Þjóðviljinn - 30.10.1987, Síða 3
■mÖRFRÉTTIR mmm
NVSV
heldur aðalfund sinn í Festi í
Grindavík nú á laugardag og
hefst hann klukkan 14.30. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa
heldur Ingvi Þorsteinsson nátt-
úrufræðingur erindi um gróður-
kortagerð og ástand gróðurs á
Reykjanesskaga. Núverandi for-
maður Náttúruverndarfélags
Suðvesturlands er Einar Egils-
son.
Guðni Albert
Jóhannesson verkfræðingur var
endurkjörinn formnaðurBúseta-
landssambands húsnæðissam-
vinnufélaga á landsþingi sam-
bandsins um síðustu helgi. Aðrir í
aðalstjórn eru Gylfi Guðmars-
son, Reynir Ingibjartsson, Sæ-
mundur Bjarnason og Þorvaldur
Heiðarsson. í ályktun frá þinginu
segir meðal annars að vandi
húsnæðiskerfisins nú sýni glöggt
hver mistök voru gerð við að
skilja eftir félagshluta húsnæð-
iskerfisins vorið ‘86, og vakin er
athygli á frumvarpsdrögum átta
félagasamtaka um félagsíbúða-
sjóð.
Alþýðusamband
Vesturlands efnir til allsherjarat-
kvæðagreiðslu um sjálft sig 19-
20. nóvember og svara félagarnir
þá spurningunni „Viltu að ASV
starfi áfrarn?". Á þingi ASV fyrr á
árinu var samþykkt ályktun um
að leggja sambandið niður með
21 atkvæði gegn 19 og jafnframt
samþykkt að efna til allsherjarat-
kvæðagreiðslunnar. í lok nóvem-
ber verður svo aukaþing í Borg-
arnesi og sker það endanlega úr
um líf eða dauða. ASV var stofn-
að í mars ‘77 og er formaður þess
nú Jón Agnar Eggertsson í Borg-
arnesi.
Jón Sigurðarson
hefur verið ráðinn forstjóri nýja
ullariðnaðarfyrirtækisins sem
fyrir skömmu varð til úr Álafossi
og ullarhluta Sambandsins. Jón
hefur hingaðtil verið fram-
kvæmdastjóri iðnaðardeildar
SÍS. Þá hefur Gylfi Þ. Gíslason
verið valinn í stjórn fyrirtækisins,
en auk hans sitja þar Sigurður
Helgason (formaður), Valur Arn-
þórsson, Brynjólfur Bjarnason og
Guðjón Ólafsson.
Barnið
í brennidepli heitir fundur Banda-
lags kvenna í Reykjavík um illa
meðferð á börnum á laugardag-
inn á Hallveigarstöðum í Reykja-
vík. Fundur verður settur kl.
13.30 og síðan flutt sex erindi og
ávörp. Eftir kaffihlé klukkan
15.30 verða pallborðsumræður
til um sex. Meðal ræðumanna
eru Ingibjörg Georgsdóttir lækn-
ir, Aðalsteinn Sigfússon sálfræð-
ingur, Jórunn Elídóttir sér-
kennslufræðingur, Finnborg
Scheving fóstra og Ólafur Ólafs-
son landlæknir. Fundarstjóri er
Arthúr Morthens sérkennslu-
fræðingur.
Blöndælar
ætla að hittast á ættarmóti á Bro-
adway á sunnudagskvöld, en
þann dag eru tvær aldir liðnar frá
fæðingu ættföðurins Björns
Auðunssonar Blöndals sýslu-
manns í Vatnsdal.
Ættarhátíðinni á Broadway
stjórnar Halldór Blöndal, Svala
Nielsen og Sigurður Blöndal
leiða söng og Guðrún Gísladóttir
les upp, og Björns sýslumanns
og Guðrúnar Þórðardóttur konu
hans verður minnst í upphafi.
Ellefu börn þeirra hjóna kom-
ust á legg og er ættin nú orðin
fjölmenn; niðjatal Guðrúnar og
Björns frá 1981 er á sjötta hundr-
að blaðsíöur.
FRÉTTIR
Matarskatturinn
Aldrei skiptimynt
etta ereu ánægjulegar frétt-
ir,“ sagði Guðmundur Þ.
