Þjóðviljinn - 30.10.1987, Blaðsíða 5
Spurt um..
...fréttastofu
Ríkisútvarps
Ingi Björn Albertsson, spyr
menntamálaráðherra um rekstur
fréttastofu Ríkisútvarpsins. Hann
spyr hvort nauðsynlegt sé fyrir
Ríkisútvarpið að haldá úti
tveimur fréttastofum. Þá spyr
hann hvað fréttaöflun frá er-
lendum fréttastofnunum kostar
og hver kostnaðurinn sé af frétta-
mönnum sem starfa erlendis á
þeim stöðum þaðan sem keyptar
eru fréttir.
...B-álmu
Borgarspítalans
Svavar Gestsson og Guðrún
Helgadóttir spyrja heilbrigðisráð-
herra um hver árleg framlög hafi
verið til B-álmu Borgarspítalans,
frá því að bygging hófst, annars-
vegar úr framkvæmdasjóði aldr-
aðra og hinsvegar úr Borgar-
sjóði. Fara þau fram á að hvert ár
verði tilgreint sérstaklega og að
upphæðirnar verði á föstu verð-
lagi í október 1987. Þá spyrja þau
hversu stór hluti álmunnar sé í
notkun núna og hvenær áfgang-
arnir voru teknir í notkun. Einnig
spyrja þau hvenær álman verði
fullbúin ef framlög verða þau
sömu á ári og þau eru í ár. Einnig
hvað kosti að fullbúa álmuna og
að lokum hversu margir aldraðir
Reykvíkingar séu nú á biðlistum
eftir þjónustu við aldraða. Farið
er fram á skriflegt svar.
...milliþinganefnd
um staðgreiðslu skatta
Óli Þ. Guðbjartsson spyr fjár-
málaráðherra um hversvegna
Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga var ekki gefinn kostur á að
útnefna fulltrúa í milliþinganefnd
um staðgreiðslu skatta og mál
tengd henni.
...náttúrufræðisafn
Hjörleifur Guttormsson spyr
menntamálaráðherra um hvað
undirbúningi að byggingu náttúr-
ufræðisafns á höfuðborgar-
svæðinu líði.
...námslán
Steingrímur J. Sigfússon spyr
menntamálaráðherra hvort hann
hyggist beita sér fyrir endur-
skoðun á lögum um námslán og
námsstyrki á næstunni og hvern-
ig hann muni haga þeirri endur-
skoðun. Hann spyr einnig hvort
ráðherrann ætli að afnema þá
skerðingu á námslánum sem
varð á árunum 1984-1986 með
breyttum vísitölumiðunum og út-
gáfu skerðingarreglugerðar sem
veldur því að lánin eru nú nálægt
20% lægri en ella hefði verið. Þá
spyr hann hvort menntamálaráð-
herra sé reiðubúinn til að beita
sér fyrir því að raunverulegur
framfærslukostnaður náms-
manna hérlendis og erlendis
verði kannaður þar sem sú fram-
færsluviðmiðun sem notast hefur
verið við hér innanlands sé frá
árinu 1973, og sé hún langt frá
því að endurspegla raunveruleg
útgjöld námsmanna. Segir fyrir-
spyrjandi að svipuð gagnrýni hafi
komið fram á framfærsluviðmið-
un námsmanna erlendis.
...norræna
umhverfisverndar-
samninginn
Guðrún Helgadóttir spyr félags-
málaráðherra um aðild (slands
að norræna umhverfisverndar-
samningnum. Hún spyr hvað líði
framkvæmd ályktunar sem sam-
þykkt var á Alþingi sl. vor, um að
ríkisstjórnin staðfesti aðild (s-
lendinga að norræna umhverfis-
verndarsamningnum, sem gerð-
ur var milli Noregs, Finnlands,
Svíþjóðar og Danmerkur árið
1974.
Umsión
SiguröurÁ.
Friðþjófsson
Ráðhús
Lífríkið kannað
Þingsályktunartillaga Guðrúnar Helgadóttur ogfleiri
þingmanna stjórnarandstöðunnar um rannsóknir á
lífríki Tjarnarinnar vegnafyrirhugaðrar hyggingar
ráðhúss
Reykjavík hefur ekki af að státa
fornum, sögufrægum bygg-
ingum eins og flestar höfuðborgir
Evrópu. En það sem skortir um
fornminjar bæta náttúruminjar
hennar upp. Ein þeirra, og sú sem
næst stendur hjarta hvers einasta
Reykvíkings, er Tjörnin og
Vatnsmýrarsvæðið með því ið-
andi fuglalífi sem ungir og aldnir
borgarbúar líta á sem órjúfan-
legan þátt daglegs lífs í borginni".
Þannig hljóðar inngangurinn
að greinargerð með þingsálykt-
unartillögu sem Guðrún Helga-
dóttir flytur ásamt þingmönnun-
um Alberti Guðmundssyni,
Guðmundi Ágústssyni, Guðrúnu
Agnarsdóttur, Kristínu Einars-
dóttur og Svavari Gestssyni.
Tillagan gerir ráð fyrir að ríkis-
stjórnin hefji nú þegar viðræður
við borgaryfirvöld í Reykjavík
um að ítarlegar rannsóknir fari
fram á áhrifum byggingar ráð-
húss í Tjörninni á Iífríki hennar
áður en framkvæmdir hefjast.
í greinargerðinni segir að það
þurfi vafalítið að þurrka upp stórt
svæði í Tjörninni meðan á fram-
kvæmdum stendur. Þar sem
Tjörnin og Vatnsmýrarsvæðið
eru á náttúruminjaskrá ber borg-
aryfirvöldum að leita álits Nátt-
úruverndarráðs áður en fram-
kvæmdir hefjast. Sé það vanrækt
getur Náttúruverndarráð krafist
atbeina lögreglustjóra samkvæmt
náttúruverndarlögum.
