Þjóðviljinn - 30.10.1987, Side 6
TVÖFALT SF.
Ódýrari hús „ Betri hús
Varanleg hús Sumarhús
og geta verið gróðurhús allan ársins
hring.
TVÖFALT SF.
sími 46672
Akraneskaupstaður, tæknideild
Auglýsing um deili-
skipulag á Akranesi
Arnardalssvæði
Skv. ákvörðun skipulagsstjórnar með vísan til 17.
og 18. gr. skipulagslaga nr. 19/1964 er lýst eftir
athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi Arn-
ardalssvæðis Akranesi. Svæðið afmarkast af
Kirkjubraut að norðanverðu, Stillholti að austan-
verðu, Faxabraut, Jaðarsbrautog Skagabrautað
sunnan- og vestanverðu.
Teikningar, ásamt greinargerð og skilmálum
liggja frammi á Tæknideild Akraneskaupstaðar
Kirkjubraut 28,2. hæð, frá og með mánudeginum
2. nóvember, til föstudagsins 18. desember
1987.
Athugasemdir ef einhverjar eru, skulu vera skrif-
legar og berast bæjartæknifræðingi Akranesk-
aupstaðar fyrir 31. desember n.k.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna
innan tiltekins frests teljast samþykkja hana.
Bæjartæknifræðingur
REYKJÞMÍKURBORG
Acuc&cvi Stödun
Staða hitaveitustjóra Hitaveitu Reykjavíkur er
auglýst laus til umsóknar. Staðan verður veitt frá
og með 1. janúar 1988.
Umsóknum ber að skila til undirritaðs og er um-
sóknarfrestur til 27. nóvember n.k.
26. október 1987
Borgarstjórinn í Reykjavík
Davíð Oddsson
Laus staða
Fyrirhugaö er að ráða forstöðumann fyrir skrifstofu Þjóðminjasafns
íslands frá 1. desember næstkomandi að telja.
Starfið er auk almennra skrifstofustarfa einkum fólgið í umsjón með
fjármálum safnsins og gerð fjárhagsáætlunar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa
borist menntamálaráðuneytinu fyrir 25. nóvember næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
27. október 1987
Sonur okkar, unnusti og bróðir
Brynjar Kristján Gunnlaugsson
Álfhólsvegi 103
andaðist á Borgarspítalanum 27. október
Gunnlaugur Gunnarsson Þorbjörg Einarsdóttir
Erla Guðmundsdóttir
Gunnar Karl Gunnlaugsson
Einar Már Gunnlaugsson
Birna Gunnlaugsdóttir
T- I*
Á
\e^0C é
+ 4.
* 4U T ........ ..
£
* A f- **
Á / Á ' < ^
*T MjL. / "V f- *
* * 4. *
Fm
Þing Náttúruverndarráðs
Einnota umbúðir
og ferðamenn
Á þingi Náttúruverndarráðs
um síðustu helgi var samþykkt
stefnumörkun í ýmsum málum,
sem ekki hefur áður verið lýst hér
í blaðinu. í Þjóðviljanum í gær
var þó greint stuttlega frá flestum
hinna helstu mála.
Náttúruvernd-
arnefndir
Þingið vakti með sérstakri
samþykkt athygli Alþingis á
nauðsyn þess að setja lög til að
„tryggja réttarstöðu gróður-
verndar- og náttúruverndar-
nefnda eftir að sýslunefndir eru
lagðar niður í árslok 1988.
Einnota
umbúðir
Þá var skorað á stjórnvöld að
setja sem allra fyrst lög og reglu-
gerðir um notkun „umbúða hér á
landi í því skyni að koma í veg
fyrir að af þeim hljótist umhverf-
ismengun“.
Móttaka
ferðamanna
Þingið beindi til ferðamála-
ráðs, að í auglýsingum um landið
verði í auknum mæli gerð „grein
fyrir reglum um akstur og um-
gengni, og þeirri staðreynd, að
íslensk náttúra er afar viðkvæm".
Jafnframt lýsti þingið „undrun
sinni yfir því að ekki skuli farið að
lögum varðandi fjárveitingar til
Ferðamálaráðs“, og hvetur um
leið til þess að stóraukin verði
framlög til framkvæmda sem
stuðla að bættri móttöku ferða-
manna í byggð og í óbyggðum".
Þar að auki taldi þingið, að
„markviss kynning á ferða-
mannastöðum og fræðsla um
verndun þeirra sé mikilvægur
þáttur í landvernd“ og beindi til
Náttúruverndarráðs að kanna,
„hvernig hagnýta megi myndænt
efni í slíku kynningarstarfi“.
Náttúru-
fræðistofur
Skorað var á menntamálaráðu-
neytið að í námsefni í efri bekki
grunnskóla verði felld vinna að
sýningu á náttúrufari og -minjum
ásamt sögu viðkomandi
sveitarfélags, og slíkar sýningar
yrðu opnar yfir sumarið „fyrir
heimamenn og ferðamenn".
-ÖS
Kennarasambandið
Gegn matarskatti
Jóns Baldvins
Hörð áskorun á fjármálaráð-
herra um að falla frá hugmyndum
um 10 prósent matarskatt var
samþykkt á fundi fulltrúaráðs
Kennarasambands íslands fyrir
skömmu.
„Slíkur skattur, ef lagður yrði
á, hlyti óhjákvæmilega að leggj-
ast þyngst á barnmargar fjöl-
skyldur sem síst mega við
auknum skattbyrðum,“ segir í
samþykktinni. „Hjá þorra þeirra
landsmanna sem teljast til lág-
tekjuhópa í þjóðfélaginu, fer
stærstur hluti teknanna til kaupa
á nauðþurftum. Auknar álögur á
þessa þjóðfélagsþegna eru óvið-
unandi og leiða aðeins til aukins
misréttis."
Launakostnaður
á sveitarfélög
Fulltrúaráðið mótmælti jafn-
framt þeirri þróun, að ríkið velti í
auknum mæli launakostnaði yfir
á sveitarfélögin, sem verða nú að
greiða ýmiss konar launauppbæt-
ur eigi þau að hafa von um að geta
ráðið kennara. „Mörg sveitarfé-
lög hafa gert sér grein fyrir mikil-
vægi þess að kennarar fáist til
starfa og hafa því gripið til þess
ráðs að greiða launauppbætur í
einni eða annarri mynd,“ segir í
ályktun fulltrúaráðsins, sem
„mótmælir því að ríkið skuli með
þessum hætti velta launakostnaði
í auknum mæli yfir á herðar
sveitarfélaganna."
„Fulltrúaráðið minnir á að í
skólastefnu KÍ er lögð áhersla á
að ríkissjóður standi undir öllum
kostnaði við skólastarf til þess að
tryggja jafna aðstöðu allra til
náms. Það er óviðunandi að nem-
endur eigi það undir fjárhag
sveitarfélaganna hvernig tekst til
um menntun þeirra.“
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. október 1987