Jónsson formaður Landssamb-
ands iðnverkafólks um frestun
matarskattsins, „en þetta er bara
frestun, ákvörðunin er enn til
staðar og kemur til framkvæmda
um áramót ef okkur tekst ekki að
snúa þá ofanaf þessu.“
í setningarræðu sinni á VMSÍ-
þinginu sagði formaður sam-
bandsins, Guðmundur J. Guð-
mundsson, að engir samningar
hafi verið gerðir við ríkisstjórn-
ina um það að verkalýðshreyfing-
in gangi til samninga gegn því
skilyrði að fallið verði frá skattin-
um.
Stjórn Landssambands
iðnverkafólks samþykkti í fyrra-
dag mótmæli gegn skatti á ma-
tvæli, sem væri alvarleg kjarask-
erðing fyrir lágtekjufólk og stórar
fjölskyldur.
„Þetta getur aldrei orðið
skiptimynt í samningum," sagði
Guðmundur Þ. í gær. „Okkar af-
staða er sú að ekki eigi að skatt-
leggja lífsnauðsynjar, og svona
kjaraskerðing getur auðvitað
ekki verið verslunarvara í samn-
ingum.
-m/rk
Matarskattur
Afangasigur stjómarandstöðu
Svavar Gestsson: Stjórnin er komin á flótta. GuðrúnAgnarsdóttir:
Óréttlát aðgerð. Júlíus Sólnes: Óttast að stjórnin hugsi sérgott til
glóðarinnar
Eg þakka þetta stjórnarand-
stöðunni. Við höfum tekið
það hart á móti síðan að þing
hófst að stjórnin er komin á
flótta. Nú er bara að reka þennan
flótta og það verður gert, sagði
Svavar Gestsson um að ríkis-
stjórnin ákvað að fresta álagn-
ingu matarskattsins til næstu ára-
móta.
í sama streng tóku aðrir stjórn-
arandstöðuþingmenn sem Þjóð-
viljinn ræddi við í gær. „Það má
segja að þetta sé áfangasigur
stjórnarandstöðunnar," sagði
Guðrún Agnarsdóttir, og Júlíus
Sólnes sagðist þakka stjórnar-
andstöðunni fyrir að hafa vakið
rækilega athygli á óréttlæti þess-
arar skattlagningar.
„Undirtektirnar í þjóðfélaginu
og hjá forystu verkalýðshreyfing-
arinnar voru einnig þess eðlis að
ríkisstjórnin sá sitt óvænna að
fresta skattlagningunni. Ég óttast
þó að ríkisstjórnin hugsi sér gott
til glóðarinnar og ætli sér að
leggja matarskattinn á með full-
um þunga um áramótin," sagði
Júlíus og bætti því við að Borgar-
aflokkurinn muni berjast áfram
af fullum þunga gegn matarskatt-
inum.
Guðrún sagði að Kvennalist-
inn undi því ekki að hér sé ein-
ungis um frestun að ræða. „Það
verður að hverfa frá ráðstöfun
sem er jafn óréttlát og á jafn lítið
skylt við jöfnuð og þessi. Ég held
að það hljóti að hafa runnið upp
fyrir ráðherra vegna viðbragða
stjórnarandstöðunnar og margra
fleiri í þjóðfélaginu, að matyar-
skatturinn er ekki bara órétt-
látur, heldur einnig heimsku-
legur frá pólitísku sjónarmiði.“
„Auðvitað mun átakamáttur
verkalýðshreyfingarinnar og al-
þingis götunnar ráða úrslitum í
þessu máli,“ sagði Svavar. „Það
þyrfti að reka matarskattinn al-
Matarskatturinn
Greitt fyrir
samningum
Frestun stjórnarinnar án
skilyrða en á að greiða
fyrir „viðunandi“
niðurstöðu úr
samningum
„Af hálfu ríkisstjórnarinnar er
ákvörðun þessi tekin án skilyrða
eða skuldbindinga,“ segir í frétta-
tilkynningu stjórnarinnar um
frestun matarskattarins, en „er
ætlað að greiða fyrir því að samn-
ingsaðilar nái niðurstöðu sem
viðunandi getur talist“ í komandi
kjarasamningum.
Jafnframt lýsir stjórnin því yfir
að hún sé reiðubúin til viðræðna
„um þau mál er tengst gætu gerð
kjarasamninga".
