Þjóðviljinn - 30.10.1987, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
Evrópukeppni
Þurfum stóra sigra
Segja forráðamenn Víkings ogStjörnunnar
sem leika í Evrópukeppninni um helgina
Stjarnan og Víkingur leika í 2.
umferð í Evrópukeppni í hand-
knattleik um helgina. Stjarnan
mætir norska liðinu Urædd, en
Víkingar leika gegn dönsku
meisturunum Kolding.
Róðurinn verður án efa mjög
þungur hjá íslensku liðunum.
Urædd og Kolding eru meðal
bestu liða á Norðurlöndum og til
að eiga möguleika á að komast í
3. umferð þurfa Víkingur og
Stjarnan að vinna með 4-6 marka
mun. Halur Hallsson formaður
Víkings segir að Víkingar þurfi
helst að vinna með átta marka
mun, en Gunnar Einarsson þjálf-
ari Stjörnunnar hefur trú á að
fimm marka sigur nægi Stjörn-
unni.
Stjarnan leikur gegn Urædd á
laugardag ki. 17 í íþróttahúsinu í
Digranesi.
Umrædd er norskur bikar-
meistari. Liðið er nú í efsta sæti í
1. deild í Noregi og hefur leikið
vel í vetur.
Sterkustu menn liðsins eru
landsliðsmennirnir Bent Svele og
Roger Kjendalen, báðir miklar
skyttur. Þá er línumaðurinn Kjet-
il Larsen mjög sterkur og einnig í
landsliðinu.
Urædd lék gegn Val í fyrra og
sigraði þá í báðum leikjunum.
Liðið er mjög sterkt á heimavelli
og hefur ekki tapað leik í ljóna-
gryfju sinni í tæp tvö ár.
Þrátt fyrir að Stjörnunni hafi
ekki gengið sérlega vel að undan-
förnu, ættu Garðbæingarnir að
eiga þokkalega möguleika, enda
með ungt og skemmtilegt lið.
Andstæðingum Víkinga, Kold-
ing, hefur ekki gengið vel.
Meiðsli hafa hrjáð liðið og það er
nú í neðri hluta 1. deildar.
Liðið er þó mjög sterkt. Helstu
stjörnur þeirra eru stórskytturnar
Kim Jacobsen og Hans Munk
Andersen. í markinu stendur
danski landsliðsmarkvörðurinn
Karsten Holm. Líkt og Urædd er
Kolding mjög sterkt á heimavelli
og Víkingar þurfa því að sigra í
fyrri leiknum með töluverðum
mun.
Víkingar ættu að eiga góða
möguleika. Þetta er 10. árið í röð
sem Víkingar leika í Evrópu-
keppni og þrátt fyrir að liðið sé
ungt hafa leikmenn þess mjög
mikla reynslu.
Víkingar mæta Kolding í
Laugardalshöll á sunnudaginn kl.
20.30.
Ástæða er til að hvetja íslenska
handknattleiksunnendur til að
mæta á þesa leiki og hvetja ís-
lensku liðin. Leikirnir verða án
efa mjög skemmtilegir.
-Ibe
Sigurður Gunnarsson skorar eitt af fjórum mörkum sínum í leiknum. Björn Jónsson og Magnús Magnússon til varnar.
Mynd: E.ÓI.
Handbolti
Blikar skelltu Víkingum
0g þetta
líka.............
Nokkrir leikir
voru í undankeppni Olympíuleikanna
í miðvikudag. Danir sigruðu Pólverja
2-0 og það var Kim Vilford sem
skoraði bæði mörk Dana. Danir hafa
nú fjögurra stiga forskot í riðlinum, en
V-Þjóðverjar eru í 2. sæti.
Sovétríkin
fögnuðu tvöföldum sigri á miðviku-
dag. A-landsliðið sigraði ísland og 01-
ympíulandsliðið sigraði Sviss, 4-2.
Sovétmenn þurfa aðeins tvö stig úr
þremur leikjum til að tryggja sér sæti
á Olympíuleikunum. Þá var einn
leikur til viðbótar í undankeppninni.
Belgía sigraði Finnland, 1-0.
Daníel Guðmundsson
sigraði í Öskjuhlíðahlaupi ÍR sem
fram fór um síðustu helgi. Ágúst Þor-
steinsson hafnaði í 2. sæti. Steinunn
Jónsdóttir sigraði í kvennaflokki,
Höskuldur Eyfjörð sigraði í flokki
karla 35 ára og eldri. Björn Traustas-
on sigraði í flokki sveina og Þórunn
Unnarsdóttir í flokki meyja. í flokki
stráka 12 ára og yngri sigraði Aron T.
Haraldsson og í flokki stúlkna 12 ára
og yngri Margrét Guðjónsdóttir.
