Þjóðviljinn - 30.10.1987, Síða 7
Vopn
Leiðtogafundur
í Reykjavík?
Sovétmenn segja öruggt aðfundur Reagans
og Gorbatsjofs fariframfyrirárslok. Banda-
rískir fjölmiðlar telja Sovétleiðtogann áfram
um að halda leiðtogafund á Islandi!
Háttsettur sovéskur embættis-
maður sagði í gær að nú væri
klappað og klárt að fundur Ron-
alds Reagans og Míkaels Gorbat-
sjofs, leiðtoga stórveldanna, færi
fram áður en árið rennur út.
Maður er nefndur Boris Pya-
dishef og kvað vera aðstoðarfor-
stjóri upplýsingarmiðstöðvar so-
véska utanríkisráðuneytisins!
Hann sagði nánast öruggt að
leiðtogafundurinn yrði haldinn
en minntist ekkert á það hvaða
daga hann færi fram né hvar.
En hann tjáði fréttamönnum
að öllum hindrunum hefði verið
rutt úr vegi fyrir fundarhaldi því
Bandaríkjastjórn hefði fallist á
að ræða um fækkun langdrægra
kjarnflauga og framtíð Gagn-
flaugasamningsins (ABM) svo-
nefnda. Þessi atriði „verða rædd í
smáatriðum á væntanlegum
leiðtogafundi sem fram fer fyrir
árslok," sagði Pyadishef.
Edvard Shevardnadze, utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna, er
væntanlegur til Washington í dag
og mun um tveggja daga skeið
spjalla við þá Reagan og banda-
rískan kollega sinn, George
Shultz.
Meðferðis hefur Shevardnadze
hið margumtalaða bréf frá Gor-
batsjof til Reagans en ýmsir so-
véskir embættismenn hafa ýjað
að því að það innihaldi tilboð um
dagsetningar og staðsetningu
leiðtogafundar.
Míkael Gorbatsjof og Ronald Reagan spjalla saman í Höfða. Hittast þeir þar á ný í desember næstkomandi?
Aðal verkefni þeirra Reagans
og Gorbatsjofs á leiðtogafundi
verður að undirrita sögulegan
samning um eyðingu allra meðal-
drægra kjarnflauga risaveldanna.
Almennt hafði verið búist við því
að hann færi fram í Washington í
nóvemberlok en það breyttist
þegar snurða hljóp á þráðinn í
viðræðum Shultz og Gorbatsjofs í
Moskvu í lok síðustu viku. So-
véskir embættismenn og dipló-
matar segja nú að öll sólarmerki
bendi til þess að Reagan og Gor-
batsjof fundi einhverntíma í upp-
hafi eða um miðbik desember-
mánaðar.
Frá Bandaríkjunum bárust þær
fréttir í gær að Reagan hefði sagt
að enn væri óvissa um leiðtoga-
fund en málin myndu skýrast
þegar hann hefði lesið bréfið frá
Gorbatsjof. Sú saga gengur fjöll-
um hærra í fjölmiðlum vestra að
Gorbatsjof sé áfram um að fund-
ur þeirra Reagans fari fram hér á
íslandi en hvort fótur er fyrir
henni kemur í ljós þegar bréfið
góða verður opnað í dag.
-ks.
Sri Lanka
Leiðtogar ræða sjálfstjóm tamíla
Brátt tekur borgaraleg stjórn tamíla til starfa á Jaffnaskaga en mörgum
þykir nóg um afskiptasemi Indverja. Tamíltígrar hvarvetna á undanhaldi
Junius Jayewardene, forseti Sri
Lanka, og aðstoðarforsætis-
ráðherra Indlands, K. Natwar
Singh, áttu með sér fund í gær og
ræddu um endurreisn borgara-
legrar stjórnar á norðurhluta
eyríkisins þar sem indverskar
hersveitir hafa barist við skæru-
liða Tamfltígranna síðastliðnar
þrjár vikur.
Singh átti sólarhringsviðdvöl í
Kólombó, höfuðborg Sri Lanka,
og snérust viðræður þeirra Jay-
ewardenes um útfærslu ákvæða
friðarsamkomulagsins er Rajiv
Gandhi og Jayewardene gerðu
með sér þann 29. júlí síðastliðinn
til að binda enda á fjögurra ára
borgarastyrjöld á Sri Lanka milli
sinhalesa og tamfla.
Að loknum viðræðum þeirra
sagði Singh í yfirlýsingu að þeir
félagar hefðu einkum rætt hve-
nær og hvernig tamílskir flótta-
menn úr norðri snéru heim og
hvernig hægt væri að veita þeim
Líbanon
Sendiráðsverðir myrtir
Að minnsta kosti 73 Frakkar hafa verið myrtir
í Líbanon á umliðnumfjórum árum og sjö eru
taldir vera á valdi mannrœningja
Oþekktir tilræðismenn skutu í til 95 manna sveit franskra örygg-
gær tvo franska sendiráðs- isvarða í Beirút.
Starfandi forsætisráðherra
Líbanons, Selim Hoss, fordæmdi
morðin í gær og sagði að öll spjót
yrðu höfð úti til að hafa hendur í
hári tilræðismannanna.
Á síðastliðnum fjórum árum
hafa að minnsta kosti 73 Frakkar
þekktir tilræðismenn skutu í
gær tvo franska sendiráðs-
verði til bana og særðu þann
þriðja alvarlega þar sem þeir
voru staddir fyrir utan minja-
gripaverslun í Austur-Beirút í Lí-
banon.
aðstoð við að koma undir sig fót-
unum á ný. Ennfremur hefðu
umræðurnar snúist um væntan-
legt lýðræðislegt stjórnskipulag
norðursvæða og skipulag
stjórnkerfisins.
