Þjóðviljinn - 30.10.1987, Qupperneq 12
Annir og appelsínur
20.55 í SJÓNVARPINU
í kvöld hefst framhaldsskóla-
þátturinn Annir og appelsínur í
Sjónvarpinu. Eins og nafnið gef-
ur til kynna er um að ræða safa-
ríkar appelsínur sem nemendur í
framhaldsskólum landsins hyggj-
ast bera á borð fyrir sjónvarps-
áhorfendur, mitt í önnum vetrar-
ins.
í hverja appelsínu munu nem-
endur leggja það albesta sem
fyrirfinnst í félagslífi skólanna og
fórum nema. Ahorfendur mega
því eiga von á appelsínum af ýms-
um stærðum og gerðum inn á gólf
til sín í vetur; vítamínríkum,
bætandi og kætandi appelsínum.
Það verða nemendur í Fjöl-
brautaskólanum í Ármúla sem
hafa umsjón með þættinum í
kvöld, en umsjónarmaður er
Eiríkur Guðmundsson. Góða
skemmtun.
Domínó kenningin
00.50 Á STÖÐ 2
Seinni mynd kvöldsins á Stöð 2
heitir Domino kenningin (Dom-
ino Principle). Óskarsverðlauna-
hafinn Gene Hackman teikur hér
Roy Tucker, manninn sem kann
ekki að gefast upp. Hann á eftir
að afplána 15 ár af 20 ára fangelsi-
svist fyrir morð á kokkáluðum
eiginmanni. Hann grípur því tæk-
ifærið fegins hendi þegar honum
býðst að losna úr fangelsi með
eins konar greiða gegna greiða
fyrirkomulagi. Þegar út er komið
hefst hann handa við að koma
lagi á líf sitt að nýju. Leikstjóri er
Stanley Kramer. Aðrir leikendur
eru Candice Bergen, Richard
Widmark, Mickey Rooney.
6.45 Veöurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 ( morgunsárið meö Kristni Sig-
mundssyni. Fréttayfirlit kl. 7.30, fréttirkl.
8.00 og veðurfregnir kl. 8.15.
8.30 Fréttayfirlit. Lesið úr forystugreinum
dagblaðanna.
8.35 Morgunstund barnanna: „Llf“
eftir Else Kappel. Gunnvör Braga les
þýðingu sína (18). Barnalög. Tilkynn-
ingar.
9.00 Fréttir.
9.03 Dagmál. Umsjón Sigrún Björnsdótt-
ir.
9.30 Landpósturinn - Frá Norðurlandi.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Frá fyrri tíð. Umsjón Finnbogi Fler-
mannsson. (Frá (safirði).
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón Bergþóra
Jónsdóttir.
12.00 Fréttayfirlit. Tónlist. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttlr.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.35 Miðdegissagan: „Sóleyjarsaga"
eftir Elías Mar. Höfundur les (3).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Ljúflingslög. Svanhildur Jakobs-
dóttir kynnir. Tilkynningar.
15.00 Fréttir.
15.03 Á réttri hillu. örn Ingi ræðir við
Björn Sigmundsson tæknimann.
15.43 Þingfréttir. Tilkynningar.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Tilkynningar.
17.00 Fréttir.
17.03 Valsar, polkar og marsar. Johann
Strauss hljómsveitin og „Scottish
Nationar-hljómsveitin leika tónlist eftir
Josef, Johann og Eduard Strauss,
Sergei Prokofiev og Carl Millöcker. Til-
kynningar.
18.00 Fréttir.
18.03 Tekið til fóta. Umsjón Hallur Helga-
son, Kristján Franklín Magnús og
Þröstur Leó Gunnarsson.
18.18 Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar. Þingmál. Atli Rúnar
Halldórsson sér um þáttinn.