Barcelona
tapaði enn einum leiknum í fyrra-
kvöld. Nú gegn Atletico Madrid. Liðin
léku þó aðeins í 20 mínútur, en
leiknum hafði verið hætt vegna rign-
ingar fyrir nokkrum vikum þegar enn
voru tæpar 20 mínútur eftir. Þá var
staðan 1-1, en það var svo Marco
Alonso sem skoraði sigurmark Atlet-
ico, þegar 11 mínútur voru liðnar af
þessum síðari hluta. Þess má geta að
nú láta áhangendur Barcelona öllum
illum látum og vilja að forseti félags-
ins Jose Luis Munez segi af sér.
íþróttir
íkvöld
í kvöld er einn leikur í
l.deildinni í handknattleik. Fram
og Þór mætast í Laugardalshöll
og hefst leikurinn kl. 20.
Tveir leikir eru í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. Njarð-
vík og Breiðablik leika í Njarðvík
og hefst leikur þeirra kl. 20.
Grindvíkingar taka á móti Þórs-
urum í íþróttahúsinu í Grindavík
og hefst leikur þeirra kl. 20.30.
England
Stórliðin sluppu
Everton dróstgegn Leeds eða Oldham.
Manchester United gegn Bury
Sigruðu í hörkuleik.
Annað tap Víkinga
Stórliðin í 1. deildinni í Eng-
landi, Everton, Arsenal og Manc-
hester United sluppu vel þegar
dregið var í 16-liða úrslit í
deildarbikarnum á Englandi. Það
er aðeins í einum leik sem tvö lið
úr 1. deild leika saman.
Everton, sem sló Liverpool út
á miðvikudag, dróst gegn Leeds
eða Oldham, en fyrri leik þessara
liða lauk með jafntefli, 2-2.
Bury, sem leikur í 3. deild fær
Mandíester United í heimsókn
og Arsenal tekur á móti Stoke.
Aston Villa, sem sló Totten-
ham út í 3. umferð tekur á móti
Sheffield Wednesday.
Það er aðeins í einum leik þar-
sem hugsanlegt er að tvö lið úr 1.
deild mætist. Liðið sem sigrar í
leik Oxford og Leicester tekur á
móti Wimbledon.
Deildarbikarinn 4. umferð:
Manch.City-SwindonA/Vatford..........
Ipswich-Luton........................
Peterbro/Reading-Bradford............
Everton-Leeds/Oldham.................
Arsenal-Stoke........................
Bury-Manchester United...............
Aston Villa-Sheffield Wednesday......
Oxford/Leicester-Wimbledon...........
-Ibe/Reuter
Blikarnir eru komnir í form eftir
nyög slæma byrjun og áttu sinn
besta leik í gær er þeir sigruðu Vík-
inga, 26-21. Langbesti leikur Blik-
anna, en Víkingar iangt frá því að
vera sannfærandi.
Leikurinn var fjörugur,
skemmtilegur og mjög spennandi.
' Víkingar byrjuðu vel og leiddu með
1-2 mörkum. Blikarnir náðu að
jafna og rétt fyrir leiikhlé náðu þeir
forystunni.
Fyrri hálfleikur var mjög hraður
og liðin skoruðu að meðaltali mark
á mínútu. Lítið fór fyrir varnarleik
og markvörslu.
Síðari hálfleikurinn var algjör
andstæða. Varnir liðanna styrktust'
mjög og mörkunum fækkaði. Árni
Evrópukeppni
Hollendingar úr leik?
Málþeirraferfyrir aganefnd UEFA.
Gœti verið vísað úr keppni
Hollendingar tryggðu sér sigur í
5. riðli Evrópukeppninnar með
sigri yfir Kýpur, 8-0 á miðvikudag.
Með sigri í sínum riðli vinnur þjóð
sér inn sæti í lokakeppni Evrópu-
keppninnar. Það bendir þó margt
til þess að sæti Hollendinga sé ekki
öruggt.
Ahorfandi á leiknum kastaði
reyksprengju inn á völlinn og hún
sprakk rétt fyrir framan markvörð
Kýpur. Hann fékk vægt taugaáfall,
auk þess að slasast á auga. Þegar
hann var borinn af leikvelli fylgdu
aðrir leikmenn Kýpur á eftir og
neituðu að halda áfram. Forráða-
mönnum UEFA tókst þó að fá þá
til að klára leikinn.
Þetta mál verður tekið fyrir á
fundi aganefndar eftir tvær vikur og
dómurinn verður án efa þungur.
Svo gæti farið að Hollendingar
yrðu dæmdir úr leik eða a.m.k.
þeim dæmdur leikurinn tapaður.
Þá þurfa þeir að sigra Grikkland í
síðasta leik á útivelli, til aðkomast í
lokakeppnina.
