Þjóðviljinn - 04.11.1987, Qupperneq 3
ÖRFRÉTTIR
Útivistarsvæði
í Fossvogsdalnum, verður tll um-
fjöllunar á fræðslufundi Land-
fræðingafélagsins í Odda, stofu
101 kl. 20.30 annað kvöld. Yngvi
Þór Loftsson sem nýlega hefur
skilað lokaritgerð í Master námi
um Fossvogsdalinn hefur fram-
sögu á fundinum.
Ofurmaraþon
verður hlaupið í Hafnarfirði um
þarnæstu helgi. Hlaupið hefst á
hádegi á laugardag og ætla
langhlauparar í FH að hlaup í
einn sólarhring án hvíldar og
safna áheitum fyrir félag sitt.
Fteiknað er með að hlaupnir verði
um 200 km á þessum 24 tímum.
Eggert Briem
prófessor
hefur hlotið verðlaun úr verð-
launasjóði dr. phil. Ólafs Daníels-
sonar og Sigurðar Guðmunds-
sonar, arkitekts en hlutverk
sjóðsins er að verðlauna sjötta
hvert ár íslenskan stærðfræðing,
stjörnufræðing eða eðlisfræðing.
Eggert hlýtur verðlaunin fyrir
miklar og árangursríkar rann-
sóknir á sviði fallalgebru. Verð-
launin nema 200 þús. kr.
75 ára afmæli
skátastarfs
er haldið hátíðlegt í þessari viku. í
tilefni afmælisins hefur minning-
arsjóður Guðrúnar Bergsveins-
dóttur afhent skátahreyfingunni
nýtt píanó, 100 bólstraða stóla og
20 borð í nýja Skátahúsið við
Snorrabraut.
Nýr sendiherra Svía
hérlendis, hr. Per Olof Forshell,
hefur afhent forseta íslands trún-
aðarbréf sitt. Utanríkisráðherra
var viðstaddur afhendinguna.
Lögfræðiaðstoð
Orators
laganema við Háskólann verður
á fimmtudagskvöldum í vetur frá
kl. 19.30 - 22. Þjónustu þessari
hefur verið vel tekið af almenn-
ingi undanfarin ár en síminn hjá
Orator er 11012.
Sífreri og freðmýrar
Sovétríkjanna er efni fyrirlesturs
sem sovéski vísindamaðurinn dr.
Viacheslav N. Konischev pró-
fessor við Moskuvháskóla heldur
á vegum jarðfærðiskorar Há-
skóla Islands í stofu 101 í Odda í
kvöld kl. 20.30. Konischev mun
greina frá uppruna sífrerans og
freðmýranna, vandamálum
vegna yfirborðsleysinga og eins
mannvirkjagerð á hinum sífreðnu
svæðum.
FRÉTTIR
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður: Festum kaup á verndaðri þjónustuíbúð íSunnuhlíð
að hefur oft verið rætt um fé-
lagsleg íbúðakaup á vegum
félagsins, en málið hefur aldrei
komist á framkvæmdastig. Það
var ekki fyrr en við fréttum af
vernduðu þjónustuíbúðunum við
Sunnuhlíð í Kópavogi að skriður
komst á málið, sagði Þórunn
Sveinbjörnsdóttir, formaður
Sóknar, en Sókn hefur auglýst
lausa til umsóknar fyrir félags-
menn þriggja herbergja íbúð til
afnota, sem félagið hefur fest
kaup á við Sunnuhlíð.
íbúðin er ætluð tveimur ein-
staklingum. Einstæðir félags-
menn Sóknar, sem búa í leigu-
húsnæði, eru einstæðir og hafa
langan starfsaldur munu sitja
fyrir húsnæðinu.
- Ljóst er að mikil þörf er með-
al félagsmanna okkar fyrir húsn-
æði sem þetta. Ætli það láti ekki
nærri að um 15% félagsmanna í
Sókn, sem hafa langan starfsald-
ur, séu einstæðir og búi í leigu-
húsnæði, sagði Þórunn.
Þórunn sagði að væntanlegir
íbúar í íbúð Sóknar þyrftu að
greiða í sameiginlegan hússjóð og
greiða einhverja málamynda-
leigu. -rk
VMSÍ
Nýja fisk-
veiðistefnu
Dregið verði úr út-
flutningi á óunnum
sjávarafla
- Efnahagsbandalagið sækir
nú mjög á um aðgang að íslensk-
um fiskimiðum. Með ótæpilegum
útflutningi á óunnum físki eru
Efnahagsbandalagslöndin að
komast bakdyramegin inn í land-
helgina - en spara sér útgerðar-
kostnað, segir m.a. í ályktun 13.
þings Verkamannasambandsins
um fiskveiðistefnu.
í ályktuninni segir að við
mótun nýrrar fiskveiðistefnu sé
nauðsynlegt að þess sé gætt að
jafnvægi ríki á milli veiða og
vinnslu.
Þingið gerir þá meginkröfu til
Alþingis að við mótun og sam-
þykkt nýrrar fiskveiðistefnu
verði komið verulega til móts við
kröfur um samdrátt í útflutningi
óunnins sjávarafla.
