Þjóðviljinn - 02.10.1987, Page 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVILIINN
Útvegsbankinn
Nýr mánuður
- tíðindalaust
Það er engar fréttir af þessu að
segja, sagði Þórhallur Ásgeirsson
ráðuneytisstjóri viðskiptaráðu-
neytisins í gær um gang Útvegs-
bankaviðræðna.
Jón Sigurðsson ráðherra er er-
lendis, kemur heim á sunnudag,
og vænti Þórhallur þess að við-
ræðunefndir SÍS og Kristjáns-
manna gæfu skýrslu um gang
mála eftir það.
„Gert er ráð fyrir, að við-
ræðum þessum ljúki fyrir lok
september,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá viðskiptaráðherra 2.
september um upphaf viðræðna
SIS og KR-inganna. - m
Föstudagur 2. október 1987 218. tölublað 52. örgangur
Þjónusta
íþínaþágu
0
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
_____________
Póturinn
Póstmenn homrekur
Reynir Ármannsson, póstfulltrúi: Höfum setið eftir í launatöflu opinberra
starfsmanna. Yfirvöld verða að láta sér skiljast alvöru málsins áður en þau taka
á. Björn Björnsson, póstmeistari: Engin sanngirni í þessu
Það dylst engum sem vitl vita að
póstmenn hafa dregist mjög
aftur úr í launum miðað við aðra
ríkisstarfsmenn. Lögreglumenn
og tollverðir svo einhverjir séu
nefndir, hafa skotið okkur ref
fyrir rass í launatöflunni á undan-
förnum áratug, sagði Reynir Ár-
mannsson, fulltrúi á Póststofunni
í Ármúla.
Ljóst er að ófremdarástand
skapast í póstburði ef uppsagnir
60 faglærðra póstmanna víðs veg-
ar af Iandinu, sem sagt hafa upp
störfum frá og með 3. desember,
koma til framkvæmda. Til að
mynda hafa allir faglærðir póstaf-
greiðslumenn á Akureyri sagt
störfum sínum lausum.
- Menn mega ekki gleyma því
að þó að faglærðir póstmenn fái
einhverja leiðréttingu sinna
mála, þá ríkir sama vandræðaá-
standið og áður, meðan laun óf-
aglærðra póstmanna eru ekki
einnig hækkuð. Það þýðir ekkert
að fá menn til starfa uppá 29.000
krónur á mánuði, sagði Reynir.
- Þetta ástand er ekki nýtt af
nálinni. Við höfum verið að tapa
Karsten Bo Jörgensen, Pauline Römer, Mette Paulsen, Sören Hensenog Tommy Jepsen: Áhugasamt, ósérhlífið og elskulegt fólk, segja vinnufélagarnir.
Mynd: E. Ól.
. Vinnumarkaðurinn
Æ fleiri Danir til starfa
Fleiri eðafœrri Danir starfa nú íflestöllum SS-búðunum. Sex
mánaða ráðningartími
Eg hef aðeins prófað að af-
greiða, en annars er ég í kjö-
tvinnslunni. Tommy líka. Og þau
hin? Ja, hvað gerið þið eigin-
lega?! sagði Sören Hansen með
þeim léttleika sem Dönum er
laginn þegar tíðindamenn Þjóð-
viljans litu inn í SS-búðina í
Austurveri í gær, en fimm Danir
9000 tonn
Þokkaleg loðnuveiði
Ástráður Ingvarsson hjá Loðnunefnd: Aðeins fimm skip á veiðum. 160-170
sjómílum frá landi
Samkvæmt því sem ég hef frétt
er nóg af loðnu á miðunum, að
vfsu ekki eins feit og í fyrra en
þokkalega stór engu að síður. Það
sem af er vertíðinni eru komin á
land rúm níu þúsund tonn segir
Ástráöur Ingvarsson, hjá Loðnu-
nefnd.
Aðeins fimm skip er nú á loðn-
umiðunum og hafa þau veitt al-
veg þokkalega hingað til, en
bræla hamlaði veiðum í byrjun
vikunnar. Veiðisvæðið er upp
undir miðlínu á milli íslands og
Grænlands, 160-170 sjómflum
frá Iandi.
í gær var vitað um tvö skip sem
höfðu tilkynnt um afla. Öm KE
fékk 750 í fyrradag og Skarðsvík-
in 650 tonn í fyrrinótt sem hún
ætlaði að sigla með til Þorláks-
hafnar á Langanesi, en það er um
20 tíma sigling af miðunum.
