Þjóðviljinn - 30.10.1987, Qupperneq 2
f—SPURNINGII^I
Er erfitt að vinna á
sjúkrahúsi? (Spurt í
Hjúkrunarskólanum)
Áshildur Kristjánsdóttir,
hjúkrunarforstjóri:
Ekki ef maður hefur áhuga. Þá er
gaman í vinnunni og af þeim
sökum kemst maður í gegnum
álagið sem henni fylgir.
Rakel Valdimarsdóttir
hjúkrunarframkvæmdastjóri:
Það getur verið það. Sérstaklega
þegar undirmannað er og mikil
veikindi. En líka mjög gaman og
gefandi starf.
Björg Ingimundardóttir,
hjúkrunardeildarstjóri:
Já, bæði andlega og líkamlega
erfitt. Þar munar að mestu um
hinar ýmsu sérþarfir hvers og
eins sjúklings.
Guðbjörg Pálsdóttir,
hjúkrunarfræðingur:
Já, það er erfitt að vinna vakta-
vinnu samfara námi. Einnig fylgir
vinnunni andlegt álag sem mað-
ur losnar ekki við þó vinnudegi sé
lokið.
Gunnhildur Valdimarsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri:
Það getur verið erfitt, en þó áhug-
avert og gefandi starf. Erfiðast er
þegar vantar fólk, og andlegt
álag er mikið þegar sjúklingarnir
eru mikið veikir.
FPÉTTIP
Síldarsamningar
Slitnað uppúr
Viðrœðum hætt í Moskvu og óráðið um
heimkomu samninganefndarmanna. Kristján
Jóhannesson, birgða- ogsöltunarstjóri:
ífyrra var ekki samið við Sovétmenn
fyrrenó. nóvember
Síðdegis í gær slitnaði uppúr
sfldarviðræðum íslendinga og
Sovétmanna í Moskvu, og er nú
sendinefndin íslenska að bræða
með sér hvort hún á að bíða
eystra eða snúa aftur.
Andi viðræðnanna kemur
ágætlega fram í þeim orðum
Gunnars Flóvenz framkvæmda-
stjóra Síldarútvegsnefndar í Mos-
kvu í hádeginu í gær að það væri
„ekkert að frétta af gangi við-
ræðnanna og útilokað að segja
nokkuð um gang þeirra að öðru
leyti eða að spá í hvað þær standi
lengi.“ Samningamenn lögðu af
stað austur um síðustu helgi.
Að sögn Kristjáns Jóhannes-
sonar, birgða- og söltunarstjóra
hjá Síldarútvegsnefnd er ástand-
ið pínlegt um þessar mundir að
ekki skuli vera búið að semja við
Sovétmenn, en þó sé ástandið
ekki verra en á sama tíma í fyrra,
en þá tókust samningar við So-
vétmenn ekki fyrr en 5. nóvem-
ber. Þá var á sama tíma og í ár
aðeins búið að salta í 38 þúsund
tunnur, en nú er búið að salta í 55
þúsund tunnur í fyrirframgerða
samninga við Svía og Finna.
-grh
Slitnað uppúr samningaviðræðum um síldarsölu til Sovét og á meðan er ekki
við því að búast að nýju plasttunnurnar á planinu á Seyðisfirði fyllist af saltsíld.
(Mynd: Óttar Magni).
VMSÍ-þingið
Allt kapp lagt á sættir
Hrafnkell A. Jónsson: Eigi sœttir að nástmilli deiluaðila, þarffyrstað
ná samkomulagi í veigamiklum málum. Karvel Pálmason talinn lík-
legastur til varaformanns. Aðaláhersla lögð á kjörfiskverkafólks í
nœstu samningum
Akureyri. Einsýnt er að forysta
Verkamannasambandsins
leggur allt kapp á að koma í veg
fyrir að sú sundurþykkja, sem
borið hefur æ meir á að undan-
förnu innan sambandsins, leiði til
klofnings VMSÍ. Þetta kom skýrt
fram í setningarræðu for-
mannsins, Guðmundar J. Guð-
mundssonar, á VMSÍ-þinginu á
Akureyri í gær.
- Við skulum ekkert vera að
liggja á því sem er aðfinnsluvert,
en við skulum jafnframt muna,
að við erum öll fulltrúar fyrir erf-
iðisvinnufólk í þessu landi, sem
hefur sameiginlega hagsmuni af
að við stöndum saman í barátt-
umálum þess. En við skulum
bera virðingu fyrir sjónarmiðum
hvers annars, sagði Guðmundur.
