Þjóðviljinn - 30.10.1987, Síða 9
Chris Bunyan er formaður baráttu-
samtaka gegn stækkun Dounreay
versins. Fyrr í mánuðinum var hann
gestur Alþýðubandalagsins á opinni
ráðstefnu um umhverfismál.
Rœða Chris
Bunyanáop-
inni ráðstefnu
Alþýðu-
bandalagsins
um umhverf-
ismál í
Gerðubergi
í Reykjavík
að kviknaði í Sellafield kjarn-
orkuverinu sem fram að Tsjernó-
bíl var versta kjarnorkuslys ver-
aldar.
Aukning á hvítblæði
Fyrir utan losun geislavirkra
efna út í andrúmsloftið eða sjóinn
vegna óhappa erum við sem
andæfum Dounreay-verinu einn-
ig mjög áhyggjufull vegna þeirrar
losunar geislavirks úrgangs sem
er leyfileg samkvæmt ákvörðun
stjórnvalda eða talin innan hinna
svokölluðu skaðleysismarka.
f nágrenni við Dounreay-verið
er tíðni hvítblæðis í börnum fimm
sinnum meiri en að öðru jöfnu
mætti gera ráð fyrir og í grennd
við Sellafield-verið er hvítblæði í
börnum tíu sinnum hærra en ann-
ars staðar. Vitanlega halda
stjórnvöld og kjarnorkuiðnaður-
inn því fram að það séu alls engin
tengsl á milli þessa krabbameins
og geislamengunarinnar. En í
stað þess að loka Verunum þang-
að til sannað er að geislamengun-
in er ekki orsök þessarar miklu
tíðni krabbameina þá er það eft-
irlátið hinum ýmsu umhverfiss-
amtökum að reyna að sanna þessi
tengsl. Þetta er þveröfugt við það
sem gerist í lyfjaiðnaðinum. Um
leið og sýnt þykir að einhverjar
líkur séu á hliðarverkunum lyfja
eru þau dregin af markaðnum
uns þau eru sannanlega örugg.
Við berjumst gegn Dounreay
vegna þess að við teljum að
geislamengun vegna bæði leyfi-
legrar losunar á geislavirkum úr-
gangi og eins vegna mögulegra
slysa í verinu muni menga
Norðursjóinn og um síðir
Norður-Atlantshafið líka. En
jafnvel þó þetta myndi ekki ger-
ast þá setur Dounreay okkur
samt sem áður í bobba.
Ógnun
við fiskiðnaðinn
Það þarf ekki nema nokkur
minniháttar óhöpp í Dounreay til
að fólk sem hefur keypt vörur frá
okkur fari að óttast að fiskurinn
okkar eða lambakjötið sé meng-
að. Og um leið mun fólk hætta að
kaupa fiskinn okkar.
Þetta fundum við ótrúlega vel
eftir Tsjernóbíl þegar Banda-
ríkjamenn neituðu a kaupa eldis-
lax frá Hjaltlandséyjum af ótta
við að hann væri geislamengaður.
Hafsvæðin út af Dounreay og
norðurodda Skotlands eru sum
hver á meðal mikilvægustu fiski-
miða Evrópu. Ekki aðeins skipa-
floti frá Skotlandi og
Hjaltlandseyjum byggir á þessum
miðum, heldur einnig Danir og
Norðmenn sem veiða mikið af
síld.
Þó að ísland og Fœreyjar séu
langt í burtu frá Dounreay er ég
samtsem áður hrœddur um að þið
getið heldur ekki verið örugg. Til
allrar hamingju eru höfin við ís-
land laus við mengun að mestu
leyti og það myndi taka mörg ár
áður en geislavirkni frá Dounre-
ay myndi mælast hér við land í
einhverjum mæli. En ykkur er
samt sem áður búin hætta vegna
loftmengunar ef slys yrði og ef
vindurinn blési úr réttri - eða öllu
heldur rangri - átt og ef rigndi á
meðan geislavirk loftefni væru
yfir íslandi. Við getum ímyndað
okkur að slys verði í Dounreay og
stðan spurt okkur sjálf: Hversu
langan tíma tæki það vinda að
bera geislavirk loftefni til íslands
ef áttin er þannig?
Fjarlægðin frá Dounreay-
verinu er að vísu mikil til fslands.
En samt er ekki hægt að útiloka
hættuna af beinni geislamengun.
Þannig langar mig að nefna tvær
fisktegundir sem skipta íslend-
inga nokkur máli og hrygna báð-
ar norður af Skotlandi, vorgotsfld
og kolmunna.
