Þjóðviljinn - 04.11.1987, Page 13
Georg Renz frá Castolin sýnir starfsmönnum Málmtæknideildar ITl hvernig
tækin eru notuð.
Iðntœknistofnun
Fékk málmhúðunar-
tæki að gjöf
Málmtæknideild Iðntækni-
stofnunar fékk nýlega að gjöf frá
svissneska fyrirtækinu Eutectic-
Castolin fyrir milligöngu ístækni
hf. mjög vandaðan tækjabúnað
til málmhúðunar. Gjöfin var færð
í tilefni 50 ára afmælis rannsókna
íþágu íslenskra atvinnuvega, sem
hófust með stofnun Atvinnu-
deildar Háskólans 1937 en arf-
takar hennar, rannsóknastofnan-
ir atvinnuveganna, minnast
þeirra tímamóta nú með ýmsu
móti.
Tækin eru tvennskonar
sprautubúnaður, sem sprautar
bráðnum málmdropum á yfir-
borð málma og annarra efna. Við
þetta myndast yfirborðslag, sem
getur haft allt aðra eiginleika en
undirefnið. Notkunarsvið tækj-
anna er aðallega húðun slitþolins
lags, bæði til viðgerða og fram-
leiðslu, sem m.a. er nokkuð not-
að í viðhaldi hjá íslenskum orku-
verum. Einnig má mynda með
húðun tæringarþolið yfirborðs-
lag. Húðunarefnið er duft, sem er
hitað og blásið á yfirborðið með
gasloga.
Mikill fengur er í þessum nýju
Castolintækjum og hyggst
Málmtæknideild gangast fyrir
námskeiðum á þessu sviði í ná-
inni framtíð. Gjöfinni fylgir enn-
fremur aðgangur að áratuga-
langri þekkingaruppbyggingu
Castolin með ráðgjöf og gagna-
banka. Var það staðfest með
viðurkenningarskjali, sem einn
forstjóra Castolin, dr. Rothenbu-
hler afhenti dr. Hans Kr. Guð-
mundssyni, deildarstjóra Málm-
tæknideildar, ásamt tækjabúnað-
inum, við sérstaka athöfn í Iðn-
tæknistofnun í þessum mánuði.
Háskólatónleikar
Kanadískur píanisti
Þriðju háskólatónleikar vetr-
arins verða haldnir í hádeginu í
dag og á tónleikunum mun kana-
dískur píanóleikari, David Tutt,
spila þrjú verk eftir Franz Liszt.
Liszt var meðal merkustu tón-
skálda rómantíska tímabilsins og
þar að auki hinn mesti píanósnill-
ingur síns tíma. Heyra má í
píanóverkum Liszt yfirburða-
tækni hans og enn þann dag í dag
geta aðeins færustu píanóleikarar
leikið þau.
David Tutt er vel þekktur pí-
anóleikari í heimalandi sínu og
hefur leikið einleik með helstu
sinfóníuhljómsveitum Kanada.
Hann er nú búsettur og starfar í
Sviss.
Tónleikarnir eru í Norræna
húsinu og hefjast kl. 12.30. Þeir
standa u.þ.b. hálftíma og eru
öllum opnir. Tilvalið er að fá sér
hádegissnarl í kaffistofu hússins í
leiðinni.
Reykjavík
Ný umferðarljós
Tvenn ný umferðarljós verða
tekin í notkun laugardaginn 7.
nóvemberkl. 14.00. Önnurljósin
eru á mótum Bitruháls-Bæjarháls
og Hraunbæjar en hin ljósin eru á
mótum Höfðabakka og Stekkjar-
bakka.
Á sama tíma verða umferð-
arljós á mótum Höfðabakka og
Bæjarháls aftur tekin í notkun.
Athygli vegfarenda er vakin á
því, að á sama tíma verður gatan
Strengur tengd beint við síð-
astneíndu gatnamótin. Þannig að
úr verða kross-gatnamót í stað T-
gatnamóta áður. Þeir sem aka
vestur Bæjarháls og ætla suður
Höfðabakka verða þá að víkja
fyrir umferð sem kemur frá
Streng og ætlar suður Höfða-
bakka eða austur Bæjarháls.