Krafan um bætt kjör fisk-
vinnslufólks er þungamiðjan í
drögum að kjarmálaályktun, sem
lögð voru fram á þinginu í gær og
ljóst er að tillögur um skipulags-
breytingar sambandsins, eru ekki
hvað síst til komnar, vegna óá-
nægju fiskverkafólks, sem finnst
það hafa borið skarðan hlut frá
borði í síðustu kjarasamningum
miðað við aðra hópa innan sam-
bandsins.
f drögum að kjaramálaályktun
er kveðið á um að meginatriði
næstu samninga sé að leiðrétta
þann ójöfnuð, sem viðgengist
hefur í skjóli efnahagslegs góðær-
is og launaskriðs á vinnumarkað-
inum að undanförnu.
Á þinginu andaði fremur köldu
í garð ríkisvaldisins fyrir að hafa
ekki staðið við sinn hlut síðustu
kjarasamninga og opinberra
starfsmanna og annarra hópa
launþega, sem báru meir úr být-
um í síðustu kjarasamningum en
almennt verkafólk.
- Fólkið fékk nánast það sem
það fór fram á, sagði Guðrún Ól-
afsdóttir, formaður Verkakvenn-
afélags Keflavíkur og sambands-
stjórnarmaður í VMSÍ.
Þrátt fyrir að nokkurrar sátt-
fýsi gætti í málflutningi manna á
þinginu, áminnti Hrafnkell A.
Jónsson, formaður verkalýðsfé-
lagsins Árvakurs á Eskifirði,
menn um að samstaðan mætti
ekki verða of dýru verði keypt.
- Eigi samstaða að nást á milli
deiluaðila, þarf fyrst að nást sam-
staða um ýmis mikilvæg mál. Ég
vil nefna skipulagsmál, kjaramál,
skipan forystu sambandsins og
við þurfum að ná samkomulagi
um hvort eða hversu mörgum
prósentum við eigum að slá af í
kjarakröfum vegna frestunar
matarskattsins, sagði Hrafnkell.
Ljóst er að eining um kjör
varaformanns ræðst að töluverðu
leyti af því hversu langt verður
gengið til móts við kröfur fisk-
vinnslufólks á þinginu.
Sá sem líklegastur þykir til að
hreppa varaformannsembættið
er Karvel Pálmason, alþingis-
maður Alþýðuflokks.
- Full eining næst tæplega um
Karvel, nema að fulltrúar
Austfirðinga og annarra þeirra,
sem gengu út á formannafundin-
um í september, geti sætt sig við
niðurstöðu þingsins í veigamikl-
um málum, sagði einn viðmæl-
anda blaðsins í gær. -rk
Kringlan
Tmnaðaimaður í mál
Freyr Guðlaugsson: Lœtekki kalla mig óbótamann ífjölmiðlum.
Viðbrögð við brottvikningunni í höndum Dagsbrúnar
Akureyri.- Ég ætla ekki að
fara að skattyrðast út í eigendur
Öryggismiðstöðvarinnar. Þarna
er um brot á samningum og á
lögum um trúnaðarmenn að
ræða og því er sýnt að þetta er
ekki mitt einkamál. Það er alfarið
hlutverk stjórnar Dagsbrúnar
hvert framhald þessa máls verð-
ur, sagði Freyr Guðlaugsson,
trúnaðarmaður starfsmanna ör-
yggisvarða í Kringlunni.
T-Ionn or í-iilltriil T"'^HOrQhriin?ir (1
þingi VMSÍ. í DV í gær er haft
eftir Kjartani Scheving, eiganda
Öryggismiðstöðvarinnar, að ekki
komi til greina að ráða Frey aftur
til starfa þar sem hann hefði sýnt
Dagsbrún trúnaðarskjöl fyrir-
tækisins.
- Hins vegar lít ég á ummæli
Bárðar Arnar Scheving, hins
eiganda fyrirtækisins, er hann
nefnir mig óbótamann og þaðan
af verra, sem mitt einkamál. Ég
áskil mér allan rétt til málshöfð-
unar og ég mun fylgja henni efi
af mikilli hörku, sagði Freyr.
Freyr sagði að umrædd trúna
arplögg, sem hann sýndi Dag
brún, vörðuðu störf sem eigen
ur fyrirtækisins ætluðust til að ö
yggisverðir inntu af hendi, þc
þau væru ekki í þeirra verk
hring.
- Ef öryggisverðir eiga ;
vinna þessi störf, þá þarf að ge:
sérstaka samninga þar um, sag
Freyr.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. október 1987