Þjóðviljinn - 04.11.1987, Síða 1
Miðvikudagur 4. nóbember 1987 246. tölublað 52. órgangur
VMSÍ
Blásið á síðustu þjóðarsátt
Þröstur Ólafsson, Dagsbrún: Engar uppáskriftir íanda
desembersamkomulagsins. Jón Kjartansson, formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja: Blœs á slíka þjóðarsátt
Það verða engir samningar
gerðir, sem verða með svip-
uðum uppáskriftum og í febrúar
eða desembersamningarnir,
sagði Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar í gær,
er hann var inntur eftir því hvort
til greina kæmi að verkalýðs-
hreyfingin semdi aftur í anda síð-
ustu þjóðarsáttar.
- Hins vegar getum við þurft
að ræða við ríkisvaldið um mjög
mikilvæg mál. eins og málefni
fiskvinnslunnar. Ef það á að vera
unnt að hækka laun fiskvinnslu-
fólks umtalsvert þarf að koma til
fleira en kauphækkun. Það er
ljóst að afkoma margra fisk-
vinnsluhúsa er þess eðlis að þau
geta ekki tekið slíkar launahækk-
anir á sig, sagði Þröstur.
- Mér finnst að verkalýðs-
hreyfingin hafi verið alltof bláeyg
þegar hún flanaði út í þjóðarsátt-
ina. Ákveðinn hópur í þjóðfé-
laginu hefur verið bundinn af
henni, en allir aðrir hafa talið sig
óbundna. Ég blæs á slíka þjóðar-
sátt, sagði Jón Kjartansson, for-
maður Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja.
Háhyrningar
í Sædýrasafninu
Geymdir í Hafnarfirði þar til þeirfara til
kaupenda íAmeríku
Um kl. hálffimm í gærdag
komu til Hafnarfjarðar tveir
flutningabQar með háhyrningana
fjóra sem félagið Fauna lét veiða
fyrir austan land og geymdir hafa
verið um hríð á Seyðisfirði. Þeir
voru settir í geymslu í Sædýra-
safninu.
Tveir fulltrúar frá hvalavinafé-
laginu óskuðu eftir að fá að sjá
dýrin en það var ekki samþykkt.
Ekki er vitað hvenær dýrin
verða flutt af landi brott en talið
er fullvíst að búið sé að ganga frá
sölu á tveimur háhyrninganna.
Herinn
Reglur þverbrotnar
Þrír hermenn handteknir um helgina. Voru að
leita að gleðskap. Lögreglan í Keflavík:
Auknarferðirhermanna utan vallar.
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli:
Reglum fylgt eftir bestu getu
Aðfaranótt síðastliðins sunnu-
dags voru þrír bandarískir
hermenn handteknir á götu í
Keflavík þar sem þeir voru að
leita að gleðskap, en þeir höfðu
brotið útivistarákvæði sem eru í
gildi hjá bandaríska herliðinu á
Kefiavíkurflugvelli. Þegar þeir
urðu lögreglunnar varir reyndu
Kasparov
Jafnaði
með látum
Áttunda skákin í heimsmeistara-
einvíginu hafði illan endi fyrir
áskorandann, Anatolí Karpov.
Heimsmeistarinn, Garrí Kaspar-
ov, þurfti ekki nema átta leiki til
að rúlla andstæðingnum upp er
tekið var til við biðstöðuna.
Þar með hefur Kasparov jafn-
að metin. Hvor keppenda hefur
fjóra vinninga. Reyndar getur
staðan í einvíginu aldrei orðið
jöfn, en sú þverstæða helgast af
þeirri reglu að heimsmeistarinn
heldur titli sínum ef einvíginu
lýkur með jafntefli.
SJá skákskýrihgar Helga
ólafssonar, bls. 11
þeir að hlaupa á brott, en það
mistókst og voru þeir gómaðir.
Bandaríska herlögreglan flutti þá
síðan í járnum til heimkynna
þeirra innan girðingar.
Að sögn lögreglunnar í Kefla-
vík hefur orðið var við aukningu
á ferðum bandarískra hermanna
utan vallar, þrátt fyrir ströng
ákvæði um útivist. Þar segir að
hermönnum sé óheimilt að vera
utan girðingar eftir klukkan
23.30.
Þrátt fyrir boð og bönn að
þessu leyti virðist ekkert lát vera
á ferðum hermanna utan vallar.
