Þjóðviljinn - 04.11.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 04.11.1987, Blaðsíða 2
FRETTIP Bremerhaven ■SPURNINGIIT-1 Kvartað yfir vigtinni Ari Halldórsson íBremerhaven: Kerfið óskaplega tregt til breytinga. Sveinn Hjartarson hjá LIU: Stöðugt umrœðuefni meðal útvegsmanna Finnst þér að eigi að heimila hermönnum á Keflavíkurflugvelli að búa utan vallar? Ægir Jónsson sjómaður: Nei, það er af og frá. Þeir eru búnir að eigna sér svæði á Vellin- um og þar eiga þeir afdráttarlaust að vera á meðan þeir eru á landinu. að hefur verið taiað við stjórn Fiskmarkaðarins í Bremerha- ven um að setja upp tvöfaldar tölvuvogir til að vigta fiskinn sem á markaðinn kemur í stað þeirra tveggja gömlu lóðavoga sem nú eru og menn hafa kvartað yfir að sýni ekki rétta vigt. Enn sem kom- ið er hefur ekkert gerst í málinu en kerfið hér er því miður óskap- lega tregt, sagði Ari Halldórsson, starfsmaður Lubbert í Bremer- haven, í samtali við Þjóðviljann. Síðustu daga hafa borist fregn- ir til landsins um megna óánægju íslenskra skipstjórnarmanna sem selt hafa í Bremerhaven yfir því að vigtin á markaðnum sýni ekki rétta vigt. Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa vigtina er Ásgeir Guðbjartsson, skipstjóri á Guð- björgu ÍS 46, en togarinn seldi í vikunni 228 tonn, mest karfa, fyrir 11.1 milljón króna, þar sem meðalverðið var tæpar 49 krónur fyrir kílóið. í fjölmiðlum hefur verið haft eftir Ásgeiri að munað hefði allt að 20 tonnum úr skipinu miðað við það sem hann hefði haldið vera í því, en jafn reyndur skip- stjóri og hann ætti að vita hvað skip hans hefur af fiski um borð. Ennfremur hafa skipstjórnar- menn gagnrýnt hækkanir sem orðið hafa í kostnaði við löndun- ina og skiptir þar engu hvort fisk- urinn er í körum í lestinni og þurfi þessvegna helmingi færri við löndunina, eða þegar landað er lausum fiski. Hefur kostnaðar- hækkunin numið allt að 10%. Telja menn að ekki borgi sig lengur að sigla út til Þýskalands nema meðalverðið sé um 50 krónur eða hærra. Að sögn Sveins Hjartarsonar, hjá Landssambandi íslenskra út- vegsmanna eru þessi vandamál með vigt og háan löndunarkostn- að stöðugt umræðuefni útvegs- manna sem vert er að halda vak- andi, sagði Sveinn. grh Halldór Björnsson pylsusali: Nei. Þeir geta bara verið þarna upp frá og hvergi annars staðar, þó helst heima hjá sér. Neskaupstaður Björgunar- sveitin þjálfar sjómenn Gerpir, björgunarsveit SVFI í Neskaupstað, hefur að und- anförnu efnt til björgunaræfinga með áhöfnum togara og loðnu- báta í Neskaupstað. Ein slík æfing var haldin með áhöfn Magnúsar NK fyrir skömmu og fóru björg- unarsveitarmenn fyrst yfir eld- varnamálin með sjómönnunum og æfðu þá m.a. í því að slökkva olíueld. Þá æfðu menn sig í því að yfirgefa skipi og komast í gúmmí- bát og í þeirri æfingu var m.a. ítrekað réttur við gúmmíbátur sem hvolft hafði verið. Við æfingarnar klæðast sjó- mennirnir flotbjörgunarbúning- um en þeir björgunarsveitar- menn hafa m.a. tekið að sér sölu- umboð fyrir eina gerð slíkra bún- inga og ætla sér að útbreiða þá meðal norðfirskra sjómanna og þar hafa þeir sérstaklega trillu- karlana í huga en smábátaútgerð í Neskaupstað er líklega ein sú mesta á landinu, enda er aðstaða fyrir smábáta óvíða betri. Fernando Sabido símamaöur: Já, ef þeir vilja. Annað hvort rekum við þá heim eða heimilum þeim að búa þar sem þeir vilja. Björn Bjarnason atvinnulaus: Nei, af og frá. Þeir eiga að halda sig innan girðingar, þar sem þeir eiga heima. Kristján Finnsson trésmiður: Nei, innan vallar að sjálfsögðu. Þeir hafa ekkert út af honum að gera. Heima er best. Vesturland Kosið um lífdaga Alþýðusambands Allsherjaratkvœðagreiðsla um framtíð ASV Viltu að Alþýðusamband Vest- urlands starfi áfram? Þessari spurningu svara félagar sam- bandsins í allsherjaratkvæða- greiðslu, dagana 19. til 20. þessa mánaðar. Allsherjaratkvæðagreiðsla um framtíð Álþýðusambands Vest- urlands er í samræmi við meiri- hlutasamþykkt síðasta þings sam- bandsins, sem haldið var fyrr á þessu ári, en þar kom fram meiri- hlutavilji fyri því að sambandið skyldi aflagt. Úrslit allsherjaratkvæða- greiðslunnar verða kynnt á auka- þingi Alþýðusambandsins, sem haldið verður í Borgarnesi síðar í mánuðinum og mun þingið taka endanlega ákvörðun um framtíð sambandsins. Alþýðusamband Vesturlands var stofnað 1977 og eru aðildarfé- lög þess 12 að tölu. Formaður Kvennalistinn heldur landsfund í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi um þarnæstu helgi. Helstu viðfangsefni fundarins verða staða Kvennalistans, „Hvernig getum við markað okk- ur enn meiri sérstöðu innan þings sambandsins er Jón Agnar Egg- ertsson. og utan?“ og viðhorf kvenna til þróunar atvinnu- og byggðamála. Fundurinn verður settur föstu- dagskvöldið 13. nóvember en þá mun Anna Guðrún Jónasdóttir lektor í stjórnmálafræðum í Sví- þjóð flytja erindi um konur og vald. -rk Kvennalistinn Landsfundur í Gerðubergi Búseti Meint vilyrði Reynir Ingibjartsson, fram- kvæmdastjóri Búseta hefur beðið um að eftirfarandi athuga- semd verði komið á framfæri: Vegna fréttar í Þjóðviljanum laugardaginn 31. október sl. þar sem m.a. var vitnað til meints vil- yrðis félagsmálaráðherra fyrir rýmkun lánsréttar til Búseta, skal tekið fram að hér var átt við vænt- anleg lög um kaupleiguíbúðir sem Búseti gæti fallið undir sam- anber bréf frá Félagsmálaráðu- neytinu 29. júlí sl. til Búseta. Það er svo rétt að árétta það, að meðan beðið er eftir lögum um búseturétt, hefur Búseti ein- dregið mælst til þess að félagið þurfi ekki að lúta öðrum skilmál- um en t.d. þeim sem gilda um verkamannabústaði. Ekkert sérstakt, ég er bara blaðamaður. Blaðamaður! Er það? Mig hefur alltaf langað til að spyrja Af hverju þarf maður alltaf að verða skítugur á höndunum við að lesa 2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 4. nóvember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.