Þjóðviljinn - 08.11.1987, Síða 23
Hátíða kvöldverður
Eftirréttur
Fiskikæfa
Það er laugardagsmorgunn.
Þú átt von á gestum í kvöld en
hefur enn ekki ákveðið hvað á
að gefa þeim að borða. Það er
ekkert verra til en hugmynda-
leysi. Matarhorn hjálpar
stundarkorn.
Dýrindis fiski paté
(Fiskikæfa)
450grnýr lax
450grnýýsa
1 glas hvítvín
salt og nýmulinn hvítur pipar
2 lítil búnt hrafnaklukka (ef
það finnst ekki má nota
steinselju)
1 perlulaukur
225grmjúktsmjör
2egg
Skerið laxinn hráan í mjóar
ræmur eftir að hafa roðflett hann
og úrbeinað. Setjið á disk með
hvítvíninu og kryddið með salti
og pipar. Látið marinerast í legin-
um í ca. 1 klst.
Á meðan er hægt að nota tím-
ann við að hreinsa grænmetið og
skerastilkanaíburtu. Sjóðið salt-
vatn í potti og látið suðuna koma
upp. Skellið hrafnaklukkunni í
sjóðandi vatnið og sjóðið í eina
mínútu. Takið því næst pottinn af
eldavélinni og frískið grænmetið
við með því að setja undir kalt
vatn. Því næst þarf að pressa allt
vatn úr hrafnaklukkunni. Takið
perlulaukinn, afhýðið hann, sax-
ið niður og mýkið á pönnu án
þess að brúna hann. Þetta á ekki
að taka nema mínútu eða svo.
Næsta skref er að setja ýsuna
með lauknum í hakkavél. Bætið
þá eggjunum út í og því sem eftir
er af smjörinu. Hrærið vel sam-
an.
Takið % af ýsunni og setjið til
hliðar. Hrafnaklukkunni er bætt
út í þriðja hluta físksins og þetta
hrært saman þar til komin er fag-
ur grænn massi. Kælið báðar út-
gáfumar af ýsunni í ca. 30 mín.
Hitið ofninn við 275 gráðu hita.
Setjið eitt lag (notið til þess
helminginn af hvíta fiskinum) af
ýsu í jólakökuform (eldfast
leirform er miklu skemmtilegra
og frambærilegra á borði en ef
það er ekki til á heimilinu gerir
gamla góða jólakökuformið ná-
kvæmlega sama gagn.)
Setjið því næst eitt lag af laxa-
ræmunum og ofan á það eitt lag af
græna massanum. Síðan er sett
aftur lag af þeim laxi sem eftir er
Matar-
hom
Mariu
og svo síðast afgangurinn af ýs-
unni. Setjið álpappír yfir formið
og leyfið kæfunni að bakast í 2Vi-
3 klst. Kælið vel áður en þetta er
borið á borð.
Peking önd
með rúsínusósu
Peking önd
85 gr rúsínur
1 perlulaukur
55grsmjör
salt
1 sneiðfranskbrauð
hveiti
1 matskeiðolía
4ræmurbacon
1 lítiðsherryglas
1.5 dl kjötsoð (hægt er að
komast hjá því að sjóða innyfl-
in íkjötsoð. í staðinn másetja
súputening í heitt vatn)
Setjið rúsínurnar á pönnu og
látið kalt vatn rétt fljóta yfir. Hit-
ið að suðu og látið malla í ca. 2-3
mín. Brúnið því næst perlu-
laukinn á pönnu en gætið þess að
hafa saxað hann niður fyrst. Setj-
ið brauðsneiðina inn í öndina.
Hitið ofninn við 200° hita.
Púðrið öndina með hveitinu.
Léttsteikið öndina því næst í einu
lagi á öllum hliðum. Bindið bac-
onið (beikonið) utan um öndina
og steikið í ofni í ca. 35 mín. Hell-
ið örlitlu vatni yfír 1-2 sinnum á
meðan steikt er. Takið baconið af
fuglinum fimm mín. áður en
steikingu er hætt. Þegar fuglinn
er tilbúinn skal slökkva á ofnin-
um ná í álpappír setja hann utan-
um fuglinn og geyma í ofninum
þar til hann er borinn fram.
Sósa
Setjið rúsínurnar á pönnuna
með afgangs fitu frá því fyrst og
bætið út í það kjötsoðinu. Látið
hitna og bætið síðan sherryinu út í
og látið krauma. Að lokum skal
salta eftir smekk.
Sítrónufroða
2 sítrónur
3 matskeiðar strásykur
1 glas þurrt hvítvín eða sherry
6 dl þeytirjómi
Rífið sítrónubörkinn og látið
hann liggja í legi með safa úr ann-
arri sítrónunni, sykrinum og vín-
inu. Látið liggja að minnsta kosti
í einn klukkutíma. Því næst skal
setja löginn í stóra skál, þeyta
rjómann og blanda honum út í
löginn. Berið fram vel kælt með
makkarónum.
LENGI BYR AÐ FYRSTU GERÐ.
Dagvist barna í Reykjavík rekur 61 dagvistarheimili
víðs vegar um borgina fyrir um 4000 börn á aldrinum
6 mán — 10 ára.
Megin viðfangsefni Dagvista er að búa hinum ungu
Reykvíkingum þroskavænleg uppeldisskilyrði í öruggu
og ástríku umhverfi í leik og starfi með jafnokum.
Við erum nú þegar um 600 manns sem önnumst þessa
yngstu borgara, en til að ná ofangreindum markmiðum
þurfum við liðstyrk áhugasamra einstaklinga.
Við óskum eftir: Fóstrum, þroskaþjálfum, uppeldis
fræðingum (BA — próf eða sambærilegt), einstaklingum
sem hafa öðlast reynslu við uppeldi eigin barna,
einstaklingum sem vilja öðlast reynslu í dagvistaruppeldi
fyrir væntanlegt nám.
Allar nánari upplýsingar um störíin gefur Fanny Jónsdóttir, deildarstjóri í síma 2 72 77 alla virka daga
frá kl. 9.00 — 16.00 og í síma 2 14 96 laugardag og sunnudag frá kl. 11.00 — 15.00