Þjóðviljinn - 04.11.1987, Qupperneq 15
V-Pýskaland
Stein tii
Frankfurt
Uli Stein, sem var rekinn frá
Hamburg í síðasta mánuði hefur
nú verið seldur til Frankfurt.
Stein var rekinn frá félaginu
fyrir að slá Júrgen Wegmann í
leik Hamburg gegn Bayern
Múnchen. Hann hefur þótt frek-
ar erfiður í skapinu og var vikið
úr v-þýska landsliðshópnum fyrir
að gagnrýna Franz Beckenbauer
landsliðseinvald.
Fyrsti leikur Stein verður á
laugardag, en þá mætir Frankfurt
Schalke. -fbe
Karate
Landskeppni
um helgina
Um næstu helgi munu íslend-
ingar hcyja landskeppni við lið
frá Skotlandi og N-írlandi í kar-
ate. Keppt verður í sveitakeppni
og í opnum flokkum einstaklinga.
Skotar eru mjög sterkir og hafa
oft náð langt á Evrópumótum. N-
írar standa einnig framarlega í
þessari íþrótt.
Það má þó búast við jafnri og
spennandi keppni því íslenskt
karatefólk heftir náð mjög góð-
um árangri að undanförnu á er-
lendum mótum.
Keppt verður í Laugardalshöll
á laugardag. Einstaklingskeppni
er milli 14 og 16 og sveitakeppni
frá 19-21.
V-Þýskaland
Madjer
til
Bayem
Bayern Múnchen keypti í gær
landsliðsmanninn frá Alsír, Ra-
dah Madjer, frá Evrópumeistur-
unum, Porto.
Madjer kemur ekki til með að
leika með Bayern fyrr en 1. júli,
en samningurinn gildir til þriggja
ára.
Madjer var skærasta stjarna
Porto í úrslitaleiknum gegn Bay-
ern og hefur verið einn marka-
hæsti maður Porto. Hann er ann-
ar af stórstjömum Porto sem er
seldur. Hinn var Paulo Futre, en
hann var seldur til Atletico Ma-
drid á Spáni.
Eftir að hafa gengið frá samn-
ingum við Madjer, héldu for-
ráðamenn Bayern til Spánar og
ræddu þar við Mark Hughes, en
Bayern vill fá hann lánaðan. Þar
slitnaði uppúr samningavið-
ræðum, en forráðamenn Bayern
eru bjartsýnir á að hann leiki með
þeim fljótlega. -Ibe/Reuter
IÞROTTIR
Héðlnn Gilsson hefur leikið vel í vetur og hér skorar hann gegn Stjörnunni. FH tekur á móti Breiðabliki í kvöld, en
Stjarnan mætir KR.
Handbolti
Hörkuleikir í kvöld
Víkingar mæta Valsmönnum og Breiðblik leikur gegn FH
í kvöld eru þýðingarmiklir
leikir í 1. deild karla ■ handknatt-
leik. Stórliðin í 1. deild, Valur,
Víkingur, Breiðablik og FH leika
öll sín á milli, en einnig eru mikil-
vægir leikir í botnbaráttunni.
Éfsta lið 1. deildar, FH, mætir
Breiðbliki í íþróttahúsinu í Hafn-
arfirði. FH-ingar hafa leikið
mjög vel, en náðu aðeins jafntefli
gegn KA um helgina. Blikarnir
virðast hinsvegar vera að komast
á skrið og unnu sannfærandi sigur
yfir Víkingum í síðasta leik.
Annar stórleikur kvöldsins er
leikur Víkings gegn Val. Leikir
þessara liða eru ávallt mjög
spennandi. Valsmenn standa
mun betur að vígi, hafa aðeins
gert eitt jafntefli, en Víkingar
hafa tapað tveimur leikjum.
Stjarnan mætir KR í Laugar-
dalshöll. Þessi leikur er mikilvæg-
ur fyrir bæði liðin. Stjarnan verð-
ur að sigra ef liðið ætlar að blanda
sér í toppbaráttunu og KR-ingar
þurfa nauðsynlega að fá stig,
enda staða þeirra frekar slæm.
