Þjóðviljinn - 04.11.1987, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 04.11.1987, Blaðsíða 10
ERLENDAR FRETTIR Reagan og Gorbatsjof á tröppum Höfða. „Reykjavíkurfundurinn skóp nýja stjórnmálahugsun." Sovétríkin ,Perestrojkan ber málstað byltingarinnar^ Við stiklum á stóru ísíðari hluta rœðunnar er Míkael Gorbatsjofflutti í tilefni sjötíu ára afmœlis októberbyltingarinnar Gorbatsjof gerði síðari heims- styrjöld og aðdraganda hennar að umtalsefni. Hann kveður ýmsa sagnfræðinga á Vestur- löndum gera því skóna að grið- arsáttmáli Sovétmanna og Þjóð- verja hafi átt stóran þátt í því að styrjöldin skall á en vísar því á bug sem helberri firru. Þvert á móti hafi Sovétmenn lagt sig í líma við að varðveita frið og hindra að í odda skærist milli ríkja. Vildu sósíalismann feigan „En þjóðarleiðtogar og stjórnmálaforingjar á Vestur- löndum skelltu skollaeyrum við varnaðarorðum Sovétmanna. Og það sem meira var, þeir reru að því öllum árum að sósíalisminn yrði brenndur á styrjaldarbáli í allsherjarátökum við fasism- ann.“ Gorbatsjof segir Molotof (utanríkisráðherra Stalíns) ekki hafa haft ástæðu til að skrifa undir griðasáttmála með Ribb- entrop (utanríkisráðherra Hitl- ers) þann 23. ágúst árið 1939 ef leiðtogar Bretlands og Frakk- lands hefðu ekki, með fulltingi Bandaríkjamanna, gert Mún- chenarsamninginn við Hitler, samþykkt innlimun Austurríkis í Þýskaland, liðið krossfestingu spænska lýðveldisins og þýskt hernám Tékkóslóvakíu. Aðalritarinn fer síðan mörgum og fögrum orðum um þreklyndi og hetjudáðir Sovétþjóðanna í stríðinu við hinn fasíska andstæð- ing er ekkert vílaði fyrir sér (eins- og þeir vita gerst er séð hafa kvik- myndina „Komið og sjáið" er sýnd var nýlega hér í Reykjavík). í lok umfjöllunar sinnar um stríðið segir Gorbatsjof: „Stóran þátt í sigri Sovétmanna átti Jósef Stalín er sýndi fádæma viljastyrk, ákveðni og þrek, mikla skipu- lagsfæmi og hæfileika til að fylkja alþýðu manna til baráttu." Gorbatsjof kveður fórnir og hetjulund almennings við upp- bygginguna eftir stríð vera þann grunn er allir ávinningar síðan hafi verið byggðir á. En eftir því sem framfarir hafi aukist hafi bil- ið milli samfélagsgerðarinnar og gamalla stjórnhátta breikkað. Ekki hafi dregið úr misnotkun valds og sósíalísks réttarkerfis, almenningi hafi verið misboðið. Krúsjof og Brésnef Gorbatsjof hrósar Krúsjof fyrir hugrekki í uppgjörinu við skeið persónudýrkunar (það er að segja valdatíma Stalíns) og við endurreisn sósíalísks réttarríkis. Hann segir framfarir hafa orðið er Krúsjof fór með völd, jafnt í innanríkis- sem utanríkismálum, en margar skyssur hafi verið gerðar er hindrað hafi frekari framþróun og komið óorði á ýmsa jákvæða vaxtarbrodda. Fundur hafi verið haldinn í miðstjórn kommúnistaflokksins í októbermánuði árið 1964. Þá hafi verið ákveðið að skipta um for- ystu flokks og ríkis. Ennfrecnur segir Gorbatsjof að félagar miðstjórnarinnar hafi þá ákveðið að grípa til aðgerða gegn geðþótt- avaldi og til að leiðrétta ýms mis- tök er gerð hafi verið í utanríkis- málum sem og heima fyrir. í fyrstu, segir Gorbatsjof, gerðu nýju leiðtogarnir góða hluti. Sovétríkin hafi búið og búi yfir gífurlegum náttúruauð- lindum sem geri þeim kleift að komast í fremstu röð iðnríkja. Til að hagnýta þær í þágu framfara hafi þurft pólitískan vilja ráða- manna fyrir ýmsum mikilvægum breytingum í samfélaginu. En, bætir hann við, brátt kom á dag- inn að sá vilji var ekki fyrir hendi. Vissulega voru góðar ákvarðanir teknar en við þær var látið sitja, ekki var skeytt um hvort þeim var hrint í framkvæmd. Afleiðingin hafi orðið stöðnun á flestum svið- um. Söðlað um Gorbatsjof segir að fundur miðtjórnar flokksins árið 1985 og 27. þing hans er haldið var sama ár hafi af hreinskilni lagt mat á ástand mála, greint orsakir stöðnunarinnar og kveðið upp dóm yfir þeim. „Það kom fram að á síðari ævi- og starfsárum Leoníds Brésnefs hafi allskyns kreddur og venju- formúlur komið í veg fyrir að leitað var nýrra og ferskra lausna á vanda samtímans. Bilið á milli orða og athafna var orðið að ginnungagapi.