Þjóðviljinn - 08.11.1987, Side 16
Samkeppni um gerð
umhverfis-listaverks á
torgi við Borgarleikhús
Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar minnir
á að skila ber tillögum í samkeppninni til trúnað-
armanns dómnefndar, Ólafs Jenssonar, Bygg-
ingaþjónustunni, Hallveigarstíg 1, í síðasta lagi
mánudaginn 16. nóv. n.k. ki. 18.00.
Allar nánari upplýsingar veitir trúnaðarmaður í
síma 29266.
Hjúkrunar-
fræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu-
gæslustöðvum eru lausartil umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð-
ina í Ólafsvík.
2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð-
ina á Þingeyri.
3. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina í Reykjahlíð, Mývatnssveit.
4. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavík.
5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
á Skagaströnd.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu, laugavegi 116, 150
Reykjavík.
Heilbrgiðis- og tryggingamálaráðuneytið
3. nóvember 1987
SVÆÐISSTJÓRN
MÁLEFNA
FATLAÐRA
AUSTURLANDI
STÓLPI - verndaður
vinnustaður
Egilsstöðum
Staða forstöðumanns við vinnustaðinn Stólpa er
laus til umsóknar. Áhersla er lögð á að umsækj-
andi hafi áhuga á að starfa eða hafi starfað með
andlega og líkamlega fötluðu fólki og hafi reynslu
á sviði verkstjórnunar. Ráðningartími er sem fyrst
eða eftir samkomulagi. Umsóknir ásamt upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf skulu sendar
Svæðisstjórn Austurlands, Kaupvangi 6,700 Eg-
ilsstöðum fyrir 17. nóvember n.k. Nánari upplýs-
ingar um starfið eru veittar í símum 97-11833 eða
97-11443 alla virka daga kl. 13 til 17.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra Austurlandi
Völvuborg
Völvufelli 7
Völvuborg er lítið notalegt dagheimili vel mannað
fóstrum og öðru góðu starfsfólki. Við viljum ráða
fóstru eða annan uppeldismenntaðan starfs-
mann á deild yngstu barnanna nú þegar eða um
áramót.
Upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 73040.
Arnór Guðjohnsen er orðinn vanur því að á ýmsu gangi í atvinnumennskunni.
Atökin
utan vallar
Það er merkilegt hvað
atvinnumennirnir okkar í
knattspyrnu hafa verið mikið í
fréttum að undanförnu, fyrir
flest annað en að leika knatt-
spyrnu! Ásgeir Sigurvinsson í
sífelldum meiðslum hjá Stutt-
gart, Sigurður Jónsson íbasli
hjá Sheffield Wednesday, Atli
Eðvaldsson á varamanna-
bekknum hjá Uerdingen, Lár-
us Guðmundsson uppá kant
við Kaiserslautern-og nú
síðast Arnór Guðjohnsen í erj-
um við þjálfara og stjórn
Anderlecht.
Þessi mótbyr sem íslending-
arnir eiga við að stríða sýnir
kannski best hvað atvinnu-
mennskan hefur margvíslegar
hliðar, ekki síst þegar dæmið
gengur ekki upp inni á vellinum.
Þetta er harður heimur þar sem
lögmál frumskógarins gilda. Eng-
in elsku mamma, allir verða að
bjarga sér eins og þeir best geta.
Arnór Guðjohnsen hefur kann-
ski manna best fengið að að
kynnast því á tæpum tíu árum
sem leikmaður í Belgíu - hann
hefur leikið eins og engill sum
keppnistímabilin, önnur hafa far-
ið meira og minna forgörðum
vegna meiðsla eða annarra erfið-
leika.
Það þurfti ekki að koma á óvart
að uppúr syði hjá Anderlecht og
það er kannski meira tilviljun en
hitt að einmitt Arnór skuíi hafa
lent í hringiðunni þegar spreng-
ingin varð. Anderlecht er stærsta
og ríkasta félag Belgíu og á því
hvílir sú kvöð að það á alltaf að
vera á toppnum, alltaf að vinna
meistaratitil. Þegar dæmið
gengur ekki upp er þessvegna
hættara við látum og árekstrum
en hjá öðrum félögum, í þeim
herbúðum þykir ekki nógu gott
að vera númer tvö eða þrjú. Arn-
ór hefur ekki verið sáttur við nýja
þjálfarann, Georges Leekens,
enda tók hann við af geysilega'
vinsælum fyrirrennara, Hollend-
ingnum Ari Haan. Sá hætti í
fyrravor þegar stjórn Anderlecht
neitaði að kaupa snjalla leik-
menn til að styrkja liðið fyrir
þennan vetur og það var erfiður
biti fyrir marga að kyngja að
hann skyldi ekki stjóma Ander-
lecht áfram á þessum vetri. En
Arnór hljóp greinilega á sig þegar
hann sendi Leekens tóninn og fór
heim eftir að hafa verið settur á
varamannabekkinn um síðustu
helgi. Einhverjar sættir virðast
hafa tekist og vonandi getur Arn-
ór farið að einbeita sér óáreittur
að lifibrauðinu, sjálfri knatt-
spymunni.
