Þjóðviljinn - 08.11.1987, Qupperneq 17

Þjóðviljinn - 08.11.1987, Qupperneq 17
UOOVIUINN Þjóðviljinn c/o Skúmaskotið Síðumúla 6 108 Reykjavík JZlLi'rvn JCoJii 0 Við fengum þessa fínu mynd afKalla fílsenda, að vísu sjáum við bara aftan á Kalla, en það er allt í lagi, hann er svo sætursvona. Þaðvar Garðar Sigvaldason sem teiknaði þessa mynd. Skúmaskotið hveturykk- ur enn og aftur enn til að senda inn myndirsem þið teiknið, sögurog allt sem ykkur dettur í hug. Og munið það að fyrir bestu myndina og sög- una fáiðþið verðlaun! AFI kóti OG töfrastafurinn HANS Einu sinni endur fyrir löngu - jæja, reyndarekkifyrirsvo fjarska löngu - bjó gamall maður í þorpi einu, sem nefn- distGlaðheimar. Þessigamli maðurvaralltaf kallaður Afi káti, og hafi hannein- hverntíma heitið eitthvað ann- að, þá mundi enginn það lengur, ekki einu sinni hann sjálfur. Hann var með ákaf- lega sítt, hvítt skegg og bros- glampaíaugum. Afi káti var kannski ekki beinlínis ólíkur öðrum gömlum mönnum þarna í Glaðheimum, nema þá helst fyrir það, að skegg hans var síðara en nokkurs ann- ars og brosglampinn í augum hans bjartari; en hann átti einn þann hlut, sem enginn annar átti í þorpinu - göngustaf, sem var að því leyti merkilegur, að hann var um leið töfrastafur. Á hverjum morgni, þegar Afi káti hafði snætt morgunverðinn sinn, tók hann töfrastafinn sér í hönd, labbaði um götur þorpsins og síðan aftur heim til sín; á hverjum morgni, það er að segja ef ekki rigndi. Og einn morguninn, þegar hann var í þann veginn að leggja af stað í slíka göngu, og stakk höfðinu út um gluggann á húsinu sínu til þess að athuga veðrið - það gerði hann alltaf, áður en hann lagði af stað - féll hver regndropinn af öðrum beint á nefbroddinn á honum. „Hamingjan sanna!“ tautaði Afi káti. „Það er bara komin úr- hellisrigning. Ég er hræddur um að ég verði að láta það bíða, að taka mér morgungöngu. Jæja, jæja, kannski þetta verði ekki nema skúr.“ Og þar sem Afi káti var ákaf- lega iðjusamur maður, ákvað hann að taka sér eitthvað nytsam- legt fyrir hendur á meðan hann biði þess að upp stytti. Hann bjó um rúmið sitt, dustaði rykið af stólsetunum og sópaði gólfið. Af því loknu rak hann höfuðið enn út um gluggann, og enn féllu regndroparnir á nefbroddinn á honum. Jú, það rigndi enn; ekki bar á öðru! Afi káti lokaði glugganum. Það leit ekki út fyrir að stytta myndi upp í dag. Hann settist því í ruggustólinn sinn með skemmti- lega bók í höndum og hagræddi sér sem best hann gat. En þótt bókin væri skemmti- leg, tók Afa káta brátt að syfja. Svo fór hann að dotta og eftir Hvaða tveir músakallar eru alveg eins? Skrýtlur KENNARINN leityfir bekkinn og sagöi: Halli, getur þú sagt mér nafn á borg í Frakklandi? -Já,sjálfsagt,en hverri? HVAÐ finnst þér um nýju íbúðina mína? Hún er innréttuö eftir mínu eigin höföi. - Já, mérfannsthún eitthvað svo tómleg. SVO VAR ÞAÐ Hafnfirð- ingurinnsemhringdií lögreglunaog sagði að það væri búið að stela gírkassanum, hemlun- um.mælaborðinuog öllu úrbílnum hans. Svo hringdihannaftureftir nokkrarmínúturog sagði að það væri allt í lagi, hann hefði sestaft- urí! ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 17 svolitla stund var hann steinsofn- aður og hraut einhver ósköp. En þá gerðist það, að hann hrökk allt í einu upp við það að litla húsið skalf og nötraði á grunni sínum. Afa káta brá svo mjög, að hann stökk á fætur. Hamingjan sanna - hvað hafði eiginlega gerst, spuri hann sjálfan sig. Hann svipaðist um inni, en allt virtist þar með kyrrum kjörum og eins og það hafði alltaf veriö. Hanngekk útaðglugganum. Það rigndi enn, og allt virtist eins og það hafði verið, þegar hann leit út um gluggann fyrir stundar- korni síðan. Þá heyrði hann lágt óp... „Vill ekki einhver hjálpa mér!“ Afi káti leit í stefnu á hljóðið, en sá ekki neitt, enda skyggðu trén í garðinum hans á götuna. Hann brá sér því út og hljóp við fót niður stigann og kærði sig kollóttan um það þó rigndi á ber- an skallann á honum. Þegar hann kom út að hliðinu, gafst honum heldur en ekki á að líta - þarna sat jómfrú Geðgóð úti á miðri götunni. Það var þá síst að undra þótt húsið hristist, hugsaði Afi káti með sér, og nú kom brosglamp- inn aftur í augu hans. Jómfrú Geðgóð var nefnilega allvel í skinn komið, okkará milli sagt. „Nú hefurðu lent í vand- ræðum, heillin mtn,“ sagði Afi káti. „Þú átt við að ég hafi lent í forarpollinum," svaraði jómfrú Geðgóð. „Jú, ég held það svari því. Hjálpaðu mér nú að standa á fætur aftur, gamli minn; það væri reglulegt góðverk." „Reglulegt kraftaverk," varð Afa káta að orði um leið og hann gekk til hennar. „Jú, ekki skal standa á því, jómfrú Geðgóð,“ sagði hann, greip í báðar hendur henni og tók að toga af öllum kröftum - en ekkert gekk. Þeir gátu ekki einu sinni þokað jóm- frú Geðgóð til hliðar, svo kerran kæmist fram hjá henni þaðan af síður að þeim tækist að toga hana á fætur. „Hamingjan hjálpi mér,“ kjökraði jómfrú Geðgóð. „Verð ég þá að sitja til eilífðarnóns niðri í forinni, eins og það er nú líka geðslegt, eða hitt þó heldur!" Þá bar lögregluþjóninn í Glað- heimum að á reiðhjóli sínu. Hann nam þegar staðar, þegar hann sá hvað um var að vera, og kom þeim, Afa káta og Jóni bónda til aðstoðar. Og nú toguðu þeir og Framhald í næsta blaði Strikið með blýanti leiðina sem Kalli kanína á að fara til að komast heim til sín.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.