20.00 Lúðrablástur frá liðnum öldum. a.
„London Festival"-lúðrasveitin leikur
lög eftir Johann Pezel, Johann Sebasti-
an Bach o.fl.; Elgar Howorth og Alan
Civil stjórna. b. Konsert I D-dúr fyrir
trompet, tvö óbó, strengjasveit og fylgir-
ödd eftir Georg Philipp Telemann. Pi-
erre Thibaud leikur á trompet með
Ensku kammersveitinni; Marius Con-
stant stjórnar.
20.30 Kvöldvaka. Talmálsefni: a. „Þegar
Salómon snjókóngur fæddist á
Hnjúkshlaði". Sveinn Skorri Höskulds-
son les annan lestur frásöguþáttar eftir
Jón Helgason ritstjóra. b. „Dropinn
holar steininn". Baldur Pálmason fer
með vísur eftir Bjarna Jónsson frá Gröf.
c. Páll frændi. Sigríður Pétursdóttir les
þátt um skáldið Pál J. Árdal úr æsku-
minningum Kristínar Sigfúsdóttur. Tón-
listarefni: a. „Skagafjörður" eftir Sigurð
Helgason við Ijóð Matthíasar Jochums-
sonar. Karlakórinn Heimir syngur; Jirí
Hlavácek stjórnar. b. Þorsteinn Hann-
esson syngur lög eftir Bjarna Þorsteins-
son. c. Karlakór Reykjavikur syngur lög
eftir Bjarna Þorsteinsson. d. Skagfirska
söngsveitin syngur lög eftir Skagfirð-
inga. e. „Þótt þú langförull legðir" eftir
Sigvalda Kaldalóns við Ijóð Stephans
G. Stephanssonar. Karlakórinn Vlsir
syngur; Geirharður Valtýsson stjórnar.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Vfsnakvöld. Herdís Hallvarðsdóttir
kynnir visnatónlist.
23.00 Andvaka. Þáttur I umsjá Pálma
Matthíassonar. (Frá Akureyri).
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón Bergþóra
Jónsdóttir.
00.10 Næturvakt Útvarpsins. Gunn-
laugur Sigfússon stendur vaktina.
7.03 Morgunútvarpið. Dægurmála-
útvarp með fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30,
fréttum kl. 8.00 og 9.00 og veðurfregn-
um kl. 8.15.
10.05 Miðmorgunssyrpa. Föstudagur
með hljómsveitinni „Kinks“. Hlustendur
geta hringt I síma 687123 á meðan á
útsendingu stendur og látíð leika uppá-
haldslag sitt með „Kinks". Umsjón
Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
12.00 Á hádegi. Dægurmálaútvarp á há-
degi hefst með fréttayfirliti.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón Snorri Már
Skúlason.
16.05 Dagskrá. Dægurmálaútvarp.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Eftirlæti. Umsjón Valtýr Björn Val-
týsson.
22.07 Snúningur. Umsjón Rósa Guðný
Þórsdóttir.
00.10 Næturvakt Útvarpsins. Þorsteinn
G. Gunnarsson stendur vaktina til
morguns. Fréttir kl. 7.00, 7.30, 8.00,
8.30, 9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20,
14.00, 15.00, 16.00, 17.00, 18.00,
19.00, 22.00 og 24.00.
7.00 Stefán Jökulsson og morgun-
bylgjan. Tónlistog litiðyfirblöðin. Frétt-
ir kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00 Valdis Gunnarsdóttir á léttum
nótum. Morgunpopp, afmæliskveðjur
og kveðjur til brúðhjóna. Fréttirkl. 10.00
og 11.00.
12.00 Fréttir.
12.10 Páll Þorsteinsson á hádegi. Létt
hádegistónlist og sitthvað fleira. Fréttir
kl. 13.00.
14.00 Ásgeir Tómasson og föstudags-
poppið. Ásgeir hitar upp fyrir helgina.
Fréttir kl. 14.00, 15.00 og 16.00.