ÍR-ingar taka á móti Frömur-
um í Seljaskóla. ÍR-ingar hafa
komið einna mest á óvart í fyrstu
leikjum mótsins og fengið fimm
stig úr síðustu fjórum leikjum.
Framarar urðu hinsvegar fyrir því
að missa lykilmenn í upphafi
mótsins, en þeir eru nú komnir í
liðið aftur. Leikurinn ætti þó að
vera spennandi, enda hafa ÍR-
ingar sýnt að þeir eiga fullt erindi
í 1. deild.
Loks er það nágrannaleikurinn
á Akureyri Þór-KA. Þórsarar
hafa enn ekki fengið stig, en hafa
ekki verið langt frá því. KA náði
sínu þriðja stigi um helgina með
jafntefli gegn FH og þarf að sigra
Þór til að komast af versta
skjálftasvæðinu.
Allir leikirnir hefjast kl. 20.15,
nema leikur Þórs og KA sem
hefst kl. 20 og leikur Víkings og
Vals sem hefst kl. 21.30.
31 mark í leik
FH-ingar hafa skorað flest
mörk deildarinnar. í sex leikjum
hafa þeir skorað 186 mörk, eða
að meðaltali 31 mark í leik. FH-
ingar hafa einnig hagstæðustu
markatöluna, 56 mörk í plús.
Það er hinsvegar KA sem hefur
skorað fæst mörk, aðeins 118.
Það gerir tæp 20 mörk að meðalt-
ali. Breiðablik hefur aðeins
skorað 122 mörk og það gerir
rúm 20 mörk að meðaltali.
Valsmenn státa líklega af
sterkustu vörninni, a.m.k. ef litið
er á mörkin. Þeir hafa aðeins
fengið á sig 90 mörk í 6 leikjum.
Aldrei fleiri en 20 mörk í leik og
að meðaltali 15 mörk í leik.
Þórsarar hafa fengið á sig flest
mörk, 161, að meðaltali tæplega
27 mörk í leik. Framarar koma
næstir. þeir hafa fengið á sig 157
mörk, að meðalatali 26 mörk í
leik.
Það eru Valsmenn sem hafa
náð bestum árangri á heimavelli,
sigrað í öllum fjórum leikjum sín-
um. FH-ingar hafa leikið þrjá
leiki á heimavelli og sigrað í
öllum.
Stjarnan hefur náð besta ár-
angri á útivelli, sigrað í öllum
þremur leikjum sínum á útivelli,
en ekki enn sigrað á heimavelli.
-Jbe
England
Arsenal
á toppinn
Arsenal komst á topp 1.
deildarinnar í Englandi í gær með
sigri yfir Chelsea, 3-1.
Arsenal hafði mikla yfirburði
gegn Chelsea og sigurinn var ör-
uggur. Kevin Richardson skoraði
tvö mörk í fyrri hálfleik, en
skoski landsliðsmaðurinn Pat
Nevin minnkaði muninn fyrir
Chelsea.
Það var svo sjálfsmark sem
gulltryggði sigur Arsenal. Joe
McLaughlin skoraði í eigið mark,
í síðari hálfleik.
Arsenal er því í efsta sæti, hef-
ur hlotið einu stigi fleira en Li-
verpool, en þeir eiga leik á morg-
un gegn Wimbledon.
Einn leikur var í deildarbikarn-
um. Watford sigraði Swindon, 4-
2 og mætir því Manchester City á
útivelli í 4. umferð.
Þá var einnig leikið í 2. deild:
Birmingham-Barnsley.........2-0
Crystal Palace-Plymouth.....5-1
Hull-Bradford...............0-0
Ipswich-Huddersfield........3-0
Millwall-Bournemouth........1-2
Shrewsbury-Aston Villa......1-2
-Ibe/Reuter
Evrópukeppni
Werder Bremen
komst áfram
Werder Bremen frá V-
Þýskalandi tryggði sér sæti í 3.
umferð í UEFA-bikarnum með
sigri yfír Sparta Moskvu frá So-
vétríkjunum, 6-2, eftir fram-
lengdan leik.
Sparta sigraði í fyrri leiknum,
4-1, en Werder Bremen tókst að
vinna upp forskotið. í hálfleik var
staðan 3-0 og eftir venjulegan
leiktíma, 4-1.
