Þjóðviljinn - 02.10.1987, Page 1
Föstudagur 2. október 1987 218. tölublað 52. örgangur
Orkustofnun
Fasteignamarkaðurinn
vilja sqómina burt
Hörð viðbrögð starfsmanna Orkustofnunar við fjöldauppsögnum stjórnvalda. 18
búnir aðfá uppsagnarbréf Þriðjungssamdráttur á tveimur árum. Jónas Elíasson
stjórnarformaður: Ekki betri tími til að segja mönnum upp
Arúmum tveimur árum hefur
starfsmönnum Orkustofnun-
ar fækkað úr 150 í 100 manns.
Síðast í fyrradag fengu 18 starfs-
menn uppsagnarbréf og vitað er
að fleiri munu láta af störfum á
næstunni. Starfsmenn stofnunar-
innar hafa harðlega mótmælt
þessum uppsögnum og niður-
skurði á starfsemi stofnunnarinn-
ar og á fjölmennum fundi starfs- .
manna í fyrradag voru samþykkt j
samMjóða þau tilmæli til stjórnar
Orkustofnunar að hún segði af
sér. Henni hefði gersamlega mis-
tekist að sjá hagsmunum stofnun-
arinnar borgið og verja starfs-
menn þeim áföllum sem fjöl-
dauppsagnir eru.
- Þetta er ráðherraskipuð
stjórn sem sinnir meira stundar-
hagsmunum pólitískra flokka en
langtímahag orkuiðnaðarins,
segir m.a. í ítarlegri og harðorð-
aðri samþykkt starfsmanna.
- Mér fínnst þessar ásakanir
ekki réttmætar. Það er ekki hlut-
verk stjórnarinnar að- halda í
starfsfólk þegar verkefnin eru
ekki fyrir hendi, sagði Jónas
Elíasson stjórnarformaður stofn-
unarinnar í samtali við Þjóðvilj-
ann. - Það er breytt staða hjá
stofnuninni og það hefur dregið
stórlega úr framkvæmdum en
það liggur mikið fyrir í
rannsóknamiðurstöðum. Við
töldum einnig að það væri ekki
betri tími til að segja upp starfs-
mönnum en nú þegar skortur er á
vinnuafli, sagði Jónas.
í samþykkt starfsmanna segir
að ljóst sé að ýmsum verkefnum
Orkustofnunar sem unnið hefur
verið að, verði aldrei lokið, öðr-
um sé stefnt í voða og enn önnur
þurfi að vinna úti í bæ. Þá benda
starfsmenn á að það óeðlilega
ástand ríki innan stjórnar stofn-
unarinnar að tveir af þremur
stjórnarmönnum hafi beinna
hagsmuna að gæta innan stofn-
ana og fyrirtækja sem eru sam-
keppnisaðilar Orkustofnunar.
Jónas Elíasson neitaði þessum ás-
ökunum alfarið í gær. - Ig.
Hæsta verð
í þrjú ár
Söluverð á fjölbýlishúsaíbúð-
um í Reykjavík hækkaði í sumar
um 5% umfram lánskjaravísi-
tölu. Samfelld hækkun hefur ver-
ið á þessum íbúðum síðustu 12
mánuði og hafa blokkaríbúðir
ekki verið dýrari miðað við fast
verðlag frá því í árslok 1984.
í nýútkomnu fréttabréfi Fast-
eignamats ríkisins kemur jafn-
framt fram að fermetraverð
þriggja og fjögurra herbergja
íbúða í fjölbýlishúsum hefur
hækkað mest á þessum tíma, eða
um 39-42% en um 32-33% á
minni íbúðum.
Meðalsöluverð 3ja herb. íbúð-
ar í fjölbýlishúsi í Reykjavík sl.
sumar var 2.761 miljón kr. en 2ja
herb. íbúðir fóru á 2.148 miljónir
að meðaltali. - lg.
T
Alþingishúsið
Teppunum
hent út
Aðalsteinn P. Maack, hjá Húsameistara
ríkisins: Kostnaður hleypur á nokkrum
milljónum. Erum á síðasta snúning
Þetta viðhald og endurbætur sem er verið að fram-
kvæma í Alþingishúsinu við Austurvöll eru hluti af
langtímaverkefni og kostnaðurinn við þær hleypur á
nokkrum milljónum króna, segir Aðalsteinn P. Maack
forstöðumaður byggingaeftirlits hjá embætti Húsa-
meistara ríkisins.