„Aðalskýringin á því afhverju
ekki fleiri skip eru komin á miðin
er sú að það er kvótatitringur
meðal loðnuútgerðarmanna sem
eru á rækjuveiðum. Þeir vilja
veiða sem mest af rækju nú til
þess að rækjukvótinn, ef hann sér
dagsins ljós, verði skaplegur fyrir
þá, þegar og ef hann verður á-
kveðinn,“ sagði Ástráður Ing-
varsson.
- grh
mannskap jafnt og þétt undanfar-
in ár, vegna þess að póstmenn
hafa dregist stöðugt aftur úr.
Póstmaður sem gerist tollvörður
og starfar við hlið fyrrum félaga,
er mörgum launaflokkum hærri
en þeir. Gjaldkerar í banka fá
15.000 krónum hærri laun á mán-
uði en gjaldkeramir hjá okkur.
Það er engin sanngirni í þessu,
sagði Björn Björnsson, póst-
meistari.
Reynir Ármannsson sagði að
ef ekki yrðu gengið að kröfum
póstmanna um launahækkun, sæi
hann ekki fram á annað en að
yfirmenn póstsins yrðu að bera
sjálfir út jólapóstinn. - Það getur
verið að þeir átti sig ekki á að
póstmönnum er alvara, fyrr en
þeir taka á.
í Degi á Akureyri var haft eftir
Ársæli Magnússyni, umdæmis-
stjóra Pósts og síma í gær að fyrir-
sjáanlegt væri að stórkostleg
vandræði sköpuðust ef uppsagnir
póstmanna gengju eftir. Ársæll
sagði að Póstur og sími væri ekki
samkeppnisfær á vinnumarkað-
inum þegar atvinnurekendur vfl-
uðu ekki fyrir sér að svíkja gerða
samninga áður en blekið á þeim
væri þornað og greiða sumum
starfshópum langt umfram um-
samda taxta. - rk
starfa nú í versluninni.
„Danska starfsfólkið hefur
fallið mjög vel í kramið og við-
skiptavinimir taka þeim vel. Þau
eru lítið í afgreiðslunni enn sem
komið er, þar sem þau vilja læra
málið betur áður en til þess kem-
ur, en hafa verið í uppröðuninni
og eins í kjötvinnslunni," sagði
Þórður Þórisson, verslunarstjóri.
Kynjaskiptingin getur ekki
jafnari verið í útlendingadeild-
inni; þrír karlar og tvær konur.
Þau fyrstu byrjuðu fyrir þremur
vikum, en þau sem nýkomnust
eru hafa starfsreynslu á íslandi
upp á fáeina daga.
„Ráðningartíminn er sex mán-
uðir,“ sagði Þórður. „Þá kemur í
ljós hvert framhaldið verður, en
byrjunin lofar mjög góðu.“
Fyrirtækið auglýsti eftir starfs-
fólki í Danmörku, og starfa nú
fleiri eða færri Danir í flestöllum
SS-búðunum að sögn Þórðar, og
eins í vinnslunni. HS
Loðnumælingar
Stofn-
stærðin
könnuð
Hjálmar Vilhjálmsson,
fiskifræðingur:
Vertíðarkvótinn
ákveðinn afniðurstöðum
þessara mœlinga
„Við erum að leggja í hann til
mælinga á stærð loðnustofnsins
sem nú er verið að veiða úr. Síðan
verða niðurstöðurnar lagðar
fyrir fiskveiðinefnd Alþjóða haf-
rannsóknaráðsins og ioðnukvót-
inn á vertíðinni síðan ákveðinn í
framhaldi af því,“ segir Hjálmar
Vilhjálmsson, fiskifræðingur.
í gærkvöld lögðu af stað rann-
sóknarskipin Ámi Friðriksson og
Bjami Sæmundsson í árvissar
loðnumælingar. Hjálmar Vil-
hjálmsson er leiðangursstjóri um
borð í Árna og Páll Reynisson,
fiskifræðingur leiðangursstjóri
um borð í Bjama Sæmunddyni.
Að sögn Hjálmars verður byrj-
að að mæla stærð loðnustofnsins
út af Vestfjörðum og síðan haldið
austur með Norðurlandi. Áætl-
aður tími leiðangursins er um
þrjár vikur, en það fer að sjálf-
sögðu mikið eftir veðri hvað þess-
ar mælingar vara lengi. — grh