Neubarth skoraði tvö marka
Bremen og þeir Ordenewitz, Sa-
uer, Riedle og Burgsmuller eitt
hver. Cherenkov og Passulko
skoruðu mörk Sparta.
-Ibe/Reuter
Knattspyrna
Sigurður til IA
Feðgarnir Hörður Helgason og
Sigurður Már Harðarson hafa
farið hvor í sína áttina. Hörður
Helgason þjálfar Val, en Sigurð-
ur hefur nú skipt yfir í ÍA.
Þeir feðgar eru af Skaganum
og Hörður þjálfaði ÍA í fyrra.
Þeir fóru svo báðir til KA í
sumar, en nú er Hörður farinn til
Valsmanna, en Sigurður kominn
heim aftur.
Þá hafa Skgamenn einnig feng-
ið Gunnar Jónsson aftur, en hann
hefur leikið með Skallagrími
undanfarin ár. Gunnar lék með
ÍA eitt keppnistímabil fyrir
nokkrum árum og var þá einn af
markahæstu leikmönnum liðsins.
Belgía
11.vika > * =
5T5 q p q cr m co cn
Charlton-Norwich................................2 x 2 2 1 x 2 2 x
Luton-Newcastle.................................1 1 1x1x221
Wimbledon-Southampton...........................x 111111x2
Barnsley-Bradford...............................1 1x2211x2
Blackbum-Oldham.................................2 2 1 x 1 1 1 1 x
Bournemouth-Crystal Palace......................1 x 2 1 x 1 1 2 x
Hull-Birmingham.................................1 111111x1
Ipswich-Reading.................................111111111
Leeds-Shrewsbury................................1 1 1 1 1 1 1 1 1
Leicester-Swindon...............................x 111x1111
Sheff.Utd.-Middlesbro...........................2 x 1 x 2 1 2 1 1
Stoke-W.B.A.....................................x 112x2111
Úrslit voru óvænt í síðustu viku og enginn var með 12 né 11 rétta. Sjö raðir
komu fram meö 10 rétta og gaf hver kr. 33.174. Tvær af þessum sjö röðum átti
Guðni Guðnason rektor I Menntaskólanum í Reykjavík. Hann tippaði I þættinum
„1X2" á Stöð tvö og var með tíu rétta á tveimur röðum.
„Ef þetta fer í hart
þá fer ég heim“
segir Arnór Guðjohnsen. „Heffengið migfullsaddan
<(
,JÉg er búinn að fá mig
fullsaddan á þessu og mælirinn er
löngu fullur,“ sagði Arnór Guðj-
ohnsen í samtali við Þjóðviljann.
Arnór hefur átt í deildum við
þjálfara Andcrlecht, Georges
Leekens. Ekki sér fyrir endann á
þeim viðskiptum, en Arnór er í
hópnum fyrir leik Anderlecht
gegn Sparta Prag í kvöld í Evr-
ópukeppni meistaraliða.
„Þeir hringdu í mig og sögðu
mér að mæta. Það kom mér mjög
á óvart þvi ég átti alls ekki von á
að vera í hópnum. „Það eru tak-
mörk fyrir því hvað maður lætur
bjóða sér. Þessi þjálfari hefur
verið á bakinu á mér frá því ég
byrjaði og sektað mig í tíma og
ótíma. Hann er búinn að hring-
sóla með mig útum allan völl og í
þeim leikjum þar sem mér hefur
gengið vel hefur hann tekið mig
útaf.“
Arnór var ekki að spara stóru
orðin í samtölum sínum við belg-
ísk blöð og það fór fyrir brjóstið á
forráðamönnum Anderlecht.
„Þetta var eins og við var að-bú-
ast. Ég fæ mjög háa sekt og verð
að æfa með varaliðinu í einhvern
tíma. Það skýrist fljótlega.
Þetta hefur verið í gangi mjög
lengi og ég er ekki búinn að segja
mitt síðasta orð. Það er óþolandi
að geta ekki einbeitt sér að
leiknum og þurfa alltaf að hafa
áhyggjur af þjálfaranum. Ef
þetta gengur svona áfram þá er ég
farinn. Það er á hreinu.“
-Ibe
\
Miðvlkudagur 4. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15