Heldur óvanaleg sjón blasir við þeim sem kemur
inn í Alþingishúsið þessa dagana. Þar er allt á rúi og
stúi. Búið að rífa upp gólfteppi úr anddyrinu og af
stigum. Þá þurfti að rífa bakklæðningu af einum stað
og við það myndaðist gat inná kvennaklósettið, sem
gárungamir hafa haft í flimtingum sín í milli. Allar
þessar framkvæmdir miðast við það að koma hlutun-
um í sitt upprunalega horf.
Mörgum finnst þessar framkvæmdir með öllu ón-
auðsynlegar og dýrar, því fyrir utan þetta hafa verið
endurnýjuð öll húsgögn í báðum deildum þingsins
sem hafa kostað sitt.
Ennfremur er verið að setja upp viðvörunar- og
eftirlitskerfi í húsinu og hefur það verið mjög við-
kvæmt og vandasamt verk að koma fyrir línum fyrir
kerfið vegna þess að gifsið í veggjunum á það til að
molna við minnstu snertingu.
„Við köllum alltaf til okkar færustu sérfræðinga í
hvert sinn sem eitthvað kemur upp, og höfum ávallt
fullt samráð við húsfriðunarnefnd," sagði Aðalsteinn
P. Maack. grh
Berstrípaðir stigarnir blasa við sórhverjum sem inn í Alþingishúsið koma þessa dagana því búið er að henda teppunum út. Mynd: E. Ól.
Síldarsöltun
Samningar
næstu daga
,ySamningurinn í fyrra var
bara beínn framreikningur á milli
ára, en það er tæpast nóg fyrir
okkur núna,“ sagði Björrt Grétar
Sveinsson formaður Jökuls á Höfn
Alþýðusamband Austurlands
og atvinnurekendur funda á
Reyðarfirði í dag um samning-
ana. Bjöm Grétar bjóst við stutt-
um fundi, þar sem menn mundu
láta við sitja að kynna sín sjón-
armið, enda væm ýmsir endar
enn lausir. „Rússasamningurinn
er ekki frágenginn enn, og
menn vita ekki hvort samið verð-
ur,“ sagði Bjöm Grétar. HS
Borgarstjórn
Samþykkti byggingu ráðhúss
Tillögufulltrúa Alþýðubandalagsins um almenna atkvæðagreiðslu meðal borgarbúa vísaðfrá
Ihaldsmeirihlutinn í borgar-
stjórn samþykkti í gærkvöldi með
stuðningi fulltrúa Framsóknar-
flokksins, með lOatkvæðum gegn
5 atkvæðum minnihlutans, að
ráðast í byggingu ráðhúss við
Tjörnina, á horni Tjarnargötu og
Vonarstrætis, á næstu tveimur
árum.
í umræðum um málið lögðu
fulltrúar Alþýðubandalagsins
fram tillögu þess efnis að málinu
yrði skotið til almennrar at-
kvæðagreiðslu meðal borgarbúa,
þar sem greidd yrðu atkvæði um
það hvort borgarbúar vildu að
ráðist yrði í byggingu ráðhúss og
hvort þeir væm samþykkir því að
staðsetning þess yrði við Tjöm-
ina. Tillögu Alþýðubandalags-
fulltrúanna í borgarstjórn var vís-
að frá.
Við lokaafgreiðslu málsins
lögðu Alþýðubandalagsfulltrú-
amir fram bókun þar sem segir að,
ekki sé tímabært að ráðast í fram-
kvæmdir við byggjngu ráðhúss
fyrir 750 milljónir á meðan fjöl-
mörg félagsleg vandamál bíði úr-
lausnar í borginni. Ennfremur að
staðsetning ráðhússins á homi
Tjamargötu og Vonarstrætis sé
röng með tilliti til umferðarþung-
ans sem óhjákvæmilega yrði við
ráðhúsið og í þriðja lagi að bygg-
ing ráðhússins í þessu homi
Tjamarinnar raskaði heildarsvip
hennar, sem væri ímynd Reykja-
víkur í hugum landsmanna. grh
Norður-Atlantshaf
Gorbatsjof vill friðlýsingu
í gær lýsti Mikael Gorbatsjof Sovétleiðtogi því yfir í ræðu að hann vildi
að stórlega yrði dregið úr umferð herskipa og herflugvéla í norðri og
nefndi hafssvæðin umhverfis ísland, Grænlandshaf og Noregshaf sér-
staklega f því sambandi. Sjá nánar bls.7.