðvíkingar
em sterkir
Af fyrstu leikjum Reykjanes-
mótsins sem fóru fram í Hafnar-
firði um síðustu helgi má ráða að
íslandsmcistarar UMFN vcrða
áfram í fremstu röð. Þeir unnu
öruggan sigur á hinu vaxandi liði
Grindvíkinga, 96-66.
ÍBK fór létt með Breiðablik,
87-40, og Blikarnir steinlágu líka
fyrir Haukum, 82-45. Haukar
áttu í basli með Grindavík en
sigruðu 76-72.
Haukar eru því með 4 stig,
UMFN 2, {BK 2, Grindavík og
Breiðablik ekkert. Þessi fimm lið
leika öll í úrvalsdeildinni í vetur
og því er fróðlegt að fylgjast með
gengi þeirra svona skömmu fyrir
Islandsmótið sem hefst 16. októ-
ber. Tvær næstu umferðir
Reykjanesmótsins verða leiknar í
Hafnarfirði um næstu helgi og
lokaumferðin annað fimmtu-
dagskvöld.
-VS
Valur Reykja-
víkurmeistari
Miðvikudagur 23. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15