Þjóðviljinn - 30.10.1987, Blaðsíða 4
LHÐARI
Verðbréfahmnið
og orðstír hægrístjómar
Hver svartur mánudagur rekur nú annan í
kauphöllum heimsins. Viöbrögöin viö þeim tíö-
indum eru næsta forvitnileg. Mikið fer fyrir al-
mennum vangaveltum þess eölis, aö þótt ekki
sé nema eðlilegt aö menn rifji upp vissar hlið-
stæður við hrunið mikla 1929, sem varð undan-
fari heimskreppunnar, þá eigi ríkisstjórnir og
peningastofnanir þegar á reynir nú fleiri úrræöi
til að mæta slíkum háska en menn þá höfðu eða
voru tilbúnir til að reyna. Útskýringar á verð-
hruninu eru nokkuð svo flóttalegar. Til dæmis er
allmikið úr því gert hér og þar, aðtcAvuvæðing
verðbréfaviðskipta valdi því að allar sveiflur
verði stærri en ella, hvort sem væri til kaupæðis
eða söluæðis. Með öðrum orðum: Sá tækni-
búnaður sem átti að skerða áhrifasvið
„mennskra yfirsjóna" er talinn sekur um að
magna upp mennskar geðshræringar - með
hinum óvæntustu afleiðingum á peningamörku-
ðum heimsins.
Morgunblaðið hefur oftar en ekki verið að
halda því að íslendingum á undanförnum miss-
erum að við værum mjög vanþróaðir í verslun
með peninga og þyrftum að temja okkur meira
frelsi í slíkum viðskiptum. Það er því ekki að
undra að blaðið er frekar hlédrægt andspænis
verðhruninu, óvenju sparsamt á útleggingar á
því. í leiðara eftir fyrri svarta mánudaginn var til
dæmis gert sem mest úr því að mannlegir þættir
réðu úrslitum en ekki vaxtapólitík eða vísitölur:
Þegar Bandaríkjamenn eru hræddir við framtíð-
ina, þá mun ástandið versna, stóð þar.
Fleiri ástæður má finna fyrir sterkri feimni
Morgunblaðsins við verðhrunið á hlutabréfa-
markaðnum. Það hefur verið fastur liður í mál-
flutningi hægriblaða, að vinstristjórnir einkenni
feiknalegt ábyrgðarleysi í fjármálum. Slíkar
stjórnir efni til veislu eins og það heitir, eyði og
spenni í ómerkilegum atkvæðaveiðum. Svo
þurfi hinir ábyrgu hægrisinnuðu landsfeður að
taka við sukkinu og koma lagi á það. Út á þenn-
an áróður („við einir kunnum með peninga að
fara“) hafa hægriflokkar náð talsverðum ár-
angri hér og þar í ríkjum á liðnum árum. Það er
svo meiriháttar áfall fyrir þennan málatilbúnað,
að verðbréfahrunið er meðal annars staðfe-
sting á sérstaklega glæfralegu ábyrgðarleysi
hinnar römmu hægristjórnar Reagans Banda-
ríkjaforseta.
Reaganhagfræðin svonefnda, sem oft var
lofuð í Morgunblöðum heimsins, er eitthvað á
þessa leið: Það þarf að skera niður ríkisútgjöld
(altént til félagsmála, en náttúrlega ekki til her-
mála) og um leið skatta. Þegar skattabyrðin
léttist á þeim sem betur mega sín, þá fyllast þeir
fjárfestingargleðí, leggja þá peninga sem þeir
spara í lækkuðum sköttum í fyrirtækin, skapa ný
atvinnutækifæri —þar með fjölgar vinnandi
mönnum og skattgreiðendum og ríkisbúskapur-
inn fær sitt aftur áður en lýkur.
Þetta dæmi hefur alls ekki gengið upp. Þeir
fátæku hafa orðið fátækari, þeir ríku hafa hleypt
hröðum vexti í nokkrar greinar lúxusframleiðslu
og þjónustu.Það er allt og sumt. Ríkisbúskapur-
inn hefur hinsvegar verið rekinn með geigvæn-
legum halla, og neyslu í Bandaríkjunum hefur
verið haldið uppi með miklum erlendum lánum
og of háu gengi dollarans. Smám saman hefur
þetta ástand safnað glóðum elds að höfði Re-
aganhagfræðinnar, magnað upp reiði Vestur-
Evrópumanna sem kvarta yfir því hástöfum að
verið sé að koma afleiðingum af bruðli Reaganl-
iðsins yfir á þá með ýmsum ráðum. Og allt hefur
þetta svo stuðlað rækilega að því að skapa það
ótrygga ástand sem birtist í verðhruninu mikla.
