Þjóðviljinn - 04.11.1987, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Framtíöarsýn sósíalista
Upp úr rússnesku byltingunni varö opinská og
heiftúðug sú sundrung sem haföi alllengi grafiö
um sig í evrópskum verklýösflokkum, kommún-
istaflokkar og sósíaldemókrataflokkar skipuðust í
tværfjandsamlegarfylkingar. En hvaö sem þessir
flokkar annars héldu um byltingu og þingræði, þá
fór þaö ekki milli mála í málflutningi þeirra að
framtíðarsýnin var skýr og björt: þegar OKKAR
menn taka við hverfa kúgun og arðrán fljótlega,
•sem og flest erfið mannleg vandamál, leiðin fram-
undan er bein og breið.
Síðan hefur margt breyst. Ekki síst hefur boð-
skapurinn um „félagslegt eignarhald á atvinnu-
tækjurn" orðið fyrir skakkaföllum reynslunnar.
Reynslunnar af miðstýrðu áætlanakerfi Austur-
Evrópu og þjóðnýtingartilburðum í Vestur-Evrópu,
sem segir, að sá „sósíalismi" leysi út af fyrir sig
ekki annan vanda en að auka atvinnuöryggi. Um
leið og það kom á daginn að altæk áætlanagerð
getur ekki leyst vandamál sem tengjast síbreyti-
legum þörfum og óskum fólks og að þjóðnýting
var engin vörn gegn skrifræði og áhrifaleysi vinn-
andi fólks á starfsvettvangi sínum. Auk þess sem
opinberi geirinn í blönduðu hagkerfi var einatt nið-
urlægður í almenningsáliti með því að láta hann
taka við því einu sem ekki var hægt að græða á og
láta þann „sósíalismaandskotans" svo um að efla
trúna á að einkabúskapur einn gæti verið hag-
kvæmur.
En þó að framtíðarsýn sósíalista hafi ekki ræst
er það óþarft hugarvíl að telja að þeir hafi verið
áhrifalitlir um þróun þjóðfélags í okkar heimshluta.
Viðhorf sósíalista hafa gagnsýrt þjóðfélagið, bæði
löggjöf þess og viðhorf í miklu ríkari mæli en menn
taka eftir hvunndags - m.a. vegna þess að sigrar í
félagsmálum verða fljótlega að sjálfsögðum hlut
sem allir telja sig sammála um. Og helsta afrek
sósíalisma af ýmsum tegundum er vitanlega það,
að alþýða manna hefur sér til trausts og halds í
lífsbaráttunni marga ágæta „félagsmálapakka"
sem hafa kippt mannlegri samábyrgð út úr geð-
þóttavaldi góðgjörðastarfseminnar og ofið úr
henni öryggisnet réttinda sem í senn stuðlar að
jöfnuði og styrkir mannlega reisn þeirra sem
standa höllum fæti.
Morgunblaðið var að tala um það á sunnudag-
inn að það væri hættulegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn
að einblína um of á einn hlut: að kveða niður
verðbólgu. Um helgina voru hér í Þjóðviljanum birt
drög að stjórnmálayfirlýsingu næsta landsfundar
Alþýðubandalagsins undirfyrirsögninni „Framtíð-
arsýn íslenskra sósíalista". Þar var að nokkru leyti
um hliðstæðan skilning að ræða: það sé hættulegt
fyrir Alþýðubandalagið að lokast inni í vörn fyrir
velferðarkerfið í hægrisveiflu, ná ekki með annan
boðskap til fólks. Um leið er fitjað upp á ýmsu því
sem sósíalistar mættu gjarna leggja þyngri
áherslu á - undir þeim skynsamlegu formerkjum
að „sósíalisminn er ekki endastöð, heldur lífsvið-
horf, vinnuaðferð og félagslegur ferill“.
í plagginu er að finna áherslubreytingar sem
vert er að vekja athygli á. Þar er ekki stillt upp
andstæðunum markaðslögmál gegn áætlanabú-
skap, heldur spurt um það hvernig nýta megi kosti
markaðarins um leið og unnið er gegn ómann-
eskjulegum afleiðingum lögmála hans. Það er
engu siegið föstu um „rétt“ eignarhald fyrirtækja,
heldur lögð áhersla á sveigjanleik í þeim efnum og
samfélagslegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir
valdasamþjöppum fjármagnsins, einokun,
hringamyndanir osfrv. Um leið er ítrekað og út fært
ýmislegt sem fyrr hefur verið sagt í umræðu sós-
íalista á liðnum árum um atvinnulýðræði.
