Þjóðviljinn - 08.11.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 08.11.1987, Blaðsíða 15
Good to be back in HRÚTAFJÖRÐUR Stundum sit ég einn við gluggann minn og stari út í amerískan raunveruleika sem rennurviðstöðulaustniður breiðgötuna framhjá íbúðinni okkar. Og stundum ber það við að hann rigni ofan í þessa mynd og einnig stundum bregður því við að í stökum dropa opnist mér aðrir heimar. í þetta sinn er það Hrútafjörður, sá gamli gráni, sem birtist mér að óvörum í frekar litlum dropa sem fellur síðan á gult leigubílshúdd og brunar burt, eitthvað niður í bæ. Hrútafjörður, ég endur- tek, Hrútafjörðuropnast mér ofan af hálfnaðri Holtavörðu- heiði, liggurþarmarflaturen þó ekki sléttbakur því að sögn fróðra manna hefur öldur ekki lægt í þessum firði nú í hartnær hundrað ár, eða frá því hann lagði endilangan snemmsumars 1883. Hrútafj- örður setur einatt að mönnum einkennilegan hroll þá er þeir dýfaframljósum bifreiða sinna niður í áhrifasvæði hans, í dimmu eða björtu. Skýringar á þessu fyrirbæri eru því miðurfáar endatelst þessi landshluti ekki með neinum fáanlegum veður- spám þar sem hann tilheyrir hvorki Norður- né Suðurlandi, hvað þá Vesturlandi og eng- um ætla ég þá bíræfni að telja Hrútafjörð meðal Austfjarða. Nei, hann má bíta í það veður- farslega kalda epli að vera einstakur og sér á meðal nafna sinna íslenskra og dúsa dulúðugur í innsta horni Húnaflóa, annálaðurfyrir strjálbýli sittog atburðaleysi, fræguraðeins sem „áningar- staðuríalfaraleið." Inn eftir hrollköldum Hrúta- firði eltir pólkaldur hafsynningur hvítflygsandi öldur og veltir þeim fram yfir sig, hverri á fætur ann- arri þannig að hið svo til lárétta sjávarborð verður skáröndótt, grænslagsgrátt og hvítt, í fullu samræmi við hinar lágværu hlíðar sem sín hvoru megin lulla upp frá því og inn í landið, röndóttar af hreytingssköflum sem hannaðir voru af sama höfundi nokkrum nóttum áður. í gegnum snjórend- urnar silast svitablautur þjóðveg- urinn frá mótum sínum í botni og annarsvegar út Strandir vestan megin, en hinsvegar norður í Skagafjörð austan megin. Engir bflar eru hinsvegar sjáanlegir, umferð ekki teljandi og annað vélrænt lífsmark ekki merkjan- legt, utan tveggja ókennilegra fugla sem láta berast fyrir áður- nefndum norðanvindi inn fjörð- inn og eru senn á móts við „Borð- eyrarfeysknu bryggjupolla”. Við sjáum brátt að hér er um tvo hrafna að ræða. Eins og menn vita flýgur tím- inn hratt en hrafninn mun hægar. Fyrir svörtum fjöðrum bifast hann þungum vængjatökum um hinar hraðfleygu stundir og endar jafnan á því að dragast aftur úr þessum mikla og framskreiða gangi tímans. Einmitt þetta gerir þá svo biksvarta á litinn, þegar við nútímamennirnir erum að búa okkur undir aldamótin næstkomandi flögra hrafnarnir enn í svartri fomeskju. Að þessu sinni eru þessir tveir Hrútafjarð- arhrafnar staddir á árinu 1919. Þá ber hægt inn að hinni lág- reistu eyri þar sem menn forðum fundu þau borð og annan rekinn við sem nægði þeim í þann húsa- kost sem þá nægði Borðeyring- um. Og krumma tvo ber enn krúnklaust niður að einu þessara fyrrastríðs-húsa þar sem þeir tylla sér þreyttir á bárujárnsmæni fyrir miðju þaki. Það heyrist niður í kvistherbergið undir þeim þegar þeir læsa beittum klóm sínum um járnið og það heyrir einmitt vel sá er þar situr á volgum rúmstokki en hallar sér þó brátt upp að hinu sjórekna þili og dæsir létt á þann hátt er tíðkaðist á fyrstu árum aldarinnar. Hér er enginn annar en Þórbergur Þórðarson sem tekið hefur hús hjá þorpsbúum eina nótt á hinni frægu ferð sinni um Strandir og suður heiðar. Hár hans er úfið af andríki og flækist rautt upp þilið en svipur hans er svipur ástar-aulans sem nývakn- aður er eftir fyrstu nóttina eftir framhjáhaldið mikla. Framhjá- hald margra andans höfðingja og djúpra listamanna sem er allt annað en hið venjulega og borg- aralega framhjáhald dauðlegra manna, nefnilega það þegar þeir ganga framhjá sinni stóru ást af einhvers konar óskiljanlegu blandi af fórn og aumingjaskap. Sérhvert listaverk sem er annað og meira en olía á striga er í raun dæmi um þess háttar andlegt framhjáhald. En það er skiljan- lega langt frá því að ungur og morgunfölur Þórbergur átti sig á þessu síðari tíma samhengi þar sem hann teygir sig eftir rakhníf sínum og dýfir honum í heitt vatn þvottaskálarinnar sem stelpan kom með upp til hans áðan, allt önnur stelpa. Hann lítur í spegil- inn og mundar hnífinn að hálsi sínum. En við skulum ekki dvelja of lengi í hinum flókna huga Þór- bergs Þórðarsonar, til þess erum við of léttmæt, en hverfum þess í stað í fylgd hrafnaflókanna sem nú blaka sér af mæni gamla gisti- hússins á Borðeyri og í áttina að öðrum og sósulitari skála innar í firðinum. Og einmitt þar kuðlast nú fyrir köldum vindum ársins 1987, blautir Shellfánarnir, beingulir og moldrauðir Shellfánarnir við Staðarskála. Það hriktir í stöng- um þeirra og stögum, en enginn heyrir það því enginn er hér úti við, nema jú, þarna kemur mað- ur út, enginn annar en Þórbergur Þórarinsson, sem er allt annar Þórbergur, og ekur Siglufjarðar- leið með búslóðir og ávexti. Full- ur af innanvolgri hamborgara- þembu gengur hann fýrir suður- gafl Staðarskála þar sem er að finna eina skjólið í öllum Hrúta- firði. Og þó furðulegt megi virð- ast stansar hann augnablik og finnur á sér fjarlæg skilaboð. Hann leggur vinstri vanga sinn þétt upp að veggnum og finnur í gegnum hann heitan ylinn frá sænskum hitavatnslögnunum. Við því brosir hann létt og túlkar þannig tilfinningu mína, manns sem situr við kaldan glugga í New York og hugsar heim til lands síns, íslands. í volgum vanga vörubflstjórans þéttum að suður- gafli Staðarskála í Hrútafirði. Eins og áður segir fellur hinn smái dropi á gult leigubflshúddið og brunar síðan eitthvað niður í bæ. 28. okt. ’87 New York City Hallgrímur Helgason Sunnudagur 8. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.