Til að minna vegfarendur á hin
nýju umferðarljós verða þau látin
blikka gulu í nokkra daga áður en
þau verða endanlega tekin í notk-
un.
(Frá gatnamálastjóra)
Múrinn sfándi
Fyrir nokkru var minnst dags-
ins sem múrinn í Berlín var reist-
ur, og þá sögðu margir að múrinn
væri af hinu illa og þyrfti að
hverfa sem fyrst.
Þessu er ég ekki sammála. Ég
tel að best sé að hafa Þjóðverja
aðskilda í tveimur ríkjum eða
fleiri, og það finnst mörgum öðr-
um sem muna eftir seinni
heimsstyrjöldinni. Ég var þá í
Danmörku og man þegar her-
mennirnir voru að eltast við and-
spyrnumenn, og ég sá úr húsi
mínu einn skotbardagann. Mér
finnst að menn eigi að muna eftir
þessu þegar talað er um að Ber-
línarmúrinn eigi að hverfa.
Súsanna
KALLI OG KOBBI
Mamma vill ekki leyfa okkur
með á bíó svo við verðum
víst að sjá um okkur sjálfir.
jjGetumvið' Það sem
l horft á foreldrarnir vita
sjónyarpið?\ ekkl skaðar
Við skulum setjast inn í
bílinn hennar mömmu
þegar þau eru farin á bílnum stelpa að
bans pabba og læra að keyra. koma upp
£s^\ I Váá- Ég má\ | I
' V » þá ýta á flautuna.
16* ^ ^ "...'
Heyrðu þaði Barnapíann |
| er unglings okkar? Hvað er
hún að gera hér?
Treysta pabbi og
stíginn. Nei.í mamma okkur
Það er _ /vekki? Felum
Rósalind.
okkur strax.
i
GARPURINN
FOLDA
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöld-
varsla lyfjabúöa vikuna
30. okt.-5. nóv. 1987 er í Borg-
ar Apóteki og Reykjavíkur Ap-
óteki.
Fyrrnef nda apótekiö er opiö
um helgar og annast nætur-
vörslu alla daga 22-9 (tiM 0
frídaga). Siöarnefnda apó-
tekiö er opiö á kvöldin 18-22
virka daga og á laugardögum
9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík.....sími 1 11 66
Kópavogur......sími4 12 00
Seltj.nes.....sími61 11 66
Hafnarfj......sími 5 11 66
Garðabær......sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík.....sími 1 11 00
Kópavogur.....sími 1 11 00
Seltj.nes......símil 11 00
Hafnarfj......sími 5 11 00
Garðabær......simi 5 11 00
Heimsóknartlmar: Landspft-
alinn: alla daga 15-16,19-20.
Borgarspítalinn: virka daga
18.30-19.30, helgar 15-18, og
eftírsamkomulagi. Fæöing-
ardeild Landspítalans: 15-
16. Feðratími 19.30-20.30.
Öldrunarlækningadelld
Landspítalans Hátúni 10 B:
Alla daga 14-20 og eftir
samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala:virkadaga 16-
19.30 helgar 14-19.30 Heilsu-
vemdarstöðin við Baróns-
stig: opin alla daga 15-16 og
18.30- 19.30. Landakots-
spítall: alla daga 15-16 og
18.30- 19.00 Barnadeild
Landakotsspítala: 16.00-
17.00. St. Jósefsspftali
Hafnarfirði: alladaga 15-16
og 19-19.30 Kleppsspítal-
lnn:alladaga 18.30-19og
18.30- 19 Sjúkrahúsið Ak-
ureyri: alla daga 15-16 og 19-
19.30. Sjúkrahúsið
Vestmannaeyjum: alla daga
15-16 og 19-19.30. Sjúkra-
hús Akraness: alla daga
15.30- 16og 19-19.30.
Sjúkrahúsið Húsavfk: 15-16
og 19.30-20.
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykja-
vfk, Seltjarnarnes og
Kópavog er í Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur alla
virkadaga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum
og helgidögum allan sólar-
hringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingarog tíma-
pantanir í sima 21230. Upp-
lýsingar um lækna og lyfja-
þjónustu eru gefnar [ sim-
svara 18885.