Ýmislegt er og þarflegt í plagginu sagt um
sjálfstæðis- og menningarmál, jafnréttismál og
fleira. Eins og að líkum lætur eru slík plögg einatt
um of almenn í orðalagi. En það ætti ekki að
skaða. Við þurfum að taka tillit til þess að framtíð-
ina er ekki hægt að kortleggja með nákvæmni á
tímum feiknalega hraðra breytinga. Og mestu
skiptir, að það er rétt - eins og gert er í drögunum -
að beina athygli að því, að eitt höfuðviðfangsefni
flokks sósíalista nú um stundir hlýtur einmitt að
vera að ieita að leiðum til að efla lýðræði umfram
það sem við njótum í almennum kosningum á
fjögurra ára fresti, efla frelsi umfram það sem
gefur okkur kost á að velja milli nokkurra vöruteg-
unda í búð.
ÁB
KLIPPTOG SKORIÐ
Forsætisráðherra fertugur
Formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Þorsteinn Pálsson forsætis-
ráðherra, varð fertugur fyrir
skömmu og er ekki seinna vænna
að Klippt og skorið óski honum
til hamingju með afmælið. Þor-
steinn hefur oft verið ómaklega
skammaður í þessum dálkum en
reyndar líka oft með réttu. Hvað
sem segja má um Þorstein Páls-
son þá er hann forsætisráðherra
okkar íslendinga og við elskum
og virðum okkar ráðherra, hverj-
ir svo sem þeir eru í það og það
skiptið. Megi Þorsteinn stýra
þjóðarfleyinu farsællega um lífs-
ins öldurót og vonandi láta ræð-
ararnir ekki bugast undir þung-
um árum.
Annars eru það fleiri en við
sem geta ekki stillt sig um að atast
í Þorsteini Pálssyni. Það er ekki
laust við að Morgunblaðið sé
stundum dálítið frítt af sér í þeim
efnum og þykir mörgum þau skot
koma úr hörðustu átt því að einu
sinni var honum á þeim bæ valin
heiðursnafnbótin Morgunblaðs-
egg-
I sunnudagsblaði Moggans var
verið að leggja Þorsteini
Iífsreglurnar og birt þar forskrift
að því hvernig stjórna á Sjálf-
stæðisflokknum. Menn skilja fyrr
en skellur í tönnum þegar farið er
að tala um liðin stórmenni og
þeirra lýsandi fordæmi.
Um þá fyrri tíð og þessa
Mogginn rifjar upp hvernig
Sjálfstæðisflokkurinn hafi fyrrum
brugðist við kosningaósigri. Það
voru „fyrstu viðbrögð Sjálfstæð-
isflokksins, eftir að flokkurinn
beið ósigur í þingkosningunum
1971 og Viðreisnarstjórnin hvarf
frá völdum eftir 13 ára setu, að
hefja endurskoðun á stefnuskrá
flokksins frá grunni. Menn sögðu
sem svo, að 13 ára samfelld aðild
að ríkisstjórn hefði líklega gert
það að verkum að flokkurinn
hefði ekki fylgst nægjanlega vel
með nýjum og breyttum straum-
um í samfélaginu og þess vegna
væri tímabært að hefja öflugra
málefnastarf á vettvangi hans.
Það var Jóhann heitinn Hafstein,
sem tók við forystu Sjálfstæðis-
flokksins eftir lát Bjarna Bene-
diktssonar, sem komst að þessari
niðurstöðu..."
Eftir að Mogginn hefur minnt á
þessa gullnu fortíð er vikið að
dapurlegum tíðindum úr gráma
nútímans og rætt um útreið Sjálf-
stæðisflokksins í alþingiskosning-
unum í apríl leið. „I kjölfar þeirra
tókst Sjálfstæðisflokknum þrátt
fyrir hinn mikla ósigur að mynda
ríkisstjórn og formaður flokksins
tók við embætti forsæt-
irsráðherra."
En nú brast menn kjark til að
nota jafngifturík læknismeðul og
í tíð Jóhanns Hafstein.
„Á innri vettvangi Sjálfstæðis-
flokksins hefur ekki verið gripið
til sérstakra ráðstafana í kjölfar
kosningaósigursins sl. vor. Að
vísu var nefnd sett á laggirnar
nokkru eftir kosningarnar til þess
að gera úttekt á orsökum úrslit-
anna, en skipun hennar var um-
deild og niðurstaða hennar hefur
ekki orðið tilefni til sérstakra að-
gerða.“
Mogginn er ekkert að lúra á því
að hann telur ekki nóg að gert hj á
forystu Sjálfstæðisflokksins.