Sigrar íslensku liðanna, Vík-
ings og Stjörnunnar, í Evrópu-
leikjunum um síðustu helgi voru í
naumasta lagi og tvísýnt um hjá
báðum hvort þau nái að komast í
8-liða úrslitin. Stjarnan stendur
sýnu tæpar, vann norska liðið
Urædd með aðeins einu marki og
á erfiðan útileik fyrir höndum.
Urædd er sterkt lið en sennilega
var það reynsluleysið sem varð til
þess að Stjaman vann ekki stærri
sigur. Garðbæingarnir eru með
efnilegt lið en brothætt og þurfa
að ná sínu besta til að slá Norð-
mennina útúr keppninni. Við
verðum að bíta í það súra epli að
þrátt fyrir að landslið Norð-
manna standi því íslenska talsvert
að baki eru bestu félagsliðin í
Noregi jafnokar okkar sterkustu
liða.
Víkingar standa ívið betur eftir
þriggja marka sigur á dönsku
meisturunum Kolding, en þeir
síðarnefndu eru sagðir einstak-
lega erfiðir heim að sækja. Vík-
ingar hafa mikla reynslu úr
Evrópu- og landsleikjum og eru
ágætlega í stakk búnir fyrir þetta
verkefni. Þeir eru líka að missa af
lestinni í 1. deildinni og leggja
væntanlega mikið uppúr því að
ná langt í Evrópukeppninni í
staðinn. VíkingarogStjarnaneru
að verja heiður íslenska hand-
boltans í útileikjum sínum - þau
þurfa að sýna að við eigum sterk
félagslið að baki okkar ágæta
landsliðs - ekki síst eftir sautján
marka ófarir Breiðabliks í Dan-
mörku í 1. umferðinni. Það yrði
sannast sagna talsvert áfall ef
bæði Víkingur og Stjarnan féllu
úr keppni á þessu stigi, sérstak-
lega þar sem þá væru öll þrjú ís-
lensku liðin búin að bíða lægri
hlut gegn Norðurlandaliðum.
Eftir leikina í 1. deildinni á
miðvikudagskvöldið virðist allt
stefna í einvígi FH og Vals um
meistaratitilinn. Víkingareru lík-
lega úr leik eftir tapið gegn Val,
þótt of snemmt sé að afskrifa þá.
FH-ingar virðast aðeins vera að
lækka flugið eftir stórskotahríð-
ina í fyrstu fimm umferðunum og
þeir eiga mikla prófraun fyrir
höndum, leikina.við Val og Vík-
ing í fyrri umferðinni. FH leikur
geysilega skemmtilegan hand-
bolta, en liðið er ungt og tiltölu-
lega reynslulítið og virkilegur
styrkur þess kemur í ljós í þessum
tveimur næstu leikjum.
Velgengni FH hefur heldur
betur kynt undir áhuganum í
handboltabænum Hafnarfirði.
Þar er nú troðfullt hús á hverjum
heimaleik og dæmi um að áhorf-
endur hafi orðið frá að hverfa.
Þetta er jákvæð og skemmtileg
þróun og sýnir svo ekki verður
um villst þann uppgang sem er
hjá liðunum hér heima eftir
daufu árin undanfarið. Það eru
líka farnir að sjást áhorfendur í
Laugardalshöllinni á ný, það er
vonandi liðin tíð sem ekki kemur
aftur að þar mæti 30-40 manns á
1. deildarleiki.
„Spútniklið“ vetrarins virðist
ætla að verða ÍR, nýliðarnir sem
flestir spáðu falli. ÍR-ingar eru
með reynslulítið lið en hjá þeim
eru leikgleðin og baráttan í fyrir-
rúmi og hafa fært þeim sæta sigra
á Fram og KR og sjö stig í
jafnmörgum leikjum. Það er útlit
fyrir að fallbaráttan í vetur verði
tvísýn og spennandi og þar gætu
mörg lið átt eftir að koma við
sögu. Eins og staðan er í dag geta
aðeins FH og Valur litið svo á að
þau komi þar hvergi nærri.
í körfuboltanum er enn erfitt
að ráða í gang mála en miðað við
fyrstu leiki virðist ólíklegt annað
en að íslandsbikarinn haldi kyrru
fyrir á Suðurnesjunum og Njarð-
víkingar fái mestu keppnina frá
nágrönnum sínum í Keflavík.
__ *
IÞROTTASPEGILL
VIÐIR
SIGURÐSSON
16 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. nóvember 1987