Þjóðviljinn - 30.10.1987, Qupperneq 10
HEIMURINN
Mannshvörfin í Argentínu:
Kissinger gaf
herfbringjaklíkunni
grænt Ijós
Bandaríkjamenn notuðu ekki möguleika sína á að stöðva blóðbað
eftir valdatöku herforingjanna 1976
Aðeins þrem mánuðum eftir að
herforingjar höfðu rænt völd-
um í Argentínu árið 1976 gaf þá-
verandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Henry Kissing-
er, stjórn þeirra grænt Ijós á að
halda áfram kúgunarstefnu sinni,
sem m.a. leiddi til þess að 9000
manns hurfu og hefur ekki spurst
til þeirra síðan. Kissinger lagði
sína blessun yfir framferði her-
foringjastjórnarinnar þrátt fyrir
það að sendiherra Bandaríkj-
anna í Buenos Aires hefði beðið
um afskipti sinna stjórnvalda af
mannréttindamálum í landinu.
Petta kemur fram í ítarlegri
grein í anda rannsóknarblaða-
mennsku sem fyrir röskri viku var
birt í tveim blöðum í Argentínu.
Hundsaði aðvaranir
í greininni er það m.a. rakið,
að þegar tveim vikum eftir vald-
arán herforingjanna hafi banda-
ríska utanríkisráðuneytið látið
gera leynilega úttekt á ástandinu,
þar sem bent var á að mannrétt-
indamál „geta orðið vandamál
þegar herforingjastjórnin leggur
til atlögu við hermdarverka-
menn“ eins og það hét.
Nokkru síðar varaði þáverandi
sendiherra Bandaríkjanna í Bu-
enos Aires, Robert Hill, yfir-
mann sinn, Henry Kissinger, við
þeirri þróun sem átti sér stað í
landinu eftír valdaránið. Þá þeg-
ar voru um 1000 manns „horfn-
ir“. Engu að síður gaf Kissinger
argentínskum starfsbróður sín-
um, César Guzzetti aðmírál,
grænt Ijós á að kúgunarherferð-
inni yrði haldið áfram, þegar þeir
kumpánar hittust í júní 1976 á
amrískum utanríkisráðherra-
fundi í Chile.
Verið fljótir að þessu
Robert Hill telur, samkvæmt
leyniskýrslu sem blaðamenn hafa
krækt sér í, að Kissinger hefði
getað stöðvað blóðbaðið ef hann
hefði þá beitt sér. Og Guzzetti og
aðrir ráðandi hershöfðingjar í
Argentínu óttuðust það þá mjög
að Bandaríkjamenn færu að taka
þá til bæna í mannréttindamál-
um. Það reyndist óþarfur ótti.
Kissinger vakti sjálfur ekki máls á
þessum hlutum á fundinum með
Guzzetti, heldur minntist Arg-
entínumaðurinn á þá að fyrra
bragði. Kissinger gerði ekki ann-
að en ráðleggja Guzetti að
„vandamálið“ yrði leyst sem fyrst
og helst áður en nýtt þing kæmi
saman í Washington 1977.
Þá fyrst tók steininn úr
Innan tveggja vikna frá því að
þetta samtal átti sér stað hófust
fyrstu fjöldaaftökur á föngum í
Argentínu á því méli og var svo
látið heita að það væri í refsingar-
skyni fyrir aðgerðir vinstrisinn-
aðra borgarskærliða. Sjötíu
manns, þeirra á meðal tveir
prestar, voru teknir af lífi í hefnd-
arskyni fyrir sprengjuárás Mont-
oneros skæruliða á lögreglustöð.
Skömmu síðar voru þrjátíu
manns teknir af líf í hefndarskyni
við morð á hershöfðingja einum.
Á sjötta tug manna voru drepnir í
hefndarskyni fyrir árás á lög-
reglustöð í La Plata. Þrjátíu til
viðbótar voru myrtir eftir áhlaup
á hermálaráðuneytið. Og svo
mætti lengi telja. Álls bættust um
átta þúsundir manna við dauðali-
stann eftir samtalið í Chile - þeg-
ar fram í sótti voru morðin falin
með því að svokallaðar dauða-
sveitir rændu mönnum sem grun-
aðir voru um andstöðu við
herstjórana og myrtu á laun.
Sem fyrr segir taldi Robert Hill
sendiherra, að Kissinger bæri
þunga ábyrgð á að þetta var látið
viðgangast. Það er m.a.s. haft
eftir einum aðstoðarmanni sendi-
herrans, Wayne Smith, að Kis-
singer hafi sagt við César Guzz-
etti í Santiago: „Heyrðu mig, við
erum NEYDDIR til að gera
þessa hluti (þeas kvarta út á við
um mannréttindabrot) en þið
skulið ekki hafa áhyggjur af því.“
Fordæma Kissinger
Það fylgir þessari frétt að erfitt
hafi reynst að fá ráðamenn í Arg-
entínu til að segja álit sitt á þess-
um uppljóstrunum. En mann-
réttindasamtök í Argentínu hafa
fordæmt eindregið hlut Kissin-
gers í þessu máli. í símtali við
danska blaðið Information, sem
á dögunum birti skýrsluna alla,
segir Graciela Fernandez Meiji-
de frá APDH (Samtökum um
mannréttindi):
Henry Kissinger:
Þið skuluð ekki
taka það nærri
ykkurþóttvið
sóum neyddirtil
að fjasa um
mannréttindi á op-
inberum vett-
vangi...