Fyrir tveimur árum átti sér stað
svipað atvik hjá U-21 árs landslið-
inu. Það hafði tryggt sér sæti í úrsl-
itakeppninni, en var dæmt úr leik.
Ruud Gullit, fyrirliði hollenska
liðsins sagði:„Það væri slæmt ef að
eitt fífl kæmi í veg fyrir að við kæm-
umst í úrslit eftir svo mörg slæm
ár“ -lbe/Reuter
Digranes 29. október
UBK-Víkingur 26-21 (16-
14)
1-2, 4-4, 4-7, 5-9, 11-10, 12-13, 16-
13,17-16, 20-17, 20-19,23-21,26-21.
Mörk UBK: Hans Guðmundsson
10(3v), Olafur Björnsson 4, Björn
Jónsson 4, Kristján Halldórsson 3, Að-
alsteinn Jónsson 2, Þórður Davíðsson
2 og Jón Þórir Jónsson 1.
Mörk Víkings: Hilmar Sigurgísla-
son 5, Guðmundur Guðmundsson 4,
Sigurður Gunnarsson 4(2v), Karl Þrá-
insson 3, Árni Friðleifsson 2, Bjarki
Sigurðsson 2 og Siggeir Magnússon
Dómarar: Björn Jóhannesson og
Sigurður Baldursson - mjög slakir.
Maður leiksins: Guðmundur
Hrafnkelsson, UBK.
Indriðason kom í vörn Víkinga og
batt hana vel saman. Blikarnir lok-
uðu stærstu glufunum í vörninni og
Guðmundur Hrafnkelsson varði
mjög vel.
Blikarnir leiddu með 2-3 mörk-
um, en Víkingum tókst að minnka
muninn í eitt mark, 20-21. Þá leit
allt út fyrir að Blikarnir myndu
missa forskotið niður. En það var
greinilegt að þeir hafa lært af
reynslunni og léku mjög vel síðustu
mínúturnar. Það hjálpaði þeim
reyndar mikið að Víkingarnir voru
sjaldan með fullskipað lið og létu
mótlætið fara í taugarnar á sér.
Þetta var tvímælalaust það besta
sem sést hefur hjá Blikunum í vet-
ur. Liðið var jafnt og lék mjög vel.
Hans Guðmundsson átti mjög góð-
an leik í fyrri hálfleik, skoraði 8 af
fyrstu 14 mörkum liðsins og Guð-
mundur Hrafnkelsson varði mjög
vel, einkum þó í síðari hálfleik.
Víkingar léku á köflum þokka-
lega, en voru þó langt frá sínu
besta. Vörnin var slæm í fyrri hálf-
leik, en skánaði í þeim síðari. Krist-
ján varði vel og Hilmar Sigurgísla-
son og Karl Þráinsson léku ágæt-
lega.
Víkingar voru utan vallar 20 mín-
útur, en Breiðablik aðeins 8 nu'nút-
ur.
Með þessum sigri halda Blikar í'
vonina um að blanda sér í toppbar-
áttuna og með leik sem þessum eiga
þeir erindi þar.
-Ibe
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 15
Knattspyrna
Gautaborg vill Bjama
Evrópumeistarar félagsliða á eftir Bjarna Sigurðssyni
Evrópumeistarar félagsliða,
IFK Gautaborg, vilja fá Bjarna
Sigurðsson til liðs við sig. For-
ráðamenn félagsins hafa haft
samband við Brann og fylgst með
síðustu leikjum Bjarna með
landsliðinu og Brann.
Gautaborg sigraði Dundee
United í úrslitaleikjum UEFA-
bikarsins í fyrra og er eitt sterk-
asta lið Svíþjóðar. Markvörður
þeirra Verneson er að hætta og
forráðmenn félagsins vilja fá
Bjarna í hans stað.
„Þeir eru nú ekki enn farnir að
elta mig, en ég veit þeir hafa talað
við Brann,“ sagði Bjarni Sigurðs-
son í samtali við Þjóðviljann í
gær. „Það er þó ekkert ákveðið
enn og ekki víst að úr þessu verði.
Þetta skýrist líklega í næstu viku.
Þá leikum við vináttuleik gegn
Gautaborg.
Það væri að sjálfsögðu mikill
heiður að leika með Evrópu-
meisturum og þetta er mjög
spennandi. Það er þó ekki víst að
ég vilji fara frá Brann. Ég kann
vel við mig hér og við erum lík-
lega með fleiri áhorfendur en
nokkurt annað lið í Skandinavíu.
Það væri því alls ekki víst að ég
færi, þó þeir byðu mér að koma.“
Bjarni er eini leikmaður Brann
sem ekki hefur gert samning fyrir
næsta keppnistímabil, en for-
ráðamenn liðsins vilja halda í
hann, enda einn besti leikmaður
liðsins í sumar. _ibe