Því er það að þegar menn eru að draga álykt-
anir af því sem þegar hefur gerst á verðbréfam-
arkaði þá segja þeir fyrst af öllu: Tími Reagans
er liðinn og falsspámanna hans um efna-
hagsmál úr röðum „hinna nýju hægrimanna".
Enginn býst lengur við forystu eða úrræðum úr
þeirri átt. Veislan er búin. Hitt er svo eftir að vita
hve alvarlegir timburmennirnir verða og hve vítt
þeir breiðast um heiminn. ÁB
KUPPT OG SKORIÐ
Davíð sterki
Davíð borgarstjóri Oddsson
hefur að undanförnu lagt áherslu
á að koma fram í hlutverki hins
sterka manns. Hér á árum áður
virtist hann leggja sig í framkróka
við að sýna sínar bestu hliðar. Þá
var hann kunnur fyrir að hafa á
takteinum við hin ólíklegustu
tækifæri skemmtilegar kímni-
sögur sem komu fólki til að
brosa. Þess á milli leit hann til
með borgarstarfsmönnum eða
gaf ráðherrum góð ráð. En það er
af sem áður var.
Það hefur lengi tíðkast að vin-
sælir menn séu efldir til valda. í
auglýsingasamfélagi nútímans
virðist ekki skipta öllu hvort
menn eru vinsælir sökum fádæma
ráðkænsku og speki, vegna glæsi-
mennsku og prúðra siða eða
vegna þess skemmtilega hæfi-
leika að geta létt mönnumn lund
með vel sögðum hnyttnum skop-
sögum. Því miður komast flestir
menn að því fyrr eða síðar að lífið
er dálítið flóknara en góð skrýtla
og tekur þá stundum að grána
geð guma.
Enn eru Reykvíkingar að tala
um ráðhúsbyggingu. Á kaffistof-
um, í saumaklúbbum og á götum
úti taka menn tal saman og viðra
skoðanir sínar á málinu. Sumir
leyfa sér að vera á móti ráðhús-
byggingunni við Tjörnina og
nokkrir hafa skoðanir á því hvað
heppilegt sé að beina mikilli um-
ferð niður í Tjarnarkvosina. Það
er eins og menn átti sig ekki á því
að málið er afgreitt. Davíð borg-
arstjóri er búinn að taka ákvörð-
un og birta hana lýðnum. Menn
skyldu varast að spretta fingur að
þeim hlutum sem farsællega er
fram úr ráðið af þar til bærum
yfirvöldum.
Það er svo sem skiljanlegt að
menn í öðrum sveitum haldi að
einhverju sé unnt að breyta með
því að ræða málin og jafnvel að
skrifa um þau í blöðin. Einn slík-
ur karl úr Kópavogi, Jón úr Vör,
hóf upp raust sína í DV í gær og
var eitthvað að agnúast út í Davíð
fyrir ráðhúsið, fór meira að segja
að rekja fornar sögur úr sinni
heimabyggð og tala um einræðis-
herra.
Einræðisherrann
í Kópavogi
„Við hér í Kópavogi áttum
einn slíkan fyrir ekki ófyrirsjáan-
lega mörgum árum. Það var stór-
gáfaður og mikilhæfur maður og
kom ótrúlega miklu góðu til
leiðar á sínum ráðstjórnartíma.
Flestir samherjar hans reyndu að
fara dult með það þegar þeir
hugsuðu ekki nákvæmlega eins
sem kom örsjaldan fyrir. Hann
var líka blíður og dagfarsprúður,
skipti aldrei skapi. Það var helst
að í honum þykknaði sem
snöggvast þegar einhverjum vit-
grönnum andstæðingi datt í hug
að impra á því, að sú væri skoðun
bjargvættar okkar að óþarfi væri
fyrir óbreytta íbúa Kópavogs-
hrepps að vera að leggja það á sig
að hugsa meðan hans nyti við.