í greinargerðinni kemur fram
að ekki hefur verið leitað álits
Náttúruverndarráðs og segir að
það veki undrun að svo afdrifarík
framkvæmd skuli ákveðin að svo
lítt athuguðu máli.
„Það hlýtur að vera krafa
Reykvíkinga, og raunar lands-
manna allra, að svo afdrifaríkar
framkvæmdir í hjarta höfuðborg-
ar landsins fari þá fyrst af stað
þegar lögum um náttúruvernd
hefur verið framfylgt og öll aðgát
verið viðhöfð," segir undir lok
greinargerðarinnar.
-Sáf
Konum á þingi fjölgaði um helming við síðustu Alþingiskosningar. Þær eru
nú 13 en voru fyrir 7. Þingflokkum fjölgaði hinsvegar um einn og eru þeir nú
6, auk þess sem Stefán Valgeirsson er utan þingflokka. Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir er bæði fulltrúi fleiri kvenna og fleiri þingflokka. Mynd E.ÓI.
Einnota umbúðir
Bann og reglur
um notkun
Þingsályktunartillaga um einnota umbúðir.
Ákveðnar umbúðir verði bannaðar ogskila-
gjald tekið upp fyrir aðrar
Kristín Einarsdóttir mælti í gær
fyrir þingsályktunartillögu
um cinnota umbúðir, sem hún
flytur ásamt þingmönnunum
Hjörleifi Guttormssyni, Árna
Gunnarssyni, Valgerði Sverris-
dóttur og Salome Þorkelsdóttur.
Tillagan gerir ráð fyrir að ríkis-
stjórninni sé falið að undirbúa
frumvarp um framleiðslu, inn-
flutning og notkun einnota um-
búða.
í greinargerð með tillögunni
kemur fram að notkun einnota
umbúða hefur stóraukist hér á
landi undanfarin misseri og að
búast megi við enn meiri
aukningu á næstunni. Þetta kom
einnig fram í máli flestra sem
tóku til máls í fyrstu umræðu um
tillöguna.
Bent var á að í nágranna-
löndum okkar hafa víðast hvar
verið settar reglur um notkun
Alþingi
Oeðlileg flokkun
Ljósatafla á þingi flokkar menn eftir því hvort þeir eru stjórnarsinnar
eðastjórnarandstœðingar. Karvel Pálmasonflokkaður
sem stjórnarsinni
Það má segja að það sé óeðlilegt
að menn séu á þessari töflu
flokkaðir eftir því hvort þeir séu
stjórnarsinnar eða stjórnarand-
stæðingar, þar sem stjórnarskrá-
in býður mönnum að taka afstöðu
til mála eftir sannfæringu sinni og
bestu vitund, sagði Karvel Pálma-
son við Þjóðviljann.
Á þessari töflu sem er á gangin-
um fyrir framan þingsali, er Kar-
vel flokkaður sem stjórnarsinni
þó hann hafi lýst því yfir opinber-
Karvel Pálmason
lega að hann styðji ekki ríkis-
stjórnina. Þetta kom upp í um-
ræðu um þingsköp á Alþingi þeg-
ar Ólafur Ragnar Grímsson vakti
athygli á þessu.
„Það að ég skuli flokkaður sem
stjórnarsinni á þessari töflu
skiptir mig ekki höfuðmáli. Ég
hef lýst því yfir að ég taki afstöðu
til mála eftir sannfæringu minni
en ekki eftir því hvort mál er
ríkisstjórnarmál eða stjórnar-
andstöðumál," sagði Karvel.
-Sáf
slíkra umbúða en slíkar reglur um
umbúðir miða að því að halda
mengun í lágmarki.
Flutningsmenn segja að nauð-
synlegt geti verið að banna notk-
un ákveðinna umbúða og setja
þurfi reglur um notkun annarra.
Telja þeir æskilegt að tekið verði
upp skilagjald, sem er það hátt að
það hvetji fólk til að safna saman
umbúðum og skila frekar en að
henda þeim. Einnig er bent á að
taka megi upp framleiðslugjald
sem renni til umhverfismála.
Það kom fram í umræðum að
þingmenn sakna þess að um-
hverfismál skuli ekki heyra undir
eitt ráðuneyti og sagði Árni
Gunnarsson að stofna verði sérs-
takt umhverfismálaráðuneyti.
-Sáf
Utanríkisviðskipti
Skipta um
ráðuneyti
Þó mest hafi farið fyrir tveimur
ríkisstjórnarfrumvörpum ráð-
herra Alþýðuflokksins, fjárlaga-
frumvarpinu og frumvarpinu um
húsnæðislánasjóð, hafa verið
lögð fram þrjú frumvörp í nafni
rfldsstjórnarinnar til viðbótar.
Tvö þessara frumvarpa eru
nauðsynleg til að hægt sé að flytja
utanríkisverslunina frá viðskipt-
aráðuneyti til utanríkisráðuneyt-
is. Annarsvegar breyting á lögum
um útflutningsráð, þannig að það
heyrir undir utanríkisráðuneyti í
stað viðskiptaráðuneyti. Hins-
vegar frumvarp um útflutnings-
leyfi sem flytur útgáfu slíkra leyfa
frá viðskiptaráðuneyti til utan-
ríkisráðuneytisins.
Þriðja frumvarpið er svo
breyting á iðnaðarlögum sem
veitir iðnaðarráðherra heimild til
að leyfa erlendum aðilum að eiga
meira en helming hlutafjár í iðn-
fyrirtækjum hér á landi.
-Sáf
Föstudagur 30. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5