Finnst mörgum manninum á
Suðurnesjum heldur lítið hald-
reipi í útivistarreglunum sem
Kaninn virðist geta brotið að geð-
þótta og er skemmst að minnast
nauðgunarmáls sem upp kom í
Keflavík ádögunum, en þar áttu í
hlut tveir hermenn sem sam-
kvæmt reglunum áttu ekki að
vera utan vallar.
Að sögn Þorgeirs Þorsteins-
sonar lögreglustjóra á Keflavík-
urflugvelli er engum manni
hleypt út af vellinum eftir kl.
23.30, nema hann sé að fara á
milli vinnustaða, en að öðru leyti
sé reglunum fylgt eftir bestu getu.
-grh
- Menn hlaupa ekki upp um
hálsinn á þjófnum þó hann skili
hluta af ránsfengnum, sagði Jón,
er hann var inntur eftir hvort
frestun söluskatts á matvæli
greiddi götu fyrir samningum í
anda desembersamkomulagsins.
Þröstur Ólafsson sagði að ljóst
væri að þessi frestun greiddi götu
samningaviðræðna. - Það er
auðveldara að koma í veg fyrir
þennan skatt, heldur en þegar
hann er kominn á, sagði Þröstur.
- Ef það á að semja við ríkis-
valdið, þá hlýtur fyrst og fremst
að þurfa að afnema skatta af
nauðþurftum. Það er hrein sví-
virða að vera að skattleggja það
sem menn þurfa til þess að draga
fram lífið, sagði Jón.
Jón nefndi einnig að sér þætti
vel koma til álita að verkalýðs-
hreyfingin krefðist skattfríðinda
af einhverju tagi, s.s. með hækk-
un skattleysismarka.
- Ég held ég láti það alveg
liggja milli hluta hvort við ræðum
líka við þá um skattamálin, sagði
Þröstur.
-rk
Dounreay
Samþykkja ekki mótmæli
Sjálfstœðisflokkurinn sammála efniþingsályktunartillögu um að
ríkisstjórnin mótmæli kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Dounreay en
styður þó ekki tillöguna
Þvflík býsn og kynstur af úrgangi skilur meðaljóninn eftir sig á ári hverju - heil 380 kíló. Landvernd hefur komið fyrir
sýnishorni af dæmigerðum sorphaug eins einstaklings á ári í útstillingarglugga í Domus á Laugavegi, sem væntan-
lega vekur einhvern til umhugsunar um þau vandamál sem fylgja einnota umbúðum og öðrum úrgangi. Samtökin
vilja með þessum hætti minna á ráðstefnu á vegum Landverndar um úrgang og endurvinnslu úrgangs, sem haldin
verður að Flúðum á sunnudaginn kemur. Mynd Sig.
Við erum sammála efni tillög-
unnar, sagði Ragnhildur
Helgadóttir um afstöðu Sjálf-
stæðisflokksins til þingsályktun-
artillögu um að ríkisstjórnin mót-
mæli kjarnorkuendurvinnslust-
öðinni í Dounreay í Skotlandi,
sem flutt er af þingmönnum allra
flokka nema Sjálfstæðisflokksins.
Eftir langt mál kom fram hjá
Ragnhildi, að þó Sjálfstæðis-
flokkurinn væri sammála efni til-
lögunnar væri hann ekki sam-
mála tillögunni sem slíkri, þar
sem ríkisstjórnin væri þegar að
vinna að þessu rnáli á ýmsum víg-
stöðvum.
Ragnhildur sagði að í janúar
nk. færi iðnaðarráðherrra í opin-
bera heimsókn til Bretlands og
myndi þá hitta iðnaðarráðherra
Bretlands og Skotlandsmála-
ráðherrann og á þeim fundi væri
fyrirhugað að mótmæla endur-
vinnslustöðinni.
Það var Hjörleifur Guttorms-
• son sem mælti fyrir tillögunni.
Hann benti Ragnhildi á að hún
ruglaði saman framkvæmdavaldi
og löggjafarvaldi. Sagði hann að
það væri mun sterkara fyrir Frið-
rik Sophusson iðnaðarráðherra
að hafa eindreginn stuðning Al-
þingis í farteskinu þegar hann
hittir iðnaðarráðherra Bretlands.
Hjörleifur benti einnig á að auk
Breta stæðu fjórar aðrar þjóðir
Efnahagsbandalagsins að endur-
vinnslustöðinni og því bæri
kannski að stfla mótmælin á höf-
uðstöðvar þess.
-Sáf
<i