Aðra eins fjarstæðu hafði hann
auðvitað aldrei heyrt. Það bjarg-
aði okkur Ioksins að við gátum
gert hann að skörulegum þing-
manni og flokkurinn losaði sig
síðan við hann í einn stórbank-
ann. Nei, menn af þeirri
mannkosta- og gáfnagráðu sjá
ekki sjálfan sig oft í réttum spegli,
jafnvel þótt þeir komi í sjónvarp.
Þeir eiga reyndar miklu betur
heima á alþingi en í borgar- eða
sveitarstjórnum, að maður nú
ekki segi í ríkisstjórn. Þar eru
þeir nefnilega meir á meðal jafn-
ingja. Þar halda allir að þeir séu
snillingar og sumir þeirra eru það
jafnvel.“
Slegið neðan
við belti
Davíð borgarstjóri veit að völd
hans eru mikil. Vel getur verið að
honum þyki lítið til koma þeirra
sem í barnaskap telja sig ráða ein-
hverju en byggja í raun og veru
ákvarðanir sínar á samtölum og
samráði við fjölda manna. Borg-
arstjóri hefur t.d. látið að því
liggja að lítið leggist fyrir þá
kappa sem gegna ráðherraemb-
ætti hér á landi. Það geti varla
verið mikið mál fyrir rúman tug
manna að stjórna kvartmiljón ís-
lendingum fyrst ekki þarf nema
einn mann til að stjórna allri
Reykjavík. Ráðherrastarf á ís-
landi ætti kannski að vera hluta-
starf.
Borgarstjórinn hefur með
þessu veist nokkuð harkalega að
fóstbróður sínum, Þorsteini
Pálssyni forsætisráðherra, sem
við ellefta mann gegnir því van-
þakkláta starfi að sitja í ríkis-
stjórn. Reyndar telur Davíð að
völd Þorsteins séu hlægilega lítil
og má vera að þau virðist smá ef
borið er saman við altæk völd
borgarstjórans.
Að klippa
á silkiborða
Mönnum getur nú sárnað og
Þorsteinn rís til varnar þessari
óvæntu árás gamals félaga í við-
tali sem HP birti í gær.
„Það er rétt hjá Davíð að undir
forsætisráðuneytið heyra tiltölu-
lega fá stjórnsýsluverkefni. Þar
skilur á milli þess og fagráðu-
neytanna. En þannig á það að
vera, forsætisráðuneytið á ekki
að vera fagráðuneyti. Völd þess
eru þeim mun meiri að þetta er
áhrifaráðuneyti frekar en að þar
sé unnið að stjórnsýslumeðferð
einstakra mála. í ríkisstjórninni
móta menn hins vegar sameigin-
lega stefnu þar sem þarf að koma
til samþykkis allra í mikilvægum
málum. Þessi skipan hefur gefist
mjög vel og ekki ástæða til
breytinga þar á.“
„Mig skortir engan veginn völd
enda tel ég áhrif forsætisráð-
herraembættisins vera mikil. Og
yfirlýsingar um hálfsdagsstarf
ráðherra eru jafn broslegar og
þessi sífellda umræða
minnihlutaflokkanna í borgar-
stjórn að borgarstjórinn fáist
helst við að klippa á silkiborða."
ÓP
þJOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörieifurSveinbjömsson, IngunnÁsdísardóttir,.
Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðssoe ’•
(íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason,
RagnarKarlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vil-
borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrlta- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halidórsson.
Útlltstelknarar: Sævar Guðbjörnsson, GarðarSigvaldason.
Margrót Magnúsdóttir
Framkvæmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
^Auglýsingastjóri: Siqríður Hanna Sigurtjörnsdóttir.
Auglýsingar: Unnur Ágústsdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Krist-
insdóttir.
Símvarsla: HannaÓlafsdóttir, SigríðurKristjánsdóttir.
Bflstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
wiuioiw*iu-uyaigroioBiu8ijori:norouruaainoarson.
Afgrelðsla: Bára Sigurðardóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, OlafurBjömsson.
Utkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Sföumúla 6, Reykjavfk, sfmi 681333.
Auglýsingar: Sfðumúla 6, sfmar 681331 og 681310.
Umbrotog setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð f lausasölu: 55 kr.
Helgarblóö: 65 kr.
Áskrtftarverð á mánuöi: 600 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. október 1987