Borgarspftalinn: Vakt virka
daga kl. 8-17 og fyrir þá sem
ekki hafa heimilislækni eða
ná ekki til hans. Slysadeild
Borgarspítalans opin allan
sólarhringinn sími 696600.
Dagvakt. Upplýsingarumda-
gvakt lækna s. 51100. Næt-
urvakt lækna s. 51100.
Hafnarfjörður: Heilsugæsla.
Upplýsingar um dagvakt
lækna s. 53722. Næturvakt
læknas. 51100.
Garðabær: Heilsugæslan
Garðaflöts. 656066, upplýs-
ingar um vaktlækna s. 51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á
Læknamiðstöðinni s. 23222,
hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá
Akureyrarapóteki s. 22445.
Keflavfk: Dagvakt. Upplýs-
ingar s. 3360. Vestmanna-
eyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
ÝMISLEGT
Bilananavakt rafmagns- og
hltaveitu: s. 27311. Raf-
magnsveita bilanavakt s.
686230.
Hjálparstöð RKI, neyðarat-
hvarf fyrir unglinga Tjarnar-
götu 35. Sími: 622266 opið
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin
Ráðgjöf í sálfræðilegum efn-
um.Sími 687075.
MS-fólagið
Álandi 13. Opið virka daga frá
kl. 10-14. Sími 688800.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarp-
anum Vesturgötu 3. Opin
þriðjudagakl.20-22, sími
21500, símsvari. Sjálfshjálp-
arhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum, s.
21500,símsvari.
Upplýsingarum
ónæmlstærlngu
Upplýsingar um ónæmistær-
ingu (alnæmi) í síma 622280,
milliliðalaust samband við
lækni.
Frá samtökum um kvenna-
athvarf, sfml 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir kon-
ur sem beittar hafa verið of-
beldi eðaorðið fyrirnauðgun.
Samtökin ’78
Svarað er i upplýsinga- og
ráðgjafarsima Samtakanna
78 félags lesbía og homma á
Islandi á mánudags- og
fimmtudagskvöldum kl. 21 -
23. Simsvari á öðrum timum.
Síminner 91-28539.
Félageldriborgara: Skrif-
stofan Nóatúni 17, s. 28812.
Félagsmiðstöðin Goöheimar
Sigtúni 3, s. 24822.
GENGIÐ
3. nóvember
1987 kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar 37,620
Sterlingspund .... 65,438
Kanadadollar.... 28,599
Dönsk króna..... 5,6925
Norskkróna...... 5,7935
Sænsk króna..... 6,1250
Finnsktmark..... 8,9401
Franskurfranki.... 6,4745
Belgískurfranki... 1,0501
Svissn. franki.. 26,5960
Holl.gyllini.... 19,5454
V.-þýsktmark.... 21,9936
Ítölsklíra..... 0,02978
Austurr.sch..... 3,1226
Portúg. escudo... 0,2716
Spánskurpeseti 0,3288
Japansktyen..... 0,27530
Irsktpund....... 58,443
SDR............... 50,1696
ECU-evr.mynt... 45,3246
Belgiskurfr.fin. 1,0454
KROSSGÁTAN
Lárétt: 1 kjána 4 máltið 6
erlendir 7 uppstökk 9 yfir-
höfn 12 ánægja 14 sjó 15
úrskurð 16greftri 19 rækta
20skapvond21 ávöxtur
Lóðrétt: 2 ullarílát 3 sessu
4 dvöl 5lélegur7aum8
gleði10sprottinn11
óhreint 13 eira 17 kveikur
18ferð
Lausn a sfðustu
krossgátu
Lárétt: 1 spil4skek6eik7
fast 9 ofar 12 pilti 14 aur 15
roð 16 alger 19 móki 20
fang21 angan
Lóðrétt: 2 púa 3 leti 4 skot
5 eða 7 flaums 8 spraka 10
firran 11 ráðugi 13 lög 17 lin
18efa
Miðvikudagur 4. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 13