Þjóðviljinn - 04.11.1987, Page 7
FÆDING
HINS
ÓÞEKKTA
Um grafíksýningu Asgersjorn í Norræna húsinu
Umsjón:
Elísabet Kristín
Jökulsdóttir
„Öll endurnýjun felst í því
aö gefa sig hinu óþekkta á
vald og þar meö hinni nær ör-
uggu upplausn og tortímingu.
Því ef það er undantekningin
sem sannar regluna með því
aö endurnýja hana, þá getur
velheppnuð endurnýjun eöa
umsköpun hins óþekkta yfir í
hið þekkta ekki orðið án þess
að samhengið og orðin rofni
og leysist upp til þess að
skapa rými fyrir nýtt sam-
hengi. Hinn byltingarsinnaði
órói, þetta óþekkta, óskiljan-
lega eða óákveðna í tilver-
unni, þar sem gamalt er eyði-
lagt til þess að rýma fyrir nýju,
það er hið óumflýjanlega
lögmál mannsins og veraldar-
innar. Óvissan er lögbundin
og nauðhyggjan virkar bara í
gegnum hana. Hið yfirskilvit-
lega býr í núinu.“
Þannig kemst danski listamað-
urinn Asger Jorn meðal annars
að orði í bók sinni, „Held og Has-
ard“, sem bókaforlag hans,
„Skandinavisk Institut for Sam-
menlignende Vandalisme" gaf út
árið 1963.
Asger Jorn var uppreisnar-
maður gagnvart sinni samtíð og
byltingarmaður í norrænni mynd-
list. Hann hóf feril sinn á fjórða
áratugnum undir áhrifum frá
súrrealismanum og málurum eins
og Paul Klee og Juan Miro. En
hann gekk lengra á vit óvissunnar
og hins óþekkta en bæði súrreal-
istarnir og þessir lærimeistarar
hans gerðu. Hann skapaði í verk-
um sínum myndheim sem geislar
af krafti galdursins þar sem hin
hefðbundna fagurfræði formsins
varð að víkja fyrir þeirri fagur-
fræði karaktersins, þar sem
mörkin á milli hins „fagra“ og
„ljóta“ eru afmáð, þar sem
sköpunarverknaðurinn sem slík-
ur fær goðsögulega merkingu
með því að umbreyta hinu
óþekkta í nýja þekkjanlega
heimsmynd, með því að um-
breyta kaos í kosmos.
Sú stefna var áberandi í evr-
ópskri myndlist á fyrrihluta þess-
arar aldar, að leita fanga í „frum-
stæðri“ list og listsköpun barna.
Þessi viðleitni tengdist þeirri
þörf, sem listamennirnir fundu til
þess að rækta hina beinu og
sjálfsprottnu afstöðu til hlutanna
og umhverfisins á tímum þar sem
vísindin og tæknin voru að verða
æ meira ríkjandi í öllu umhverfi
og samfélagi mannsins. Mark-
miðið með þessari viðleitni var að
tefla hinni sjálfsprottnu og
bernsku tilfinningu gegn
skynsemistrú og vísindahyggju
samtímans og skapa úr þessu
tvennu eina heild.
Asger Jorn gerði sér manna
best grein fyrir þeirri gjá sem
myndast hafði á milli þarfar
mannsins fyrir sjálfsprottna og
„frumstæða" skynjun annars veg-
ar og þeirrar vísindahyggju og
skynsemistrúar, sem einkenndi
samtímann hins vegar. Það var
reyndar meginviðfangsefni hans í
ofangreindri bók og öðrum skrif-
um hans um list og fagurfræði að
benda á þessa mótsögn og leita
fræðilegrar lausnar á henni. í
þessu sambandi lagði Jorn alltaf
áherslu á að vísindin gætu ekki
þróast óháð listinni, að öll um-
sköpun hins óþekkta yfir í hið
þekkta væri háð hæfileika manns-
ins til listræns innsæis og persónu-
legrar innlifunar og að hin „hlut-
læga þekking" væri dauður bók-
stafur án slíks innsæis og þátt-
töku.