17.00 Hallgrímur Thorsteinsson í
Reykjavik síðdegis. Leikin tónlist, litiö
yfir fréttirnar og spjallað við fólk. Fréttir
kl. 17.00
18.00 Fréttlr.
19.00 Anna Björk Birgisdóttir. Bylgju-
kvöldið hafið með tónlist og spjalli við
hlustendur. Fréttir kl. 19.00
22.00 Haraldur Gíslason nátthrafn Bylgj-
unnar kemur okkar í helgarstuð með
góðri tónlist.
3.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Krist-
ján Jónsson leikur tónlist fyrir þá sem
fara seint i háttinn og hina sem snemma
fara á fætur.
7.00 Þorgeir Ástvaldsson. Morguntón-
ieikar, fréttir og fréttapistill frá Kristófer
Má i Belgíu. Fréttir kl. 8.00.
9.00 Gunnlaugur Helgason. Tónlist og
gamanmál. Fréttir kl. 10.00 og 12.00.
12.00 Hádegisútvarp. Rósa Guðbjarts-
dóttir.
13.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Tónlistar-
þáttur. Fréttir kl. 14.00 og 16.00.
16.00 Mannlegi þátturinn. Umsjón Jón
Axel Olafsson. Tónlist, spjall og fréttir.
Fréttir kl. 18.00.
18.00 Islenskir tónar. Innlend dægurlög.
19.00 Stjörnutíminn. Gullaldartónlist
ókynnt.
20.00 Árni Magnússon. Poppþáttur.
22.00 Kjartan „kDaddi" Guðbergsson.
Kveðjur og óskalög.
3.00 Stjörnuvaktin.
oooooooooo
oooooooooo
17.00 Kvennó.
19.00 Léttur þáttur í umsjón Bjössa. MH.
20.00 Þáttur í umsjón Orra Jónssonar.
MH.
21.00 MS.
23.00 FB.
01.00 Næturvakt.
17.55 Ritmálsfréttir.
18.00 Nilli Hólmgeirsson. 39. þáttur.
18.25 Antilópan snýr aftur. (Return of the
Antelope). 12. þáttur. Breskur gaman-
myndaflokkur fyrir börn og unglinga.
19.20 Fréttaágrip á táknmáli.
19.00 Matarlyst. Breski matreiðslumaður-
inn lan McAndrew matreiðir Ijúffenga
fiskrétti. Auk þess er spjallað við fólk
sem tengist fiskiðnaði á einn eða annan
hátt um fisk og fiskneyslu. Umsjón
Bryndis Jónsdóttir.
19.20 Ádöfinni.
19.25 Popptoppurinn. (Top of the Pops).
Vikulegur þáttur með efstu lögum bresk/
bandariska vinsældalistans, tekinn upp
viku fyrr i Los Angeles.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Þingsjá. Umsjón Helgi E. Helgason.
20.55 Annir og appelsínur. Vikulegur
þáttur í umsjá framhaldsskólanema. Að
þessu sinni sjá nemendur Ármúlaskóla
um að kynna fyrir áhorfendum það
besta sem fyrirfinnst í félagslífi skólans
og fórum nema. Stjórn upptöku Jón Egill
Bergþórsson og Gísli Snær Erlingsson.
21.20 Derrick. Þýskur sakamálaflokkur
með Derrick lögregluforingja sem Horst
Tappert leikur.
22.20 Ast og anarkismi. (Film d'Amore e
d'Anarchia). (tölsk bíómynd frá árinu
Ástog
anartdsmi
22.20 í SJÓNVARPINU
Að loknum þætti um Derrick
er á dagskrá ítölsk kvikmynd sem
nefnist Ást og anarkismi eða Film
d’Amore e d’Anarchia á frum-
málinu. Myndin var gerð árið
1973 og gerist á stjórnarárum
Mussolinis. Stjórnleysingi er
skotinn til bana af lögreglunni og
jungur sonur hans ákveður að
berjast undir sama merki og ráða
Mussolini af dögum. Leikstjóri er
Lina Wertmuller og aðalleikarar
Giancarlo Gianini og Mariaang-
ela Metato.
