Þjóðviljinn - 04.11.1987, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 04.11.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 Miðvikudagur 4. nóvember 1987 246. tölublað 52. órgangur Þjónusta íþínaþágu SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Bankasalan Enn eitt vindhöggiö Kratar: Látum viðskiptaráðherra afskiptalausan. Hugmyndin um að selja SÍS Búnaðarbanka ogEimskip Útvegsbanka nýturlítils fylgis áþingi. Kjartan Jóhannsson: Vilekkitjámig Við erum ekkert að æsa okkur yfír þessum hugmyndum við- skiptaráðherra og látum hann af- skiptalausan í leit sinni að ein- hverjum fleti á þessu bankasölu- máli, sagði einn þingmaður Al- þýðufíokksins við Þjóðviljann i gær. Nýjustu hugmyndir viðskipta- ráðherra ganga út á það að sam- eina annarsvegar Búnaðarbank- ann og Samvinnubankann og hinsvegar að sameina Útvegs- bankann Verslunarbanka og Iðn- aðarbanka. Vonast Jón Sigurðs- son til þess að Sambandið kaupi um 40% í Búnaðarbankanum og hópurinn kringum Eimskip 40% í Útvegsbanka. Þá hefur hann áhuga á að fá erlenda aðila inn í myndina með 25% eignaraðild í hvorum bankanum fyrir sig. „Ég býst nú ekki við að Sam- bandið sé sérstaklega áfjátt í að eignast stóran hlut í Búnaðar- bankanum, þeir hafa sín áhrif þar inni og eru ekkert spenntir að taka við skuldum bænda í bank- anum,“ sagði þingmaður Alþýð- uflokksins. Ljóst er að hugmynd Jóns um að selja Búnaðarbankann mun mæta mótspyrnu í öllu flokkum og eru ýmsir orðnir þreyttir á þessum tilraunum viðskiptaráð- herra og segja ljóst að ekkert muni gerast í málinu þrátt fyrir stórar yfirlýsingar ráðherrans um að hann ætli að finna framtíðar- lausn á bankamálum landsins. Kjartan Jóhannsson hefur ver- ið orðaður við bankastjórastöðu í Búnaðarbankanum, sem sárabót fyrir að fá ekki ráðherrastól. Fari svo ólíklega að hugmynd við- skiptaráðherra nái fram að ganga er sú staða úr sögunni. „Ég vil ekkert tjá mig um mál- ið,“ sagði Kjartan þegar hann var inntur álits á þessum hugmynd- um hins nýja þingmanns og ráð- herra Alþýðuflokksins. -Sáf Norðurlandaráð Fulltrúar íslands í gær var gengið frá kjöri full- trúa íslands á þing Norðurland- aráðs. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn eiga tvo fulltrúa en Al- þýðubandalag, Alþýðuflokkur og Borgaraflokkur hver sinn fulltrú- ann. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks eru þeir Ólafur G. Einarsson og Sverrir Hermannsson, fulltrúar Framsöknarflokks Páll Pétursson og Valgerður Sverrisdóttir, full- trúi Alþýðubandalags Guðrún Helgadóttir, fulltrúi Alþýðu- flokks Eiður Guðnason og full- trúi Borgaraflokks ÓIi Þ. Guð- bjartsson. -Sáf Matarskatturinn Byrjað á öfugum enda Ef menn meina eitthvað með því að vilja draga úr skattsvik- um, þá þarf að draga úr undan- þáguákvæðunum - það er Ijóst. Hins vegar lögðum við höfundar skattsvikaskýrslunnar aldrei til að það yrði byrjað á þessum enda, sagði Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar, en Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra hefur jafnan vísað í skattsvikaskýrsluna til réttlætingar á matarskattinum illræmda og nefnt nafn Þrastar Ólafssonar í sömu andrá. - Samræming er góðra gjalda verð en við búum við mun hærra verð á landbúnaðarvörum frá framleiðendum heldur en í nokkru landi í Evrópu. Ég tel að það sé að byrja á öfugum enda að hefja samræminguna á þessum stað. Annars hef ég ekkert á móti því að vera með söluskatt á þess- um matvörum, ef hann er látinn renna til þess að borga þær niður að sama skapi. Það er hægt að finna ýmsar leiðir án þess að íþyngja buddu fólks, sagði Þröstur. -rk Hafnarfjörður Stórhýsi kaþólskra Kaþólski söfnuðurinn í Hafn- arfírði hefur sótt um að fá byggja stórhýsi á Jófríðarstöðum í Hafn- arflrði. Húsið á að hýsa systra- heimili, kapellu, safnaðarheimili