Þjóðviljinn - 08.11.1987, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 08.11.1987, Blaðsíða 9
samherjar hans stundum eins og tvískiptir í sínum málflutningi. Þess vegna viðurkennir hann,að enginn hafi einkarétt á sannleikanum (og er það góðs viti). Og um leið treystir hann því að einnig þetta „hálfa skref“, sem áðan var minnst á, dugi til rót- tækra breytinga, enda hafi „só:- íalisminn sem samfélagskerfi sý: fram á að hann ráði yfir miklu '- möguleikum til að leysa i, flóknustu vandamál félagsleg:.: framfara" að því er hann segir . bók sinni. OKTÓBERBYLTINGIN 70 ÁRA Stalín (fyrir miðju) á grafhýsi Lenins 7. nóvember 1952: talað er um Ijós og skugga í sögunni án þess að mál séu brotin til mergjar. (Gorbatsjov) í sögu Sovétríkj- anna eða gera heildarúttekt á niðurstöðum samfélagsþróunar í landinu. Þeir eru stöðugt í sveiflu á milli þess að viðurkenna að sov- éskt þjóðfélag eigi við alvarleg vandamál að stríða sem eru þess eigin, fædd af sjálfri samfélags- gerðinni, og þeirrar pólitísku nauðsynjar að halda því til streitu, að hið sovéska þjóðfélag beri af öðrum, þrátt fyrir allt. Til dæmis segir margnefndur Písarevskí: „Sósíalisminn er ekki Paradís á jörðu... Engu að síður er sósfalisminn hið réttlátasta af öllum kerfum að mínu mati“. Með þeirri staðhæfingu er tal- að um Sovétríkin ein en aðrir til- burðir til sósíalisma látnir liggja milli hluta. Og röksemdirnar fyrir ágæti kerfisins eru þessar hér: „Hvergi er maðurinn eins verndaður og í hinu sovéska kerfi. Fjölmargar kynslóðir sov- éskra þegna þekkja ekki til atvinnuleysis, arðráns, átaka milli ríkra og fátækra, þekkja ekki þær aðstæður þar sem for- réttindastétt ræður lögum og lofum, þar sem eignarétturinn ríkir og fjölskylduböndin". Þarna mætti vel tala um þá „sjálfshælni“ sem áður var varað við. Til dæmis að taka hljóta menn að spyrja að því, hvort al- þýðan sé fullsæl yfir því að vera laus við forréttindastétt auðsins og einkaeignarréttarins ef hún fær yfir sig í staðinn forréttinda- hópa valdsins og lokaðs afnota- réttar af ýmsum lífsgæðum. Slík spurning á þeim mun frekar rétt á sér sem Gorbatsjov sjálfur hefur óspart skotið á hinar dáðlausu sovésku stjórnsýslustéttir, sem hugsi ekki um annað en slá skjaldborg um fríðindi sín. Og Gorbatsjov sjálfur á það til að minna á það að jafnvel svo já- kvæður hlutur sem félagslegt ör- yggi ( meira að segja stærsta tromp sovétkerfisins, atvinnuör- yggið) sé ekki einhlítt : það leiði hjá ýmsum til leti og ómennsku og sníkjulífs. Lífsnauðsyn breytinga En hvað um það. Hvað sem líður heildarmati á hinni sovésku tilraun er það viðurkennt í há- tíðaræðum og greinum, að mikil þörf sé á perestrojku, á þeirri „endurskipulagningu", á að „koma á lýðræði í lífi og starfi". Það sé lífsnauðsyn. Án þess verði engar framfarir. Og verkefnið er talið svo stórt og mikið að því er helst líkt við byltingu, þó ekki sjálfa Októberbyltinguna. Gor- batsjov segir í bók sinni um per- estrojkuna, sem senn kemur út á íslensku, að Lenín hafi bent á að til að fylgja eftir árangri borgara- byltingarinnar miklu í Frakklandi 1789 hafi þurft tvær í viðbót - byltingarnar 1830 og 1848 - og því skyldum við þá ekki þurfa okkar framhaldsbyltingu? Það er einmitt þegar Gorbat- sjov telur upp ástæður þess að perestrojka hans sé nauðsynleg að hann gengur lengst í að ala á efasemdum um að Sovétríkin séu, þrátt fyrir allt, hinn besti hugsanlegi heimur allra heima. Hann telur í fyrrnefndri bók sinni atriði á borð við þessi hér: Á und- anförnum fimmtán árum hefur hagvöxtur dregist saman um helming og nálgaðist á síð- astliðnum árum núllið. Mein- semdir í áætlanabúskap og stjórnsýsiu sáu til þess að meiru var sóað af orku og hráefnum við framleiðslu vöru en í öðrum iðn- ríkjum. Sóun og ábyrgðarleysi leiddu til mikils vöruskorts. Djúp Gorbatsjov með ungum verkakonum: Nú er að duga eða drepast. var staðfest milli orða og gjörða svo enginn trúði lengur því sem ráðamenn sögðu. Um leið og mikil siðferðileg hnignun breiddi úr sér, neituðu þeir sem með völd fóru að horfast í augu við ótal félagsleg vandamál. Til hálfs Þessir hlutir allir eru ræddir af miklum tilþrifum í sovéskum blöðum nú á síðustu misserum glasnost, opnari umræðu. Þeir eru ræddir, menn láta í ljós reiði, hneykslan eða gremju. En rétt eins og þegar komið er að erfið- um staðreyndum í sögunni (Stal- ín, hreinsanirnar o.fl.) þá er skrefið stigið til hálfs. Vandamál- in eru nefnd, það er rætt um hugs- anlegar leiðir til að bæta úr, en málin eru ekki krufin til mergjar. Það er - rétt eins og á dögum Khrúsjovs - látið undir höfuð leggjast að spyrja djarfra spurn- inga um þær kerfisbundu mein- semdir sem hafa riðið harðan vandamálahnút að því þjóðfé- lagi, sem helst vill ekki afsala sér fyrra tilkalli til að vera sjálfur tindur mannkynsögunnar, bað- aður í morgunljóma vonarinnar. Þess vegna eru Gorbatsjov og Sunnudagur 8. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.