Indverjar vinna nú baki brotnu
að því að koma lífinu í eðlilegt
horf á ný á þeim svæðum er þeir
hafa rifið úr höndum Tígranna á
Jaffnaskaga. Til að mynda hafa
þeir sent herskara raftæknifræð-
inga til Jaffnaborgar sem leggja
nótt við dag til að koma rafkerfi
hennar í samt lag eftir bardagana
er þar voru háðir.
Þetta þykir mönnum vera hið
besta framtak. Hinsvegar þykir
áætlun stjórnarinnar í Nýju-
Delhi um að senda fjölda opin-
berra starfsmanna sinna til Jaffna
orka mjög tvímælis. Ráðamenn í
Kólombó standa á því fastar en
fótunum að herrar þessir muni
aðeins og eingöngu annast mat-
væladreifingu á skaganum en
ýmsir hafa gert því skóna að þeir
eigi einnig að vinna að því að
koma á fót borgaralegri stjórn á
svæði sem Tígrarnir hafa í raun
stjórnað á umliðnum árum.
„Þetta er viðkvæmt mál á Sri
Lanka, fólki óar við tilhugsuninni
um aukin umsvif Indverja í
landinu," sagði ónefndur er-
lendur sendiráðsmaður í gær.
Fundur þeirra Jayewardenes
og Singhs fór fram á sama tíma og
indverska herstjórnin sagði sína
menn hafa unnið góða sigra á
Tígrum og náð tveim bæjum
þeirra á sitt vald á Jaffnaskaga,
Kodikkaman og Chavakachc-
heri.
Ríkisútvarp Sri Lanka fullyrti í
gær að fjöldi Tígra væri í felum á
meðal flóttamanna í Nallur must-
erinu í Jaffnaborg. Musterið væri
umkringt indverskum her-
mönnum en Tígrarnir reyndu að
komast á brott með flótta-
mönnum og erfitt væri að hafa
hendur í hári þeirra. Um 10 þús-
und flóttamenn eru enn í Nallur
en þegar bardagar voru í al-
gleymingi í borginni kváðu um 40
þúsund manns hafa leitað hælis í
musterinu. _ks
ísrael
Háskóla
lokað
ísraelskir ráðamenn
hyggjastloka Betle-
hemháskólanum um
þriggja mánaða skeið
Stjórnvöld í ísrael fyrirskipuðu
í gær að Betlehemháskóla á
hinum hersetna vesturbakka Jór-
danár skyldi lokað um þriggja
mánaða skeið eftir að palestínskir
námsmenn við hann höfðu lent í
átökum við lögreglu á miðviku-
dag.
22 ára gamall námsmaður
liggur milli heims og helju eftir að
ísraelskir lögreglumenn skutu
hann í höfuðið á miðvikudag.
Einnig slasaðist námsmær í átök-
unum er lögreglumenn skutu
hana í fæturna.
Átökin við Betlehemskólann,
sem rekinn er af Páfagarði, urðu í
kjölfar fjölmenns fundar náms-
manna er minnast vildu þess að
ísraelskir lögreglumenn myrtu 49
palestínska þorpsbúa á fyrsta
degi stríðs ísraelsmanna og Eg-
ypta árið 1956. _ks
El Salvador
Þetta var fyrsta morðárásin á
Frakka í Líbanon um rúmlega
eins árs skeið en þann 18. sept-
ember í fyrra var hermálafulltrúi
franska sendiráðsins, Christian
Gouterrie, skotinn til bana fyrir
utan sendiráðsbygginguna í
Austur-Beirút.
Að sögn lögreglu og vitna áttu
þremenningarnir sér einskis ills
von er bifreið nam skyndilega
staðar skammt frá þeim, út úr
henni spruttu tveir menn með
vélbyssur og hófu skothríð.
Að sögn heimildarmanna í
franska varnarmálaráðuneytinu í
París heyrðu fórnarlömbin þrjú
verið vegnir í Líbanon. Sjö til við-
bótar er saknað og er gengið að
því sem vísu að þeir séu í haldi
mannræningja. Fyrir fjórum
árum voru 58 franskir fallhlíf-
arhermenn drepnir þegar síti ók
vörubifreið með fullfermi af
sprengiefni inní aðalbækistöðvar
franska friðargæsluliðsins í
Beirút. Ekki er talið ólíklegt að
mennirnir er myrtu sendiráðs-
verðina í gær séu félagar í írans-
vinasamtökum síta í Líbanon.
Alkunna er að ákaflega köldu
andar nú milli Parísar og Teher-
an. -ks.
Viðræðum um vopnahlé aftýst
Morð dauðasveita hersins á mannréttindafrömuði dregur dilk
á eftir sér
í yfirlýsingu Þjóðlegrar frelsis-
fylkingar Farabundo Marti er
send var til fjölmiðla í gær segir
að fulltrúar hennar sjái ekki á-
stæðu til að mæta til viðræðna
þeirra við stjórnarliða er fyrir-
hugað var að hefðust í Mexíkó í
dag þar eð slíkt myndi aðeins
Fulltrúar skæruliða vinstri-
manna í EI Salvador lýstu því
yfir í gær, að þeir hefðu ákveðið
að hætta viðræðum við fulltrúa
stjórnar Duartes forseta um
vopnahlé vegna morðs dauða-
sveita hersins á mannréttinda-
frömuðinum Herbert Ernesto
Anaya á mánudaginn var.
vekja falskar vonir um að vopna-
hlé væri á næsta leiti.
Fulltrúar fylkingarinnar sögð-
ust ekki velkjast í vafa um að
ríkisstjórnin stæði á bak við víg
Anayas og við morðingja hefðu
þeir ekkert að ræða.
-ks.
Föstudagur 30. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7