„Við erum ekki vitund undr-
andi yfir þessari afhjúpun á hlut-
verki Kissingers. Við hljótum að
fordæma eindregið hlut Kissin-
gers í þessu máli, sem er rökrétt
afleiðing af sameiginlegum hags-
munum Bandaríkjanna og herf-
oringjastjórnarinnar að því er
varðar breytingar á stjórnarhátt-
um og efnahagskerfi landsins.
Herforingjarnir höfðu mjög náið
samstarf við Bandaríkin, eins og
m.a. kemur fram í nýlegri bók
Bobs Woodwards um William
Casey, yfirmann Ieynilögregl-
unnar CIA. Til dæmis gerði Galt-
ieri, forseti herforingjastjórnar-
innar, samning við Bandaríkin,
um að senda argentínska „ráð-
gjafa“ til Honduras til að þjálfa
menn í gagnbyltingarskæruhern-
aði.“
ÁB tók saman.
Mið-Ameríka
Friðarvonir dofria
Aðeins vika ernúþangað tilfriðaráœtlunfimm Mið-Ameríkuríkja
gengur úr gildi og enn hefur ekki verið samið um vopnahlé í
Guatemala, El Salvador og Nicaragua
u
tanríkisráðherrar Mið-Ame-
ríkuríkjanna fimm, Hondur-
as, Costa Rica, Nicaragua, Gu-
atemala og El Salvador, hverra
forsetar samþykktu friðaráætlun
fyrir lönd sín þann sjöunda ágúst
síðastliðinn, Íuku tveggja daga
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓE)S
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1983-2. fl. 01.11.87-01.05.88 kr. 263,98
1984-3. fl. 28.11.87-12.05.88 kr. 247,24
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, október 1987
SEÐLAB ANKIÍSLANDS
fundi sínum í höfuðborg Costa
Rica í fyrrakvöld. Viðræður
þeirra báru lítinn árangur og er
nú óvíst með öllu hvort friður
kemst á í löndunum þrem þar sem
borgarastyrjöld hefur geisað á
umliðnum árum.
Þegar ráðherrarnir slitu fund-
inum á miðvikudagskvöldið gáfu
þeir út sameiginlega yfirlýsingu
þar sem ítrekuð eru þau markmið
áætlunarinnar að vopnahléi verði
komið á í Nicaragua, E1 Salvador
og Guatemala fyrir fimmta nóv-
ember, lýðréttindi aukin í lönd-
unum fimm, uppreisnarmönnum
er leggja niður vopn gefnar upp
sakir og að ríkin láti af stuðningi
við skæruliða í nágrannaríkjum. f
yfirlýsingunni er kveðið á um að
ríkin fimm grípi til samskonar að-
gerða á sama tíma til að stuðla að
þessum markmiðum en ekki er
skýrt út hverjar þær aðgerðir
skuli vera.
í samræmi við ákvæði áætlun-
arinnar hafa ráðamenn í Nicarag-
ua aukið lýðræði í landi sínu þrátt
fyrir borgarastríðið en engar við-
ræður hafa farið fram milli þeirra
og foringja Kontraliðanna.
Ríkisstjórnin í Managua hefur
bent á að án gífurlegs fjárstuðn-
ings Bandaríkjastjórnar væru
uppreisnarmennirnir einskis
megnugir og því vilji hún ræða
beint og milliliðalaust við ráða-
menn í Washington.
Utanríkisráðherra Nicaragua,
Miguel D‘Escoto, ítrekaði þetta
viðhorf stjórnar sinnar á fundi
utanríkisráðherranna þrátt fyrir
áskoranir kollega sinna um að
hefja beinar viðræður við
Kontraliða.
Vinstrisinnaðir skæruliðar í
Guatemala og E1 Salvador hafa
hinsvegar átt orðaskipti við ríkis-
stjórnir þessara landa. en án ár-
angurs. Viðræðum uppreisnar-
manna og stjórnvalda í Guate-
mala um vopnahlé hefur þegar
verið slitið og búist er við því, að
viðræður skæruliða og ráða-
manna í E1 Salvador fari á sömu
lund.
Sem fyrr segir mega ríki er að-
ild eiga að friðaráætluninni ekki
styðja uppreisnarhreyfingar í
öðrum aðildarlöndum. Ráða-
menn í Honduras hafa fram að
þessu skellt skollaeyrum við þeim
tilmælum grannríkja sinna að
hætta beinum stuðningi við
Kontraliða er hafa bækistöðvar
sínar þar. Leiðtogar Honduras
eru mjög leiðitamir Bandaríkja-
stjórn en friðaráætlunin er þyrnir
í hennar augum sem kunnugt er
þar eð hún var ekki höfð með i
ráðum við gerð hennar.
Þrátt fyrir að friðarmálin virð-
ist komin í sjálfheldu í þessum
heimshluta eru menn ekki úrkula
vonar um árangur. Bjartsýnis-
menn benda til að mynda á að
Nicaraguastjórn hyggst setja ný
lög um uppgjöf saka Kontraliða
og ýmissra pólitískra fanga.
Utanríkisráðherra E1 Salvador
lét svo um mælt að enn gæti náðst
árangur í viðræðum við skæruliða
í landi sínu og bætti við: „Áætlun-
in er enn í gildi og margvíslegur
árangur hefur náðst, þrátt fyrir
allt. _ks.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. október 1987