“ „Félagar, við höfðum verið leiddir í allan sannleik um nauð- syn perestrojkunnar (nýsköpun- ar í efnahagslífi og samfélagi) því hvarvetna blöstu við verkefni sem enga bið þoldu, vinnu varð að hefja að lausn þeirra. Þróun sósíalismans og perestrojka Tvö atriði skipta höfuðmáli í perestrojkunni. Þau eru þróun í lýðræðisátt á öllum sviðum þjóð- lífsins og róttækar umbætur í efnahagslífinu." Gorbatsjof seg- ist fullviss um að stuðningur al- mennings við perestrojkuna og skilningur hans á nauðsyn breytinga, þrátt fyrir ýms vanda- mál er óhjákvæmilega komi upp á umbreytingaskeiðinu, muni hafa úrslitaáhrif á framgang hennar. „En það væru mistök að líta framhjá því að viss íhaldsöfl, er sjá perestrojkuna einvörðungu sem ógn við sérhagsmuni sína og forréttindi, hafa aukið andstöðu sína við hana. Þessir aðilar fyrir- finnast ekki eingöngu í stjórnkerfinu heldur einnig á vinnustöðum. Vitaskuld segist þetta fólk ekki vera andsnúið perestrojkunni. Þvert á móti. Það kveðst ein- göngu vinna gegn ýmsum nei- kvæðum aukaverkunum ný- sköpunarinnar, það segist standa vörð um ýms hugmyndafræðileg grundvallaratriði sem beðið gætu skaða af athafnagleði alþýðu manna. Við verðum að læra að sjá út, afhjúpa og gera skaðlausa alla leiki andstæðinga perestrojkunn- ar. Manna er reyna að standa í vegi fyrir framþróuninni, manna er kjamsa og hlakka yfir erfið- leikum á vegi okkar, manna er vilja draga okkur aftur í sama gamla farið.“ Þegar Gorbatsjof hafði með þessum hætti helt úr skálum reiði sinnar yfir afturhaldsöflin vék hann máli sínu að þeim sem hon- um finnst fara offari í breytinga- gleði sinni og ekki hafa næga þol- inmæði til að bera. Slíkir einstak- lingar legðu rangt mat á hlutlægar aðstæður í Sovétríkjunum og yrðu að taka sig saman í andlit- inu. Ýmsir fréttaskýrenda telja leiðtogann hafa sneitt að Boris Yeltsin, formanni Moskvu- deildar flokksins, með þessum orðum. Yeltsin er sagður hafa lent uppá kant við ýmsa félaga í miðstjórn flokksins fyrir skemmstu, er hann sakaði um að hefta framgang nýsköpunarinn- ar, og boðist til að segja af sér embætti. í lok þessa ræðuhluta sagði Gorbatsjof: „Perestrojkan ber málstað byltingarinnar og nú er það algert grundvallaratriði að menn tileinki sér sjálfsaga bylt- ingarmannsins og leggi sig alla fram.“ Reykjavíkurfundurinn skipti sköpum í lokahluta ræðu sinnar gerði aðalritarinn alþjóðamálum skil og við grípum niðrí ræðu hans er hann fjallar um samskipti stór- veldanna. „Leiðtogafundurinn í Reykja- vík er í hópi atburða er verð- skulda umfjöllun og mun lifa á spjöldum sögunnar. Með Reykjavíkurfundinum fóru menn að tileinka sér nýjan þankagang í stjórnmálum ólíkra landa og þjóðfélagsgerða og sam- skipti ríkja á alþjóðavettvangi urðu mun frjórri en áður.“ Gorbatsjof kveður rétt vera að í ljósi þeirra verkefna er mannkyn verði að ráða fram úr til að tryggja bjarta framtíð hafi lítið áunnist. „En við höfum hafist handa og mjór er mikils vísir." Hann gerir væntanlegan samn- ing sinn og Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta um eyðingu allra skamm- og meðaldrægra kjarnflauga ríkja sinna að um- talsefni. „Þessi samningur er mjög mikilvægur og markar tíma- mót. í fyrsta skipti í sögunni er samið urn útrýmingu heillar teg- undar kjarnvopna. Þetta verður fyrsta skrefið í átt til algerrar eyðingar kjarnvopnabúra og mun færa mönnum heim sanninn um að það er hægt að ná góðum árangri í þessum efnum án þess að bera fyrir borð hagsmuni ann- arshvors aðilans. Þessi mikilvægi árangur er augljóslega sigur nýrrar hugs- unar, árangur þess að báðir aðilar höfðu vilja og þor til að ná fram lausn er hvorugum var á móti skapi og gættu þess jafnframt að tefla ekki öryggi sínu í tvísýnu.“ -ks. Brósnef og Krúsjof. Þeim voru mislagðar hendur að mati Gorbatsjofs. 10 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 4. nóvember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.