Sem listamaður var Jorn langt í
frá „frumstæður". Þvert á móti
gerði hann sér gleggri hugmyndir
um stöðu sína og hlutverk en
margir samtímamenn hans í list-
inni. Hann upplifði umbrot
samtímans af mikilli alvöru og
var virkur þátttakandi í þeim,
eins og sést meðal annars af
veggblöðum þeim sem hann
gerði í tilefni af námsmannaó-
eirðunum í París 1968, og sýnd
eru í Norræna húsinu nú. Mynd-
list hans var hins vegar ekki pólit-
ísk í hefðbundnum skilningi þess
orðs. Hún hafði heldur ekki
mikið með siðfræðilegan boð-
skap að gera. Asger Jorn vildi
með verkum sínum skapa heims-
mynd sem væri samtímanum
samkvæm og endurspeglaði ekki
bara upplifun augnabliksins,
sjálfan galdur sköpunarinnar,
heldur líka sanna heimsmynd
samtímans. Hann líkti samtíman-
um stundum við endurreisnar-
tímann, þar sem landvinningar
vísindanna væru í rauninni mun
stórbrotnari nú en þegar menn
uppgötvuðu Ameríku og að jörð-
in væri hnöttur en ekki flöt
kringla. Á meðan landvinningar
vísindanna virtust vera á góðri
leið með að leysa heimsmynd
okkar upp í frumparta sína og
tæknin að grafa undan lífsskilyrð-
um mannsins á jörðinni leitaði
Jorn á vit þeirra frumkrafta sem í
manninum búa, þar sem goð-
söguleg umbreyting hins óþekkta
- kaos - yfir í hið þekkta - kosmos
- gegnir lykilhlutverki. Myndlist
hans er í eðli sínu bjartsýn, þar
sem hún er full af trú á sköpunar-
mátt mannsins og innsæi, en um
leið má lesa út úr henni uppreisn
gegn öllum fyrirframgefnum
stærðum og hlutlægum reglum í
listinni. Þess vegna átti Asger
Jorn meðal annars í stöðugu
stríði við dönsku listaakademí-
una og ýmsar opinberar stofnanir
í kringum menninguna í heima-
landi sínu á meðan hann lifði.
Myndverk Asgers Jorn eru
hlaðin frásögn og lífi, þar sem
goðsagnakenndar verur birtast
og umbreytast í sífellu. Þær eru
hlaðnar dramatískri spennu og
jafnframt fullar af innilega
dönskum húmor. Jorn varð tíð-
rætt um norræna menningarhefð
og beitti sér reyndar fyrir útgáfu
yfirgripsmikils verks sem átti að
spanna sögu norrænnar alþýðu-
listar frá upphafi. Sumir hafa séð
skyldleika með verkum hans og
gamalli norrænni miðaldalist. En
sá norræni andi, sem ríkjandi er í
verkum hans, á sér víðfeðmari
rætur. Húmorinn ogþað tilvistar-
drama sem myndir hans endur-
spegla sverja sig í ætt við
heimspekinginn og landa hans
Sören Kierkegaard, enda varð
Jorn tíðvitnað í hann í fræðilegri
umfjöllun sinni um myndlist.
Margir hafa bent á skyldleika
hans við Edvard Munch, en frá-
sagnargleðin og húmorinn setja
hann jafnframt á bekk með
löndum hans, H.C. Andersen og
Storm Petersen. En fyrst og síð-
ast er hann þó persónulegur lista-
maður sem hefur með einstökum
hætti samræmt listrænt innsæi og
djúpstæðan skilning á samtíman-
um, þar sem hin hefðbundna nor-
ræna alvörugefni er aldrei ósnort-
in af hinum sérstæða danska
húmor og hispursleysi.
Það er mikill akkur í þeirri sýn-
ingu sem Norræna húsið hefur nú
efnt til með grafíkmyndum As-
gers Jorn. Grafíkin er að vísu að-
eins ein hlið á þessum fjölhæfa
listamanni, sem málaði bæði í
olíu, vann í leir og gerði vegg-
teppi. En hún er mikilvægur lykill
að því að skilja tilurð stærri verka
hans, þar sem við sjáum fæðingu
hins óþekkta í tröllauknari mynd.
Því fyrst og síðast er það sjálfur
galdur sköpunarinnar sem opin-
berast okkur í myndum Asgers
Jorn.
-ólg.
Miðvikudagur 4. nóvember 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 7