Svindl
22.40 Á STÖÐ 2
Ástarþríhyrningurinn er við-
fangsefni fyrri bíómyndarinnar á
Stöð 2 í kvöld. Myndin nefnist
Svindl (Jinxed) og fjallar um
Willie sem er starfsmaður í spila-
víti og fjárhættuspilarann Har-
old. Hann er atvinnumaður og er
alltaf að vinna háar fjárupphæðir
við þau borð þar sem Willie gef-
ur. Það gerir Willie tortryggi-
legan í augum vinnuveitenda
sinna. Hann tekur þá saman við
Bonitu, áskonu fjárhættuspilar-
ans, sem finnst hann fara illa með
sig. Þau skötuhjú leggja því á
ráðin um að losa sig við pláguna
Harold. Leikstjóri er Don Siegel
og aðalleikarar eru Bette Midler,
Ken Wahl og Rip Torn. Kvik-
myndahandbók Maltins gefur
myndinni tvær stjörnur.
1973. Leikstjóri Lina Wertmuller. Aðal-
hlutverk Giancarlo Gianini og Mariang-
ela Metato. Myndin gerist á stjórnarár-
um Mussolinis. Stjórnleysingi er skotinn
til bana af lögreglunni en ungur sonur
hans ákveður að berjast undir sama
merki og ráða Mussolini af dögum.
00.20 Útvarpsfréttir i dagskrárlok.
16.45 # Konan sem hvarf. The Lady
Vanishes. Árið 1939 heldur lest af stað
frá brautarstöð i Bæjarlandi, meðal far-
þega eru Ijósmyndari frá tímaritinu Life,
marggift bandarísk fegurðardis og ensk
barnfóstra. Meðan lestin brunar sína
leið, hverfur barnfóstran á óskiljanlegan
hátt. Aðalhlutverk Elliott Gould, Cybill
Shepherd og Angela Lansbury.
18.15 # Hvunndagshetja. Patchwork
Hero. Ástralskur myndaflokkur fyrir
börn og unglinga.
18.45 # Lucy Ball. Lucyog Carol Burnett.
Lucy reynir að telja Carol Burnett á að
koma fram í skólaleikriti sem sett er á
svið til söfnunar fyrir nýjum leikfimisal.
19.19 19:19.
20.30 Sagan af Harvey Moon. Shine On
Harvey Moon. Konunglegt brúðkaup
stendur fyrir dyrum og lífgar upp á grá-
leitan hversdagsleikann. Moon fjöl-
skyldan tekur þátt i spennunni sem fylgir
undirbúningnum, nema Stanley Moon
sem hefur um annað að hugsa.
21.25 # Spilaborg. Getraunaleikur í létt-
um dúr.
21.55 # Hasarleikur. Moonlighting. Fyrir
mistök fær Maddie upplýsingar um yfir-
vofandi morötilræði við sovéskan
hnefaleikakappa, en örðugt reynist að
koma aðvörunum til hans þar sem hann
skilur ekki stakt orð i ensku og heldur
David vera andstæðing sinn í hringnum.
22.40 # Svindl. Jinxed. Aðalhlutverk
Bette Midler, Ken Wahl og Rip Torn.
00.25 # Max Headroom. Viðtals- og tón-
listarþáttur í umsjón sjónvarpsmanns-
ins vinsæla, Max Headroom.
00.50 # Domino kenningin. Domino
principle. Spennumynd um mann sem
dæmdur er til tuttugu ára langrar fang-
elsisvistar fyrir morð. Honum býðst að
losna við afplánun dómsins með erfið-
um skilyrðum. Aðalhlutverk Gene Hack-
man og Candice Bergen. Leikstjóri
Stanley Kramer. Bönnuð börnum.
02.25 Dagskrárlok.
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. október 1987