En fiskveiðum íslendinga staf-
ar einnig hœtta af neikvœðu við-
horfi neytenda á erlendum
mörkuðum. Ef fólk í Ameríku,
Evrópu og víðar hættir að kaupa
fisk frá Hjaltlandseyjum, Noregi
eða Færeyjum vegna þess að það
telur að hann kunni að vera
mengaður þá óttast ég að ykkar
fiskiðnaður muni einnig gjalda
þess.
Baráttan gegn
Dounreay-verinu
Að lokum vil ég lýsa aðeins
baráttuhreyfingunni gegn
Dounreay-verinu. Andstaðan á
Hjaltlandseyjum kemur víða að,
frá bæjarstjórninni, verkalýðsfél-
ögunum, kirkjunni, bændum,
fiskimönnum, ferðamannaiðnað-
inum, raunar alls staðar nema frá
íhaldsflokknum. Eyjarnar eru
allar sameinaðar í andófi gegn
Dounreay.
í Noregi hafa yfir 250 þúsund
manns undirritað mótmæli við
Dounreay og allar 19 héraðs-
stjórnirnar og 240 bæjar- og
sveitarstjórnir hafa stutt mót-
mælin. Norska ríkisstjórnin hefur
einnig mótmælt við bresku
stjórnina og fiskvinnslan og land-
búnaðurinn taka vaxandi þátt í
mótmælunum.
í Fœreyjum hefur ríkisstjórnin
borið fram mótmæli við Thatcher
í gegnum stjórnina í Kaupmanna-
höfn og þar hefur baráttu-
hreyfing gegn Dounreay-verinu
nýlega farið af stað. Sem dæmi
um andstöðuna í Færeyjum má
nefna að þegar við héldum ráð-
stefnu á Hjaltlandseyjum í júlí
komu Atli Dam, oddviti færeysku
ríkisstjórnarinnar, tveir aðrir
ráðherra og sex þingmenn.
/ Danmörku er andstaða við
verið vaxandi og Norðurlandaráð
hefur einnig sent mótmæli til
bresku stjórnarinnar.
En Dounreay skiptir einnig ís-
land máli og þess vegna er ég afar
ánægður yfir að geta heimsótt ís-
land. Ég veit að heilbrigðisráðu-
neyti ykkar hefur þegar Iátið búa
til skýrslu þar sem greint er frá
þeim vanda sem íslandi kynni að
stafa frá Dounreay og utanríkis-
ráðherrann hefur látið i ljós
áhyggjur vegna versins.
íslenska ríkisstjórnin hefur
líka tekið þátt í umræðunum um
málið á vettvangi Norðurlandar-
áðs. En það er hægt að gera miklu
meira. Þegar Parísarnefndin
kemur saman á næstaári vona ég
að íslenska ríkisstjórnin muni
styðja ályktun íra þar sem farið
er fram á lokun kjarnorkuversins
í Sellafield og starfa með öðrum
þjóðum að því að taka upp
Dounreay-málið.
Að lokum vil ég aftur þakka
Alþýðubandalaginu fyrir að
bjóða mér til þessa fundar sem ég
vona að verði upphafið á sam-
starfi milli allra íslenskra
stjórnmálaflokka um andóf gegn
Dounreay.
Bygging K
á Landspítalalóð
Tilboð óskast í smíði og frágang á glerþaki yfir
biðskála milli byggingar K og álmu G á Landspít-
alalóð, stærð um 285 m2 og skyggni framan bið-
skála, stærð um 70 m2. Verkið felur í sér
fullnaðarfrágang á þakinu, með þakniðurföllum,
rafhitaköplum, lýsingu í skyggni o.fl.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borg-
artúni 7, Reykjavík gegn 10.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8.
desember 1987 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, sími 26844 ,f
Óskað er eftir tilboðum í smíði og afhendingu
húsgagna og skermveggja á 5. hæð í byggingu á
Landspítalalóð í Reykjavík.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn
skilatryggingu kr. 5.000.-.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
11. nóv. n.k. kl. 11.00 f. hádegi í viðurvist við-
staddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844
ALVÖRU
STURTUKLEFAR
Við höfum fengið nýja sendingu af ítölskum
sturtuklefum og hurðum í ýmsum stærðum og
gerðum. Hert öryggisghler í hvítlökkuðum ál-
ramma. f
PJ 1 Hringbraut 120 sími28600 Stórhöfða | sími 671100
IBYGOINGAVÖBUB) 1
VIIDARK/Öfí
V/SA
■rTwsssDcsBBrzaxaBET
Föstudagur 30. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9