og aðstöðu fyrir prest safnaðarins í Hafnarfírði. Að sögn Erlends Hjálmars- sonar, byggingafulltrúa í Hafnar- firði, er hér um mikla byggingu að ræða. Húsið er á tveimur hæð- um að hluta og með kjallara. Fyrir framan húsið verður aflok- aður garður. Erlendur sagðist búast við því að framkvæmdir yrðu keyrðar áfram því ætlunin er að húsið verði klárt fyrir væntanlega heim- sókn páfa til Skandinavíu árið 1990. -Sáf Smygl á ódýmm vindlingum íslendingar kaupa grimmt úr vindlingasjálfsölum og hafa með sér heim. Rúmlega helmingi ódýrari en utan vallar Smygl á vindlingum hefur stór- aukist frá herstöðinni á Kefla- víkurflugvelli á síðustu misser- um. Ein aðalástæðan fyrir þess- ari aukningu er sú að handaríska verslunarfyrirtækið á vellinum hefur stórfjölgað vindlingasjálf- sölum á vinnustöðum þar sem bæði íslenskir og bandarískir her- menn eru við störf. Hver vindlingapakki í sjálfsala á Vellinum kostar í dag 1.50$ pakkinn eða tæpar 60 krónur, helmingi minna og rúmlega það en vindlingar kosta utan Vallar. Starfsmenn á Vellinum sem Þjóðviljinn hefur rætt við full- yrða að vindlingakaup íslendinga hafi stóraukist á síðustu mánuð- um eftir að vindlingasjálfsölum var fjölgað á vinnustöðum og ís- lenskum starfsmönnum þannig gert léttara að nálgast þetta ódýra tóbak. Segja viðmælendur blaðs- ins að ekki sé óalgengt að menn fari með fulla vasa af vindlingum heim úr vinnunni á degi hverjum. Yfir 2 þúsund íslendingar eru við störf á Keflavíkurflugvelli, þar af um 1200 sem starfa á veg- um bandaríska hersins. Að sögn Þorgeirs Þorsteins- sonar lögreglustjóra á Keflavík- urflugvelli er með öllu óheimilt fyrir íslendinga að kaupa sér vindlinga í þessum sjálfsölum og ekki hvað síst að taka þá með sér út af svæðinu. En þar sem vind- lingasjálfsalar séu á vinnustöðum þar sem íslendingar vinni með Bandaríkjamönnum sé það hugs- anlegt að þeir verði sér úti um vindlinga á þennan máta. Að sögn Gústafs Níelssonar skrifstofustjóra hjá Á.T.V.R. er ógjörningur að segja nokkuð til um þetta mál og hefur það ekki komið upp á borð hjá fyrirtæk- inu. -grh Slysadeild Fullyrðing Stefáns út í hött Friðrik Sigurbergsson lœknir á lyfjadeild: Hann fékk alla þá meðferð sem völ var á Við starfsfólk á slysadeild Borg- arspítalans viljum mótmæla harðlega þeirri fullyrðingu Stef- áns Axelssonar, félaga í Hjálpar- sveit skáta í Hafnarfírði, sem höfð er eftir honum í Þjóðviljan- um í gær að hann hefði ,,steindrepist“ af völdum þeirrar meðferðar sem hann fékk á slysa- dcildinni, ef hann hefði raunveru- lega verið sjúkur, þegar hann gerði sér upp köfunarveiki síð- astliðinn laugardag, segir Friðrik Sigurbergsson læknir á lyfjadeild Borgarspítalans í viðtali við Þjóð- vifjann. Friðrik var vakthafandi læknir þennan umrædda dag þegar björgunarsveitarmenn komu þangað með Stefán leikandi al- varlega veikan kafara með köf- unarveiki, sem hann átti að hafa fengið eftir köfun í Hvalfirði. Að sögn Friðriks virtist Stefán með mjög alvarleg einkenni köfunarveiki og því í lífshættu. „Á meðan hann dvaldi á slysa- deildinni í 30-40 mínútur, áður en leikaraskapurinn komst upp, var allt kapp lagt á að gera þær ráð- stafanir sem völ var. Meðal ann- ars var reynt með öllum tiltækum ráðum að ná í mann sem kann á meðferð þrýstihylkis sem notað er í tilfellum sem þessum. Á með- an fékk „sjúklingurinn" hefð- bundna meðferð, sem á engan hátt hefði getað drepið hann. Heldur þvert á móti aukið lífslík- ur hans.“ Friðrik sagði að brýn nauðsyn væri á að koma í veg fyrir að svona uppákomur endurtækju sig í framtíðinni. í þessu tilfelli hefðu afleiðingarnar getað orðið mjög alvarlegar þar sem meðferð ann- arra raunverulegra sjúklinga tafðist vegna þessa. -grh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.