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra gaf í skyn í Bylgjuviðtali
áður en hann fór í fertugsafmæli
sitt í gær að ákvörðun stjórnar-
innar hefði verið tekin vegna
þrýstings frá samtökum launa-
fólks, og lítill fugl utanvið fund-
arsal ráðherranna hermir að Jón
Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra hafi heldur lagst gegn
skilyrðislausri frestun. Hann
minntist fyrst á hugsanlega frest-
un í einleiksræðu á þingi og vildi
að á móti kæmu ákveðin loforð
verkalýðsforingja um hófstillta
samningaframkomu. -m
veg til baka, einnig á næsta ári og
ganga um leið frá nýjum skatta-
lögum, sem fækka undanþágum
fyrirtækja og leggja skatt á burg-
eisana og á vaxtagróða.“ _Sáf
Sjúkrahús
Hættu að lyfta
Hættu að lyfta sjálfur, segir
Norðmaðurinn Kjell Röiseth,
sem hefur hannað tæknibúnað tií
að auðvelda starfsmönnum
sjúkrahúsa störfln við að lyfta
fólki og flytja.
Hann sagði í fyrirlestri í gær hjá
hjúkrunarfólki að fjarvera starfs-
manna á sjúkrastofnunum vegna
veikinda í baki og öðrum lík-
amshlutum kostaði norska ríkið
óheyrilegar upphæðir, að ó-
gleymdum kvölum starfsfólksins,
og eins væri þetta sjálfsagt hér.
Röiseth er verkfræðingur og
vaknaði áhuginn þegar hann
lagðist sjálfur fyrir nokkrum
árum. Hann vann síðan að
hönnun í samvinnu við norsk
heilbrigðisyfirvöld. Búnaðurinn
er í raun sáraeinfaldur og byggir á
þartilgerðri fjöl sem smeygt er
undir sjúklinginn, sem síðan er
snúið við með vogaraflinu. Við
að færa sjúkling milli rúma er
notast við sérstaka dýnu sem
Með aðstoð vogaraflsins og þartilgerðra fjala er ekkert mál að snúa sjúklingi við, eins og sjá má í sýnikennslu Kjell sjúklingnum er rúllað á og yfir í
Röiseth í Hjúkrunarskólanum í gær. Mynd: E.ÓI. næsta rúm. -grh
Brottrekstur trúnaðarmanns
Brot á vinnulöggjöfinni
Félagsdómur hefur heimild til að sekta atvinnurekandann og dœma launþegum bœtur.
Arnmundur Backmann: Hefurtekið atvinnurekendur 50 ár að læra
að er talið brot á vinnulög-
gjöfinni ef trúnaðarmanni á
vinnustað er fyrirvaralaust sagt
upp starfi án afglapa né brota í
sínu starfi. í því tilfelli hefur Fé-
lagsdómur heimild til að dæma
atvinnurekandann í sektir og
launþeganum bætur og verður
stéttarfélagið, í þessu tilfelli
Dagsbrún, að kæra málið til Fé-
lagsdóms, segir Arnmundur Bac-
kman, lögfræðingur, í samtali við
Þjóðviljann um brottrekstur
trúnaðarmannsins Freys Guð-
laugssonar, hjá Öryggismiðstöð-
inni Vt í Kringlunni.
Að sögn Arnmundar man
hann ekki eftir því í seinni tíð að
mál af þessu tagi hafi komið til
kasta Félagsdóms, vegna kæru
verkalýðsfélags vegna brottrekst-
urs trúnaðarmanns úr vinnu án
sýnilegrar ástæðu.
„Sem betur fer hafa atvinnu-
rekendur lært það á 50 árum frá
því vinnulöggjöfin var sett, að
fara eftir settum reglum. En eins
og dæmin sanna, eru alltaf innan-
um til atvinnurekendur sem virð-
ast ekki vita um tilvist vinnulög-
gjafarinnar né hvað í þeim lögum
stendur," sagði Arnmundur
Backman lögfræðingur.
Að sögn Ragnars Atla Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Húsfélagsins í Kringlunni, er
fyrirvaralaus brottrekstur Freys
Guðlaugssonar úr starfi fyrst og
fremst á milli hans og Öryggis-
miðstöðvarinnar Vt og þrátt fyrir
það að sér virtist málið snúast um
tilfinningar þeirra í milli vonaðist
hann til þess að málið leystist far-
sællega með viðræðum þeirra,
því Húsfélagið væri í þessu tilfelli
þolandi í þessari deilu.
Kjartan Scheving eigandi Ör-
yggismiðstöðvarinnar Vt vildi
ekki tjá sig um málið og sleit sam-
ræðum við blaðamann Þjóðvilj-
ans með nokkurri skyndingu.
-grh
Föstudagur 30. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3