„Það er hins vegar ljóst að í þing-
kosningunum sl. vor bryddaði
Sjálfstæðisflokkurinn ekki upp á
þeim málefnalegu nýjungum.
sem höfðað gætu til kjósenda. I
stjórnarsáttmála ríkisstjórnar-
innar hefur það ekki heldur gerst
og engin merki sjást um það á
vettvangi flokksins að unnið sé að
ilíkri málefnalegri endurnýjun.“
Já, margt er mannanna bölið
og víðar er guð en í Görðum.
Frjálshyggjan í vörn
í þessum dálkum hefur tölu-
vert verið fjallað um hrun á verð-
bréfamörkuðum vestrænna landa
síðustu vikurnar. Þessi áhugi staf-
ar ef til vill af gamalgróinni
hræðslu við kreppu í hinum kap-
ítalíska heimi og vantrú á að
markaðslögmálin geti orðið
mannkyninu sú blessun sem
Hannes Hólmsteinn og hans nót-
ar boða.
Vissulega er kenning frjáls-
hyggjupostulíinna fögur í sjálfri
sér. Þar ríkja einföld og skýr
lögmál og það sem mest er um
vert, að lokum á allt að ganga upp
öllum til góðs. En það er eins og
margir þeirra, sem eru vinstra
megin við miðju í pólitískri af-
stöðu, treysti sér ekki til að
sleppa jarðnesku sambandi og
kasta sér með barnslegu trúnað-
artrausti í náðarfaðm trúarinnar
á algilda blessun hins frjálsa
markaðar. í besta falli að menn
viðurkenni að það sé alveg sjálf-
sagt að nýta kosti markaðarins
þar sem það á við en alls ekki
megi láta markaðsöflin ráða of
miklu.
Nýlega birtist í því virta blaði
Financial Times grein um verð-
bréfahrunið mikla og lét Morg-
unblaðið þýða hana og birta á
laugardaginn var. Þar er talað
tæpitungulaust um að taka eigi
fram fyrir hendur blindra mark-
aðsafla og að æðstu prestum pen-
ingamagnshyggju beri að brjóta
odd af oflæti sínu og beita aðferð-
um hagfræðingsins Keynes, þ.e.
að ríkið hafi áhrif á hinn frjálsa
markað með aðgerðum á sviði
peningamála og fjárfestinga.
„Markaðirnir eru farnir að haga
sér eins og fjölskylduhundur,
sem gefinn er laus taumur. í upp-
hafi verður hundurinn altekinn
taumlausri gleði yfir fengnu
frelsi. Næst taka við óknyttir og
slæm hegðun og að lokum grípur
hundinn ótti og hann tekur að
leita hlýju og skjóls, sem eigand-
inn veitti honum í árdaga. Verið
getur að ýmsir stjórnmálamenn
haldi enn í kenninguna um af-
skiptaleysi (laissez faire) en frá
mörkuðum berast nú þau boð að
hvorki sé vanþörf á eftirliti né að-
haldi.“
ÓP
þlOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvœmda8tjóri: Hallur Páll Jónsson.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphóöinsson.
Fróttastjóri: Lúövík Geirsson.
Blaöamenn: Guðmundur RúnarHeiöarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, IngunnÁsdísardóttir,
Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiösson •*
(íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason,
RagnarKarlsson, SiguröurÁ. Friöþjófsson, StefánÁsgrímsson, Vil-
borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrlta-og prófarkalestur: Elías Mar, HildurFinnsdóttir.
Ljó8myndarar: Einarólason, SigurðurMarHalldórsson.
Útlltstelknarar: SævarGuðbjörnsson, GaröarSigvaldason.
Margrót Magnúsdóttir
Skrlfstofustjóri: Jóhannes Haröarson.
Skrlfstofa: Guörún Guövaröardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Auglýslngastjórl: Siaríöur Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: UnnurÁgústsdóttir, OlgaClausen, GuömundaKrist-
insdóttir.
Símvar8la: Hanna Ólafsdóttir, Sigríöur Kristjánsdóttir.
Bílstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir.
ÚtbrelÖ8lu-ogafgreið8lu8tjórl:HöröurOddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, OlafurBjörnsson.
Utkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumula 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýslngar: Síðumúla 6, sfmar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiöja Þ jóðvi Ijans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð f lausasölu: 55 kr.
Helgarblöð: 65 kr.
Áskrlftarverð á mánuði: 600 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 4. nóvember 1987
>