Jafnframt hvetur VMSÍ
stjórnvöld til að haga aflasókn
þannig að dregið verði úr sókn
enn frekar en orðið er og farið
verði að ábendingum fiskifræð-
inga í þeim efnum. -rk
Lo&nulöndun. Börkur NK kom á dögunum með fullfermi af loðnu til Neskaupstaðar, en mun
minna af loðnu hefur borist á land fyrir austan en í fyrra á sama tíma. Heildarloðnuaflinn á vertíðinni er
kominn í 43.505 lestir. Mynd: Óttarr Magni.
lslenska og stærðfrœði
Kennslu í framhaldsskólum áfátt
Kennsla ííslensku og stærðfrœði er ímörgu mjög ábótavant samkvœmt niðurstöðum úttektar
menntamálaráðuneytisins. Brynjúlfur Sœmundsson íslenskukennari: Harður dómur
Okkur fínnst þetta harður dóm-
ur og að mörgu leyti ósann-
gjarn. Ymislcgt í skýrslunni má
þó til sanns vegar færa, sagði
Brynjúlfur Sæmundsson deildar-
stjóri í íslensku í Menntaskólan-
um við Sund um niðurstöður út-
tektar sem menntamálaráðuneyt-
ið hcfur látið gera á íslenskuk-
ennslu í framhaldsskólum, en út-
tektin náði líka til stærðfræði-
kennslu.
Við byrjuðum fyrir hálfum
mánuði að heilreykja sfld og
heitreykja hana; þá er fiskurinn
reyktur og soðinn í einu. í bígerð
er að verka fleiri físktegundir á
þennan hátt, svo sem sjóbirting,
grálúðu, grásleppu, rauðmaga og
háf svo nokkrar tegundir séu
nefndar, sagði Sigurður Þórðar-
son eigandi fyrirtækisins Reyk-
sfld h/f á Seyðisfirði í samtali við
Þjóðviljann.
j Að sögn Sigurðar fer verkunin
þannig fram að sfldin er slægð og
tálknin tekin burt og síðan er hún
hengd upp á hausnum, sett í
Samkvæmt niðurstöðum
menntamálaráðuneytisins er ís-
lensku- og stærðfræðikennslu í
framhaldsskólum í mörgu mjög
ábótavant. í skýrslunni um ís-
lenskukennslu eru m.a. gerðar
athugasemdir við kennsluaðferð-
ir og kennsluefni í stafsetningu.
Þá er lögð áhersla á það að leita
verði nýrra leiða við málfræði-
kennslu og kennarar verði að
vagna og inn í reykofninn sem'
tekur um 250 kfló í einu. Sigurður
sagði að svona fiskverkun væri al-
gjör nýlunda hér á landi og bjóst
hann við því að hún mundi njóta
vinsælda meðal íslendinga þegar
þeir hefðu sannreynt gæðin.
Hann kvaðst hafa fengið dreif-
ingaraðila til að sjá um dreifing-
una fyrir sig út um land allt, því
það væri alveg nóg að standa
sjálfur í verkuninni, þó hann færi
ekki að sjá um dreifinguna líka.
Reykvíkingar mega búast við að
sjá heit- og heilreykta sfld í ma-
tvörubúðum í næstu viku.
Ieggja sig betur fram við að vekja
áhuga nemenda á margbreyti-
leika móðurmálsins. Kennsla í
ritgerðasmíð þykir líka ónákvæm
og ómarkviss. Við kennslu heim-
ildaritgerðasmið ættu kennarar
að fylgjast með vinnslunni þrep
fyrir þrep en það sé ekki gert. Þá
er bent á að lestur kennara á
heimildaritgerðum nemenda sé
oft ekki nógu gagnrýninn. Þá er í
Ofninn fyrir verkunina á fisk-
inum er keyptur frá Þýskalandi
og er hann útbúinn fyrir olíu-
kyndingu því rafmagnið á Seyðis-
firði reyndist vera alltof dýrt til
þess að hægt væri að nota það.
Nóg er af sfldinni á Seyðisfirði
þessa dagana og sagði Sigurður
að hann sæi hana stökkva upp
beint fyrir utan gluggann sinn í
verkunarhúsinu. Bjóst hann við
að reyna að fá leyfi til að veiða
sfld eftir að sfldarvertíðinni lyki
til þess að fá glænýtt hráefni til
vinnslunnar.
grh
skýrslunni lögð fram gagnrýni á
kennaramenntun þá sem Háskóli
íslands býður uppá og er Háskól-
anum uppálagt að gera tillögur til
úrbóta.
Brynjúlfur sagði að þær upp-
lýsingar sem hann hefði um nið-
urstöður úttektarinnar væru al-
farið úr fjölmiðlum, en sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
þar kæmu fram gæti hann tekið
undir ýms atriði í skýrslunni. Það
væri mikið rétt að beita þyrfti
öðrum kennsluaðferðum í staf-
setningu en nú tíðkast og kenns-
luefnið í íslensku væri mjög tak-
markað. Hins vegar fyndist hon-
um fullmikið gert úr því að rit-
gerðakennslan væri léleg. Hún
værj að vísu lítil sem engin á með-
an nemendur skrifuðu ritgerð-
irnar, en vandlega væri farið í
grundvallaatriði ritgerðasmíða
áður en til skriftanna kæmi. Þá
væru ritgerðirnar vandlega skoð-
aðar með nemendum eftir að
þeim væri skilað og sú þekking
nýttist þeim í næstu ritgerðir.
I skýrslunni um stærðfræði-
kennslu er lögð áhersla á að al-
varlegur skortur sé á menntuðum
kennurum í greininni og að nem-
endur komi mjög illa undirbúnir í
stærðfræði úr grunnskólunum.
Þá er bent á það að æ færri leggi
fyrir sig fagið á háskólastigi og
leita verði leiða til þess að gera
fagið meira aðlaðandi.
Seyðisfjörður
Heit- og heilreykt síld
Sigurður Þórðarson hjá Reyksíld h/f: Nýjung hér á landi. Reykofninn
kyntur með olíu. Rafmagnið of dýrt
Miðvikudagur 4. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐÁ 3